Verkamaðurinn - 06.09.1963, Qupperneq 1
Verkamaðurinn
Veriur Alþýöubandalagið byggt um
sem stjórnmdlallohhur d nœsta vetri?
Frá Höfn við Bakkafjörð. Víkingur og Bliki liggja við kantinn. Ólafsvikur
Kalli er kokkur á Víkingi. Utar síldveiðiskip, sem biða losunar. Fullar sildar-
tunnur í röðum bíða skips. — Sjá opnu.
Eins og öllum er kunnugt, er
Alþýðubandalagið ekki stjórn-
málaflokkur í þess orðs venjulegu
merkingu, heldur aðeins kosn-
ingasamtök vinstri manna, upp-
haflega myndað af Sósíalista-
flokknum og Málfundafélagi jafn-
aðarmanna í Reykjavík með
stuðningi óflokksbundinna manna
víðsvegar um land. Við síðustu
kosningar naut Alþýðubandalagið
og stuðnings mikils hluta Þjóð-
varnarflokksins.
Lengi hefur mönnum verið ljóst,
að slíkum kosningasamtökum er
erfitt að halda gangandi lengi,
nema þau séu fastar mótuð en Al-
þýðubandalagið hefur verið, og
sífellt hafa orðið háværari raddir
bæði innan Sósíalistaflokksins og
meðal Málfundafélagsmanna, og
upp á síðkastið einnig meðal
Þjóðvarnarmanna, sem hafa talið
rétt og sjálfsagt, að áframhaldið
yrði á þann veg, að Alþýðubanda-
lagið yrði byggt upp sem stjórn-
málaflokkur, þar sem allir þeir,
sem stutt hafa það eða vilja styðja
í framtíðinni, geti sameinast í
einum flokki, lýðræðislega upp-
byggðum, þannig að hver og einn
hafi aðstöðu til að hafa áhrif á
störf þess og stefnu.
Um þessar mundir standa yfir
athuganir á þessu máli í ríkari
mæli en áður hefur verið, og hef-
ur víða komið fram, að almennur
áhugi ríkir fyrir þessu máli. At-
huganir þær, sem nú fara fram
byggjast á eftirfarandi viljayfir-
lýsingu síðasta flokksþings Sósíal-
istafl., sem haldið var s.l. haust.
„Flokksþingið felur miðstjórn-
inni að kanna sérstaklega við
sósíalistiska samherja okkar í
Alþýðubandalaginu möguleika
á því að sameina alla þá sósíal-
ista, sem nú eru í Sósíalista-
flokknum, og aðra íslenzka sós-
íalista í einum marxistiskum
flokki
Á f lokksstj órnarfundi Sósíal-
istaflokksins í haust verður nánar
fjallað um þessi mál, og þar munu
væntanlega liggja fyrir niðurstöð-
ur af viðræðum við bandamenn
Sósíalistaflokksins í Alþýðu-
bandalaginu.. Kynni þá svo að
fara, að veturinn yrði notaður til
að stofnsetja og byggja upp nýjan
stj órnmálaflokk, — fj öldaflokk
vinstri manna, — sennilega undir
nafninu Alþýðubandalag.
Alþýðusamband
Norðurlands
boðar til 8. þings síns.
GOÐIJR GESTUR
Miðstjórn Alþýðusambands
Norðurlands hefur fyrir nokkru
ákveðið, að 8. þing sambandsins
verði haldið á Akureyri um fyrstu
helgina í október. Mun þingið
hefjast á laugardag og væntanlega
Ijúka á sunnudagskvöld. Þingtím-
inn er sérstaklega valinn með það
í huga, að kaup- og kjarasamning-
ar flestra sambandsfélaganna falla
úr gildi þann 15. október. Er því
mikil þörf áþví, að fulltrúar félag-
anna komi saman til að ræða hvað
gera skuli og samræma aðgerðir
sínar.
Aðalmálin á dagskrá þessa
þings verða þess vegna kjaramál-
in svo og skipulag verkalýðssam-
takanna, en svo sem flestum mun
kunnugt eru á döfinni allvíðtækar
breytingar á skipulagi samtak-
anna. Einnig verður fjallað um
atvinnumál á sambandssvæðinu,
orlofsheimili alþýðusamtakanna á
Norðurlandi og fleiri mál.
Um kosningu fulltrúa á þing Al-
þýðusambands Norðurlands gilda
sömu reglur og um kosningu full-
trúa á þing A.S.Í.
Forseti Alþýðusambands Norð-
urlands er Tryggvi Helgason, for-
maður Sjómannafélags Akureyr-
ar, og hefur hann verið forseti
sambandsins alla tíð frá stofnun
þess, 1946.
Helgi M. S. Bergmann, hinn
hugkvæmi og snjalli skopteiknari
er kominn hingað til Akureyrar
með sýningu. Þar gefur að líta
100 myndir af þekktum persón-
um séðum með auga listamanns-
ins, enn fremur vatnslitamyndir.
Listamaðurinn mun einnig teikna
myndir af gestum ef þeir óska
og er verði stillt í hóf. Helgi hefur
verið með sýningar á Vestfjörðum
í sumar og hlotið góða aðsókn.
Sýningin verður opnuð á Hótel
K.E.A. á morgun, laugard. kl. 2
og og verður opin til kl. 11 þann
dag og næstu daga.
Akureyringar eru hvattir til að
sjá þessa sýningu.
Skopskyn er góður eðlisþáttur.
Það léttir okkur lífið. Gaman er
einnig að sjá hvað ókunnur lista-
maður sér í svip okkar og sálar-
lífi.
Þannig lítur Óli blaSosali út ■ augum
listamannsins Helga M. S. Bergmann.
Island — E]ng:land
Á morgun fer fram í Reykjavík
knattspyrnukeppni, sem margir
munu hafa áhuga á. Landslið ís-
lendinga keppir við Breta og mun
þorskastríðið smástríð hjá þessu.
Flugfélag íslands hefur boðið okk-
ur upp á lækkun mikla á fargjöld-
um suður og heim, til að sjá leik-
limbrtt 09 þjójnöðir il Akureyri
Dátarnir klífa reiða og rár. — Sjá grein á bls. 7.
Aðfaranótt s.l. miðvikudags var
brotizt inn í Plastverksmiðjuna á
Oddeyrartanga og stolið þar um-
slagi með tólf þúsund krónum í.
Af sérstökum ástæðum lá þetta fé
þarna á borði undir glugga, var
hann brotinn og umslagið hirt
með öllu saman.
Einnig var brotist inn í Nýju-
Efnalaugina í Lundargötu 1 og
stolið einhverju af smámynt og
notuðum frakka. Losaður var
fleki, sem settur hafði verið fyrir
brotinn glugga til bráðabirgða, og
þannig komist inn.
Lögreglan hefur þessi mál til
rannsóknar.
Sömu nótt var maður á ferli um
bæinn og hafði áhuga fyrir bíl-
hjólum.
Hann náði tveim hjólum undan
ónothæfum bíl úti á Gleráreyrum
og tveim undan bíl inn hjá Gróðr-
arstöð. Þetta mál upplýsti lögregl-
an daginn eftir, og var utanbæjar-
maður að verki.
inn, sem hefst kl. 4. Er það nánar
auglýst í blaðinu.
Athygli skal vakin á því, að
Akureyringur skipar eina þýðing-
armestu stöðu í liði íslending-
anna, þ. e. Jón Stefánsson mið-
framvörður.
HEYRT
Á GÖTUNNI
AÐ eftirlitsmaður með vinveiting-
um sé flest kvöld til staðar á
Hótel KEA, en engjnn slíkur
sjáist í Sjálfstæðishúsinu.
AÐ enn hafi enginn fundizt, er
taka vilji á leigu húsnæði það,
er Kjörver hafði.
AÐ meðan þýzka skólaskipið lá
við bryggju á Akureyri hafi
bæjarstjórninni verið boðið til
veizlu um borð, nema fulltrú-
um Alþýðubandalagsins.
AÐ þegar sama skip kom til hafnar
í Harstad í Noregi hafi enginn
maður sézt á bryggju.