Alþýðublaðið - 22.12.1963, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 22.12.1963, Blaðsíða 1
 m EfSí “irrrs sendir frá sér jólablað í f jórum hlutum, sem koma út í desember. 0 M| j ITI Auk bess kemur út stækkað iólahefti af Sunnudapshl. rétt fvrir iól *-U 1 1 sfi^ÉðÉ mmmm mmm JVi^TSW ?V>*^-SK JOLASALMUR Velkominn vertu, vorri að létta neyð, athvarf vort ertu æðst í lífi og deyð, ástvin elskulegur, aumra hirðir trúr, hjálp og heillavegur hlíf og verndarmúr. Þú vor græðir synda sár, sorg er mæðir, þerrar brár, sækir bæði gíð og ár sauði glötun úr. Velkomin vertu, vetrar perlan fríð, síblessuð sértu, signuð jólatíð, Guðs frá gæzku hendi gulli dýrra hnoss. Þökk sé þeim er sendi þig, svo gleðjir oss. Þú oss friðarboðskap ber, birtir grið og náð oss tér, læknar sviða, sárt er sker, súta léttir kross. Velkominn vertu, vor Immanúel, ástgjöf sú ertu, állt sem bætir vel böl, er hjörtu hrjáir, haldin eymd og synd, hvíld, er þreyta þjáir, þyrstum svalalind. Jesú góði, þökk sé þér, þig að bróður fengum vér, þitt oss blóðið lífgjöf lér ljóminn guðs og mynd. Velkomin vertu, villtra manna hjörð, — síblessuð sértu, sólin lífs á jörð. Guðdómsgeisla þína götu mannkyns á láttu skært æ skína skelfing bægðu frá. Kuldarín hrek úr hjörtunum, hreina vek í sálunum trú og þrek í þrautunuin, þig unz fáum sjá. Helgi Hálfdánarson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.