Alþýðublaðið - 21.11.1963, Qupperneq 2
CUstjórar: GyXfl Gröndai tab.) og tíeneaiKt Gröndai Frettastjórl:
Mrni Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltrúi: Eiður Guðnason. — Símar:
1^900-14903. - Auglýsingasími: L4906. - Aðsetur: Alþýðuhúsið viö
f*verfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald
kr. 80.00. — í lausasölu kr. 4.00 eintakið. Útgefandir Alþýðuflokkurinn
LOGID í TÖLUM
! SÉRFRÆÐINGAR í efnahagsmálum leggja
, jafnan hlustirnar ivið, þegar tölfræðingar Sovét-
.stjórnarinnar tilkynna nýjar aukningartölur, ann-
að hvort á þjóðarframleiðslu eða öðrum verðmæt-
um. Rússar hafa jafnan þann hátt á í þessum efn-
■um, að þeir nefna aldrei annað en prósentutölur,
| :sem gefa vægast sagt heldur óraunhæfa mynd af
því, sem um er að ræða.
| Margt bendir til þess, að Rússar hafi um árabil
'falsað margar af hinum opiJnberu tölum, sem þeir
birta í hagskýrslum sínum.
Því er til dæmis haldið fram í Sovétríkjunum, að
þjóðartekjur hafi um margra ára skeið aukizt um
i 7—-12 % á ári. Hvemig getur þetta átt sér stað, með
an raunverulegar tekjur fólks hækka ekki? Hver
hirðir það, sem umfram er? Það skyldi þó aldrei
vera hið almáttuga ríkisvald, sem tekur til sín alla
yerðmætaaukninguna og arðrænir þannig bændur
og verkamenn? Það mundi að minnsta kosti kallað
árðrán, ef ríkiisstjóm á vesturlöndum ætti í hlut.
Allar tölur, sem Sovétstjómin lætur birta opin
i berlega eiga að sýna hversu vel gangi sú viðleitni
að ná kapítaliisku ríkjunum, einkum þó Bandaríkj-
í unum í hverskyns framleiðslu.
Eins og málum er nú háttað, em Soivétríkin að
i ná Bandaríkjunum í sumum framleiðslugreinum,
en þó aðeins þeim, sem senn teljast úreltar og æ
! minni áherzla er lögð á í háþróuðum löndum.
Rússar framleiða nú töluvert meira af kolum
í en Bandaríkjamenn og sýnir það ekki framfarir,
heldur að framfarir í framleiðslu orkugjafa eru
: ekkl örar.
Rússar hafa mjög hampað því að rafmagns-
framleiðsla í Sovétríkjunum hafi aukizt um 13%
síðastliðið ár, en þá hafi rafmagnsframleiðslan í
Bandaríkjunum aðeins aukizt um 7%. Þetta á að
sjálfsögðu að sýna þá kosti, sem hagkerfi Sovét-
ríkjanna hefur fram yfir hagkerfi Bandaríkjanna.
Hinar raunverulegu tölur í þessu sambandi eru
h:'!ns ivegar þessar: Á árinu 1962 jókst rafmagns-
framleiðslan í Bandaríkjunum um 61000 milljón
kílówattstundir, en í Sovétríkjunum um 42000
milljón kílówattstundir. Bandaríkjamenn fram-
leiddu á árinu 939000 milljón kílówattstundir en
Sovétríkin 369000 kílówattstundir.
Þegar þér kaupið sjónvarpstæki,
þá gerið þér kröfur um góða
mynd og góðan hljóm.
Radionette hefur hvorttveggja.
Margar gerðir fyrirliggjandi.
Fullkomin viðgerðarþjónusta.
G. Helgason & IVSelsted hf.
Hafnarstræti 19. Rauðarárstíg 1 Sími 11644.
SÚ NÝBREYTNI í útvarpinu að
lesa ókyátt úr fofryktigrreinum
dagblaðanna á hverjnm degi, virð-
ist ætla að takast vel. Lengi hef-
ur verið um þetta rætt, en um
hættuspil var að ræða. Við-
kvæmni stjórnmál'aflokkanna er
svo mikil, að það er eins og komið
sé við kviku hjá þeim, afbrýðis-
semin óskapleg og tortryggnin ríð
ur ekki við einteyming. En eng-
in rödd liefur cnn heyrst um það,
að útdrátturinn úr forystugrcin-
unnm sé hlutdrægur eða að út-
varpið geri upp á milli flokkanna.
ÉG VERÐ AÐ JÁTA að þetta
kemur mér á óvart, og ég liafði
búizt við því, að ekkj væri unnt
að sigla milli skers og báru, og
gera öllum svo jafnt undir liöfði,
að' ekki hlytist af úlfúð, enda hafði
ég, svo að segja, alizt upp við
þetta allt í baráttu flokkanna, en
það er vottur um vaxandi stjórn- i
málaþroska og aukið umburðar- 1
lyndi, að engar óánægjuraddir
skuli heyrast.
•iniiiiiKiiiiiiiiiimMmiitiniiiMmiiMmiiiiiiiiiiMmmmiiiimiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiuf
: s
★ Ágæt nýjung í útvarpinu. 1
ýr Útdráttur úr forystugreinum blaðanna.
! I it Undirtektir koma á óvart. |
ic Messurnar hættar í útvarpinu.
riMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIMIIIIMIIMIIIIIIIIIMIMMIIIIIIIIIIllMIIIIIIMMIIMIIIIIIIMIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIinilMllllllttrlllS
rýni, að hætta að útvarpa messun-
um á sunnudögum, en taka í þess
stað upp þáttinn: „Helgistund í
útvarpssal". — Þetta mun útvarps
ráð líka liafa vitað, því að hér er
þverbrotin hefð og alltaf liggur
við uppreisn þegar það er gert.
ÉG HEF FENGIÐ nokkur bréf
um þetta efni og margar upphring-
ingar. E.J. segir til dæmis: „Og
nú er búið að taka af okkur mess-
urnar kl. 11 á sunnudögum. Hvað
verður næst? Þeir byrjuðu á því
að taka af okkur þjóðsönginn: Ó,
Guð vors lands, ó, lands vors guð,
ljóðið eftir trúarskáldið Matthías
og lagið eftir Sveinbjörn Svein-
björnsson. — Þetta virðist ekki
hafa passað fyrir höfðingjana í
kristalshöllunum.
ÞA TOKU ÞEIll af okkur Passíu
sálmana, eða gömlu lögin, 6em
þeir höfðu verið sungnir við í
minnj allra núlifandi manna. Endi
lega varð að taka upp ný lög, sem
enginn þekkti. Já, nýungagirnin
ríður ekki við einteyming. - Og nú
taka þeir af okkur messurnar, sem
við höfum alizt upp við. Þetta er
fordæmanlegt athæfi. Þúsundir
manna nutu guðsþjónustanna.
Ekki hefur verið sagt frá því, aS
nokkur hafi óskað breytinga á
þessu sviði. Hvers vegna þá aS
gera það?“
ÞETTA BRÉF er aðeins eitt
dæmið af mörgum um þá miklu ó-
ánægju, sem ég hef orðið var viS
út af þessu uppátæki.
Hannes á liorninu
I
i
f
Annað dæmi má taka af handahófi. Framleiðsla
sjónvarpstækja jókst samkvæmt opinberum skýrsl
um um 11% í Sovétríkjunum 'sl. ár. í Bandaríkjun
um h:!ns vegar ekki nema um 5%. Raunverulegu
tölurnar eru: í Sovétríkjunum eru 2.2 milljónir
sjónvarpstækja, í Bandarfkjunum 6,5 milljónir:
Það er ekki sama hvernig tölur eru settar
fram. Aðeins með því að hagræða þeim lítið eitt
tekst Rússum að sýna fram á aukningu á öllum
sviðum ár eftir ár.
ÉG SPÁI ÞVÍ, að fyrst þetta
tekst svona vel, þá verði þessi við-
leitni upphafið að öðru meira, því
að umburðarlyndið hefUr verið of
lítið og tortryggnin of mikil, svo að
hvort tveggja hefur staðið í vegi
fyrir siðmenningu í stjórnmála-
baráttunni. Það er líka alveg víst
að þessi nýi þáttur í útvarpinu hef
ur áhrif á stjórnmálabatráttuna
„ í blöðunum,
EN ÞAÐ - RÍKIR EKKI sama a-
• nægjan með allt, sem útvarpið
tekur upp á og teljast verðUr til
nýjunga.. Maður gat átt von á því,
að þ.að mundi sæta mikilli gagn-
Tilboð óskast
Tilboð óskast í m/s LAUGI G K. 207 þar sem
hann liggur í fjörunni í Hafnarfirði. Nánari
uppl. veitir Sigurjón Einarsson Dröfn h.f.
Hafnarfirði. Tilboðum sé skilað fyrir 27. nóv.
Vélbátaábyrgðarfélagið Grótta
c/o Fiskifélagshúsinu.
2 21. nóv. 1963 — ALÞÝÐUBLA0I0