Alþýðublaðið - 22.12.1963, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 22.12.1963, Blaðsíða 11
EINU SINNI lágu mörg skip í höfn nokkurri. Þau höfðu legið þarna lengi, ekki vegna storma, heldur vegna logns. Loks höfðu þau legið þarna svo lengi, að skips hafnirnar voru hættar að gá til veðurs. • Allir skipstjórarnir höfðu með tímanum or,ðið góðir vinir. Þeir róru milli skipanna í heimsókn hver til annars og kölluðu hver ahnan „frænda.” Og þeim lá ekkert á að komast af stað. Stundum kom það fyrir, að einn eða annar ungur stýrimað- ur hafði orð á því, að nú væri góð- ur byr og sæmilegt í sjóinp, En það þoldi skipstjórinn ekki. Allt varð að vera í röð og reglu á skip- inu. Þess vegna voru þeir, sem ekki gátu haldið sér saman settir á land. En þannig gat það ekki gengið til eilífðar. Það eru ekki allir menn eins góðir og þeir eiga að vera, og það eru ekki allir, sem geta þolað frið og aga. Skipshafnirnar fóru með tíman- um að mögla. Hásetarnir voru voru orðnir leiðir á því að hafa ekki annað fyrir stafni en að mála káétuna, þvo þilfarið og róa með skipstjórann til teveizlunnar og til baka aftur. í sumum skipunum voru, sett upp seglin, eitt af öðru með mestu kyrrð. Akkerinu var létt, án söngs og skipið leið út úr höfninni fyrir léttum andvara, — meðan skipstjórinn svaf. En þá komu hinir skipstjórarnir til hjálpar og svo var óróaseggjunum hegnt og þeir settir á land og aft- ur voru skipin bundan við festar og gengið sem traustast frá öllum legufærum. En samt sem áður lögðu öll skipin úr höfn að lokum, að einu undanteknu. Þau voru ekki öll jafn heppin, siftn komu inn aftur og hafði hlekkzt á, og af öðrum bár- ust engar fregnir. Á einu skipinu höfðu, að því er fregnir hermdu, orðið uppreisn og skipstjóranum var fleygt fyrir borð og á öðru skipi var hálf skipshöfnin í hlekkj- um, og skipið sigldi eitthvað út í hafsauga, enginn vissi hvert. En öll voru þau á siglingu, ýmist í stormi eða logni og öll stefndu að einhverju takmarki. Aðeins eitt skipið varð eftir í höfninni, og það lá við tvö akkeri og engin hætta var á þvi, að það slitnaði upp. Þetta var lítill, skritinn kuggur. Það var gamalt skip, en hafði ný- lega verið gert við það. Skipstjórinn var einkennilegur náungi. Hann hafði sjálfur málað mynd af skipinu og þetta málverk hékk uppi í káetunni. Og svo gat skipstjórinn sungið sálma og önn- ur kvæði. Og til voru þeir, sem álitu, að hann byggi sjálfur til þessar vísur. En það hefur nú sjálf sagt verið lygi, sem hásetarnir voru að hvísla sín á milli, að skip- stjórinn væri dálítið sjóveikur. — Svoleiðis sögur hafa hásetarnir gaman af að segja léttadrengnum til þess að sýnast svolítið manna- legir. Og auk þess var til stýri- maður á þessu skipi, sem gat gefið strikið, ef með þurfti. Hann hafði siglt sem stýrimað- ur í mörg herrans ár, allt frá því á dögum föður hans sáluga. Hann var orðinn nærri því gróinn við stýrið, og hásetarnir gátu varla hugsáð til þess, ef þeir þyrftu að fá annan stýrimann. Að vísu hafði þessi stýrimaður aldrei «iglt til framandi stranda, en af því að alltaf höfðu verið fleiri menn á skipinu en hann, þá hafði skipinu aldrei hlekkzt neitt á. Þess vegna voru þeir stýrimað- urinn og skipstjórinn sannfærðir um það, að engir væru betri far- menn en þeir og þess vegna skiptu | þeir sér ekkert af því, sem aðrir ! gerðu. Þeir bara horfðu upp í j loftið og hristu höfuðin. Skipshöfninni leið vel, því að [ hún var ekki betra vön. Flestir I hásetarnir gátu hreint ekki skilið 1 það, hvers vegna hinum skips- ! höfnunum lá svona mikið á að ! komast af stað. Þeir voru vanir því : að mánuðurinn liði, hvort sem þeir lágu í höfn eða voru úti að sigla, og þegar þeir lágu í höfn, þurftu þeir ekki að vinna. — Svo lengi sem skipstjórinn eirði kyrr- setunum, var skipshöfnin á- nægð, því að honum hlaut þó að vera mest áhugamál að komast af stað. Og auk þess vissu allir hversu mikill sjómaður stýrimað- urinn var, og þegar jafn reyndur sjómaður og liann áleit ekki fært í sjó, þá gat maður verið sann- færður um, að hann hafði sínar ástæður fyrir því. En. þeir yngstu af skipshöfn- inni voru dálítið órólegir. Þeim fannst skömm að því að liggja við landfestar, þegar allir aðrir leystu j og létu í haf. Að lokum varð þeim j aðgerðarleysið svo óbærilegt, að j þeir sendu léttadrenginn aftur í til skipstjórans og báðu hann að á- kveða þrottfarardaginn. Hinir skynsamari af skipshöfn- inni krossuðu sig og báðu létta- drenginn að gera svo vel að hafa sig hægan. En hann var framhleypinn græn jaxl. hafði siglt á öðrum skipum og þóttist vera dálítið yfir meðal- lagið. Hann gekk aftur á skipið og fór ofan í káetuna. Þar sat skipstjórinn og stýrimaðurinn yf- ir viskýi og spilum. — Eg átti að spyrja, hvort skip- stjórinn vildi «kki setja upp segl í næstu viku, því að nú erum við orðnir svo leiðir á aðgerðarleys- inu, sagði léttadrengurinn — og horfði óhikað í augun á skip- stjóranum. Skipstjórinn varð fyrst blár sem hel, svo rauður sem blóð og að lokum bleikur sem bast. En svo náði hann sér og sagði eins og hann var vanur að segja: -— Hvað finnst þér, stýrimaður?' — Hm, sagði stýrimaður með hægð. Og hann var ekki vanur að segja meira, því að hann vildi al- drei svara, þegar hann var spurð- SMÁSAGA EFTIR ALEXANDER KIELLAND skipstjóri frá því ég komst á sjó- inn. En ég veit hvað þú og þínir líkar eru að hugsa um. Þið hugs- ið ekkert um skipið og ef þið gæt- uð hrifsað völdin til ykkar, þá siglduð þið beina leið á næsta hólma, til þess að geta náð á ykk». ar vald viskíinu. En það verður nú ekkert af því, góðurinn minn, og hér verðum við svo lengi sem mér sýnist. Framh. á bls. 45 ur. En þegar hann var einn gat hann þulið langar setningar og ó- skiljanleg orð. Og þá var skip- stjórinn hreykinn af honum. En þó að svar stýrimanns væri svona stutt, þá skildi skipstjórinn hvað hann átti við. Hann snéri sér að léttadrengnum mjög alvar- legur í bragði og sagði: — Bölvaður grænjaxlinn þinn. Heldurðu að ég hafi ekki betra vit á þessu en þú? Eg sem h^f verið ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 22. des. 1963 41

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.