Óðinn - 01.03.1911, Blaðsíða 4

Óðinn - 01.03.1911, Blaðsíða 4
ÖÐINN 92 H. Schiöth bankagjaldkeri á Akureyri varð sjötugur 14. febr. {). á. og þykir því vel til lilýða að Óðinn (lylji mynd af honum. Hefur hann í meira en manns- aldur gegnt ýmsum opinberum störfum nyrðra og jafnan verið vinsæll, svo mörgum muu kært að sjá andlitsfall hans og Iesa nokkur orð um hann. Peter Frederik Henrik Schiöth heitir hann fullu nafni, fæddur i Nestved í Danmörku 14. febrúar 1841. Foreldrar hans bjuggu þar þá, og var faðir hans trjesmíða-ineistari, efnaður maður og vel metinn. Var hann sonur Jens Riddermanns Schiöth, er var doktor í heimspeki og skólameist- ari í Randers, en faðir lians var konunglegur her- skipaytirsmiður í Ivaup- mannahöfn og fenginn þangað frá Hollandi. Verður sú ælt ekki rakin frekar hjer. H. Schiöth ólst upp hjá foreldrum sínum, og lærði þegar í æsku brauð- gerð, bæði fínni og gróf- ari; fjekk liann Iljóll orð á sig fyrir dugnað í þeirri iðn, og sýndi það sig í því, að hann árið 1860 fjekk atvinnu á stærsla brauðgerðarhúsinuí Khöfn og varð hann þar svo yfirmaður þrem árum síðar, þá aðeins 22 ára gamall. Undi hann þá vel liag sínum, en árið eftir (1864) braust ófriðurinn út, er Danir mistu hertogadæmin. Var þá Schiöth kallaður í stríðið og tók síðan þátt í því til þess, er það var til lykta leilt. Hann kann frá mörgum svaðilförum að segja frá þeim dögum, en tregur er hann til þeirra frá- sagna, og setur oft hljóðan við, þegar hann er intur eftir þeim. Hann var í orustunni við Sankelmark og sýndi þar frækilega framgöngu. Að stríðinu loknu tók hann aftur við liinu fyrra starfi sínu, og leið svo og heið þangað til á jóladag 1867, að hann fjekk tilboð frá C. Höephner stórkaupmanni í Khöfn um það, að fara lil íslands og reka þar brauðgerðariðn fyrir Höepfner. Varð það úr að hann tók því boði, og leit liann svo sjálfur á og þau hjón bæði, að á íslandi yrði að- eins bráðabirgðardvöl, en hún er nú orðin yfir 40 ár. Hann ljet í haf frá kaupmannahöfn, með konu sína og dóttur níu mánaða gamla, 8. apríl 1868, á seglskipi, er Höepfner átti. Ferðin gekk vel og komu þau til Akureyrar heilu og höldnu eftir 12 daga ferð frá Khöfn. Áður en Schiölh kom til Akureyrar, var ekkert brauðgerðarhús á öllu Norður- og Austurlandi, og varð hann því fyrsti brauðgerðarhússforstjóri á því svæði. Hafði hann það starf á hendi í full 80 ár og rækti það jafnan með mestu samviskusemi og dugnaði. Kendi hann á því tímabili ýmsum Is- lendingum iðnina, er hafa orðið dugandi menn í þeirri ment. 1. janúar 1879 varð Schiöth póstafgreiðslu- maður á Akureyri og gegndi því ábyrgðarmikla starfi í full 25 ár, cða til 1. sept. 1904. Var það starf allan þann tíma mjög illa Iaunað og ólíkt því, sem nú er orðið, enjafnan Ieysti Schiöth það af hendi með stakri reglusemi og nákvæmni í hvívetna, og er lipurð lians og greið- vikni sem póstafgreiðslu- manns, frá þeim árum, oft brugðið við meðal manna nyrðra og mörg- um í fersku minni, ekki síst nú hin síðuslu árin. — Þegar »Sparisjóður Akureyrar« var stofnaður 1885, varð Schiöth gjaldkeri sjóðsins og var það alla stund síðan lil þess, er wíslands banki« hóf starfsemi sína 1904 og tók við sjóðnum, að Schiöth varð gjaldkeri við útibú bankans á Akureyri og hefur verið það síðan. Það er mál manna, að ekki mundi auðfenginn lipurri bankamaður en Schiöth, er eins legði sig í framkróka að greiða úr vand- ræðum þeirra, er til stofnunar þeirrar leiluðu, er hann starfaði við. Reyndi ekki minst á það við sparisjóðinn, áður en bankarnir komu, er jal'nan II. SCHIÖTH.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.