Alþýðublaðið - 31.12.1963, Blaðsíða 2
Cltmjorar: Gyifi Gröndal cabj og tíenedlkt Grðndal. — Fréttastjðrl:
knú Gunnarsson - RitstjómarfuUtrúl: EiBur GuBnason. - Simar:
14900-14903. Auglýsingasimi 14906. - ABsetur: AlþýBuhúslð vlO
Hverflsgötu, Reykjavík. — PrentsmiBja AlþýBublaBslns. - Á.skriftargjald
kr. 80.00. — í lausasölu kr. 4.00 eintaklð. — Útgefandl: AlþýBuflokkurinn.
EINA VONIN
| • VIÐBURÐAHÍKT ÁR er að líða í aldanna
] iskaut.
Nátturuhamfarir voru miklar, jarðskjálftar
firutu niður borgir, flóð eyddu byggðum og eld-
fjöll hlóðu upp nýjar eyjar. Uppskerubrestur var
1 Austur-Evrópu og um norðanverða Asíu. En ann-
• ars staðar var afli góður og í heild bjó mannkynið
(við meiri velmegun en fyrr. Eða með öðrum orð-
um: Líklega hafa færri búið við skort en áður, þrátt
fyrir öra f jölgun.
Ýmils óáran var í mánnfólkinu á þessu ári. Hör
; undslitur olli enn hatri, sem fór vaxandi í Suður-
Afríku, en í Bandarílcjunum sóttu negrar aukinn
, rétt með aðgerðum, sem líkt var við byltingu- Trú
arbrögð leiddu til stjórnbyltingar og forsetadráps
í Suður Vitet-Nam, og brenndu búddamúnkar sig
lifandi á torgum uti. Ofstæki ieiddi launmorðingja
fcil að skjóta Bandaríkjaforseta.
Þrátt fyriir allt þetta ivarð flug friðardúfunnar
léttara- Margar þjóðir fengu frelsi án blóðsúthell-
inga, og ráðamenn stórveldanna stigu fyrsta skref-
ið á þúsund mílna leið afvopnunar, er þeir gerðu
öáttmála um bann ivið kjamorkutilraunum. Þótt
fleira væri elcki undirskrilfað, hefur enn stefnt í
sömiu átt, er Sovétrílcin drógu úr fjárútlátum til
t-ígbúnaðar og Bandaríkjamenn lögðu niður nokkr
ar herbækistöðvar. Fátt mundi sárþjáðu mannkyni
ikærara en frekari árangur á ieið afvopnunar.
Lofar góðu, að vestrænir ráðherrar hafa síðustu
daga rætt hugmyndir eins og þær, að austur og
vestur semji um að eyðileggja mikinn fjölda
spremgjuflugvéla.
• Miklar breytingar hafa orðið á forustulið'i stór
þjóða. Elli og sjúkleiki hafa skákað þeim Adenau-
er og Macmillan til hliðar, og Kennedy er fallinn.
Hinn aldraði og stórlátil Frakklandsforseti stendur
einn uppi þeirra, sem stýrðu málum í síðasta ó-
friði, og heíur aldur og reynslu umfram aðra þjóð-
léiðtoga. Krústjciv og Mao eru báðir komnir til
'ára sinna, og kann það að hafa mikil áhrif, hve
langur starfsaldur þeilrra verður og hverjir taka
við af þeim. Nýir menn standa nú á stjórnpalli
ó rnargri þjóðarskútu, og vonandi sannast enn, að
maður komi í manns stað.
Með hugviti sínu hefur maðurinn skapað tækni,
sem opnar nýjar leiðir til að útrýma hungri og fá-
tækt. Því milður hefur félagslegur þroski ekki auk-
izt jöfnum höndum, og gengur ilia að halda frið,
hvað þá að jiafna auði jarðar milli þjóðanna. Hvorki
kapítalismi eða kommúnismi virðast ráða við þann
tvanda, en eina vonin er sú, að hugsjónilr Samein-
uðu þjóðanna skili mannkyninu áleiðis í rétta átt.
í þeirri von óskar Alþýðublaðið lesendum sínum
árs og friðar.
Flugfélagr íslands h.f. óskar að
ráða flugfréyjur í þjónustu sína,
sem hefji störf á vori komanda á
tímabilinu apríl-júní.
Góð þekking á ensku og cinu
Norðurlandamálinu nauðsynleg.
Einungis ógiftar stúlkur koma til
greina.* Umsækjendur þurfa að
geta sótt kvöldnámskeið, sem
hefjast í byrjun febrúar n.k.
XJmsóknareyðublöð liggja
frammi á skrifstofum vorum
heima og erlendis.
Umsóknarfrestur er til
15. janúar n.k.
Starfsmannahald félagsins veitir
nánári upplýsingar, ef óskað er.
|
+ FurSuieg ritsmíð í jólablaði.
Minnkandi siðferðiskennd.
Sorphreinsunin í borginni. |
Allir starfsmennirnir þurfa að vera fastráðnir.
F. R. SKRIFAR mér af gefnu
tilefni: „Það er augljést að mjög
er menningu okkar íslendinga á-
fátt — og við erum á hraðri leið
niður á við. Klám á opinbeyum
vettvangi færist mjög í vöxt og
fólk virðist orðið sljótt gagnvart
sóðaskap í ræðu og riti. Það er
ekki tiltökumál þá að cinhver sót
rafturinn komi dónalega fram í
augsýn almennings, en þegar rit
stjórnir blaða gera sig sameka, þá
er ástæða til þess að það sé gert
að umræðuefni.
ÉG SEGI ÞETTA af gefnu til-
efni, og þér hlýíur, Hannes minn,
að vera ljóst, hvað það er sem ég
á við. í einu jólablaðinu birtist
saga, ef sögu skyldi kalla, sem er
sóðaleg klámsaga og þykir mér
skörin vera farin að færast upp í I
bekkinn þegar ritstjórinn velur
jólablað sitt til birtingar á slíkum
óþverra. Ég ásaka ekki piltinn,
sem setti þetta saman — af því
að það er vafamál að liann sé á-
byugur gerða sinna, en ég ásaka rit
stjórana, sem birtu þetta“.
JÁ, ÉG VEIT hvað bréfritari á
við. Birting þessa samsetnings er
tákn um tímana, sem við lifum á,
vottur um hjaðnandi siðferðis-
kennd og vaxandi virðingarleysi
fyrir því, sem fólk hefur til
skamms tíma talið vera til þess að
hefja það úr niðurlægingu. Annars
er bezt að hafa sem fæst orð um
þetta.
BÆRINN KOMST í nokkurs kon
ar vandræðaástand í verkfallinu
vegna þess, að ekki var hreinsað
frá húsum. Öll sorphreinsun lá
niðri alla verkfallsdagana. Dags-
brún hefur áður í tveimur stór-
deilum veitt undanþágu fyrir
hreinsun bongarinnar, en nú neit-
aði stjórn þess um undanþágu. Út
af fyrir sig er það ekki skiljanlegt,
því að engin áhrif gat það haft á
úrslit deilunnar.
Um SJÖTÍU verkamenn vinna að
sorplireinsun. Þar af eru um lutt-
ugu fastir starfsmenn borgarinnar
og því ekki bundnir af samningum
Dagsbrúnar. Fimmtíu eru bundnir
þeim. Þess vegna gátu tuttugu
verkamenn unnið að sorphreinsun
inni, en vitanlega náði starf þeirra
skammt. Strax og deilan leystist
hófu allir lireinsunina og hafa þeir
unnið svo áð segja nótt og dag
síðan, en ekki tókst að hreinsa £
ýmsum bæjarhverfum fyrir jólira
og olli miklum vandræðum.
IIVERS VEGNA eru ekki allir
sorphreinsunarmenn bæjarins
fastráðnir? Svo virðist sem hreins
un bæjarins sé svo mikið nauð-
synjamúl frá' öllum sjónarmiðum.
að gera verði allt sem unnt er til
þess að hún stöðvist ekki. Mér er
sagt að fastráðnum mönnum í
þessu starfi fari heldur fækkandi.
og er það mjög miður. Vil ég hér
með fara þess á leit við borgaryf-
irvöldin að þau athugi þetta mál.
ÁSTANDIÐ NÚ í desember var
slæmt, en enn verra virðist það
geta orðið ef deila skellur á að
sumrinu í Iiitum. þá getur það
valdið miklu meiri vándræðum.
Hannes á horninu. j
2 31. des. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ