Alþýðublaðið - 18.01.1964, Qupperneq 5
Með gasgrímur
vegna öskufalls
ÍBÚAR San José, höfuðborgar
Iýðveldisins Costa Rica í Mið-
Ameríku ganga um með gasgrím-
ur eða vasaklúta fyrir andlitiuu
vegna mikils öskufalls frá eld-
fjallinu Irazu, sem er skammt frá
höfuðborginni. Fimmtíu þúsund
lestum af ösku hefur rignt yfir
borgina síð'an eldfjallið tók að
gjósa fyrir tíu mánuðum.
Það var hald manna, að eld-
fjallið væri útdautt, en það kom
xnönnum á óvart, Irazu tók að
gjósa af miklum krafti í marz í
fyrra og voru sumir gossteinarnir
tvær lestir á þyngd. Brátt var
borgin San José hulin öskulagi,
sem er eins og óhreinn snjór á
að líta.
Tíu mánuðum eftir að eldgosið
hófst virðist ekkert lát ætla að
verða á öskufallinu, sem veldur
miklum óþægindum. Gólf í hús-
um hulin ösku, sem berst inn um
glugga og í mat. Bifreiðar, ritvél-
ar og hurðir bíla og flugvélar
eru hættar að lenda á flugvellin-
um við borgina. Efnaðir borgar-
búar senda nú börn sín í skóla
erlendis.
Svo mikil aska hefur setzt í
ána Reventado í Costa Rica, að
í miklu fárviðri nýlega flæddi á-
in yfir bakka sína og 500 hús
eyðilögðust í bænum Cartago.
Öskufallið nær yfir 250 fer-
mílna svæði og þar er meðal ann-
ars ágætt hagleudi fyrir einhverja
beztu nautgripi Mið-Ameríku. —
Þeir hafa veikzt og hefur orðið að
lóga þúsundum þeirra. Mjólkur-
framleiðslan er aðeins 35% af því
sem hún er venjulega.
Bandaríkjamenn brugðust skjótt
við beiðni Costa Rica um aðstoð
og sendu 4 þús. lestir af naut-
gripafóðri. Hafin voru samskot til
kaupa á vélum til þess að hreinsa
göturnar. En gosið í Irazu heldur
áfram og íbúar San José hafa
ekki undan að sópa burtu ösk-
unni.
Götumynd frá José.
agnráðstafanir
nú skipulagðar
Reykjavík, 17. jan. — HP.
Á FJÁRLÖGUM fyrir 19G4 eru
4 milljónir króna ætlaðar til al-
mannavarna. Ennfremur hefur
Reykjavíkurborg nýlega sett á
laggirnar nefnd til að gera til-
lögur um almannavarnir í borg-
inni og veitt eina milljón króna
til almannavarna á fjárhagsáætl-
un fyrir þetta ár.
Alþýðublaðið spurðist fyrir um
það hjá dr. Ágúst Valfells, for-
stöðumanni Almannavama í dag
að hvaða framkvæmdum yrði unn-
ið fyrir það fé, sem ríkið hefur
ákveðið að verja til almannavarna
í ár. Hann sagði, að unnið yrði
að áframhaldandi áætlanagerð,
Frakkar ákveða að
viðurkenna Peking
Eldfjallið Irazú.
PARIS, 17. jan. NTB-RT
| Franska stjórnin skýrði Banda-
ríkéastjórn frá því í dag, að hún
hefði ákveðið að viðurkenna kín-
verska alþýðulýðveldið, að því er
góðar heimildir í París herma.
| Bandaríska utanríkisráðuneyt-
ið hefur áður sagt, að það sé and-
vígt því að kínverska alþýðulýð-
veldið sé viðurkennt, þar eð slikt
mundi auka gctu Kínverja til að
vinna að framgangi stefnu þeirra,
sem miði að því að breiða út komm
únismann með öllum tiltækileg-
um ráðum.
Þær fréttir berast frá París,
að franska stjórnin hafi íhugað
í dag þann möguleika, að senda
fulltrúa til Peking til að stuðla að
auknum vinramlegum samskipt-
um Frakka og Kínverja og hvetja
til aukinnar verzlunar.
Fréttamenn í París töldu, að
tilkynningarnar um fullt stjórn-
málasamband Frakka og Kínverja
og hugsan'.ega för franska sendi-
mannsins til Peking væri ekki að
vænta hið fyrsta.
Sennilega verður það Edgar
Faure, sem sendur verður til Pe
king. í fyrra var hann í hálfopin-
berum erindagerðum fyrir de
Gaulle í Kína.
en fram að þessu hefði starfiff
á skrifstofu Almannavarna eink-
um verið tvíþætt. Fyrst var unniðf
að því að gera sér grein fyrir
Framh. á 10 síðu.
í GÆR voru 25 ár liðin
frá stofnun Landssambands
ísl. útvegsmanna. Var það
stofnað í Reykjavík, 17. jan.
1939. Fyrsíi formaður þess
var Kjartan Thors og var
hann formaður fyrstu sex
árin. Síðan var Sverrir Júl-
íusson kosinn formaður
sambandsins og hefur síðan
ætíð verið endurkjörinn. —
Varaformaður sambandsins
er Loftur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri er Sigurður
II. Egilsson.
í tilefni afmælisins hefur
stjórn LÍÚ móttöku í skrif-
stofum samtakanna í Hafn-
arhvoli við Tryggvagötu í
dag, laugardag, kl. 5-7 sd.
Eining...
Framhald af bls. 1
skipa frá öðrum löndum á miðum
þegar ljóst er að íbúarnir í nám-
unda við þau eru aö nær öllu leyti
Eiáð fiskveiðunum í efnahagsiegu
tilliti. Aðrir samningsaðilar verða
þó að samþykkja þetta.
Samkvæmt uppkastinu eiga
6amningsaðilar einnig að hafa
rétt til að halda við núverandi
fiskveiðilandhelgi ef það er liag-
stæðara fyrir fiskveiðar annarra
jbjóða en áðurnefnd landhelgi.
Áreiðanlegar heimildir telja að
nýi samningurinn um fiskveiði-
landhelgi gangi í gildj í lok júr.í
Ki. k.
í tilkynningunni um ráðstefn-
una segir, að brezku stjórninni
ihafi verið boðið að kalla saman
tæknilega ráðstefnu með þátttöku
allra ríkja við Norður-Atlantshaf.
Þessi ráðstefna á að semja upp-
kast að nýtízku löggjöf um eftir-
lit ijieð fiskveiðum. Stjórnir
Bandaríkjanna og Canada verða
fceðin að senda fulltrúa til ráðstefn
Sinnar.
Lundúna-ráðstefnan rkovar jafn
framt á öll þau lönd, sem fulltrúa
eiga í nefndinni um fiskveiðar á
Norðaustur-Atiantshafi að auka þá
viðleitni sína að txyggja fiski-
ertofninn, segir í tilkynningunni.
Mailgrisnskirkju
Reykjavík, 17. jan. — ÁG.
STÚDENTABLAÐ, (Áramót)
fyrsta tölublaff 19G4, kom út í
dag. Er þaff helgaff Hallgríms-
kirkju, og bla'ðiff í heild harff-
orff mólmæli gegn byggingu
þessa minnismerkis um Hall-
grím heitinn Pétursson.
í ritstjórnargrein segir m. a.
Spurningin í dag er sú, hvort
Reykvíkingar ætli me'ff a'ffgerff-
arleysi sínu a'ff láta slíka bygg-
ingu gnæfa í allri sinni smekk-
leysu yfir borginni og Iands-
ntenn allir vilji láta sóa fé
sínu í hús þetta.” Greinin end-
ar á þessum orffum: „Þeir sem
ekki mótmæla verffa a'ff teljast
ábyrgir.”
Margir fcunnir menn skrifa
í blaðiff og svara spurningum
ritstjórnarinn'ar í sambandi vi'ff
kirkjubygginguna. Sumir eru
meff, sumir á móti. Meðal
þeirra, sem skrifa eru Sígurður
Iindal, Sigtryggur Klemens-
son, Þórir Kr. Þórffarson, Skúli
H. Nordahl, Hannes Kr. Dav-
íffsson, Pétur Benediktsson,
Thor Vilhjálmsson og Örn ÓI-
afsson.
í myndatexta á baksíffu seg-
ir: „Fyrir röskum þrjátíu árum
átti ísland um skeiff svolítinn
vísi aff harffstjóra, og eins og
harðstjórum er títt, átti hann
sér hirðarkitekt.”
Á forsíffu blaffsins er inynd
sú, sem birtist hér me'ff. Þykj-
ast menn kenna þar samlíking-
una. Skráffir ritstjórar og á-
byrgffarmenn Stúdentablaffsins
eru þeir Garffar Gíslason, stud.
jur. og Jón Öddsson, stud. jur.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 18. janúar 1964 $