Alþýðublaðið - 22.10.1963, Side 16

Alþýðublaðið - 22.10.1963, Side 16
SiMI Á HVERJA 4IBÚA I REYKJAVlK OG NÁGRENNI Eftir flóðið í Þorlákshöfn Hér sjást nokkrar rúðurnar í búsi Meitils hf. í Þorlákshöfn, sem -brotnuðu í flóðöldunni. Sést greini lega á hæð þeirra hversu liá aldan fiefur verið og kraftmikil. Á hinni myndinni er verið að byrja að aka Iburt grjótinu, sem barst á land. Mikil vinna verður væntanlega við *ö fjarlægja það. Mynd: J. V. Reykjavík, 21. okt. — GO. Á MORGUN hefst afhending nýju símaskrárinnar og er ætlun- in að afhendingu til notenda í Reykjavík, Kópavogi og Seíási verði lokið laugardaginn 2. nóv. Skráin kemur nú út í 50 þús. eintökum og er 416 blaðsíður auk sérprentaðar spjaldskrár. Síðasta skrá var 376 bls. með gjaldskrá. í útgáfuna hafa farið 50 tonn af pappír og nærri 3 milljónir króna. Ritstjórar símaskrárinnar 1964 eru þeir Hafsteinn Þorsteinsson skrifstofustjóri bæjarsúnans í Reykjavík og Magnús Oddsson fulltrúi. Auk stóru skrárinnar eru gefn- ar út sérsímaskrár fyrir Akranes, Akureyri, ísafjörð, Keflavík og Suðurnes, Selfoss, Siglufjörð og Vestmannaeyjar. Gert er ráð fyr- ir að sjálfvirka stöðin í Vest- mannaeyjum verði tekin í notk- un um miðjan desember og Akra- nesstöðin skömmu síðar og í jan- úar veröur svo væntanlega opnuð sjálfvirk stöð í Selási, þá er og gert ráð fyrir, að sjálfvirka stöð- in á Akureyri fái beint samband við hinar sjálfvirku stöðvaraar fyrri hluta næsta árs. Verður þá hægt, með hjálp sérstakra lykil- númera að ná beinu sambandi milli Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnar- fjarðar, Suðurnesja allra, Akra- ness, Vestmannaeyja, Seláss og Akureyrar. Þangað til þetta kemst í framkvæmd gilda gömlu númer- in í Vestmannaeyjum, á Akra- nesi og Selási. Nýja símaskráin gengur í gildi aðfaranótt sunnudagsins 3. nóv. en þá tekur Kópavogsstöðin til starfa og 1000 númerum verður bætt við Miðbæjarstöðina í Reykjavik. Kópavogsstöðin er gerð fyrir 2000 númer og nokkur númer, sem að undanförnu liafa verið tengd við Miðbæjarstöðina færast nú yfir á hana með lykil- tölustafnum 4. Akraness og Vestmannaeyja- stöðvarnar verða fyrir 1400 núm- er hvor, en Selásstöðin fyrir 200, hún fær lykilnúmerið 6. Þegar öllum þessum fram- kvæmdum er lokið verða símanot- endur í landinu orðnir nærri 40 þús. með 48 þús. talfærum. Sím- ar, sem tengdir eru við sjálf- virkar stöðvar verða þá 31 þús. og þar af rúmlega 24 þús. í Reykja vík, Kópavogi og Hafnarfirði, eða einn sími á hverja 4 íbúa að jafnaði. Framh. á 13. síðu Ofríki komma á iðnnemaþingi NÆSTA spilakvöld Al- þýðuflokksfélags Reykjavík- ur verður í Iðnó nk. föstu- dag 25. okt. og hefst kl. 8,30 e.h. í þetta skipti hefst fjög- urra kvölda keppni og eru glæsileg heildarverðlaun í henni, auk venjulegra kvöld- vcrðlauna. Stjórnandi spila- kvöldsins verður Gunnlaug- ur Þórðarson. Hljómsveit Einars Jónssonar leikur fyrir dansi til kl. 1 e.m. Fjölmennum á fyrsta kvöld ið í fjögurra kvölda kepn- inni. Nefndin. Reykjavík, 21. okt. — HP. 21. þing Iðnnemasambands ís- lands var haldið í Reykjavík um lielgina. Á þinginu urðu allmiklar deilur, sem enduðu með því, að meirihluti fundarmanna gekk af þingfundi og Iýsti yfir því, að þeir teldu þingið með öllu ólög- legt og einnig þá stjórn, sem mun liafa verið kosin eftir að þeir fóru af þinginu. Nokkru eftir að þingið hófst kom það á daginn, að kommún- istar, sem verið liafa við völd í Iðnnemasambandinu, hugðust beita pólitísku ofríki til þess að hrifsa til sín yíirráð yfir sam- Framh. á 3. síðu 25. Iðnþing Islendinga verður háð í Reykjavík dagana 24.-26. október næstk. Iðnþingið verður sett á Ilótel Sögu, en fundir verða síðan haldnir í samkomu- sal í Iðnaðarbankaliúsinu við Lækjargötu. Helztu mál, sem rædd verða á Iðnþinginu eru m. a. Iðnfræðsla og tæknimenntun; almennur líf- eyrissjóður iðnaðarmanna; Iána- mál iðnaðarins o. fl. Á þinginu munu mæta uin 100 fulltrúar víðs vegar að af landinu. Á minni myndinni sést hve inikið nefið á Gullíaxa Flug- félags íslands, dældaðist við það, að fuglarnir lentu á vél- inni. Á hinni myndinni sjást viðgerðarmenn fclagsins gera við dældir á væng. Síðdegis í gær fór vélin til Cambridge í Eng- ia .-IMMiiIBiltM landi, en þar fer fullnaðarviðgerð fram. Er áætlað að hún taki fjóra daga. Sjá nánar í frétt á fimmtu síðu. Mynd: J.V. AUttmtHWttVHtttWMttttMtMtMMtttttttttMUMttttUMVtttttttttMtVli ItttMMMMtMMMtMMMtMMMtMMMMMWMW GÓÐSALA i GRIMSBY Reykjavík, 21. okt. — GO. Vélbáturinn Ilalþór frá Nes- kaupstað seldi 65 tonn af ísfisk í Grimsby í morgun fyrir 5507 st- pd. Ilann hefur því fengið rúm- ar 10 krónur fyrir kílóið, sem er gott verð. Hafþór er 250 tonna skip, einn af tappatogurunum”, sem svo voru ncfndir. Erindi um notkun reikni- vélar i tækni HR. MogenS Hansen verkfræð- ingur frá Danmörku flytur fyrir- lestur um notkun reiknivéla í tækni og stjórnun næstkomandi miðvilcudag 23. okt. kl. 17,30 í I, kennsiustofu háskólans. 44. árg. — ÞriSjudagur 22. október 1963 — 229. tbl.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.