Alþýðublaðið - 21.11.1963, Blaðsíða 13
Vinur Nassers...
Framhald af 4. síðu.
Sýrlandj og írak í Damaskus í síð
asta mánuði var gerður samning-
ur um hernaðarbandalag ríkj-
anna, en rúmum mánuði áður var
komið á efnahagsbandalagi.
Eftir þetta þing og einkum eft
ir kosningar innan Baath-flokks-
ins í héruðum íraks í september
þótti óhjákvæmilegt, að „ofstæk-
ismenn" flokksins og hinir „hóf-
sömu“ mundu gera upp sakirnar.
Ofstækismenn Saadis fóru með
sigur af hólmi bæði í kosningun-
um og í þinginu. Gerðar voru rót-
tækar ályktanir um þjóðnýtingu
utanríkisverzlunar hálfgerðan sam
yrkjubúskap og strangar ráðstaf
anir til þess að útrýma áhrifum
fárra en áhrifamikilla iðnrekenda
í írak.
Hinir hófsömu undir foruystu
Shabibs utanríkisráðherra voru
fylgjandj auknum sveigjanleika í
viðskiptunum við Nasser og einn
ig vildu þeir, að grundvöllur
stjórnarinnar yrði gerður breið-
ari með því að taka óháða og ó-
flokksbundna þjóðernissinna í
stjórnina. En sigurvegararnir
voru ofstækismenn Saadis, sem
vildu stofnun öflugs og sameinaðs
sóíalistaríkis í „Arabísku Asíu“
og undirbúning stríðs gegn Nasser.
i mikilvægrj yfirlýsingu var
„einræðisstjórn" Na-sers for-
dæmd og honum kennt um það,
að samkomulagið um einingu ír-
;aks, Sýrlands og Egyptalands fór
út um þúfur. Hann var sagður
eiga sökina á endurteknum til-
raunum til þe-s að grafa undan
sýrlenzku stjórninni og Egyptar
\'oru hvattir til þess að kasta af
sér okinu og og gan?a i l'ð með
öðrum arabiskum byltingaröflum
★ UPPGJÖRIÐ
Síðan rak hver viðburðurinn
annan. Hinn 11. nóvember gerðu
Forsetinn
Framh. af 7. síðu
þjóða, sem hafa notið og kunna
að meta endurtekna brezka bar-
áttu gegn eínræði og yfirgangi. Ég
gleymi aldrei því ári, þegar Bret-
ar stóðu einir í vörninni í síöustu
heimsstyrjöld. Þá var hvorki taliö
eftir fé né fjör. Ég kom tvisvar
-tit Lundúna meðan á styrjöldinni
atóð. Þriðjungur allra húsa í City
.var jafnaður við jörðu. Rósemi
fólksins er mér minnistæðust. Það
Jkvartaði enginn, hvorki um kulda,
skort né lifshættu. Það var eitt-
livað sérstaklega brezkt yfir þessu
yfirlætislausa hugrekki. Það var
meira í veði fyrir örlög mannkyns
ins en Bretland eitt saman.
Sigri bandamanna eigum vér,
eins og margir aðrir, það að
þakka, að vér erum frjáls þjóð, og
getum haldið áfram ferðinni á
þeim brautum frelsis og þingræð-
is, sem liggja frá landnámsöld og
svo langt fram í tímann, sem
augað eygir. Frelsi og sjálfstjórn
er vor sameiginlegi arfur, og fram
tíðarhugsjón. Yið þingræði varð-
veitist jafnvægið bezt milli frelsis
og stjórnar. Ég dreg enga dul á
það, að vér íslendingar berum
mikla virðingu fyrir og vinariiug
til hinnar brezku þjóðar.
Herra borgarstjóri! Ég flyt yð-
uivbeztu þakkir fyrir virðulegt
boð- á þessum fornhelga stað, og
liinni brezku þjóð vinarkveðju frá
íslendingum.
„hinir hófsömu" gagnárás, létu
kjósa nýja forystu Baathflokks-
ins og ráku Saadi og vini hans úr
landi Þetta vakti mikinn ugg í
Damaskus og var talið, að þeir
einu, sem græða mundu á brott
rekstri Saadis, væru Aref forseti
og vinir han« úr hópi hægrisinna.
Um miðja síðustu viku héldu
Michel Aflaq, foringi Baath-flokks
ins í Sýrlandi, og samstarfsmenn
hans í flýti til Bagdad, ráku Shabib
og Jawad til Beirút tif þess að
friða óbreytta flokksmenn, sem
flestir héldu enn tryggð við Saadi
og koma aftur á aga í flokknum.
Aflaq tók í rauninni völdin í írak
í sínar hendur og boðaði kosningar
innan fjögurra mánaða. Búizt var
við því, að Saadi og félagar hans
mundu síðan taka við völdunum.
En valdabaráttai^ hélt áfram
og var síður en svo leyst. Heijta
vandamál Aflaqs var í því fólgið,
að deila Arefs og Saadis kæmi
fram í dagsljósið. Ef Saadi væri
leyft að koma of fljótt aftur t-il
landsins var búizt við, að . ekJd
mundu takast að koma í veg jyxir
átök, En án hans var óttazt, að
Baathistar mundu missa hin raun
verulegu völd í hendur Arefs óg
hægrisinnum hans úr hemum-.Qg
það er einmitt það, sem virðist
hafa gerzt.
Aflaq og íélagar hans gættu því
ítrustu varkárni. Þeir sögðu Saadi
að halda kyrru fyrir í Madrid
(þangað hafði hann haldið eftir
brottreksturinn) en kvöddu helzta
stuðningsmann hans, Mamdi Ab-
del Majid, verkalýðsmálaráðherra,
aftur til Bagdad.
Um helgina var tilkynnt, að ráð
herrar „ofstækismanna" og.,hinna
„hófsömu" hefðu verið sviptir em
bættum sínum. Hér var bæ.ði um
að ræða þá Saadi og Majid ann-
ars vegar og Shabib og Abdul Seik
ar Latif, einn helzta samstarfs-
mann hans, hins vegar. .. .
Tilkynnt var, að stjórnin yrði
endurskipulögð innan nokkurra
daga. Nokkrum klukkustundum
síðar gerði Aref „byltingu" sína
og tók öll völd 1 sínar hendur.íen
í þessum hluta heims virðast stjörn
arbyltingar koma í stað stjómar-
skipta eins og þau þekkjast á Vest
urlöndum og vera eins tíðar. ■
Hýenur
Framh. af 6. síðu
Hýenur eru — og ekki að á-
stæðulausu — álitnar huglausar
skepnur, þó hika þær ekki við
að ráðast á böm og gamalmenni
þegar þær sjá sér færi á. í Hárar
þola menn þær hins vegar vegna
þess að þær koma í staðinn fyrir
öskukarlana, sem engir em í pláss
inu. ' r_'jÉ
Við stöðvuðum bílinn og gengum
í áttina að hrörlegum veggöum.
Hjá honum sat á hækjum sér, Har
arbúi að nafni Fariq. Haim benti
okkur að- setjast- hjá sér.
Allt umhverfis okkur heyrðum
við hýenumar róta og gefa frá
sér snögg hljóð' og stöku sinnum
ráku þær upp gól, sem því nær
frysti blóðið í æðum okkar.
Fariq tók nú að kalla lágt út
í myrkrið.
Skyndilega veittum við því at-
hygli, að skuggarnir voru famir
að nálgast okkur. Þeir komu stöð
ugt n^r og að endingu vorum við
umkringdir hópi hýena með augun
glampandi í flöktandi olíu-
lampaljósinu.
Fariq kaliaði nafn út í myrkrið.
NÝJASTA LANDKYNNINGARBÓKIN
t 'OSKTU
clllr di. SICURD ÞCRARINSSON
— til vina og viðskiptamanna erlendis.
ALMENNA BOKAFELAGIÐ
Hýena tók sig; út úr geigvænleg-
um hópnum og kom í áttina til
hans. Hann nefndi annað nafn- og
enn annað. Hýenurnar komu til
hans hver af annarri til þess að fá
sinn hlut.
í eitt skipti kastaði Fariq kjöt-
stykki fyrir fætur mér, hýena kom
þjótandi og hrinti mér niður af
steininum, sem ég sat á, um leið
og hún greip; bitann.
Röðin hélt sér unz Fariq átti
ekki til meira kjöt. Sú síðasta fór
ekki fyrr en hann hafði klappað
henni.
„Jæja,“ sagði Amaha vinur minn
„segðu vinum þínum heima þetta.
Aldrei fyrr hefur hýena verið
íamin.“
Við héldum aftur til bílsins og
ókum til baka.
Mér er það ennþá óskiljanlegt
hvers vegna nokkur maður leggur
það á sig að temja hýenu, en þetta
var lærdómsríkt eigi að síður.
Systurríki
Framh. úr opnu
hafa hlotið undanfama tvo áratugi,
eru nú orðin að hálfgerðum eða al
gerum einráeðisríkjum.
Lífskjör almennings hafa að
sögn þeirra, sem bæði hafa fylgzt
með þróun Indlands og Pakistan
undanfarin 16 ár, lítið batnað og
hægt í báðum löndunum og dýr-
tið aldrei verið þar meir en nú.
Hagnaðurinn virðist setjast fyrst
að efst í stqttastiganum í þessum
löndum og hér sem annars staðar
er leiðin löng niður á við, þar
sem allur fjöldinn býr.
Erlendur Haraldsson.
Heimkeyrður pússningar-
sandur og vikursandur, sigtað
ur eða ósigtaður, við húsdyrn-
ar eða kominn upp á hvað.a hæt
sem er. eftir óskum kaupenda
Sími 41920.
SANDSALAN vlð Elliðavog s.f
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Fundur verður í Stjórnunarfélagi íslands
laugardaginn 23. nóvember kl. 14.00.
Fundarefni:
Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, flytur
erindi: Umbætur í opinberum rekstri.
Félagsmönnum er heimilt að taka með sér
gesti.
Stjórnin.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
verður haldið eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík o.
fl.,-föstudaginn 29. nóvember n.k. kl. 1,30 e. h.
Seldar verða eftirtaldar bifreiðir:
R-13, R-823, R-876, R-890, R-1219, R-1729, R-2259, R-2424,
R-2823, R-2846, R-2889,, R-3335, R-3361, R-3516, R-3539,
R-3601, R-4013, R-4153, R-4163, R-4725, R-4730, R-4851,
R-4860, R-5828, R-6243, R-6502, R-7063, R-7922, R-7023,
R-8299, R-8443, R-8611, R-8647, R-8829, R-8964, R-9711,
R-10203, R-10249, R-10949, R-11049, R-11178, R-11473,
11850, R-12370, R-12422, R-12561, R-13219, R-13438,
R-13468, R-13946, R-13981, R-14660, R-14786, K-449 og
Y-1147.
Greiðsla fari fram við liamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Heimabakaðar kðkur
fást í Tjarnarseli.
Vegna mikillar eftirspurnar er þeim sem ætla að fá kökur
fyrir jólin bent á að panta þær hið allra fyrsta.
Tjamarsel, Njálsgötu 62
Sími 15504
Köku og smurbrauðssala.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 21. nóv. 1963: |3