Alþýðublaðið - 06.10.1963, Page 1
MWWWMUVMWWWWWUWVVMWMMUtWWWWWMWMWHVMWVWViVWVtWW
44 ár. — Sunnudagur 6. október 1963 — 116, tbl.
14 ára, ölvaður
á stolnum bíl
Reykjavík 5. okt. KG.
FJÓRTÁN ára sraniall drengur
undir áhrifum áfengris, stal rétt
firði. Hann ók bílnuin út fyrir bæ
inn o£r hvolfdi honum, og eru
skemmdimar rnetnar á 20—30 þús
fyrir hádegi- í dag bíl í Hafnarf- und krónur.
Skátakakó
í tjaldi við
Grensásveg
Reykjavík, 5. okt. E.G.
SKÁTAFÉLAG Reykjavíkur er
um þessar mundir að hefja vetr-
arstarf sitt. í dag verður innritun
lijá Sturlungadeild, og eiga þá all-
ir, bæði skátar og ylfingar að láta
innrita sig, hvort sem þeir hafa
starfað áður, eða era nú að hefja
skátastarf í fyrsta sinn.
Starfssvæði Sturlungadeildar
miðast við svæðið sunnan Suður-
landsbrautar og austan Kringlu-
mýrarbrautar.
Innritunin fer fram í skáta-
tjaldi á Háaleitishæð við Grens-
ásveg. Skátarnir munu þarna sýna
ýmis konar skátaíþróttir og leiki,
að auki mun verða þaraa til reiðu
handa hverjum sem vill, heitt ka-
kó, sem jafnan er vinsæll drykk-
ur í skátaútilegu. Innritunin verð-
ur milli kl. 2 og 6.
Eigandi bílsins átti erindi í fisk
iðjuverið og skildi hann eftir þar
fyrir utan og lyklana í, þar sem
hann bjóst við að verða fljótur í
förum. Pilturinn átti leið þama
framhjá, gerði sér lítið fyrir og
stal bílnum. Hann ók vestur á
Garðaveg og var á leið aftur í bæ
inn. Þegar hann var rétt við Garðs
horn lenti liann i lausamöl með
þeim afleiðingum að bíllinn fór út
af og hvolfdi. Þegar lögreglan kom
á staðinn var pilturinn allur á bak
og burt, en fannst skömmu síðar
á gangi í Hafnarfirði.
Hann var fluttur á lögreglustöð
ina og játaði þegar á sig þjófnað
inn. Gerð var á honum og vínpróf
un og reyndist hún jákvæð, játaði
hann þá að hafa drukkið einn og
hálfan bjór um borð í skipi sem
liggur í höfninni. Pilturinn slasað
ist ekkert en bfllinn skemmdist
mikið og er talið að viðgerð muni
kosta milli 20—30 þúsund krónur.
Hungur viö dyr
kommúnistaríkja
SOVÉTRÍKIN hafa síðustu vikur keypt geysilegt magn af hveiti í Kanada og Ástralíu, og
vilja kaupa enn meira í Bandaríkjunum. Tékkóslóvakia og Búlgaría hafa farið fram á hveitikaup.
við Bandaríkjamehn, og loks er vitað, að Kínverjar leita fyrir sér um hið sama á Vesturlöndúm.
Pólverjar hafa fengið bandarískt kora árum saman.
Þessar fréttir gefa berlega tH kynna, að stórfelldur hveitiskortur sé nm öll ríki kommúnis-'
mans, frá Mið-Évrópu tU Asíustranda. Hér er ekki aðeins um uppskerubrest aö ræða, heldur'
stórfelld mistök, í landbúnaði, sem Krústjov og fleiri foringjar komm- •;
únista hafa margoft viðurkennt í ræðum sínum. ' ' s
Staðreyndin er þessi: Kommúnisminn hefur gersamlega brugð-
izt á sviði landbúnaðar. Ríkin, sem hafa neytt bændur í samyrkiu-
bú og komið kommúnistískri skipan á landbúnað sinn, geta eiíki
brauðfætt sitt fólk. Og hvaða dómur er þyngri um þjóðskipulag en
þessi?
Austur-Evrópa og Sovétríkin eru ágæt lönd, þar sem aðstæður
eru tU blómlegs landbúnaðar. En kommúnisminn hefur eyðilagt framleiðsluna _ og fólkið vaut-
ar kora í brauð sitt næsta vetur.
Og hvert leita kommúnistar, þegar stefna þeirra bregzt svo hrapalega og kornskortur vof-
ir yfir? Hverjir eru aflögufærír um matvæli? Það eru bændur lýðræðisríkjanna, þar sem hóf-
leg ríkisaðstoð og framtak frjálsra bænda fara saman.
★ London, 5. okt. Home, lá-
varður, utanríkisráðherra Breta,
hélt flugleiðis til London í dag
frá New York, þar sem hann hef-
; ur verið og rætt við utanríkis-
j ráðherrana Ðean Rusk og Andrei
Gromyko. Einnig gekk hann á
I fund Kennedys forseta í Hvíta
I húsinu.
WWWMWWWWWWWWWWWWilWWWWWWWWWWWWWWVWVO
Lögfræðingur hjá borginni uppvís að fjármálamisferii:
TÓK VID FÉ, EN
GERÐI EKKI SKBL
Reykjavík, 5. okt. — HP.
Á sínum tíma byggði Reykja-
víkurborg nokkur íbúðarhús við
Gnoðarvog og seldi einstaklingum
íbúðirnar. Munu flestir,- sem í-
búðirnar keyptu, hafa flutt í þær
1959, en fyrstu afborganimar
átti að greiða á árinu 1960. Ekki
alls fyrir löngu tóku eigendunum
að berast innheimtubréf frá
Reykjavikurborg fyrir greiðslum
af íbúðalánum, sem þegar höfðu
verið inntar af hendi og kvittan-
ir eru til fyrir. Við rannsókn hjá
endurskoðunardeild borgarinnar
hefur komið í Ijós, að háttsettur
lögfræðingur í þjónustu Reykja-
víkurborgar hefur ráðstafað
greiðslufénu, sem íbúðir Gnoðar-
vogsíbúðanna höfðu reitt af
hendi, á ólöglegan hátt og gerzt
wwwwwwwwtwww
FYRST8
RAFMAGNSI
HEItlNN
FYRSTI rafreiknirinn (raf-
magnsheilinn) kom til íslands í
gær. Rafreiknir þessi er aðal-
lega notaðnr til vísindalegra
rannsókna og verður hér aðeins
í þr jár vikur, en þá verður hann
fluttur til Finnlands. Rafreikn
irinn verður hér til kennslu fyr
ir þá menn, sem tekið hafa þátt
í Fortran-námskeiðum, en Fortr
an er það tungumál, scm raf-
reiknirinn skilur. — Ljósm.
Alþýðubl. Jóhann Vilberg.
Sjá frétt á baksíðu.
þannig sekur um alvarlegt mis-
ferli í starfi.
Alþýðublaðið spurðist fyrir um
þetta mál í dag hjá Guttorn'i Er-
lendssyni, forstöðumanni eidur-
skoðunardeildar Reykj avíkurborg-
ar. Hann sagði, að málið væri í
athugun hjá deildinni, og væri
rannsókn hennar langt komín,
þannig að málið yrði lagt fyíir
borgarráð í næstu viku. Við rann
sóknina hefur komið í ljós, að á-
stæðan til þess, að farið var að
krefja kaupendur Gnoðarvogsí-
búðanna um greiðslur af íbúðalán-
um, sem þeir voru búnir að borga
og fá kvittun fyrir hjá borgar-
skrifstofunum, er sú, að lögfræð-
ingurinn, sem flæktur er í málið,
hefði ráðstafað þessu greiðslufé
á eigin spýtur án samráðs við
rétta aðila, en þegar það kom
ekki fram, var tekið að innheimta
það að nýju. Hefur því þessi borg-
arstarfsmaður farið langt út fyr-
ir sín embættistakmörk að því
er snertir ráðstöfun fjárins, sagði
Guttormur. Hins vegar virðist
lögfræðingurinn ekki hafa dregið
sjálfum sér neitt af fénu.
Ekki hefur verið nægilega
kannað, hve lengi fénu hefur ver-
ið ólöglega ráðstafað. Aðeins skal
á það minnt, að fyrsta afborgun
átti að fara fram árið 1960, svo
að ekki getur verið nema um
rösk þrjú ár að ræða. Ekki er
heldur víst, hve há upphæðin er,
sem um er að ræða, en ástæða
er til að ætla, að liún sé talsvert
há, því að þó nokkrir kaupend-
anna munu hafa verið rukkaðir
í annað sinn.