Óðinn - 01.03.1911, Blaðsíða 1
OÐINN
13. BLAl)
MARS 1»11.
VI. ÁR
Frú Kristín Krabbe.
Góð lieimili eru sólskinsblettir í þjóðlífinu.
Þau stafa frá sjer yl, er vermir og glæðir. Þau
hrekja skuggana úr sál hvers þess manns, er auðn-
ast það lán að dvelja innan vjebanda þeirra, og
gera hann hæfari til að verða liamingjusmiður
sjálfs sín og annara. Eitt
göfugt heiinili getur af sjer
mörg önnur í samtíð og
framtíð. Og því íleiri sem
slík heimili eru, þar sem
mannkærleiki, sanngirni og
bjartsjm trú á mátt hins
góða á sjer óðöl, því traust-
ari grunnur er þjóðþroskan-
um búinn og því bjartara
er yfir brautunum fram-
undan.
Menn eru vanir að segja
að það sjeu mikilmennin, er
hrindi mest áfram þjóð-
þroskanum, þeir mennirnir
sem mikilvirkastir eru í
listum, vísindum og stjórn-
málum. Jeg skal ekki bera
neina hrigð á það. En hitt
er víst, að orsakirnar til
framkomu þeirra manna
kvíslast eins og þjetlir þræð-
ir inn í skaut liðna tímans.
Og jeg hygg, að það sjeu ekki þrótlminslu rætur
þjóðkostanna, sem runnar eru frá lífsslarfi göfugra
kvenna, er borið hafa gæfu til þess að vera góð-
englar heimila sinna og göfgendur barna sinna og
annara þeirra manna, er þær kyntust. Tilvera
þeirra er hljóðlátari en þjóðskörunganna og því
sjaldnast að ágætum höfð í ræðum og ritum, enda
þótt niðjarnir eigi þeim löngum fult eins mikið að
þakka. Nöfn þeirra gleymast allfiestra, nema í
hjörtum nánustu ættmenna, óðar en grös eru gróin
á moldum þeirra. En gróðurinn, er óx í sporum
þeirra, dafnar á brautum niðjanna.
FUU KHISTIN KRABBE.
Ein þessara göfugu kvenna, er dreifa birtu og
blessun umhverfis sig, var frú Kristín Krabbe,
kona Haralds prófessors Krabbe.
Hún Ijest að heimili sínu í Kaupmannahöfn
14. ág. í sumar sem leið.
Frú K. var dóttir þjóðmálaskörungsins nafn-
kunna Jóns alþingismanns Gnðmundssonar og
konu hans Hólmfríðar Þor-
valdsdóttur Böðvarssonar, en
systir þeirra Þorvalds lækn-
is Jónssonar á Isafirði og
Sigurðar lieitins fangavarðar.
Öll voru þau systkin fædd
að Kirkjubæ á Síðu meðan
faðir þeirra hafði umboð
klaustursins, og var Kristín
þeirra yngst, fædd 25. maí
1841. Sex ára gömul flutt-
ist hún til Reykjavíkur með
foreldrum sínum, þá er faðir
liennar varð að láta klaust-
urumboðið fvrir sakir djarf-
mannlegrar framgöngu í
stjórnfrelsisbaráttu þjóðar
sinnar. Hún var og með
þeim vetrarlangt í Kaup-
mannahöfn 1850—’51. Þá
um vorið lauk faðir hennar
prófi í dönskum lögum. Upp
frá því dvaldi liún jafnan í
foreldrahúsum í Reykjavík,
þar til er hún giftist 1871 og fór alfarin af landi
burt með manni sínum. Þau höfðu kynst fyrst
1863, þá er prófessor Krabbe ferðaðist hjer um
land i vísindaerindum og gerði hina merkilegu
uppgötvun sína um orsök sullaveikinnar; varhann
þá löngum gestur á heimili Jóns Guðmundssonar.
Er svo að sjá sem honum hafi getist þar vel að
og fest þar hugi, þótt lítt Ijeti liann það uppi, sem
hans var jafnan vandi. Því sjö árum síðar kom
hann aftur og mælti þá til ráðahags við Kristínu.
Árið eftir giflust þau. Þegar að afloknu brúð-
kaupinu hjeldu þau til Kaupmannahafnar og sellusl