Verkamaðurinn - 25.08.1961, Page 6
6
VERKAMAÐURINN
Föstudagur 25. ágúst 1961
Marjorie Benton Cooke: J.O*
LISTAFÓLK OG HJÓNABÖND
atriðum, jafnvel þeim, sem hann hafði tekið ástfóstri við.
Ef Bambí óskaði þess, að hann yrði frægur, þá skyldi hann
líka verða það.
IX.
Jarvís vann að endurbótum á leikriti sínu í þrjá brenn-
heita daga og mikið af nóttunum. Á fjórða degi fór hann
með árangur erfiðis síns til Harper leikkonu, en hún var þá
farin í ferðalag. Jarvís varð nauðugur viljugur að bíða
eftir henni í fjóra daga í viðbót, því að þolinmæði og bið-
lund var kjörorðið í lífsins skóla, sem Bambí vildi að hann
stæði sig í. Þegar Harper gaf sér loksins tíma til að líta á
leikritið í sinni nýju gerð, þá lét hún sér fátt um finnast.
Annar þáttur, sem hann hafði skrifað upp á nýtt, væri að
vísu þolanlegur, en þriðji þáátturinn væri eftir sem áður
óbrúkanlegur. Það var sama þó að Jarvís læsi upp nýjar
sviðsmyndir og kæmi fram með nýjar hugmyndir, hún
klykkti út með því að segja með svolitlum geispa, að henni
geðjaðist alls ekki að leikritinu. Ef hann gæti ekki sett sam-
an góðan þriðja þátt, þá kærði hún sig yfirleitt ekkert um
að fá leikritið. Jarvís fullvissaði hana um, að hann mundi
koma með nýjan þriðja þátt daginn eftir.
Jarvís fann til undarlegs tómleika í höfðinu, aldrei hafði
hann fyrr haft aðeins 24 stundir til að skrifa heilan þátt í
leikriti. Hann sat og skrifaði allan daginn og fram á nótt,
en fór svo út í borgina til að fá sér eitthvað að borða.
Hann sá borgina og sjálfan sig í nýju ljósi þessa nótt.
Hann skildi, að nú væri að duga eða drepast. Eins og þetta
fólk, sem þarna flykktist um göturnar barðist sinni baráttu
fyrir lífinu, þannig yrði hann líka að berjast fyrir framtíð
sinni. Bambí byggist líka við því, að eitthvað yrði úr honum,
ekki ráðleysingi og aumingi, sem alltaf er upp á aðra kom-
inn. Hann kom að opnum lystigarði og gekk í gegnum hann.
Á hverjum bekk sátu eða lágu samanhnipraðir tötrabassar
og sváfu. Hann fór hægt og virti þá vel fyrir sér. Flestir
voru gamlir — gamlir menn og konur, sem tæpast líktust
framar mannlegum verum. Svefninn gerði hinar ljótu ásjón-
ur þeirra og vansköpuðu líkami enn óhugnanlegri. Þarna
'voru líka nokkrir unglingar — ungur, upptærður maður
með hósta og þreytt ung stúlka, einn af fuglum götunnar,
sem fékk sér smáblund, áður en hún færi aftur út á götu-
hornið.
Á leiðinni heim hugsaði hann mikið um þetta óhamingju-
sama fólk. Ef það bindist samtökum og stæði hvert við ann-
ars hlið, þá kæmist það upp úr feninu. Það var í upplausn,
bæði siðferðilega og líkamlega. Þessi sóun mannlegra verð-
mæta er hluti af því verði, sem við verðum að kaupa yfir-
ráð verzlunarfrelsisins, auðlegð og völd og — hversu kald-
hæðnislegt! — lýðræðið.
Hann sneri aftur að vinnu sinni og skrifaði fram á morg-
un. Á tilsettum tíma fór hann með það sem hann var búinn
með til Harper leikkonu. Þar var honum sagt, að hún væri
kvefuð og yrði ekki við í dag.
í þetta skipti sóaði hann ekki kröftum sínum í það að
verða reiður yfir töfinni. Honum var ljóst, að þetta var ekki
leikur, heldur barátta um líf eða dauða. Annað hvort kæm-
ist hann til rnannvirðinga, eða honum yrði varpað út til
hinna útskúfuðu. Hann fann, að hann gæti ekki snúið aftur
heim til Bambíar, fyrr en hann hefði unnið sigur. Hann varð
að finna einhver ráð til þess að vinna fyrir sér þangað til.
Enga hjálp framar frá prófessornum eða dóttur hans. Hann
skrifaði Bambí um kvöldið og sagði henni undan og ofan af
sínum nýju viðhorfum.
Daginn eftir gekk hann á milli ritstjórnarskrifstofna og
leitaði fyrir sér um vinnu. En það virtist alveg nóg af vön-
um blaðamönnum á lausum kili, og honum skildist fljótt, að
þetta væri vonlaust fyrir hann, sem enga hafði reynsluna í
slíku starfi.
Síðdegis fékk hann áheyrn hjá Harper leikkonu og las
frumdrög að hinni nýju gerð fyrir hana. Að þessu sinni lík-
aði henni það stórum betur, og það varð að samkomulagi,
að hann skyldi virina úr þessum drögum hið skjótasta og
hreinskrifa það, svo að maður hennar, Parke leikhússtjóri
gæti lesið það, áður en þau færu í Evrópuferðina.
Nú söng vonin í brjósti Jarvíss, og hann hélt atburðinn
hátíðlegan með því að borða máltíð fyrir hálfan dollar, en
er hann kom heim taldi hann saman peninga þá, sem hann
átti eftir. Það voru tólf dagar til stefnu, og ef hann viðhefði
ýtrustu sparsemi, mundi hann geta dregið fram lífið. Hann
keypti sér prímus og kaffikönnu og gekk svo til verks.
Dagur varð nótt og nótt að degi, og alltaf vann Jarvís og
nærðist mest á kaffi, en fékk sér líka smurt brauð við og
við. Á tólfta degi tók hann saman árangur erfiðis síns og
fór heim til þeirra Parkes og Harpers. Þar var honum sagt,
að hjónin legðu af stað til Evrópu á hverri stundu og væru
þegar farin niður í skip. Þá var sú von að engu orðin, og
Jarvís hélt heimleiðis með samanbitnar tennur. Það væri
ekkert undanfæri, hann yrði strax í dag að hafa tal af Karli
Frohmann, hinum ókrýnda konungi leikhússtjóranna.
í Empireleikhúsinu, þar sem konungur leikhússtjóranna
ræður ríkjum, tók ungur maður á móti handritinu af Jarvís,
númeraði það og skrifaði það niður á lista.
„Hvenær verður það lesið?“ spurði Jarvís.
„Innan sex vikna,“ svaraði ungi maðurinn.
„Er hægt að hafa tal af herra Frohmann?“
„Aðeins samkvæmt fyrirfram gerðri pöntun. Hann er í
Evrópu sem stendur.“
Jarvís skildi hið dýrmæta handrit eftir og fór. Þegar hann
var kominn út á götuna, datt honum í hug, að depurðin, sem
á hann sótti, kynni að stafa af svengd. Hann fékk sér smurt
brauð og kaffi á veitingahúsi, en náði sér svo í símaskrá og
leitaði uppi ritstjórnarskrifstofur blaðanna. Svo var að fara
þangað og athuga um vinnu. En erfiðið kom fyrir lítið. Á
þeim flestum sá hann aðeins skrifstofumenn, sem afsökuðu
tímaskort ritstjórans og skrifuðu nafn hans og heimilisfang
um leið og þeir sögðu þetta sama ertandi: „Og lítið svo inn
aftur.“ Sólin skein heitt fyrir utan, og gangstéttin svignaði
upp og niður fyrir augnatilliti hans. Svo hélt hann heim-
leiðis í litla svefnherbergið, sem honum virtist nú allt í einu
sem friðarins skjól.
Hann gerði upp reikningana við sjálfan sig og fann, að
hann hafði verið á villigötum. Hann hafði reynt að rífa nið-
ur að ofan, og það gæti verið gott, ef hann gerði um leið
áhlaup neðan frá. Heimurinn þyrfti á hugsjónamönnum að
halda, en ekki af gamla skólanum, sem voru blindir á hin-
ar raunverulegu aðstæður og boðuðu kennisetningar, sem
áttu rætur sínar í fávizku.
SKRJÁF
í SKRÆÐUM
^ ---- i
SVO KVAÐ HANN.
„Nú er það fyrst og fremst hlut-
verk hinna hlutlausu smóþjóða,
sem utan við þennan hrikaleik
standa; að horfa ó hann með and-
legu jafnvægi, að hefjast handa,
sýna í verki að þær skilji tókn
timans og sögunnar, taka upp
nýjar og göfugri lífsreglur, taka í
lífi sínu og lagasetningu stefnu
eftir nýjum og hærri hugsjónum
um samlíf mannanna að „beztu
manna yfirsýn" og róðum.
Svo lítil þjóð, sem vér Islendingar
erum, þó getum vér þó, ef oss eigi
skortir mannvit og þekkingu, [
þessum efnum, gefið jafnvel öll-
um jarðbúum dæmi til eftir-
breytni, og með því orðið frömuð-
ir nýrrar og réttlótari heimsmenn-
ingar. Einmitt smóþjóðirnar, sem
hingað til hafa komizt hjó öfgum
og glapstigum skipulagsins, eiga
hægast með að taka upp nýjar
lífsreglur, nýja stefnu eftir nýjum
hugsjónum, taka varnað af vítum
stórþjóðanna. Hingað til höfum
vér trúað beint og rannsóknar-
laust ó lífsreglur og skipulag Ev-
rópuþjóðanna, tekið oss þær til
fyrirmyndar ! öllu, og jafnvel
reynt að apa eftir þeim þeirra
verstu og skaðlegustu öfgar, eins
og lítt þroskuðum unglingum svo
oft hættir til í samlífi sínu við hina
1 eldri. Nú sjóum vér til hvers þær
lífsreglur hafa leitt, sem þessar
fyrirmyndir vorar hafa fylgt. Slíkt
ætti að vera oss alvarleg aðvörun
um oð hverfa í tíma frq þeirri lífs-
stefnu, sem svo geipilega hefur
hefnt sín.
----Lótum oss þetta að varn-
aði verða. Stöldrum nú ofurli'tið
við, og hugsum oss um óður en
vér eltum stórþjóðirnar lengra út
í það siðlega og skipulagslega for-
æði, sem þær nú liggja í — og
„athugum vorn gang". Hefjum
síðan sjólfstæða rannsókn ó þess-
um lífsreglum og leggjum full-
komið og sannarlegt réttlæti til
grundvallar fyrir þeirri rannsókn.
Lótum engar venjur né viðtektir,
lagasetningar né trúarsetningar
blekkja oss."
Bcnedikt frá Auðnum.
„Réttur", I. órg. 191 5.
Léreítstuskur
hreinar og góöar — kaup-
um við hæsta verði.
Prentsmiðja
Björns Jónssonar h.f.