Óðinn - 01.03.1914, Qupperneq 7

Óðinn - 01.03.1914, Qupperneq 7
ÓÐINN 95 málfræðinga er að mörgu leyti hið fegursta, og áu efa hið fjölbreyttasta og fullkomnasta, sem heim- urinn hefur þekt. Sagnbeyging grískunnar t. d. stendur alveg sjerstök; fullkomin grísk sögn er talin að hafa rúmlega 500 myndir, þar sem latina, sem er annað fagurt og fullkomið mál, hefur sögn með eitlbvað um 150 bej'gingarmynd- um. Einnig hefur grísk lunga þann hæfileika að framsetja hugsun svo nákvæmlega og með þeim meiningarblæ, sem er oft erfitt og stundum ó- mögulegt að þýða á aðra tungu. En þetta á yfir höfuð fremur við um hina fegurstu grísku, þ. e. bókmentamálið. Gríska Nýja Testamentisins er talsvert frábrugðin því, og er fremur almúgamál en bókmentamál. Guðspjallamaðurinn Lúkas ritar fegursta grísku af öllum höfundum Nýja Testa- mentisins. Síðan jeg tók þetta síðasta próf, sem jeg hef minst á, hef jeg aflað mjer þekkingar á grisku yfir höfuð; auk þess hef jeg dálítið byrjað á latínu. Þetta, með mörgu öðru, sem jeg les og starfa að, er ef til vill eins mikið og vonast verður eftir af verkamanni, sem verður fyrst af öllu að vinna 10 kl. st. harða vinnu á hverjum degi, stundum meira. Og þegar þess er enn fremur gætt, að jeg var kominn yfir fertugt áður en jeg þekti staf í grísku, þá verður það Ijóst, að nám er mjer orðið erfiðara en þegar jeg var á unga aldri; en jeg hef meiri áhuga á því, og það veitir mjer meiri ánægju nú en nokkurn tíma áður. Stundum er jeg spurð- ur að, hvað lengi jeg ætli að vera að læra. Jeg svara: »Svo lengi sem jeg lifi, vona jeg«. Aðrir spyrja, hvaða gagn það veiti mjer. Þessu er ekki eins auðsvarað; því það er vanalega tilgangslaust að reyna að sannfæra menn, sem þannig spyrja, um, að það nám, sem ekki verður metið til pen- inga, sje nokkurs viiði. Jeg er hræddur um að íslenskan min sje orð- in heldur veikluð; eða öllu heldur: hún hefur engum þroska tekið síðan jeg kom hingað. Mínar þroskuðustu hugmyndir hef jeg í gegnum enskuna, og mjer er orðið miklu auðveldara að framsetja hugsanir minar, og einkum um trúarbrögð, á ensku. — — Mjer er ekkert kappsmál að neitt birtist á prenti sjálfum mjer viðvíkjandi. En ef það gæti vakið alhygli einhvers ungs manns, sem hefur hæfileika til að læra, og gefið honum hvöt til að auðga anda sinn að nytsainlegri þekk- ingu, jafnvel þó kringumstæðurnar virðist honum andstæðar, ef það gæti vakið löngun hjá hinum ungu, sem þetta kynnu að lesa, til að verja nokkru af þeim tíma, sem nú er lálinn ónotaður, eða not- aður til gagnslílilla skemtana, til einhvers þess náms, sem má auka andlegan þroska þeirra og gera þá nýtari meðlimi þjóðfjelagsins, — þá næðu þessar línur þeim tilgangi, sem jeg æski eftir. Einn af hinum yngri háskólum Englands hefur tekið sjer fyrir »einkunnarorð« latneskt spakmæli, er svo hljóðar: »Per ardua ad alta«, sem á brúklegri íslensku þýðir: »Með erfiði er hæðunum náð«. Og þetta er algildur sannleikur bæði í ríki nátt- úrunnar og í ríki andans. Með ástríkri kveðju til fósturjarðarinnar. Ó. Gislason. <& Nokkrar hringhendur. Geislar fækka, beinaber brúnir hækkar vetur. Skuggar stækka, skúrin þver, Skinið lækkar betur. Klöknar njólu kalda brá, kemur ról á fossinn, þegar hólar freðnir fá fyrsta sólarkossinn. Skinið hrindir skör af ál, skýrast myndir hylja; tala vindar vorsins mál, vötn og rindar skilja. Frikka hólar, holt og grund, hnignar njólu valdi, enn þá rólar árdagsstund undan sólar tjaldi. Greiða vindar gisin ský, geislar tinda lauga. Blíðu myndir birtast i bláu lindar auga. Geislar flýja, grundin því grætur nýjum tárum; dagar hlýir drukna i dökkum skýja bárum.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.