Alþýðublaðið - 23.10.1963, Qupperneq 11

Alþýðublaðið - 23.10.1963, Qupperneq 11
Þetta er liff ÍR í handknatt leik, en ÍR-ingar mæta tékk- neska liðinu Spartak Pilsen í fyrsta leik liðsins hér á landi 30. október nk. Fremri röð, talið frá vinstri: Gunnar Sig- urgeirsson, Björgvin Samúels- son og Erlingur Lúðvíksson. Aftari röff, talið frá vinstri: Gylfi Iljálmarsson, Jón Jóns- son, Hermann Samúelsson, Gunnlaugur Hjálmarsson, Þórður Tyrfingsson og Sigurð- ur Elísson. Ljm. Bj.Bj. Leikmenn „heimsliðsins" metnir á 250 millj.: 16 leika og di Stef- ano fyririiði liðsins London, 22. okt. (NTB-AFP). Hinn 37 ára gamli fyrirliði spnáska liðsins Real Madrid, di Stefano hefur verið valinn fyrir- liði „heimsliðsins,” sem leikur gegn Englandi á morgun (þ. e. í dag). Di Stefano er einn þekkt- asti leikmaður heims og hefur m. a. verið í liði Real, sem vann Ev- rópuhikarinn fimm sinnum. Þeir 16 leikmenn, sem valdir hafa ver- ið í liðið, munu allir leika með, skipt verður um fimm leikmenn í hléi. ingar gaf formaðurinn í úrtöku- nefndinni. írinn Harry Cavan. Þó að margir af beztu leikmönn- unum, sem upphaflega voru valdir geti ekki leikið með, má geta þess, að verðmæta leikmannanna saman- lagt er 2 milljónir punda eða sem nemur ca. 250 milljónum króna íslenzkra. Það gerir að meðaltali 12,6 millj. á mann. Framh. á bls. 10 I fyrri hálfleik leika: Yasjin, Sovét, Djalma Santos, Brasiliu, Populmar, Tékk., Schnellinger, V- Þýzkaland, Pluskal, Tékk., Maso- pust, Tékk., Kopa, Frakkl., Law, Skotlandi, di Stefano, Spáni, Eu- sebio, Portúgal og Gento, Spáni. Þeir, sem koma inn á í síðasta hálfleik eru: Soskic, Júgóslavíu, Eyzaguirro, Chile, Baxter, Skot- iandi, Seeler. Vestur-Þýzkalandi og Puskas, Spáni. I Þessi leið hefur verið valin vegna hinna löngu ferðalaga leik- mannanna og einnig er það gert vegna áhorfenda, þ.e.a.s. svo að þeir fái að sjá alla þessa frægu leikmenn í keppni. Þessar upplýs- Yasjin, Sovétríkjumun, á að verja mark „heimsliðsins”. DI STEFANO fyrirliði í kvöld. |Mörg norsk frjálsíÞrótta met sett á þessu ári OSLO, 21. okt. (NTB). Norskir frjálsiþróttamenn hafa sett mörg góð met á yfirstandandi ári, en það síðasta setti Berit Tö- yen í langstökki kvenna á mótinu í Tokyo á dögunum, en hún stökk 6.23 m., en afrekið er einnig nor- rænt met. Dregið í ensku bikarkeppninni London, 21. okt. (NTB-Reuter). Á mánudag var dregið í fyrstu umferð ensku bikarkeppninnar. Alls taka 32 lið þátt í fyrstu umferð auk 48 liða úr 3. og 3. deild, en liðin í 1. og 2. deild hefja keppni í 3. umferð. Fyrsti Norðmað- urinn syndir yfir Ermasund Flekkefjord, 22. okt. NTB. Fyrsti Norðmaðurinn hefur nú synt yfir Ermarsund frá Dover til Calais. Það var 30 ára gamall mað- ur, Zachariasson að nafni frá Flekkefjord. Hann var 14 klst. og 30 mín. á leiðinni og til saman- í burðar má geta þess, að sá fyrsti, i sem synti yfir Ermarsund var 21 klst. á leiðinni, en bezti tíminn er tæpar 11 klst. Zachariasson er froskmaður í flotanum og dvelur um þessar mundir á námskeiði í Englandi. í karlagreinum hafa verið setb sjö met og auk þess fjögur jöfnuð. Flest þeirra setti Kjell Hovik, en hann bætti norska metið í stangar- stökki fjórum sinnum, stökk liæst 4.65 m. í unglingagreinum voru sett átta met, en þrjú jöfnuð, en kvenfólkið sett'i sex og jafnaði 8. Önnur met en stangarstökkið, sem vakið hafa athygli eru 400 m. hlaupi Bunæs 46,6 sek. og unglinga met Terje Pedersen í spjótkasti, en hann kastaði 83,90 m. I „Allsvenskan” í handknatt- leik hafa nýliðarnir í deildinnl, liðið Tord, forystuna með 6 stig eftir 3 leiki. Heim er með 4 stig eftir 2 leiki. en Hellas, sem hér lék í vor er með 2 stig eftir 3 leiki og þriðja neðsta liðið. Heim, hefur vakið sérstaka athygli f haust og liðið hefur sýnt mjög góðan handknattleik. Þeir sigruðu t. d. Hellas í Stokkhólmi um síð- ustu helgi með 17 mörkum gegn 14. í báðum liðunum voru margir leikmenn, sem leikið hafa hér á landi. Hér eru úrslit í tveim lands- leikjum Evrópubikarkeppninnan Ungverjaland sigraði Austur- Þýzkaland með 2-1 og Belgía og Hollánd gerðu jafntefli 0-0. í Evrópubikarkeppni bikarmeist- ara sigraði Slovan, Bratislava, Tékkóslóvakíu Helsing Palloseura, Finnlandi 8-1. Tékkarnir sigruðu einnig í fyrri leiknum og halda þvi að sjálfsögðu áfram í keppninni. EINS og skýrt hefur verið frá hér á íþróttasíðunni var ákveðið á fundi alþjóða olympíunefndarinnar í Baden-Baden í síðustu viku, að Sumarleik- irnir skuli fara fram í Mexico City 1968. Það voru fjórar borgir, sem sóttu það fast að fá að halda leikana, auk Mexico voru það Detroit, Lyon og Buenos Aires. Eftir þessa ákvörðun hafa ýmis blöð ráðizt harkalega á nefndina fyr- ir fljótfærnislega samþykkt, sem eigi eftir að hafa alvarlegar afleiS- ingar. Eins og margir vita, er Mexico City í 2265 m. hæð yfir sjávarmáli eða örlítið hærra en Öræfajökull, hæsta fjall íslands. Þessi mikla hæ8 hefur mjög slæm áhrif á sumar greinar íþrótta og gerir mönnum erfitt a8 hlaupa 400 m. eða ler.gra og á Pan-Amerísku leikunum, sem haldnir voru í Mexico City 1955 kom þetta greinilega í Ijós, því að árangurinn í löngu hlaupunum var mjög lélegur. Og meira en það, keppendur voru algjörlega miður sín. Það sama skeði, er úrslitin í Davis Cup interzone fór framr í borginni í fyrra, keppendur voru mjög illa á sig komnir, að leikjum loknum. Mexicanar buðu þau kostakjör á þinginu í Baden-Baden, a3 öllum keppendum gæfist kostur á þriggja vikna dvöl í borginni fyrir leik- ana. Með því að þiggja slíkt boð fyrir hönd væntanlegra keppenda, er a!~ þjóða-Olympíunefndin að brjóta áhugamannareglurnar. Leikarnir eiga a3 standa yfir í þrjár vikur, svo eru það ferðalög og plús aðrar þrjár vikut samanber áður nefnt boð. Alþjóða-olympíunefndin hefur nefnilega sam- þykkt, að áhugaíþróttamaður megi ekki vera frá vinnu sinni vegna keppni í íþróttum lengur en í sex vikur á ári. Þetta litur sem sagt ekki vel út. Sven Lindhagen í sænska íþróttablaðinu skorar eindregið á sænsku Olympíunefndina að gera verkfall og neita þátttöku, ef leikarnir verða haldnir í Mexico City. — Ö. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. okt. 1963 H

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.