Óðinn - 01.09.1907, Side 7

Óðinn - 01.09.1907, Side 7
Ó Ð I N N 51 Metúsalem Magnússon er fæddur á Halldórsstöðum í Laxárdal 5. desbr. 1832. Magnús faðir hans var framkvæmdamaður mikill og Sigríður móðir hans skörungur til bú- sýslu og skapstór nokkuð ; efni þeirra hjóna voru góð og fjekk Metúsalem því betra uppeldi en títt var uin börn óríkra manna; enda reyndist hann kappsamur til fræðslu og öruggur til áræðis þegar í æsku. 9 vetra gamall misti hann föður sinn og fæddist síðan upp með móður sinni; fór liann snemma að sjá um húnað með henni og sást það brátt, að þangað stefndi hugurinn; hitt einnig, að liann mundi hvorki blautgeðja nje smátækur við kostnað þann, sem af húsabótum eður grasaukn- ing leiddi. Um tvítugsaldur lærði hann jarðyrkjustörf, sjerstaklega sljettun með plógi og herfi, af manni er numið hafði í Danmörku; Qekst Metúsalem um nokkur ár við þau störf haust og vor, en lieimili átti hann hjá móð- ur sinni. Á vetrum kendi hann unglingum skrift og reikning; Ijet honum það vel, enda er fögur rit- hönd arfgeng hjá þeim frændbálki. Þá var Metúsalem 25 vetra gamall er hann ílutti norður á Langanesstrandir; sást þá berlega að hann hafði hvorki verið tóm- látur nje smávirkur við sljettunar- starfið; dofnaði sá áhugi um hríð, er lijer hafði unnið að endurbót- um túngræðslunnar, við burtför lians með öðru fleira er til bar og tálmaði. Á Bakka á Ströndum hjó þá Þorsteinn ríki Eyfirðingur. Hann var merkilegur maður og ein- kennilegur að mörgu; nokkur voru börn hans og þóttu mannvænleg. Þorhjörg hjet dóttir hans gjaf- vaxta; liennar hað Metúsalem og var það að ráði gert; tókusl þar hrátt ástir góðar, og hjó nú Met- úsalem á hálfum Bakka og hafði mikið fje með að fara, en framkvæmd og áræði skorti eigi; tók hann nú að liúsa risulegan bæ og hafði mikið hú og gagnsamt; rausn og gestrisni með framkvæmdum í sveitarmálum veittu lionum ærið starf og var það honum vel að skapi. Stuttar urðu samfarir þeirra hjóna og and- aðist Þorbjörg eftir 5 ára samvistir; tregaði Met- rísalem hana jafnan þótt í hljóði væri; maðurinn var dulur á sín viðkvæmustu hjartansmál og hjeldu því margir hann kaldlyndari en í raun rjettri var. Dóttir þeirra Metúsalems og Þorhjargar er Sigríður á Húsavík, ekka Lárusar prests Eysteins- sonar frá Staðarbakka, en Magnús hjet sveinn, er andaðist í bernsku. Ekki þvarr rausn í biii við harm þenna; bjó hann fyrst með ráðskonu og fæddi upp meyna sem ástsamlegast, en þá leiddist hann til vín- drykkju; var á þeim dögum alment litið mildari augum til liennar en nú er, og eigi síður þar norð- ur á Ströndum en annarstaðar. Þótti þá rausn að veita óspart vín og vildi Metúsalem engin kot- bóndamerki sýna í því efni fremur en öðru. Hanu var hávær við vínið, sem flesta hendir, en svo sem leið á æfina minkaði hann þá nautn og varð þá maðurinn miklu gæfari og jafnlyndari. Árið 18(59 kvæntist Metúsal- em Karólínu dóttur Helga Helga- sonar og Halldóru Jónsdóttur; hjuggu þau á Helluvaði við Mý- vatn og voru fjáð vel. Karólína var einberni. Bjeðist hún til hús með honum að Bakka, en skamma stund festu þau þar yndi ; henni Ijek hugur heim til foreldra og átt- haga og hugur hans Inun einnig liafa þráð æskustöðvarnar frá því fyrri kona hans andaðist. Árið 1870 fluttu þau hjón sig frá Bakka og að Helluvaði og tóku þar við búsforráðutn; gerðist mikil rausn í búinu og þótti gestum gott að koma að því heimili, er hæði var lieimill heini og gleði hverjum manni. Helluvað er engjajörð lítil og þóttist Metú- salem þar varla mega halda risnu sinni fyrir þá sök; þá urðu önnur atvik til þess, að liann flutti þaðan eftir 9 ár að Einarsstöðum í Beykjadal. Þar skorti hvorki tún nje engi; gerði Metúsalem, þótt leiguliði væri, miklar og góðar umbætur í Einars- staðanesi — aðalenginu — og hafði mikinn kostn- að fyrir. Síðustu æríiár sín bjó Metúsalem á erfð konu sinnar, fullum fjórðungi Arnarvatns við Mývatn; tók heilsu hans að linigna og færði hann þá hú sitt saman. Sigríður var gift Lárusi presti og METÚSALEM MAGNÚSSON

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.