Alþýðublaðið - 22.10.1963, Side 9
ÞJÓÐVEGAVEITINGAHÚS
byggt nokkur slík veitingahús við
stærstu og umferðarmestu þióð-
vegi sína. Er reynslan af þeim
mjög góð og hyggja þeir á fjölgun
slíkra staða. Bandaríkjamenn, sem
eru mesta bílaþjóð í heimi, hafa
urmul af slíkum þjóðvegaveitinga
stöðum þar sem hægt er að fá á-
gætan mat við tiltölulega vægu
verði. Hér á landi hefur það vilj-
að brenna við, og er raunar alitof
algengt, að hvers kyns veitinga-
hús úti á landi selji máitíðir á
verði, sem nálgast verð á beztu
veitingahúsum borgarinnar þótt
þau fyrrnéfndu komist ekki í hálf-
kvisti við hin hvað snertir þjón-
ustu og vörugæði. Þetta á eft-
ir að breytast því að jafnskjótt og
einhver framtakssamur aðili set-
ur upp ódýrt, hreinlegt og snyrti-
legt þjóðvegaveitingahús, verða
slíkir aðilar í grennd við þann
veitingastað fljótlega að taka sig
á, eða láta í minni pokarm fyrir
vinsælli staðnum. — Ekiii.
Lotus-Cortína
vekur athygli
GOUSUL CORTÍNA, hefur hvar
vetna vakið gífurlega athygli. Xntú
er komin fram ný gerð af Cortina
sem kölluð er Lotus-Cortina. Sá
bíll er árangurinn af samstarfi
milli Fordverksmiðjamia í Eng-
landi og framleiðanda hinna frægu
Lotus kappakstursbíla.
Lotus-Cortina er hraðskreið-
asti Fordbíll, sem smíðaður hefur
verið í Englandi. Vélin er 1558
rúmsentimetrar. Hún er búin tvö-
földum, yfirliggjandi knattás, sem
allir Lótusbílar hafa verið búnir,
ennfremur eru tveir blöndungar
báðir tvívirkir, af Weber-gerð. Há-
markshraðinn er 185 km. á klst.
og vélin er 105 hestöfl.
Hinn frægi kappakstursmaöur
Jack Sears, sem aðeins tekur þátt
í keppnum þar sem ekið er á
venjulegum bílum, hefur tryggt
sér að verða Englandsmeistari í
sinni grein í ár. Það var Lotus-
Cortina, sem hann ók í næst síð-
ustu keppninni í Englandi og þá
náði hann slíkum árangri, að hann
hefði getað sleppt síðustu keppn-
inni án þess að þurfa að óttast um
titilinn. Hann hefur nú í sumar
eingöngu ekið Fordbílum, Ford
Galaxie, Cortina GT, og siðast en
ekki sízt Lotus-Cortina.
Fyrstu sex mánuði þessa árs
voru alls framleiddir í Vestur-
Þýzkalandi 1.343.905 bílar. Þessi
tala hefur verið staðfest af sam-
bandi-bílaframleiðenda þar í landi.
Miðað við árið í fyrra, er hér um
að ræða 13,7 prósent aukningu.
Það er erfitt að koma orðum að
þessu, en ég vildi reyna að segja
þetta að lokum: Að leika í leik-
húsi, það er eins og að búa til
höggmynd — úr snjó ....
í BREZKA blaðinu „Encoun-
ter” gat nýlega að líta eftirfar-
andi frásögn:
34 ára gömul spönsk kona,
Eva Sastre að nafni, eiginkona
rithöfundarins Alfonso Sastre,
var árið 1962 ákærð fyrir stjórn
málaskoðanir sínar o| dæmd í
sektir eða að öðrum kosti 20
daga fangelsisvist. Hún kaus
heldur fangelsið og tók tveggja
mánaða gamalt barn sitt með
sér. Síðar gat hún m. a. sagt
frá því, að hún hafi verið eini
pólitíski fanginn meðal afbrota-
kvenna í nýjasta og nýtízkuleg-
asta kvennafangelsi á Spáni,
„La Maternal” í Madrid.
■—• Fangelsið var undursam-
lega fagurt að utan, sagði hún.
— Það líktist einna helzt
klaustri með stórum görðum og
indælum leikvöllum fyrir börn
fanganna. í þá 20 daga, sem ég
dvaldist þarna. komu þrívegis
stórir hópar útlendiiiga til þess
að skoða stofnunina og dáðust
að henni.
Um lífið í fangelsinu segir
Eva Sastre:
— Maturinn var frábær, en
fangaverðirnir stálu beztu bit-
unum af diskum barnanna!
Við matborðið máttu konurn-
ar ekki tala saman og heldur
ekki meðan þær voru látnar
vinna. í hvíldarhléunum var
bæði bannað að tala og lesa.
Síðdegis dag hvern var farið
með okkur í fangakapelluna, og
yfirfangavörðurinn, sem var
að sjálfsögðu kona, eins og all-
ír starfsmenn fangelsisins, not
aði það tækifæri ævinlega til
þess að húðskamma okkur. Dag
nokkurn sagði hún okkur, að
hún hefði séð það í draumi, að
við værum allar dæmdar til að
dveljast í neðsta víti, þegar
hérvist okkar lyki. Orsökin var
sú, sagði hún, að daginn áður
hafði hún séð eina okkar stel-
ast inn’í kirkjuna, án þess að
vera í nokkrum undirkjól inn-
undir fangakjólnum!
Yfirfangavörðurinn hafði
mikil völd. Dag nokkurn kall-
aði hún einn af föngunum til
sín, sýndi henni bréf, fyrst
fremri síðuna og síðan hina aft-
ari.
„Þetta er allt of langt bréf”,
sagði hún og reif það í tætlur!
Bréfið var frá eiginmanni
vesalings fangans.
Við fengum ekki að fara út í
garðinn fyrr en á kvöldin, þeg-
ar almyrkt var orðið — og
máttum aðeins dveljast þar í
hálftíma. Þetta var eini tími
dagsins, sem við máttum tala
eftir þrettán tíma grafarþögn.
Eftir kvöldmatinn fengum við
að vera í hálftíma með börnum
okkar. Við vorum allar lokaðar
inni í stórum sal og hér var
aftur bannað að tala. Þessi eini
hálftími var eins og hreinasta
víti. Mæðurnar köstuðu sér yfir
börn sín og athuguðu þau gaum
gæfilega, til þess að gæta að
hvort á þeim sæjust nokkur
merki þess, að þeim hefði ver-
ið misþyrmt. Ef konurnar urðu
varar við, að börnunum liði
illa, réðust þær á þá fanga, sem
átt höfðu að gæta barnanna.
Kom þá oft til alvarlegra átaka.
Fangar þeir, sem gættu barn
anna, voru allt konur sem höfðu
myrt sín eigin börn, annaðhvort
í neyð eða ofsabræði. Einn liður
í hegningu þeirra var, að hluta
úr hverjum degi yrðu þær að
hugsa um börn annarra ....
a.:
ODYR
SKÓFATNAÐUR
Seljum næstu daga eftirtalinn skófatnað við
mjög hagstæðu verði.
Kvenmokkasíur með gúmmísóla.
Verð aðeins kr. 98.—
Kvenskófatnaður úr striga, ýmsar gerðir.
Verð frá kr. 98.—
Kuldaskór fyrir kvenfólk. Verð kr. 298.—
Barnaskófatnaður ýmsar gerðir. Verð frá kr.
75.— o. m. m. fl. fyrir ótrúlega lágt verð.
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100.
NÝTT - NÝTT
Borð, sem henta vel á skrifstofur fyrir rit- og reikni
vélar, eru komin.
Borðin eru stækkanleg og eru fáanleg út eik og teak.
Verð kr. 1495,—
Kristján Siggeirsson h.f.
Laugavegi 13, Reykjavík — Sími 13879 — 17172.
Lóðningartæki
Lóðningartæki fyrir band-
sagarblöð — tvær gerðir.
Lóðningarduft.
É SfljíSI
I LUDVIG STORR i
¥
Lóðningarþráður (Slaglóð).
Sírni 1-33-33.
Auglýsingasíminn er 149 06
ALÞYÐUBLAÐIÐ — 22. okt. 1963 0