Alþýðublaðið - 31.12.1963, Síða 6
iS, 15 ára, sem sett er milli barna
og fullorðinná. Þessi mörk séu
sett alveg út í bláinn, og enginn
geti sagt með rétti, að nákvæmlega
við þann aldur hafi menn náð
þroska fullorðinna manna.
Kappaksturshjón
Eins og kunnugt er, leggja bif-
reiðaverksmiðjur mikla áherzlu á,
að framleiðsla þeirra standi sig
vel i keppni við framleiðslu ann-
arra verksmiðja. Naumast er
nokkuð jafn mikil auglýsing fyrir
bifreiðategund og sigur f kapp-
akstri. Þar reynir á viðbragðs-
flýti, stöðugleika, kraít og styrk-
leika bifreiðarinnar, jafnframt
því sem slíkar keppnir vekja at-
hygli víða um heim.
Það segir sig sjálft, að þrátt
fyrir það, að bifreiðin þurfi að
vera góð, þá stendur þó allt og
fellur með ökumanninum.
Þessi tvö, sem myndin hér a3
ofan er af, eru bæði fræg fyrir
akstur. Maðurinn er Carlson sá,
sem að undanförnu hefur sigrað í
hverjum kappakstrinum á fætur
öðrum á Saab-bifreiðum, stúlkan
heitir Pat Moss og er systir hins
fræga Stirling Moss, sem nú er
hættur keppni eftir að hafa hálf
drepið sig. — Myndin er tekin í
tilefni af því, að þessi tvö voru
að gifta sig og skyldi maður ætla,
að þau gætu fundið sér einhver
sameiginleg áhugamál.
Eér gefur á að líta dýr, sem var til sýnis á hænsnfuglasýningu í
London í byrjun þessa mánaðar og bar sigur úr býtum í sínum flokki,
sem engan skyldi undra.
Fuglinn ber tegundarheitið „Pólskur hvítingi“.
f-'W-í
■' ’ I
., -i g§
m mkJm
m
.
★ Nasser Egyptalandsforseti hef-
úr tekið upp nýja gerð skatt-
heimtu, hann leggur um það bil
100 kr. skatt á hvert vegabréf, sem
inn í hans ríki kemur. Peningarn
ir eiga að ganga til þess að vernda
Abu Simbel-hofin frá eyðileggingu
en þau liggja nú undir skemmd-
um. Þar sem Egyptalandsför er
ekki neitt smáfyrirtæki hvort eð
er, verða það naumast margir,
sem kvarta undan þessari skatt-
lagningu.
★ Kvikmyndahúseigendur í
Sviss hafa nú gert herferð í þágu
þeirra viðskiptavina sinna, illa
uppaldir meðborgarar ónáða á
sýningum.
t upphafi hverrar sýningar birt-
ast á tjaldinu reglur, sem allir
gestir húsanna skulu halda. Þar
segir, að ekki megi tala saman né
gera háværar athugasemdir um við
myndina. Ekki megi láta skrjáfa
í sælgætispokum og dreifa um-
hverfis sig bananahýði. Ef þessar
reglur eru ekki haldnar og hóg-
værar aðvaranir starfsfólksins ekki
teknar til greina, má varpa ófrið-
arvöldum á dyr og eiga þeir enga
heimtingu á endurgreiðslu miða
sinna.
★ Mennirnir eru uridarlegir,
Segðu þeim hve mörg bein eru í
mannslíkamanum og þeir trúa þér
umsvifalaust. En setjir þú skilti
sem á stendur „Nýmálað" á bekk,
mun enginn þeirra geta stillt sig
um að ganga úr skugga um það
með því að reka fingurinn í bekk
★ Achmed Sukarnó, forseti
Indónesíu hefur smám saman eft
ir valdatöku sína árið 1949 tekið
að sér fjölda embætta og titla,
svo sem forsætisráðherra, her-
málaráðherra, formaður lýðveld-
isráðsins, forseti þjóðþingsins, á-
byrgðarmaður þjóðarinnar, for-
ingi hinnar andlegu byltingar og
yfirmaður Mekka-pílagrímanna.
Nú hefur hann tekið sér nýtt
nafn, sem mun taka yfir öll fyrri
hehi. Þess utan er það miklu ein
faldara en fyrri romsan.
Á mikilli hátíð í Djakarta fyrir
skemmstu, þar sem hann skyídi
halda fyrilestur yfir 70.000 mönn-
um-, kynnti hann sig sjálfur, með
eftirfarandi orðum: „Hér er ég,
— ég er Indónesía.
Höfum við ekki heyrt eitthvað
þessu líkt áður?
★ Stangaveiðimaðurinn spurðibón0
ann um leið og hann benti niður
að ánni: Seg þú mér, vinur minn,
er leyfilegt að veiða hér?
— Já, það er leyfilegt.
— Ég frem þá ekki neitt afbrot
þó ég nái einhverjum fiski hérna?
— Nei, þú vinnur kraftaverk.
Amerískir vlsindamenn hafa sem vonlegt er brotið mjög um það
heilann hvernig þeir geti haft samband við væntanlega tunglfara
þangað komna. Myndin hér að ofan er af tæki sem þykir einna væn-
legast til þess að geta verið til nota í því augnamiði.
Þetta eru 200 alúminíumplötur, sem hver um sig er fest á lóð-
réttan fót og getur þannig hreyfzt sjálfstæð. Plötunum er komið fyrir
í sporöskju. Það er bandaríski herinn, sem stendur fyrir þessum
framkvæmdum í Concord í Massachusetts.
Síðar meir verður komið upp miklu stærri mótt :ara og hann
á að geta tekið við skeytum frá senditækjum, sen tunglfararnir
munu bera á sér á göngu sinni um tunglið.
PENINGAFÖLSUN
! DANMÖRKU
j í JÓLAMÁNUÐINUM fóru að
sjást fregnir um það í dönskum
blöðum, að komnir væru í um-
) ferð falskir peningaseðlar. Þetta
eru 500 krónaseðlar, sem um er
að ræða', og þeir eru mjög vel
gerðir, að því er glæpalögreglan
segir. Fólki er ráðlegt að bregða
seðlum upp í ljósið til þess að
sjá hvort vatnsmerkið er á sínum
' stað og rétt gert.
Hingað til hafa ekki fundizt
fleiri en tveir slíkir seðlar. Ekki
er heldur talið sennilegt að mikið
magn sé í umferð. Allt bendir til
þess að seðlarnir séu gerðir í hönd
unum og þannig er erfitt að búa
til mikið upplag. Geysileg vinna
liggur að baki gerð hvers einstaks
seðils. ,
Annar hinna tveggja föisku
seðla, sem hingað til hafa fund-
izt, kom inn í verzlun eina í Lyng
by. Verzlunarmanninn grunaði
Framh. á 4. síðu
HIN nýja kvikmynd Ingmars.
Bergmans, „Tystnaden", er opin
skárri í kynferðislýsingum en nokk
ur önnur mynd, sem sloppið hefur
ur ósködduð í gegnum sænska
kvikmyndaeftirlitið. Forstjóri eft,
irlitsins, Erik Skoglund, segir, að
þessi atburður geti orðið grund-
vollur fyrir alvarlegar umræður
um þær afleiðingar, sem það geti1
haft, að hievpa slíkri mynd á mark1
aðinn. Kvikmyndaeftirlitið sænska |
varð fyrir harðri gagnrýni í sam- ’
bandi við þessa mynd Bergmans.
Skoglund var fjarverandi þegar
myndin var samþykkt, en hann
tók það fram, að hann væri fylli-
lega sambvkkur ákvörðuninni. Eft
irlitsmennirnir töldu, að hið mikla
listræna ei’di myndarinnar. bæri
alveg ofurliði þær röksemdir, sem
færa mætti fram gegn vissum hlut
um hennar frá siðgæðislegu sjónar
miði.
Skoglund telur hins vegar, að
æskilegt hefði verið að hafa víðtæk
ari umræður við sálfræðilega ráðu
nauta, sem eru eftirlitsmönnum
ætíð til aðstoðar ef óskað er. Hann
gagnrýnir einnig mjög aldursmark
Hinir þrír efíi Lsmenn, sem
samþykktu myndi >, hafa einnig
látið til sín heyra. Þeir segjast
hafa verið sammála urn, ao börn-
um skyldi bannaður aðgangur að
myndinni, að öðru leyti skyldi
hún leyfð athugasemdalaust. Þeir
undirstrika, að þær aðfinnslur,
sem gera megi við myndina, séu
ekki svö þungar á metunum, að
þær réttlæti klippingar á mynd-
inni, og ekki sé undir neinum
kringumstæðum um að ræða
bann á myndinni. Umrædd atriði
verði að líta á í samhengi en ekki
ein sér. Afskipti af klippingu
hefðu spillt fyrir starfi alvarlega
hugsandi listamanns við að út-
breiða boðskap sinn.
£ 31. des. 1963 — ALÞYÐUBLAÐIÐ