Verkamaðurinn - 11.08.1961, Page 7
Föstudagur 11. ágúst 1961
VERKAMAÐURINN
7
Kringsjn
vikunnnr
Messað í Akureyrarkirkju n. k.
sunnudag kl. 10.30 f. h. í kapell-
unni. Sálmar nr.: 572, 207, 675
og 218. — Ræðutexti: Matt. 6.
9,—13. — B.O.B.
Frá Ferðafélagi Akureyrar. —
Ferð að Þeistareykjum á morgun
(laugardag) kl. 2 e. h. Gist á
Þeistareykjum. A sunnudag ekið
til Mývatns um Gæsadal og
Sandabrekku. — 18.—20. ágúst:
Ferð í Iivannalindir. Ekið um
Möðrudal, Arnardal, Álftadal og
Fagradal. Lagt af stað kl. 8 f. h.
föstudaginn 18. — Nánari upp-
lýsingar á skrifstofu félagsins,
Skipagötu 12, sími 2720 á mið-
vikudags- og fimmtudagskvöld,
kl. 8—10. — Árbók F. í. afgreidd
á sama tíma.
I. deild. Á sunnudaginn kl. 5
e. h. keppa Valur og ÍBA á Akur-
eyri. Þetta verður næstsíðasti
leikur Akureyrarliðsins í keppn-
inni. Sá síðasti verður um aðra
helgi. Þá koma Akurnesingar
nórður.
Frá happdrœtti STAK. — Hinir
12 glæsilegu vinningar verða tíl
sýnis næstu daga í sýningarglugga
Véla- og raftækjasölunnar h.f.,
Hafnarstræti 100. — Happdrætt-
ismiðar eru til sölu þar, í Sport-
vöruverzlun Brynjólfs Sveinsson-
ar og á bæjarskrifstofunum og
kosta kr. 25. — Dregið 29. ágúst
n.k. — Aðeins dregið úr seldum
miðum. — Starfsmannafélag Ak-
ureyrarbæjar.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Björk Árna-
dóttir úr Skagafirði og Sigurður
Vatnsdal, prentari, POB.
Hjúskapur. Þann 4. ágúst voru
gefin saman í hjónaband brúð-
hjónin ungfrú Elín Hafdís Ing-
ólfsdóttir, tannsmiður og Andrés
Sverrir Ingólfsson, hljóðfæraleik-
ari. Heimili þeirra er að Sólheim-
um 23, Rvík. — Sama dag, brúð-
hjónin ungfrú Guðrún Zophoní-
asdóttir og Þórhallur Jónsson,
verkamaður, Hafnarstræti 20, Ak-
ureyri og 5. ágúst brúðhjónin
ungfrú Heba Ásgrímsdóttir, ljós-
móðir og Hallgrímur Skaftason,
skipasmiður, Norðurgötu 53, Ak.
Margvísleg er vitleysan
Höfnm við efni ;t að grefa síld
Síldveiðarnar hafa gengið bet-
ur í sumar en verið hefur um
fjölda ára. Það er ekki aðeins
hagur fyrir alla þá mörgu ein-
staklinga, sem að veiði síldarinn-
ar og vinnslu vinna, heldur og
ekki síður fyrir þjóðarbúið í
heild. Þjóðartekjurnar stórauk-
ast. „Fallegt þegar vel veiðist,“
sagði bóndinn á Hvítárvöllum og
átti þá við laxveiðina í Hvítá. Séð
af sama sjónarhól mætti segja:
Það er fallegt á íslandi, þegar vel
veiðist af síld.
En svo mikil er óstjórnin á
landi hér, að síldaraflinn er ekki
nytjaður sem skyldi, ekki gerður
að því verðmæti, sem framast er
hægt.
Skammsýni hefur valdið því,
að niðursuðu- og niðurlagningar-
verksmiðjur fyrir síld eru hér að
kalla óþekkt fyrirbæri. Ur því
verður ekki bætt á fáum dögum,
en þarf og verður að gerast.
Að kalla allur aflinn er ýmist
saltaður eða unninn í verksmiðj-
um, sem breyta síldinni í mjöl og
lýsi.
Saltaða síldin er miklu meira
verðmæti. Samt er fyrirhyggju-
leysi Síldarútvegsnefndar svo
mikið, að hún lætur stöðva sölt-
un, þegar búið er að salta upp í
fyrirfram gerða samninga. Rétt
eins og óhugsandi sé að selja síld-
ina eftir að hún er komin í tunn-
ur og kaupendur þurfa ekki að
vera í neinum vafa um, hvort
þeir fái þá vöru, sem þeir vilja
kaupa eða ekki.
Einstakir síldarsaltendur vildu
halda áfram að salta á eigin á-
byrgð, en Síldarútvegsnefnd hef-
ur að mestu komið í veg fyrir það
með því að hafa ekki tunnur á
boðstólum, en Nefndin hefur
einkarétt á innflutningi þeirra.
Alveg er víst, að með þessari
ráðsmennsku skaðast þjóðin um
stórfé.
En með þessu er ekki allt upp-
talið.
Síldin hefur undanfarið aflast
fyrir austan land. Síldarverk-
smiðjurnar á Austfjörðum eru
flestar litlar og hafa hvergi nærri
undan að vinna úr þeirri síld,
sem að þeim berst. En heildaraf-
kastageta síldar- og fiskimjöls-
verksmiðja í landinu er mikil, og
margar þeirra standa lítt notaðar
eða jafnvel alveg ónotaðar. Það
þarf að flytja síldina að austan
til þessara verksmiðja. Lítillega
hefur verið byrjað á þessu, og
það voru verksmiðjurnar í
Krossanesi og á Hjalteyri, sem
þar riðu á vaðið. En til þess að
þetta gangi vel þarf allmörg og
nokkuð stór skip.
Til eru í landinu nóg skip til
að annast þessa flutninga, því að
nærri helmingur af togaraflotan-
um liggur í höfn ónotaður. Heppi-
legri skip til síldarflutninga munu
vandfundin.
En í stað þess að taka togarana
í þessa flutninga og láta þá vinna
fyrir sér, láta síldarverksmiðj-
urnar hafa síld til að vinna úr og
auka atvinnu og tekjur í landinu,
þá er síldin seld Norðmönnum ó-
unnin, flutt til Noregs og unnin í
verksmiðjum þar. Norðmenn hafa
stórtekjur af þessum flutningum
og vinnslu síldarinnar heima hjá
sér.
Víst eru frændur vorir í Nor-
egi alls góðs maklegir, en er þetta
samt ekki heldur léleg stjórnvizka.
Eða höfum við efni á því á sama
tíma og stjórnarvöld landsins
prédika það, að allt sé að fara til
helvítis í þessu landi nema þrengt
sé á sultarólinni, að veita slíkar
gjafir?
Nei, við höfum ekki efni á að
gefa slíkar gjafir á meðan lífs-
kjörum alþýðu er haldið niðii
með ofbeldi.
Við höfum ekki efni á að láta
söltunarhœfa síld ósaltaða sé
vinnuafl fyrir hendi til að koma
henni í tunnur.
Verkamaðurinn
VIKUBLAÐ. — Útgefendur: Sósíalista-
félag Akureyrar og Fulltrúaráð Afþýðu-
bandalagsins í Norðurlandskjördæmi
eystra. — Skrifstofa blaðsins er í Hafn-
arstr. 88, Akureyri, sími 1516. — Ritstjórar: Þorsteinn Jónatansson (áb.), heima-
sími 2654, og Hjafti Kristgeirsson, heimasími 2158. — Áskriftarverð kr. 80.00 ár-
gangurinn. — Lausasöluverð kr. 2.00 eintakið. — Blaðið kemur að jafnaði út a
föstudögum. — Prentað í Prentsmiðju Björns Jónssonar hf., Akureyri.
Við höfum ekki efni á að láta
síldarverksmiðjur standa ónotað-
ar á meðan hœgt er að fá síld lil
vinnslu.
Það á að salta alla þá síld, sem
hœgt er að salta, og það á að
vinna í íslenzkum síldarverk-
smiðjum alla þá síld, sem ekki er
hœgt að salta.
mmjjmwmmmmmwmji
Afmælis-
happdrætti
Þjoðviljans
TILKVNHINC
Matvæli, sem geymd. eru á
frystihúsi voru
UTAN HÓLFA,
verða að vera tekin fyrir
20. ágúst næstkomandi. —
Eftir þann tíma verður
geymsluklefinn frostlaus
vegna hreingerningar fyrir
sláturtíð.
Frystihús KEÁ.
Aílaskýrsla
Norðaust-
urþings
Á laugardagskvöldið var heild-
arafli síldveiðiskipa úr Norðaust-
urþingi orðinn sem hér segir; tal-
ið í málum og tunnum:
Akraborg, Akureyri 8871
Áskell, Grenivík 10214
Baldur, Dalvík 10665
Baldvin Þorv., Dalvík 8043
Bjarmi, Dalvík 9575
Björgvin, Dalvík 9216
Einar Þveræingur, Ólafsf. 2630
Garðar, Rauðuvík 5254
Guðbjörg, Ólafsfirði 13211
Gunnólfur, Ólafsfirði 994
Gylfi, Rauðuvík, 4588
Gylfi II, Akureyri 7208
Hagbarður, Húsavík 4250
Hannes Hafstein, Dalvík 4318
Héðinn, Húsavík 10016
Ilelga, Húsavík 5418
Helgi Flóv., Húsavík 7697
Hrefna, Akureyri 3045
Júlíus Björnsson, Dalvík 3517
Ólafur Bekkur, Ólafsf. 7649
Ólafur Magnússon, Ak. 15777
Pétur Jónsson, Húsavík 10891
Sigurður Bjarnason, Ak. 10076
Smári, Húsavík 8265
Snæfell, Akureyri 12780
Stefán Þór, Húsavík 6629
Stígandi, Ólafsfirði 2116
Súlan, Akureyri 6649
Sæþór, Ólafsfirði 9664
Vörður, Grenivík 7462
Þorl. Rögnvaldsson, Ól. 3600
Ljósmynda-
vörur
í fjöibreyttu úrvoli,
meðal annars
sjólfvirkar myndavélar.
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR og PÉTUR
Brckkugötu 5 . Sími 1524.
Akureyri.
Hver miði er tvöfaldur happ-
drættismiði.
Dregið hefur verið fyrirfram um
500 vinninga að upphæð samtals
hálf milljón kr. Kaupandi getur
strax athugað, hvort hann hefur
hlotið einhvern þessara vinninga.
Það er dregið fjórum sinnum um
Volkswagen-bifreið í hvert skipti.
Athugið að varðveita miðana,
þótt þið hafið ekki hlotið auka-
vinning. Það er von í Volkswagen.
Hver miði kostar 50 kr. — Heil
blokk, miðar fyrir alla útdrætti,
kostar 200 krónur.
Aðalumboð fyrir Norðurland er
á afgreiðslu Verkamannsins í
Hafnarstræti 88 á Akureyri.
Sími1516.
Umboðsmaður í Fnjóskadal er
Páll Gunnlaugsson, Veisuseli.
Umboðsmenn á Húsavík eru
Kristján Jónasson, Garðarsbr. 38
og Sigfús Björnsson, Ásgarðsvegi
14.
Umboðsmenn á Raufarhöfn eru
Jónína Geirmundsdóttir og
Einar Borgfjörð.
Afmælishappdrœtti
Þjóðviljans