Óðinn - 01.02.1917, Page 3

Óðinn - 01.02.1917, Page 3
ÓÐÍNN ljósi hlærcí1) (Klakksvik) og skeiðflötur er fram- rjett kinn, sem fær »hófakossinn sinn« (Um Hólm- inn). Skógur er í skáldskap H. H. einsog annara íslenskra skálda staður elskenda og þar er foss: »og forsæla blíð og foss er í hlíð« (Sjóferð), hrísl- urnar hvísla (í skóginum). Björk er algengust í kvæðum H. H., af þvi hún er íslensk; þess vegna »syngur lóa í bjarkaþyt« (Vorvísur 17. júní 1911). Á Skeljástöðum í Ujórsárdal bylgjast kornöx við gerði »og gróin björk þylur hægan óð«. Um storm- inn er sagt: »og bjarkirnar treystir um leið og þú þýtur« (Stormur). Ennfremur má benda á, að grenitrje í Heine-kvæðum verður að björk í þýð- ingu H. H. (sjá síðar). Ulómin gráta (Árni Finsen), er daggardroparnir hniga2). Þá verður nujrkur og þoka að lifandi verum: »hanga þar skuggar á liroðaklettum, hengdir draugar með svipum grett- um« (Við Valagilsá), »um slíka gráa tungls og næðingsnótt er næsta margt og undarlegt á sveimi« (Næturferð), »hnígandi mjrrkurl ílýt þjer og fel mig« (Á siglingu). Andstæðum íslenskrar náttúru hefur oft verið lýst í ísl. skáldskap alt til Stepháns G. Stephánssonar. H. H. lýsir landinu í íslands- vísum: »Landið bliða, landið stríða, landið hrauns og straumafalls, landið elds og hrímgra hlíða«3), »— í heimkynni jökla og báls« (Upp að Hólnum). í ótal mörgum kvæðum bendir H. H. því á, hversu landslag og loftslag móti einstaklinginn: »afl og fegurð, ofsareiði og friður í þjer mætist, töfrasterki niður« (Gullfoss), »Alt, sem vjer lílum af urðum og hel, uppblæstri, kviksyndi, hraunum og voða, minni oss að elska og verja það vel, sem vernda má ennþá, og framtíð má stoða« (Ferð lokið)4 5), »brjóst mitt lyftist af löngun og trega sem aldan á eilífum sjá« (Á siglingu), »Kvikstreymu vötn, þið, sem kastið nú böndum, kennið oss að fylgjast i aflþjettum straum«6) (Sumarkveðja). Um storminn: »þegar þú sigrandi um foldina fer, þá finn jeg, að þrótlurinn eflist í mjer« (Stormur), »hver tindur eygir upp og fram, hver úlnesskagi 1) sbr. t. d. Jónas H.: whlógu hliðar við liiminljósi« (Til vinar mins). 2) hlómin gráta hjá mörgum isl. skáldum, shr. t. d. Jónas H.: »grjetu pá i lundi góðir hlómálfar« (Ferðalok). 3) sbr. t. d. Bjarni Thor.: »Undarlegt sambland af frosti og funa, fjöllum og sljettum og hraunum og sjá« (ísland). 4) sbr. Bjarni Thor.: »Fjör kenni oss eldurinn, frostið oss herði, fjöll sýni torsóttum gæðum að ná—« (ísland). 5) shr. t. d. Holg. Drachmann: »Lær mig med dine Bölger frcm at skumme« (Skænk mig —). bendir: fram« (ísland). í engu kvæði H. H. er náttúrukend hans eins næm og glögg eins og í smákvæðinu Brot af kvæði og minnir náttúrutil- beiðsla hans þar á margt af því fallegasta í ró- mantiskum skáldskap annara þjóða, eins og t. d. ávarp Fausts í »Wald und Höhle« eða ýms smá- kvæði Goethes. í áðurnefndu kvæði segir skáldið við sálu sína: »Kom, flýt þjer, fljúg og fleyg þjer nú að náðarbrunni í náttúrunni. í henni er lífið og framtíðin falin«. »— Kom, blanda þjer, sál mín, við læki og lindir og leita, ef gullæðar nýjar þú fyndir«. »— Nem hreinleik af tindanna tárhreinu mjöllum og tign af þeim rólega gnæfandi fjöllumw1). Og i mörgum öðrum kvæðum hans (t. d. Fjall- drapi, Fjallablóm) er náttúrukend hans næmari en hjá flesluin öðrum íslenskum skáldum. II; Kvæði þau, er snerta persónulegt lif skáldsins, eru mörg og margvísleg. Af ástakvæðunum má kenna fegurðarsmekk hans. Hárið er ljóst eða dökt eins og í íslenskum skáldskap venjulega2), sálin fagurhreinn spegill (Ást og ótti), kinnarnar bera liljur (Ljósir lokkar) o. s. frv. Fegurð lín- anna vakir fyrir honum og hver lína verður að lífi: »brjóst í öldum þandist þýðum — það var sál í hverjum boga« (Ljósir lokkar), og minnir þetta á Jóh. Sigurj., er hann lætur Steinunni segja við Galdra-Loft: »Einu sinni sagðir þú mjer, að þessar silfurmillur (á bolnum) væru lifandi, — þær ættu hver sína sál« (1. þáttur). Fegurðar- kendin vekur mörg ljóð til lífs og segir H. H. um hana í kvæðinu Kveld: »Fegurðin kallar alt, sem vjer unnum, alt, sem vjer þráum, fram í sál. Hljóðlega streyma huldum frá brunnum hjartn- anna instu leyndarmák. Annars sýnir flokkun kvæðanna í nýju útgáfunni, hver viðfangsefni eru skáldinu tíðust og geðfeldust. Má af þessum kvæð- um glögglega sjá líf skáldsins sjálfs, afskifti hans af opinberu lífi, stjórnmálum (t. d. í hafísnum). Mörg þeirra eru kunn hverju mannsbarni, einkum eggjunarkvæðin, en ótímabært er enn að marka afstöðu hans til samtíðar sinnar. Trúmálaskoðun- um sínum hefur hann breytt frá fyrri tímum. í fyrri kvæðunum er guð sá venjulegi skáldaguð, 1) sbr. Jónas H.: »tign býr í tindum, en traust í björg- um, fegurð i fjalldölum, en í fossum afl —« (Kveðja íslendinga til Alb. Thorvaldsens). 2) sbr. ritgerð mína: Um fegurð kvcnna í nýísl. skáldskap, Edda, 1916, 2.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.