Verkamaðurinn - 25.08.1961, Qupperneq 2
2
VERKAMAÐURINN
Föstudagur 25. ágúst 1961
(Framhald af 3. síðu.)
sem næstar eru hendi flestum
unglingum? Því er fljótsvarað.
Það eru sorprit alls konar. Hér á
landi er gefinn út sægur af glæpa-
ritum, flest í ódýru mánaðarrits-
formi, og þar er einkum fjallað
um lægstu hvatir manna, sem far-
ið hafa í hundana í undirheimum
erlendra stórborga. Nærri má
geta, hvað þetta er uppbyggileg
lesning óþroskuðu og ómótuðu
fólki. Velji menn hins vegar held-
ur bækur, þá stendur til boða nóg
af bókum með álíka efni og sorp-
ritin.
Opni menn frekar útvarpið, þá
er það mála sannast, að megin-
efni þess er frekar til þess fallið
að vekja tómleika í sálinni heldur
en byggja þar eitthvað upp. Og
svo satt sem þetta er um íslenzka
útvarpið, hvað má þá ekki segja
um hernámsútvarpið á Keflavík-
urflugvelli, sem spúir eitri sínu
yfir meiri hluta landsins búa?
Við sjáum því, að einnig á þessu
sviði eiga unglingarnir sakarefni
á hendur eldri kynslóðinni.
Það er viðurkennd staðreynd,
að kvikmyndir eru eitt mesta
menningar- og uppeldistæki, sem
tækni þessarar aldar hefur af sér
getið. En þessu er líka hægt að
snúa við, þær geta líka verið ó-
menningartæki, ef innihald þeirra
og boðskapur er þess eðlis. Það
er öllum vitanlegt, að allur þorri
þeirra kvikmynda, sem til lands-
ins flytjast, er rusl. Innihald
þeirra er í samræmi við frásagnir
sorpritanna og músíkbreimið á
Vellinum. Tvær stundir í sölum
kvikmyndahúsanna er mörgum
unglingnum afdrifaríkari skóli
heldur en heil vika í skyldunámi.
Svo sem þér til sáið, svo munuð
þér og upp skera. Og þegar alla
vikuna er sáð slíkum óþverra í
sálir barnanna og unglinganna,
sem nú hefur verið getið, er þá
nokkur furða, þó að uppskeran í
afsiöar Piim
vikulokin verði eins og algengt er
að fram komi á samkomum?
Hver er ástæðan fyrir því, að
menningartæki eins og bækur,
tímarit, kvikmyndir keppast við
að afsiða þjóðina og þá fyrst og
fremst áhrifagj arnasta hluta henn-
ar, unglingana? Hún er sú, að
hér ríkir þjóðfélag gróðahyggj-
unnar. Menningartækin eru í
höndum gróðabrallsmanna, sem
reka þau eins og hver önnur at-
vinnutæki, reyna að hafa tilkostn-
aðinn sem minnstan og gróðann
sem mestan. „Framleiðsla“ sorp-
ritanna kostar mjög lítið, og þau
skila meiri hagnaði en menning-
arrit, tímarit sem flytja jákvæð-
an fróðleik og listir. Menningar-
rit berjast öll í bökkum, það er
ekkert leyndarmál. Sama er að
segja um kvikmyndirnar. Góðar
vandaðar myndir kosta óhemju
fé. En tekjurnar er eins líklegt að
verði minni af góðu myndunum.
Það er nefnilega dýrt fyrir einka-
framtakið að ala upp góðan
smekk hjá fólki. En að skemma
smekkinn og afsiða fólkið, það
borgar sig, það gefur peninga í
aðra hönd. Svona liggur í því, að
kapítalisminn hefur ekki efni á
menningarlífi. Spurningin er
bara, hvort við, fólkið, höfum
efni á því að búa við kapítalism-
ann.
Gróðasjónarmiðið kemur þó
bezt og átakanlegast í ljós á þeim
samkomum, sem unga fólkið hef-
ur völ á um helgar, böllunum. Þau
eru eingöngu haldin til þess að
skrapa saman peninga, ýmist
handa fj árbrallsmönnum eða þá
handa ýmiss konar félagsskap,
sem ekki hefur önnur úrræði til
þess að fá fé til starfsemi sinnar.
Það eru reist vegleg félagsheimili
í sveitum og þorpum, en fés til
þeirra er aflað með fánýtum dans-
leikjum fyrir hálfgerð börn og
unglinga. Þannig er eðlileg
skemmtana- og athafnaþrá æsku-
lýðsins höfð að féþúfu og teymd
TILKYNNING
NR. 13, 1961.
Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð
á brenndu og möluðu kaffi frá innlendum kaffibrennsl-
um:
í heildsölu, pr. kg................... kr. 43.55
í smásölu, með söluskatti, pr. kg..... — 51.60
Reykjavík, 22. ágúst 1961.
VERÐLAGSSTJÓRINN.
á óhollar brautir. Dansleikir eru
út af fyrir sig ekki ámælisverðir,
heldur hitt, að þeir eru að verða
það eina skemmtanaform, þar sem
fólk er virkur aðili. Og það er allt-
of einhæft. Það þarf að vera miklu
meira af skemmtunum með leikj-
um og dagskrá, sem fólkið skapar
sjálft. í slíku býr menningarafl
og þroskamöguleikar. En hætt er
við, að þá yrði gróði hinna ýmsu
samkomuhúsa eitthvað skertur.
Og ekki má gleyma áfenginu.
Það er ein aðaltekjulind ríkis-
sjóðs, og víst sú öruggasta þeirra.
Það er ekki von á góðu,þegar það
er eitt helzta kappsmál ríkisvalds-
ins að selja sem mest brennivín.
Og það gerir engan greinarmun á
þeim peningum, sem hálfvaxnir
óvitar fleygja í ríkiskassann, og
þeim sem koma frá ráðsettara
fólki. Ríkið á sér líka góða sölu-
menn, þar sem eru hinir fjöl-
mörgu leynivínsalar, sem víla
jafnvel ekki fyrir sér að fara alla
leið úr Reykjavík austur á Hall-
ormsstað, ef ball er haldið við
Atlavík. Það á að vísu svo að
heita, að þetta sé ekki vel séð af
löggjafanum, en það eru ekki
gerðar neinar róttækar aðgerðir
til þess að stemma stigu við þessu.
Enda er þetta ekki nema í góðu
samræmi við þjóðskipulag einka-
framtaksins og gróðahyggjúnnar.
Þó að hér hafi ekki verið nema
rétt gripið á ýmsum þeim vanda-
málum, sem nú steðja að í sam-
bandi við uppeldi æskulýðsins,
þroska hans og siðgæðisvitund,
þá ætti þó að vera ljóst, að höfuð-
meinsemdin liggur í sjálfu þjóð-
skipulaginu, kapítalismanum. —
Kapítalisminn er nú kominn á sitt
lokaskeið, og því fylgir menning-
arleg og siðgæðisleg kreppa. Um
þessa kreppu vitna frásagnir af
Vaglaskógi, Hallormsstað og fleiri
stöðum um allt land um verzlun-
armannahelgina 1961. Þær skulu
því verða okkur, sem ekki viljum
sætta okkur við afsiðun æskulýðs-
ins og þjóðarinnar allrar, hvöt til
þess að vinna enn þá betur að
sköpun nýs og fullkomnara þjóð-
félags. Ófeigur.
Hringið
í Skjaldborg,
sími 1024.
Prentsmiðja
Björns Jónssonar h.f.
Akureyri.
Gerist óskrifendur að
VERKAMANNINUM
HMoiýÉg oð Bjorgi
Sjálfsbjörg heldur SÝNINGU á málverkum Guðmundar
Halldórssonar að Bjargi sunnudaginn 27. ágúst og verður
hún opin frá kl. 2—11. — Enn fremur verður þar KAFFI-
SALA á sama tíma til ágóða fyrir félagsskapinn. Bæjarbúar
fjölmennið! Skoðið málverk Guðmundar Halldórssonar og
styðjið um leið gott málefni.
SJÁLFSBJÖRG.
§krif§tofnitiiIka
Akureyrarbær óskar að fastráða stúlku til vélritunar og ann-
arra skrifstofustarfa frá 15. september nk. — Umsóknir með
upplýsingum um menntun og fyrri störf þurfa að berast fyrir
10. september næstkomandi.
Bœjarstjórinn á Akureyri,
21. ágúst 1961.
Aknreyringar!
M æriveitanienn!
Önnumsl alla mólningarvinnu.
Lótið okkur fegra híbýlin.
Vönduð vinna. — Fljót afgreiðsla. — Reynið viðskiptin.
MÁLARAR:
JÓN M. GUÐMUNDSSON,
Sími 2426.
MAGNÚS JÓNSSON,
Sími 1886.
Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar
H E L D U R
Félagsfund
í Ásgarði, Hafnarstræti 88, föstudaginn 25. þ. m. kl. 8.30 e.h.
DAGSKRÁ:
1. Tekin ákvörðun um uppsögn samninga.
2. Reglugerð fyrir sújkrasjóð félagsins.
3. Önnnur mál.
FJÖLMENNIÐ!
S t j ó r n i n .
Byggingaldnasjóður
Umsóknir um lán úr Byggingalánasjóði Akureyrarbæjar á
þessu ári þurfa að hafa borizt fyrir 10. september næstk.
Eyðublöð fyrir umsóknir fást á bæjarskrifstofunni.
Eldri, óafgreiddar umsóknir þarf að endurnýja. Lánsum-
sóknir verða væntanlega afgreiddar í októbermánuði.
Bœjarstjórinn á Akureyri,
21. ágúst 1961.