Alþýðublaðið - 21.11.1963, Síða 4
Vinur Nassers er
einvaldur í Irak
ABDUL Salem Mohammed Aref
Æorseti í írak, sem hefur tekið
öll völd í landinu í sínar hendur
og leyet upp Þjóðvarðarliöið, sem
Baath-flokkurinn stjórnaði, er vin
ur Nassers Egyptalandsforseta.
Þessir síðustu atburðir í Bagdad
<eru mikill ósigur íyrir Baath-flokk
xnn, sem hefur raunverulega far-
ið með völdin í landinu síðan
byltingin gegn Kasi a(m fyrrum
einræðisherra var gerð í febrúar
á þessu ári.
Baath-flekkurinn, sem einnig
Jiiefur öllu ráðið í „systurlýðveid-
imu“ Sýrlandi, er höfuðandstæð-
ingur Nassers forseta, en þá
greinir á um liið sameiginlega
imarkmiö, sameiningu Araba, Fy.rr
í liaust gerðu írak og Sýrland
xneð sér hernaðar- og efnahags-
bandalag.
Ef Aref forseta tekst að treysta
sig í sessi er líklegt talið, að
kreppa muni mjög að Sýrlandi og
stjórn Baathista þar muni jafn-
vel falla — einhvern næstu daga
eða einhvern tíma á næstu vikum
<eða mánuðum.
, Einnig er líklegt talið, að sam-
skipti íraks og Nassers muni
fratna mjög ef Aref tekst að treysta
.sig í sessi. Hins vegar er ekki taí-
ið, að sameining Egyptalands og
íraks verði ráðgerð, að minnsta
kosti ekkj fyrst í stað, enda er
IVasser varkár varðandi hugmynd
«r um sambandsríki. Hann mun á-
Xíta, að írakar verði sjálfir að
koma málefnum sínum í lag aítut'.
‘A „NAGÚIB“ BYLTINGAR-
INNAR
Kassem, sem steypt var af Gtóli
í febrúar, brauzt til valda í hinni
„upphaflegu“ byltingu í írak í
júlí 1958, þegar meðlimir konungs
fjölskyldunnar, sem stjórnað
hafði landinu um árabil, og Nuri
as-Said forsælisráðherra voru
myrtir. Maðurinn, sem nú er for-
seti og hefur tekið sér alræðis-
völd, Abdul Salem Aref, stóð að
baki báðum þessum byltingum.
Þegar árið 1958 töldu margir Kass.
em „Naguib“ byltingarinnar en
Aref „Nasser“ hennar. Þetta virð
ist nú vera að koma í ljós.
Það var Aref, sem er rúmlega
fertugur að aldri, sem stjórnaði
her£,veitum þepn, sem her'ióku
KASTLJÓS
Bagdad, höfuðborg Iraks 1958.
Karsem hélt ekki innreið siua í
borgina fyrr en daginn eftir. Aref
var skipaður varaforsætisráðherra
.innanríkisráðlierra og yfirmaður
hersins í fyrstu stjóm Kassems.
Aref, sem er dökkur yfirlitum.
liggur lágt rómur en er mjög vel
máli farinn, ferðaðist víðsvegar
um landið fyrstu mánuðina eftir
byltinguna og hélt eldheitar ræð-
ur þar sem hann hyllti JNasser
innilega. Hann fór ekki í laun-
kofa með það, að hann vildj að
írak gengi í Arabíska nambands-
lýðveldið, sem Sýrland átti þá
enn aðild að.
í október 1958 kólnaði vinátta
, Kassems og Arefs. Hann var í
Aref
rauninni gerður landrækur, þar
eð hann var skipaður sendilierra
í Bonn. Aref hélt til Vestur-Þýzka-
lands,, en tók aldrei við stöðu sinni.
Nokkrum vikum síðar var hann
kvaddur heim, ákærður íyrir sam-
særi gegn Kassem og dæmdur
tiL dauða.
Skömmu síðar breytti Kassem,
sem gerði sér grein fyrir
miklu vimsældum Arefs í hernum,
dóminum í ævilangt fangelsi. í
G.eptemþer 1951 var hann látinn
laus, en var þó enn hafður í eins
konar stofufangelsi og undir eftir
liti. Þetta eftirlit hefur augsýnilega
ekki verið nógu strangt, því að Ar
ef tók þátt í skipulagningu bylt-
ingarinnar gegn Kassem í febrúar
sl.
★ KLOFNINGUR.
Aref var skipaður forsetj eftir
byltinguna enda naut liann mikilla
vinsælda. En framtíð hans virtist
vafatöm. Aref var ekki Baathisti
en Baathflokkurinn náði fljótlega
völdunum. í írak og styrkti sig
mjög í sessi eftir byltinguna í Sýr-
landj í marz sl.
Baath-flokkurinn, sem er talinn
eins konar jafnaðarmannaflokkur,
liefur ekki á bak við sig stuðning
meðal fjöldans í írak eða Sýr-
landi. En flokkurinn er undir
sterkri stjórn, agi er strangur í
röðum hans og hann er betur skipu
lagður en aðrir stjórnmálaflokkar
í þessum löndum.
Baath-flokkurinn treysti sig
mjög fljótlega í sessi i írak, eink-
um með tilstyrk Þ.jóðvarðarliðs-
ins svokallaða, sem er nokkurs kon
ar stormsveitir. Þúsundir manna,
aðallega, ungir menn og atvinnu-
lausir, innrituðust í Þjóðvarðar-
liðið og hlutu pólitíska upp-
fræðslu. Þeir létu mikið á sér
bera í Bagdad og öðrum bæjum
og gengu oft um göturnar xneð
hávaða og látum.
En Baath-flokkurinn í írak var
klofinn í tvo hópa. Öðrum arinin-
um, eða „ofstækismönnunum“
stjórnaði Ali Salih al-Saadi, harð-
skeyttui: sósíalisti, sem hafði
byggt upp flokkinn á dögum Kass
em-stjómarinnar þegar hann varð
að starfa neðanjarðar. í hinum
arminum, sem Talib Shabib utau-
ríkisráðherra og Hezem Jawad
innanríkisráðherxa stjórnuðu, voru
„hófsamir" menn og hægfara,
Fréttaritarar telja, að. kjarni
deilunnar milli „ofstækismanna“
og hinna „hófsömu" hafi verið
þjóðfélagslegs eðlis. Shabid og Jaw
ad eiga til auðugs miðstéttafólks
að telja og þeir vilja sósíalisma
án byltingar. Shaib dvaldist í
.London og Bairút, kvæntist
enskri konu og lifði rólegu lífi
meðan Saadi stappaði stálinu í ó-
breytta liðsmenri flokksins við nef
ið á lögreglu Kassems.
Deila hinna hófsömu og ofstæk-
ismannanna eftir byitinguna
beindist einkum að fi'amtíð Þjóð-
varðarliðsins. Saadi taldi lið
þetta tæki til sósíalískrar byltingar
og stormsveitir handa Baatli-
flokknum, sem nota mætti gegn
aþdstæðingujn hans innanlanlds.
Shabid og Jawad vildu hins veg
ar draga úr áhrifum Þjóðvarðar-
liðsins og vai'öandi þetta hlutu þeir
öflugan stuðning Arefs forseta pg
hersins, sem löldu Þjóðvarðai'iið-
Á myndinni eru, talið frá hægri: Jónas Árnason, sem séð hefur unx
útgáfu bókarinnar, Björn Bjarman, Ási í Bæ, Stefán Jónsson, Jökull
Jakobsson og Indriði G. Þorsteinsson.
AFLA
Á næstunni er væntanleg á mark-
aðinn bók, sem líklegt er að vekja
muni athygli. Hún heitir „Afla-
menn” og, er frásagnir af fimm
sægöi'pum, Ási í Bæ skrifar um
Binna í Gröf, Stefán Jónsson um
„Álaveiðar” og byggir það mest
á reynslu Péturs Hoffmanns,
Björn Bjarman skrifar um „síld-
veiðar” og aflamanninn Garðar
Einarsson. Jökull Jakobsson skrif
ar um Guðjón Illugason, sem ver
ið hefur í Pakistan og Indlandi
I um árabil og kennt þarlendum
; fiskiveiðar, Indi’iði G. Þorsteins-
I son skrifar þátt um hvalveiðar
j og för með Jónasi Sigurðssyni.
' Jónas Ámason hefur annast
I útgáfuna, en útgefandi er Heims-
kringla.
ið hættulegan keppinaut, og hægri
sinna, sem gengið höfðu í lið með
Baathistum vegna andkommúnist
ískrar stefnu þeirra en óttuðust
og voru mótfallnir róttækum sósí
alisma Saadis.
★ HERFER® GEGN KÚRDUM.
Fljótt eftir byltinguna komust
í Baathistar í mikilvægustu em-
bætti og öll völd komust í hendur
þeirra. Áhrifa þeirra gætti bráð-
lega. Stríðið gegn Kúrdum í norður
héruðum landsins var hafið á nýj-
an leik og hreinsað var til í stjóm-
inni og stofnunum ríkisins.
Þegar haft var í huga, að írak-
ar hafa um þúsund ára skeið reynt
að brjóta Kúrda á bak aftur án
árangurs, og hin erfiða herferð
gegn þeim veikti stöðu Kassems
og stuðlaði að falli hans, benti lít-
ið til þess, að nýju valdhöfunum
Árði betur ágengt í baráttunni gegn
; Kúrdum.
Herferðin hófst á nýjan leik í
júní vegna þess að fulltrúum nýju
I stjórnarinnar og Kúrda hafði ekki
tekizt að ná samkomulagi um sjálfs
stjórn til handa Kúrdum. Baath-
istar höfðu einlæglega viljað sam
komulag við Kúrda eftir bylting-
una, en kröfur Kúrda voru mjög
miklar og meiri en Bagdad-stjói'n
in taldi sig geta gengið að.
i Uggvænlegt þótti, að Rússar
i lýstu yfir eindregnum stuðningi
j við Kúrda, en foringi þeirra.
Mustafa al-Barzani, liefur lýst því
yfir, að hann sé ekki kommúnisti,
þótt liann hefði dvalizt um árabil
j í útlegð í Sovétríkjunum. En ekki
I er við því að búast, að þeir hafni
vopnasendingum ef þörfin fyrir
vopn verður mjög knýjandi. Enn
fremur hættu Rússar að veita írak
aðstoð, sem haldið hafði verið á-
fram að veita írak þrátt fyrir of
sóknir nýju stjórnarinnar gegn
j kommúnistum.
Kúrdaherferðin nýja olli klofn
ingi í stjórninni í Bagdad. Fjórir
| ráðherrar sögðu af sér og munu
hafa talið viturlegra að semja við
Kúrda en að taka upp vopn gegn
þeim.
I Herferðin varð ekki til þess að
1 auka vinsældir nýju stjórnarinnar
sem tókst ekkj að afla sér stuðn
ings meðal fjöldans fremur en
j Baathistum í Sýrlandi. Tilraunir
I til þess að koma á sambandsríki
íraks, Sýrlands og Egyptalands
báru heldur ekki árangur vegna
ágreinings Nasserg og Baathista.
i Hins vegar hélt Aref sambandinu
við Kairó opnu, og Nasser og Aref
voru ekki ósammála, en það hafa
þeir báðir sagt í einkasamtölum.
★ SIGRAR SAADIS
Eftir fund Baath-flokkanna í
Framh. á 18. síðu
4 21, m. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ