Alþýðublaðið - 22.10.1963, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 22.10.1963, Blaðsíða 5
Tvö lagafrumvörp voru lögð fram á þingi í gær. Stjórnarfrumvarp að skipulags- Iögum. Er það í aðalatriðum sam- hljóða frumvarpi, sem samið var af skipulagsnefnd ríkisins og flutt á Alþingi 1961 — 1962. Þá var og lagt fram frumvarp til laga um áfengisvarnarsjóð. Flutningsmenn eru Þórarinn Þór- arinsson (F) og Sigurvin Einarsson ÍF). Það var flutt á síðasta þingi, en varð þá ekki útrætt. SKRANING OLVUNARTIL- FELLA VERDIIEKIN UPP EFTIRFÖR Framhald af 1. síðu verið að leita að henní, þegar varðskipið kom að honum. Þess má geta, að skömmu eftir aö f varðskipið kom að togaranum, I var kastaö út baufu, og er AI- bert gerði mælingar á henni í morgun, reyndist hún vera 2,6 mílur fyrir innan. i Réttarhöld í máli Olsen, munu fara fram á morgun. Flóðbylgjan Framhald sf I. siðu. sem nýlega hafði verið keyrður í hann. Meðfram strandlengjunni neðan við þorpið er nokkuð hár malarkambur, sem virkar að nokkru leyti sem varnargarður. Mun malarkambur þessi hafa lækk að á löngu svæði er aldan æddi yfir hann og sögðu sumir, að hann hefði lækkað til muna á 700 m. kafla. Ekki varð neitt tjón á höfninni né þeim mannvirkjum, sem henni tilheyra. En mikil mannvirki eru nú skemmd fyrir ofan hafnar- garðinn vegna framkvæmdanna við hann. Reykjavík, 21. okt. EG Dómsmálaráðherra. Bjarni Bene diktsson, (S) mælti í dag í neðri deild fyrir frumvarpí til laga um meðferð ölvaðra mann og drykkju sjúkra. í frumvarpi þessu eru ýmis nýmæli, meðal annars er gert ráð fyrir því, að tekin verði upp ná- kvæm skráning ölvunartilfella, og að stofnaður verð; sérstakur sjóð- ur, gæziuvistarsjóður, sem fái til umráða 7,5 miiljónir króna af á- góða áfengisverzlunar ríkisins. Hlutverk sjóðsins er fyrst og fremst að standa undir kostnaði við framkvæmd laganna, og auka og reisa stofnanir. sem gert er ráð fyrir í lögunum. Lagafrumvarp þetta var lagt fram á síðasta þingi, en varð þá ekki útrætt. Dómsmálaráðherra, sagði meðal annars, er hann fylgdi < frumvarpinu úr hlaði, að helztu breytingar, sem það gerði ráð fyr- ir væru, skráning ölvunartilfella, sem talin væri nauðsynleg til að fá betra yfiriit yfir, að kostnaður- inn við meðferð drykkjusjúklinga yrði greiddur á sama hátt og ann- ar sjúkrakostnaður. Nú er gert ráð fyrir mun meira fé til þessara mála en nú væri, eða fimm millj- ónum hærri upphæð, en nú. Ráð- herran gat þess í ræðu sinni, að felld hefðu verið niður í frumvarp inu ákvæðin um, að Kleppsspital- inn hefði yfirsjón þessara mála, þar eð það hefði ekki þótt heppi- legt. Tveir aðrir aðilar, hefðu nú með höndum lækningar drykkju- sjúkra, en það væru Áfengisvarna- og Bláa Bandið. Kleppsspítalinn hefði tekið við þeirri starfsemi er Bláa Bandið hélt uppi í tveim húsum við Flókagötu, ennfremur hefði spítalinn á sínum snærum drykkjumannaheimilin í Gunmrs- holti og við Úlfarsá. Kvað hann alls ekkí ætlast til, að ríkið heCði hér neina einokun á þessum mál- um, og hefðu bví ákvæðin um yfir- stjórn Kleppsspítalans verið felld niður. Máiinu var síðan vísað tii 2. um- ræðu og heilbrigðis- og félags- málanefndar. Oullfaxi Eenti i fuglanopi Isafirði, 21. okt. — BS-HP. í gærdag kl. 12,30 varð GulL- faxi, Viscount Flugfélags íslands, fyrir verulegum skemmdum í Icndingu á ísafirði. Gullfaxi var í aðflugi og áformaði að lenda út brautina. Er vélin var yfir innri enda flugbrautarinnar, sá flug- maðurinn mikinn mávabóp yfir hlíðinni hægra megin við braut- ina. Ilætti hann þá við lending- una og ætLaði að freista þess að komast framhjá mávahópnum með því að hefja vélina upp fyrir hann, en lenti ofarlega í mávagcr- inu. Margir fuglar skullu á vél- inni með þeim afleiðingum, að nef vélarinnar og vinstri vængur dældaðist töluvert, auk þess sem vinstri vængurinn rifnaði nokkuð utan til við mótorinn. Vélin lenti skömmu síðar, og gekk lendingin ágætlega. Loft- ferðareftirlitið heimilaði að fljúga Gullfaxa suður án farþega, en far þegar suður voru svo margir, að hvert sæti vélarinnar hefði verið skipað. Síðar um daginn sendi Flugfélagið Douglasvél að sækja farþegana. Hér er um mikið fjár- hagslegt tjón að ræða fyrir Flug- félagið. Auk viðgerðarkostnaðar, hlýzt tjón af því, að Gullfaxi getur ekki gegnt áætlunarflugi næstu daga. Átti hann t. d. að fara til útlanda í morgun. Mikil mávamergð heldur sig oft í nánd við flugvöllinn, og er fyr- irsjáanlegt, að gera þarf sérstakar ráðstafanir gegn þ'eim. Þeir halda sig einkum í hlíðinni ofan við brautina. Á sumrin halda Dougl- asvélar daglega uppi áætlunarflugi hingað, en fimm daga í viku vetr- armánuðina. Mávarnir eru orðnir : svo vanir vélarhljóðinu í Dougl- | asvélunum, að þeh’ sitja að mcstu kyrrir, þótt þær fljúgi yfir. Aftur á móti styggjast þeir og fljúga gjarnan upp við vélargný Viscount vélanna sem hingað koma stöku sinnum. Lækkun kosn- ingaaldurs Alþýðuflokkurinn hefur haft það á stefnuskrá sinni um skeið að lækka beri kosningaaldur í landinu niður í 18 ár. Vill flokk urinn með þessu sýna æskunni traust og að breyttir þjóðfél- agshættir liafa skapað breytt viðhorf í þessum málum. Æska landsins býr nú gott atlæti og á kost víðtækari menntunar, en dæmi eru til áð- ur. Alþýðuflokkurinn er því þeirrar skoðunar að æskan, sé þess nú megnug, að taka fyrr þátt í ákvörðunum, sem varða stjórn landsins. Á æskulýðssíðu Morgun- blaðsins síðastliðinn sunnudag. segir frá ráðstefnu um æsku- lýðmál sem nýlega var haldin í Danmörku. Segir þar orðrétt: „Þá var það allmikið rætt á ráðstefnunni, að nauðsyn bæri til að veita æskufólki aukin þjóðfélagsréttindi, t.d. með lækkun kosningaaldurs. Slíkt væri líklegt til að auka ábyrgð unglinga, þeir kæmust fyrr í tölu ábyrgra þjóðfélagsþegna og því væri auðveldara að leggja á æskufólkið vissar skyldur, sem hvíla á öðrum þjóðfélagsborgurum.“ Af þessu má ráða, að lækk- un kosningaaldurs, er víðar til umræðu en hér. Eru nú uppi háværar raddir um það í mörg- um löndum, að kosningaaldur skuli lækkaður í 18 ár. Alþýðuflokkurinn varð íyrst- ur íslenzkra stjórnmálaflokka til að setja þessa kröfu fram, og sýna með henni hug einn til íslenzkrar æsku. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem Alþýðuflokk urinn beitir sér fyrir lækkun kosningaaldurs, því flokkurinn barðist fyrir því á sínum tíma, að kosningaaldur yrði lækkað- ur í 21 ár. Alþýðuflokksmenn eru sannfærðir um, að þetta mál muni ná fram að gauga innan tíðar. Slys og aukin umferð Menningarsamtök háskóla- manna hafa sent frá sér álykt- un um öryggismál barna og unglinga. Þessi mál hafa verið ofarlega í hugum flestra und- anfarið vegna tíðra slysa og stóraukinnar umferðar á götum borgarinnar. Réttilega er á það bent í á- lyktuninní að herða beri á þeim kröfum, sem nú eru gerðar til þess að menn geti öðlast öku- réttindi. Öllum réttindum fylgja skyldur, og séu þær skyldur ekki virtar varðar það í mörgum tilfellum í’éttinda- missi. Þegar menn öðlast rétt til að aka bifreið fá þeh’ um leið vald á lífi og limum sam- borgara sinna. Það er ekki öku- maðurinn einn og farþegar hans. sem «ru í hættu ef eitt- hvað ber út af, heldur og allt og allir í grennd við ökutækið. Ber því að herða mjög þær kröfur sem gerðar eru til verð- andi ökumanna. Ökuleyfis- sviptingar Síðustu ár hefur lögreglan nokkuð farið inn á þær brautir að svipta menn ökuréttindum um stundarsakir fyrir gróf brot. Þetta er tvímælalaust rétt leið, en ekki hefur verið nóg af þessu gert. Sæmilega efnaða mann munar lítið um að greiða 1000—1500 krónu sekt fyrir brot á umferðalögunum, og sú greiðsla gleymist fljótt. Mánaðarsvipting ökuleyfis mundi hafa margfalt meiri á- hrif en sektargreiðsla. Þá má og benda á að erlendis tíðkast siíkar sviptingar mjög, til dæm ig sem viðurlög við brotum á löggjöf um hámarkshraða. Kurteisi, gætni og lipurð Umferðin hér í borginni er orðin geigvænlega mikil, og á- standið versnar með hverjum deginum sem líður. Blöðin flytja daglega slysafréttir og oft eru það ung börn, sem slys,- in henda. Það verður aldrei nóg samlega brýnt fyrir foreldrum og öðrum uppalendum, að kenna börnum sínum að var- ast hætturnar í umferðinni og gæta sín. Ekki verður í einni svipan ráðin bót á því ófremdarástandi sem nú ríkir í þessum málum. Þar þarf sameinað átak allra að koma til. Hver einasti ökumað- ur og hver einasti fótgangandi vegfarandi verður að gera sitt til úrbóta. Með því að sýna kurteisi, gætni og lipurð, má mikið bæta. eiYBJAVÍG Frönsku grænmetis- kvarnirnar komnar aftur. iLZ S isnaenjf BmiJAVf 0 Útidyraskrár Innidyraskrár Lamir Skáphöldur Skápsmellur Skápsmellulásar Hurffapumpur Skothurffajárn Saumur Rúffugler Tréskrúfur Handverkfæri og m. fl. iZ. s Wea&tmaenj R ( V H J A V i B Búsáhöld í fjölbreyttu úrvali. Nýjar vörur berast daglega. IMWWIMWVWMitWWWWWIWIMWIHWWMMMWMMWWMtMMIWWWWIWWWWMMIWMWWWMWMMMMWWW*1 Einangrunargler Framleitt einungis úr úrvaíM gleri, — 5 ára ábyrgð. Pantiff tímanlega. Korkiðjan h.f. Skúlagötu 57. — Sími 2320C SMURI BRAUÐ Snittur. Opiff frá kl. 9—23.30. Sími 16012 Brauðstofan Vesturgötu 25. TECTYL ryðvöm. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 22. okt. 1963 5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.