Alþýðublaðið - 06.10.1963, Side 2
v Ritstjórar: Gylfi Gröndal (ábj og Benedikt Gröndal. — Fréttastjóri:
- Arni Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltriii: Eiöur Gúðnason. — Símar:
y 14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðúhúsið við
Hverfisgötu, Reykjavík. —■ Prentsmiðja AlþýðublaQsins. — Áskriftargjald
t; kr. 80.00. — í lausasölu kr. 4.00 eintákið, — Útgéfandi: Alþýðuflokkurinn.
'ú ." v ; • /.. . -j* • • ■ '■
SÍBS 25 ÁRA
SAMBAND íslenzkra berklasjúklinga iminnist
nú 25 ára afmælis sins. Þegar þessi samtök voru
stofnuð voru berklar enn algengiir sjúkdómur hér
á landi. Nú hefur berklum verið útrýmt að heita
. má; þökk sé framgangi heilbrigðisyfinvalda og
starfsemi berklasjúklinganna sjálfra.
SÍBS hefur .unnið merkilegt starf. Það starf
hefur vakið athygli bæði hérlendis og erlendis.
Vinnuheimili samtakanna að Reykjalundi, hefur
hvarvetna þótt til fyrirmyndar. Þar hafa berkla*
sjúklingar átt kost á þægilegri vinnu við sitt hæfi,
og þar hafa verið sköpuð verðmæti með vinnuafli,
sem annars hefði ekki verið unnt að nýta.
Samtök berklasjúklinga hafa ekki valið þá leið
að draga úr eða minnka starfsemi sína þótt berkla-
sjúklingum fækkaði. Heldur hefur starfseminni
verið beint inn á aðrar brautir; brautk þar sem þörf
á umbótum og aðstoð var knýjandi. Stofnað hefur
verið vinnuheimili hér í Reykjavík, Múlalundur,
þar sem fjöldi öryrkja starfar að nytsamlegum
, störfum, og öðlast trú á lífið og tilveruna að nýju.
Fæst af þessu fólki er samkeppnisfært á hin-
um almenna vinnumarkaði. En með aðstoð sér-
fróðra manna og góðri umönnum geta örykjar unn
ið að verðmætasköpun til hags fyrir þjóðarbúið og
sjálfum sér til góðs. Vinnuaflið er dýrmæt auðlind
og í allra hag að nýting þess sé sem bezt.
Samband íslenzkra berklasjúklinga hefur nú
áldarfjórðungs heilladrjúgt starf að baki. Stórvirki
hafa verið unnin með hag þeirra sem minnst mega
aín fyrir augum. Enn bíða stór verkefni úrlausnar.
.Vonandi verður glíman við þau til þess eins að
styrkja og efla samtökin í hvívetna.
HÚSABRASK OG AFFÖLL
TÍMINN OG ÞJÓÐVILJINN endurprenta og
myndskreyta ádeilu úr leiðara Alþýðublaðsins í
fyrradag, þar sem húsbrask. og verðbréfasala með
áfföllum var harðlega gagnrýnt. Segja þessi blöð
eins og venjulega: Svona er viðreisnin! Þama sjá
menn, jafnvel Aiþýðublaðið getur ekki orða bund-
izt!
En meðal annarra orða: Var ekkert húsahrask
í landinu, þegar framsókn og kommúnistar voru í
stjórn? Af hverju stöðvaði framsókn ekki verð-
bréfasölu með afföllum, þegar hún var í stjórn 1950
—-58?
' Nei, viðreisnin fann ekki upp húsahrask eða
afföll á skuldahréfum. Hvort tveggja var til fyrir
hennar daga, en hefur stórminnkað í tíð núverandi
stjórnar, þar til í sujnar og haust.
M .:■
2 6. okt. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Á MORGUN
Látið ekki HAP.
úr hendi sleppa!
Við drögum ann-
að kvöld um einn
VOLKSWAGEN
og fimm EITT ÞÚSUND króna auka-
vinninga! — Þessu megið þið ekki gleyina:
HAB gefur stærslu vinningsmöguleikana,
af því að HAB er eina happdrættið á land-
inu, sem býður upp á AÐEINS 5000
NÚMER. — Aðalumboðið á Hverisgötu 4 er
opið til kl. 8 annað kvöld.
MUNIÐ: Það er til bíls að vinna annað
kvöld og fimm 1000 króna aukavinninga OG
AÐEINS 5000 NÚMER!
H A B
Gaflabuxur
m/tvöföldum hnjám.
Við Miklatorg.
Radargæzla
Framh. úr opnu
bíla mundi minnka feikilega strax
og helztu vegirnir hcfðu verið
steyptir eða malbikaðir.
Fjárskortur stendur í vegi fyrir
mörgum framkvæmdum, sem í
rauninni mega alls ekki dragast.
Eg get sem dæmi nefnt Elliða-
árbakkuna. Við höfum unnið lengi
að því að reyna að fá hana lag-
færða. Við viljum að þar verði
settar tvær akreinar upp, önnur
fyrir hæga umferð, eins og til
dæmis þunga flutningabíla og
hin fyrir hraðari umferð. Niður
brekkuna yrði svo aðeins ein ak-
rein, því brýrnar á Elliðaánum
bera hreinlega ekki meiri um-
ferðarþunga. Fjárskortur hefur
lengi staðið í vegi fyrir þessari
bráðnauðsynlegu framkvæmd.
Unglingar
Rafeindaheili
Framh. af 16. síðu
voru aðeins 7 manns hjá IMB í
Syíþjóð, en nú vinna þar rúmlega
1400 manns. í Danmörku og Finn-
landi eru þeir 700 í hvoru landi,
cn 500 í Noregi. Ég vinn íyrir
Norðurlöndin öll og þessvegna er
ég hér. Nei, ég hefj ekki verið hér
áður, en bróðir minn var um tíma
á Akureyri, í sambandi við sænska
fiskveiðiflotann. Ég er hér á landi
til að athuga stöðu 1MB, til sam-
anburðar við hin Norðurlöndin.
Mér finnst íslenzka ríkið, í nánum
tengslum við Hagstofuna. geta
náð mjög miklum árangri og upp-
lýsingum, með áætlunarbúskap í
framtíðinni. Samræmd staða okk-
ar og annarra Norðurlanda, er
mjög nauðsynleg við gagnaúrvinn-
slu.
— Eru vélar sem þessar mikið
notaðar erlendis?
— Þessar vélar hafa verið á
markaðinum í nokkur ár og þar
á meðal á Norðurlöndum. Þar eru
þær meðal annars notaðar í liá-
skólum, til vísindalegra rannsókna.
Píanókennsla
Er að byrja aftur að kenna.
Emilía Borg,
Laufásvegi 5,
Sími 13017.
MWMWMWWWWMMMWMIMi
I FUNDUR Kvenfélags Al- !«
þýðuflokksins í Reykjavík ! >
verður í Iðnó, uppi, næstk. <;
þriðjudagskvöld kl. 8,30. — jj
Fundarefni: Ýmis áríðandi ;!
félagsmál. -Formaður fé- !!
lagsins segir frá alþjóða- !;
þingi jafnaðarkvenna, sem ! •
haldið var í síðastliðnum j;
mánuði. Ilaraldur Guðmunds |!
son, fyrrum sendiherra og J!
frú, verða gestir fundarins. !;
Félagskonur eru beðnar að ! j
f jölmenna og taka með sér j;
gesti. ; [
WMWMMWMWWMWWWMMIi
rCVloti&
d bííinn
Framh. af 16. síðu
október nema í fylgd með fullorðn
um. Börn frá 12-14 ára mega ekki
vera á almannafæri, seinna en kl.
22 á tímabilinu frá 1. október til
1. maí og ekki seinna en kl. 23 frá
1. maí til 1. okt. nema í fylgd
mcð fullorðnum.
Það HREINSAR, GLJÁIR, VRRNDAR
lakkið og allt króm í SAMA VERKINU.
FÆST A BENZÍNSTÖÐVUM.