Alþýðublaðið - 23.10.1963, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 23.10.1963, Blaðsíða 10
v/Miklatorg Sími 2 3136 Pressa fötin meðan þér bíðiö, Fatapressun A. Kúld Yesturgötu 23. S*(U£2. Einangrunargler Framleitt einungis úr úrvala gleri, — 5 ára ábyrgð. Pantið tímanlega. Korkiðjan h.f. Skúlagötu 57. — Súni 23200. Japanskar kvenblússur Við Miklatorg. Hef opnað málflutnings- skrifstofu í Lækjargötu 6B III. hæð. Sími 20628. Birgir ísl. Gunnarsson héraðsdómslögmaður LANDHELGISBRJÓTUR Framhald af 16. síðu. Dómari er Jóhann Gunnar Ól- afsson en meðdómendur þeir Rögn valdur Jónsson og Símon Helga- son. Bárður Jakobsson lögfræð- ingur mætti fyrir hönd Gísla ís- leifssonar hrl. verjanda skipstjór- ans og Ragnar H. Ragnar var dóm túlkur. Það vakti nokkra athygli að 20-30 yfirmenn af Palliser voru viðstaddir í réttarsalnum. Skýrsla skipherrans á Óðni var í stuttu máli á þessa leið: Skömmu eftir miðnætti aðfara- nætur mánudagsins sást skip í ratsiánni og var það grunsam- lega nærri landi, eða rúmar 3 sjómílur innan 12 mílna mark- anna og ítrekaðar staðarákvarðanir svndu að skipið var á lítilli ferð. Þegar að var komið, sást að hér var um togara að ræða. þó að hann væri ekki með togljósin á. Varð- skipið gaf stöðvunarmerki með liósmorsi og Ivsti síðan á skipið. Sást að stjórnborðsvarpa var í sjó og vírarnir lágu eðlilega aftur með síðunni. Laust eftir klukkan 1,00 var varðskinið komið alveg að tog- aranum, þar sem hann var að toea á 54 metra dýpi undan Barða. Stöðvunarmerki voru gefin við- stöðulaust með skipsflautunni, en skinstióri togarans sinnti þeim ekki. Þá var sett út dufl við hlið togarans og mældist bað 2,7 sjó- mílum innan við mörkin. Togar- inn sinnt ekki stöðvunarmerkjun- um fremur en áður og var þá skotið að honum lausu skoti. Þá hiuggu togaramenn á togvírana og settu á fulla ferð norður og austur méð landinu. Varðskipið skaut 2 lausum skotum í viðbót og gaf stöðvunarmerki í sífellu og einnig var skinstiórinn kallað- ur upp á neyðarbylgjunni og vinnubylgju brezku togaranna. — Ekkert svar. Leikurinn barst norður með landinu og hélt varðskipið sig í hálfrar sjómílu fjarlægð frá tog- aranum. Stöðugt var lýst á hann og auk þess fylgzt með honum í ratsjánni. Klukkan rúmlega 7 í gærmorgun var svo sett upp stöðv unarmerkið ,,K” með merkjaflögg um, enda þá orðið bjart af degi. Minningarorð Framh. af 4. síðu hópi og unun við hann að tala. Hins vegar var hann alvörumaður að eðlisfari, mjög viðkvæmur í lund og oft sérvitur. En sérvizka hans var ævinlega skemmtileg og átti sinn þátt í að gera hann jafn sérkennilegan og skemmtilegan persónuleika og hann var. Það var mér lán að kynnast Tryggva, þó að ég hefði hins vegar óskað eftir því, að þau kynni hefðu getað orð- ið lengri. Þegar ég kvaddi hann í ágúst, ætluðum við að skrifast á, og hvorugur hefði þá viljað trúa því, að Tryggvi ætti aldrei aftur- kvæmt til íslands. Nú er hann lagður í mestu ferð allra ferða. Bréfin verða aldrei skrifuð, og við eigum ekki eftir að hittast yfir bjórglasi á Cambridge eða Pem- bina. En frá minningunni um Tryggva stafar ósviknum yl, og hvað hann snertir var trú hans hon um alvörumál, og því veit ég, að heimvonin var góð kaþólskum manni. Hjörtur Pálsson. Klukkan að verða 9 var svo farið að síðunni á þrjótnum og kallað til hans um hátalara og honum skipað að stöðva. Ekkert svar. Næst var það tekið til bragðs að skjóta kúluskoti rétt framan við togarann og þá fékk skipstjóri hans málið eftir 9 klst. þögn. — Sagðist hann vera á opnu hafi og utan afskiptasvæðis varðskipsins. Hann hafi ekki verið að veiðum á brotsstaðnum, heldur aðeins ver- ið að slæða eftir troRi sínu, sem hann hafi slitið undan sér utan 12 mílnanna. Neitaði hann ein- dregið að stöðva skip sitt, þar sem hann væri frjáls maður í fríum sjó, þ. e. úthafinu. Um kl. hálf ellefu voru skipin svo stödd 35 sjómílur norðaustur af Hornbjargi og þá kallaði skip- stjórinn á togaranum í varðskip- ið og spurði hvort skipherra þess væri samþykkur því að bæði skip- in færu til móts við herskipið Pal- liser, sem þá var nýfarið frá R- vík og málið væri rætt við Hunt skipherra. Þórarinn Björnsson sam þykkti þessa ráðabreytni, ef hún mætti verða til þess að leysa mál- ið og klukkan 5 í gærdag mættust svo skipin 317 sjómílum undan Straumsnesi, sem er skammt norð an ísafjarðardjúps. Þá hafði eftir förin staðið í 17 klukkus.tundir og tekið - yfir 202 sjómílna vegar- lengd. Huflt skipherra fór nú um borð í togdrann og ræddi við skipstjór- ann, stðan kom hann um borð í Óðinrí og hafði eftir honum sög- una um týnda trollið. Varðskips- menn _bentu honum á, að þessi saga fengi ekki staðizt, þar sem togvírarnir hefðu sést frá varð- skipind og togarinn auk þess verið fyrir innan landhelgina. Hann hefði því verið að slæða eftir trollinu, sem hann týndi utan við 12 mílurnar nærri 4 mílum fyrir innan! Hann var líka beðinn að skila því til togaraskipstjórans að honum væri heimilt að slæða eft 'r trolli sínu á þessum stað, ef hann -vildi. Raunin varð hins vegar sú, að skipstjórinn afþakkaði að slæða eftir trollinu og samþykkti að fara til ísafjarðar í fylgd Óðins og Pallisers. Aksel Lie Olsen, skipstjóri, á Lifeguard kom fyrir réttinn á ísa firði eftir réttarhlé síðdegis í gær og þrætti fyrir að um nokkurt brot væri að ræða frá sinni hálfu. : Samkvæmt upplýsingum Jóhanns \ Gunnars Ólafssonar dómara, er dóms í málinu ekki að vænta í kvöld og vafasamt hvort hann fellur á morgun. Vinnur ársverk á 8 tímiim Framh. af bls. 16. heilinn skilur og getur unnið úr. Einnig hafa ýmsir vísindamenn komið með flókin úrlausnarefni og lagt þau fyrir hann, ýmist verk efni sem þeir hafa þurft að vinna úr, eða prófraunir til gamans. Dr. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur kom til dæmis með útreikninga viðvíkjandi athug unum á segulsviðinu og norðurljós um. Þetta verkefni leysti heilinn á 8 klst. en doktorinn fullyrti hins vegar að tekið hefði ár að leysa dæmin með venjulegum aðferð- um. Auk þess er útkoma rafeinda- reiknisins óvéfengjanleg, sé hann aðeins mataður á réttum upplýs- ingum, en hins vegar geta alltaf slæðst villur inn í útreikninga, sem gerðir eru með blaði og blý- anti, jafnvel þó að sérstakur end- urskoðandi fari yfir þá jafnóðum. Páll Theódórsson eðlisfræðing- ur lagði athuganir í sambandi við Stefán Rafn Framh. af 16. síðu Til innritunar í deildir Háskól- ans er gerð sú krafa, að menn hafi stúdentspróf eða aðra menntun, er Háskólaráð metur jafngUda. — Stafar þetta af einfaldri og brýnni nauðsyn á traustri undirbúnings- menntun undir háskólanám. Þá skal og tekið fram, að stúd- entar guðfræðideildar hafa sitt eigið deildarfélag, sem hefur fullt sjálfstæði innan þeirra vébanda, sem reglugerð Háskólans setur stúdentum. Félagið hefur og lýð- ræðislega kjörna stjórna úr hópi stúdenta sjálfra. Hafa stúdentar það alveg á sínu valdi hverjum þeir af góðvild sinni bjóða á fundi eða í ferðalög með sér, enda er samkomulag manna innan deild- arinnar, jafnt kennara sem stúd- enta, í alla staði hið Ijúfmannleg- asta. trítíumagn í regnvatni fyrir reikn- inn, Sigurjón Rist vatnamælinga- maður kom með sín vandamál á vit hans og Aðalsteinn Sigurðs- son fiskifræðingur líka. í heild má segja, að reiknirinn hafi verið í gangi allar 24 klukkustundir sól- arhringsins síðan hann kom. Sérfræðingar fullyrða að IBM 1620 geti komið að gagni á hvaða sviði raunvísinda sem er. Hann geti sparað óhemju vinnu og kom- ið í veg fyrir hugsanlegar villur. Sagt- er, að hér á landi hafi verið safnað fjallháum stöflum af alls konar mælingum og upplýsingum, sem tæki áratugi að vinna úr með venjulegum aðferðum. IBM gæti því lokið þessu á nokkrum dögum. Áhugi fyrir svona tæki hefur vaknað hér á landi, síðan farið var að sýna það hjá Ottó Michaelsen. Hins vegar er það ekki gefið. Raf- eindareiknar frá IBM kosta 4-7 milljónir ísl. króna. eftir stærð, en þegar tekið er tillit til notagildis tæiksins, virðist engin frágangs- sök að eyða í það andvirði fiski- báta af meðalstærð. Einn stór kostur vélarinnar er sá, að maður þarf ekki að vera lærðúr stærðfræðingur til að stjóma henni. Stærðfræðingarnir og vísindamennirnir koma liins vegar með allar upplýsingar mat- reiddar fyrir vélina og sá sem síð- an tekur við, þarf ekki annað en að styðja á rétta takka. T.d. í Dan- mörku, þar sem einn svona reikn- ir er starfræktur, stjórnar honum stúlka og hefur ekki annað sér til frægðar unnið en að vera meist- ari í 100 metra sundi! Þeir sem kynnzt hafa IBM 1620 og fengið að leggia fyrir hann barutir og úrlausnarefni, eiga sjálfsagt erfitt með að fara að vinna með blýantinum sínum aft- ur og við skulum vona að það verði ekki lengi og að fjallháu staflarnir sem liggja hjá hinum ýmsu raunvísindastofnunum fari að lækka til muna. 65 ÞÚSUND Framh. af bls. 16. ^ loknu var tekið til við að flokka merkingar orða og skýra þær. Starfsmenn Orðabókar Iláskól- ans hafa lagt orðabók Menningar- sjóðs ómetanlegt lið í ráðlegging- um og leiðbeiningum. Árni Böðv- arsson telur vandséð hvernig unnt hefði verið að komast af við samn- ingu orðabókarinnar án aðgangs að heimildum og starfsmönnum Orðabókar Iláskólans. Annars hef ur verið leitað til fjölda fólks um upplýsingar um fjarskyldustu efni, sérfræðinga ýmiss konar, stofn- ana o.s.frv. og hafa undirtektir jaínan verið góðar. Skortur á starfsliði og tíma hefur samt kom- ið í veg fyrir að eins mikið væri gert að þessu og þurft hefði. í orðabók Menningarsjóðs eiga að vera fiest eða öll íslenzk stofn- orð, sem komlzt hafa í íslenzkar orðabækur, forn og ný, svo og al- gengustu samsetningar. Þarna eru skýrð heiti skáldamálsins, sýni dæmi um kenningar, skýrð hvers- konar orð úr fornum ritum og nýjum. Sérstök áherzla var lögð á að bókin yrði sem nota- drýgst öllu skólafólki (t.d. nánari skýringar á orðum úr kennslu- bókum og sígildum ritum en ann- ars staðar og stöðugt reynt að miða við að bókin yrði sem aðgeng ilegust. Allan tíman sem bókin hefur veri í smíðum liafa tveir og þrír menn unnið við hana að staðaldri og langtímum saman fleiri. Auk Árna Böðvarssonar hafa þeir Bjarni Benediktsson frá Hofteigi og Helgi Guðmundsson lengst unn ið að undirbúningi handrits undir prentun. Það var Prentsmiðjan Oddi sem sá um setningu og prent- aði bókina og var fengið sérstakt letur fyrir hana. Sveinabókbandið sá um bandið. Skólafólki mun gef- inn kostur á að fá bókina með af- slætti en til þess þarf að panta nokkrar. bækur í einu og þurfa þau því að Sameinast um pantanir. LONDON 22. okt. (NTB-Reuter). Hátíðahöldin í tilefnj 100 ára afmælis enska knattspyrnusam- bandsins ná hápunkti á Wembley á miðvikudag (þ.e. í dag) ,er enska landsliðið leikur gegn „lieimsúr- vali“. Spádómar eru 5—4 „heimslið- inu“ í vil. Margir enskir knatt- spyrnugagnrýnendur hafa gagn- rýnt úrtökunefnd ,,heimsliðsins“ fyrir það að leyfa, að skipt sé um leikmann í leikhléi. Þeir segja, að raunverulega leiki England á móti hálfu öðru liði. Annarsvegar er því haldið fram, að liér verði um hreina sýningu að ræða. Ef um „alvöruleik” væri að ræða myndu ekkí einu sinni bjartsýnustu áhang endur enska liðsins veðja á sitt lið. Englendingar tefla fram sam- stilltu og þrautreyndu liði, sem leikið hefur óbreytt fjóra lands- leiki undanfarið og sigrað í öllum — Tékkóslóvakíu með 4—2, Aust- ur-Þýzkaland með 2—1 Sviss með 8-1 og Wales með 4-0. Uppselt er á leikinn fyrir löngu og það verða rúmlega 100 þúsund áhorfendur, en greiddur aðgangseyrir er 90 þúsund sterlingspund — eða sem svarar til tæplega 11 millj. króna, 10 23. okt. 1963 — ALÞÝDDBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.