Alþýðublaðið - 24.01.1964, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 24.01.1964, Qupperneq 5
I gær var undirritaftur samningur nvillí Íslands og Svíþjóffar til þess aff koma i veg fyrir tvísköt'un tekna og eigna. Gildistaka samningsins er háff fullgildingu, og er gert ráð fyrir að samningurinn komi til framkvæmda varð- andi skatta og útsvör sem á skal leggja árið 1965 og síð- ar. Gildistaka samningsins verður auglýst síðar og falla þá úr gildi samningar milli íslands og Svíþjóðar frá 8. september 1937 og 17. sept- ember 1955 um tvísköttun- armál. Samninginn undirritað; af íslands háifu Guðmundur í. Guðmundsson Utanrílíiisráð herra, og af hálfu Svíþjóðar August Herman von Hart- mansdorff, ambassador. Reykjavík, 23. jan - EG Heilbrigðismálaráðherra, Jóhann Ilafstein, maelti fyrir frumvarpi til breytinga á sjúkrahúslögum í neffri deild í dag. Auk þess aff gera grein fyrir þeim breytingum, sem frumvarpiff ráðgerir, gaf ráðherr- ann yfirlit yfir byggingarmál sjúkraliúsa og þá einkuni meff til- íiti til þeirra miklu framkvæmda í þeim málum, sem nú eru á döf- inni í Reykjavík. Sagffi ráðherrann, aff á næst- nnni þyrfti uni 350 milljónir króna til að fullgera þær byggingar, sem hafnar og ráðgerffar eru á lóð Eandsspítalans og við Borgar- sjúkrahúsiff. Margt væri unnið á þessum vettvangi og mikils fjár þörf. Heilbrigðismálaráðherra kvaffst vilja gefa þingheimi nokkurt yfir- Iit yfir stöðu þessara mála nú í dag, án þess þó aff þaff mundi tæmandi á neinn hátt. Rakti liann kvæmt nýlegum áætlunum tæp- lega 300 milljónum króna. Ráðherrann sagði, að unnið hefð verið við Borgarsjúkrahúsið fyrir 73 milljónir króna fram til þessa. Til viðbótar þar þyrfti um 135 milljónir króna. Varið hefði verið 150 milljónum til þessara framkvæmda, og væri fyrirsjáanlegt að verja þyrfti 350 milljónum til þessara mála nú í næstu framtíð. Benti ráðherra á nauðsyn þess að gerð yrði raunhæf áætlun um hvenær unnt yrði að ljúka þessum framkvænidum. Þá vék ráðherrann að málum geð- veikra og sagði að í þeim væri á- standið nú geigvænlegt. Sam- kvæmt bráðabirgðaáliti sérfróðra manna þyrfti nú að minnsta kosti 500 rúm fyrir geðsjúka. Á Kleppi mun nú vera rúm fyrir um 240, og væri Vá sjúklinganna í elzta hluta spítalans, sem byggður hefði ver- ið 1908. ' Væri heppilegast eins og stæði, að bæta úr neyðarástandi því sem nú ríkir, að byggja álmu við Lands spítalann þar sem rúm væri fyrir 100 geðsjúklingá, en vinna jafn- framt að því að finna framtíðar- stað fyrir nýjan geðveikraspítala, því Kieppur mundi þurfa að víkja af hólmi, þegar höfnin yrði gerð inni í Sundum. Þá vék ráð- herrann nokkuð að málum van- gefinna. Væri allvel séð fyrir fé til þeirra mála, þar sem hið svokall- aða flöskugjald rynni til þeirra. Ráðherrann hafði áður í ræðu sinni gért grein fyrir helztu breyt- ingum, sem frumvarp til breytinga á sjúkrahúslögum gerði ráð fyrir. Meðal nýmæla má telja eftirfar- andi: Þar sem sjúkrahúsum er er skipt í deildir, skal sérfróður læknir standa fyrir hverri deild. Ríkisstyrkur til byggingar allra þeirra sjúkrahúsa, er styrks njóta, verður nú sá sami. Greiðir ríkið 3/5 kostnaðar, cn við byggingu hérðslæknabústaða mun ríkið Framh. á 10. síffu fyrst þróun mála í sambandi viff framkvæmdir á lóð Landsspítal- ' ans. Nú hefffi veriff variff 76 millj- ónum króna til þess, sem nú væri í byggingu og til þess aff ljúka því á 2-3 árum þyrfti 93 milljónir til viffbótar, þannig aff kostnaffur rnundi þá samtals verffa um 170 milljónir. Þaff sem hér væri um aff ræffa, væri tcngiálma milli gömlu byggingarinnar og þeirar nýju„ Vesturálma meff um þaff bil 100 sjúkrarúmum og austurálma meff rúmlega 100 rúmum. Til þess aff þessar byggingar gætu í rauninni komiff aff fulium notum, þyrfti og aff byggja nýtt eldhús, matsal fyrir starfsfólk, þvottaliús og koma þyrfti upp dieselrafstöð. Ennfrem- ur væri ráffgert að byggja nor'ffur- álmu þar sem rúm mundi vera fyr- ir geðsjúklinga, stækka fæðingar- deild Landsspítalans svo og Hjúkr- unarkvennaskólann. Heildarkostn- aður viff þetta mundi nema sam- marksvinnutíma unamenna Re ykjavík, 23. jan. - EG ÞRÍR þingmenn Alþýðuflokksins hafa flutt þingsályktunartillögu um Iiámarksvinnutíma barna og unglinga. Tillagan hljóðar svo: Alþingi ályktar aff fela ríkis- stjórninni að Iáta undirbúa frum- varp til laga um hámarksvinnu- tíma barna og unglinga í hinum ýinsu starfsgrcinum og leggja frumvarpið fyrir þingið svo fljótt sem þess er kostur. Flutningsmenn eru Benedikt Gröndal, Katrín Smári, og Eggert G. Þorsteinsson. Með tillögunni er hreyft þjóðfé- lagsvandamáli, seni skotið' hefur upp kollinum nú síffustu árin me'ð vaxandi skorti vinnuafls. Virðist. nú fullkomlega tímabært aff sett sé löggjöf um hámarksvinnutíma barna og nnglinga eins og segir í tillögunni. Greinargerð með tillögunni er svo hljóðandi: Börn og unglingar hafa um ald- ir unnið mikið á íslandi. Hefur það jafnan þótt góður skóli, svo fram- arlega sem starfið hefur ekki of- boðið kröftum og þroska æsku- fólksins. Eðlilegt væri, að vinna barna og unglinga væri í hófi og eingöngu miðuð við uppeldislega þörf þeirra, eftir að þjóðin hefur orðið tajargálna og þarf ekki að slíta kröftum æskunnar til að hafa í sig i og á. Þróun mála hefur því miður ! ekki beinzt í þessa átt á síðustu árum. Eftir því sem skortur á vinnu- afli hefur verið meiri, hafa at- vinnufyrirtæki sótzt meira eftir bömum og unglingum til vinnu og boðið þeim liærra kaup. Freisting peninganna hefur reynzt sterk, svo að barna- og unglingavinna er hér meiri en í öðrum löndum með sambærileg lífskjör. Hafa gestir frá nágrannalöndunum undrazt þetta stórum og þótt vera í ósam- ræmi við félagslegan þroska ís- lendinga, eins og hann kemur fram á öðrum sviður. Varhugaverðast er að láta börn og unglinga standa við vinnu í hús- Eramh. á 10 síðu ★ TIMINN SKÓLARNIR Tíniinn hefur í vetur það mörg orð og stór, h' ið í skólamálum væri slæmt hér é landi. Hefur blaðið hvað eftir anrx að fullyrt, að unglingum hefð* verið vísað frá skólum í stórum stíl og ástandið væri gjörsamlega óviðunandi. A.þýðublaðið hefur -margsinnis beðið Tímann að sanna með dæm- um, að unglingar á íslandi haf* ekki á skólagöngu kost, vegna þess að ekki væri rúm fyrir þá í skól- um landsins. Þessu hefur Tíminn aðeins r.var að með nýjum fullyrðingum, raka lausúm þvæitingi sem fyrr. Blað- ið hefur aldrei getað nefnt þesti dæmi, að ung.ingar gætu ekki not- ið menntunar af fyrrgreindum sök um. Slík dæmi eru heldur ekká fmnanleg, og verða vonandi aldr- ★ TÍMINN ÉTUR OFAN í SIG í gær éfur Timinn ofan í sig enn eina fullyrðingu af þessu tagí. Einn af þingmönnum framsókn- ar fluiti fyrir skömmu frumvarp á Alþingi um menntaskóla. Komst hann m. a. svo að orði samkvæmt frásögn Timans: „Vegna húsnæðis skorts getur Menntaskólinn í E.vík ekki annað þessari eftirspurn, en verður árlega að visa mik’.um fjölda nemenda frá.“ Þessi orð verður blaðið síðan a3 éta ofan í sig í gær með svofelld- um orðum: „Krisánn Ármanns- son, rektor Menntaskólans í Rvfk, hefur beðið blaðið að geta bess, að það væri rangt er fram hefðii komið í frásögn af ræðu Einars Ágústssonar um menntaskóla á þingsíðunni í gær, að nemendum hefði verið vísað frá inntöku ii M. R. Engum hefur verið visað frá hingað til, sem staðizt hefði lands1- próf með tilskilinni lágmarkseink- unn.“ Framsóknarmenn veigra sér þannig ekki við að beita hestum blekkingarinnar fyrir vagn ósann- indanna. Allir íslenzkir unglingar eiga þeirrar menntunar kost, sem þeir I kjósa og hafa hæfileika til. Hins- i vegar er það, að unglingar iiafa ef ‘ til vill ekki alltaf komizt þar S skóla þar sem þeir helzt hefðil viijað. Mikil sókn nemenda er nú í héraðsskólana úti á landi. Skól-! ar þessir voru fyrst og fremstJ byggðir fyrir nærliggjandj héruð » og haía nemendur þaðan því for-> gangsrétt á skólavist. Vegna mik- s illar aðsóknar hafa því nemend- ur utan skólasvæðisins ekki feng- ið þar aðgang'að. Þessir nemend- ur hafa þó ævinlega átt kost hlið- stæðrar menntunar í heimahög-1 um sínum. Þeir eða foreldrar þeirra hafa aðeins talið að dvöl S heimavistarskóla mundi heppilegiú en að sækja heimagönguskóla.. Allt tal Tímans um að íslenzki* æskufólkj hafi veríð meinað un* aðgang að menntun er því þvnð- ur eitt. } ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 24. jan. 1964 $

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.