Alþýðublaðið - 24.01.1964, Page 8

Alþýðublaðið - 24.01.1964, Page 8
Rætt vio Onnu Snorraaóttur, sem annast hefur barnatíma útvarpsins um árabil „Klukkan 17,30 hefst barna- tímirin í umsjá Önnu Snorra- dóttur.” — Hversu oft höfum við ekki heyrt útvarpsþulinn segja þessa setningu. Við tökum henni eins og hverjum öðrum sjálf- sögðum hiut og án þess að hugsa út í hana nánar. En þegar ég segi „við”, þá á ég við „fulforðna fólkið,” en það éru reyndar til fleiri hlustendur en það, og þar á ég við hina yngri sem bíða síns barnatíma með ó- þreyju. „Við” þykjumst upp úr því vax- in að hlusta á barnatímann, en þó ér mér ekki grunlaust um, að sum „okkar” stelist til að hlusta endrum og eins. Anna Snorradóttir tekur þeirri málaleitan minni vel að hafa stutt viðtal við lesendur þessa blaðs, viðtal um barnatímann og þá sérstaklega þá bókmennía- kynningu, sem hún hefur prýtt tíma sína með að undanförnu og vakið hafa athygli jafnt yngri sem eldri hlustenda. Anna býður mér sæti í vistlegri stofu sinni í Álf- heimum, kaffi og sígarettur. Anna Snorradóttir, Sigfússonar, leikritum og öðru þess háttar. — Þetta var mjög skemmtilegt, en ekki voru tækin til þessara hluta eins fullkomin og nú. Þá var til dæmis fátt eða ekkert tekið upp á segulband, heldur voru hljóðin framleidd jafnóðum og fiutningur fór fram. Eg man eftir því, að einu sinni átti að vera haglél, en það framleiddum við með því að henda hrísgrjónum á regnhlíf. Með þessari starfsemi var á- TEXTI 0G TEIKNING: RAGNAR LÁR MYND: JÓHANN VILBERG hugi minn fyrir útvarpsmálum vakinn. En síðan fluttist ég til Dan- merkur, þar eð eiginmaður minn, Birgir Þórhallsson, var ráðinn fulltrúi Flugfélagsins þar. Þegar við svo fluttum til íslands aftur fyrir tæpum sex árum, kom teknar úr því efni sem flutt hafði verið. Ekki var þátttakan mikil í þess- ari fyrstu kynningu, en þó bár- ust mér 40-50 svör og bréf frá áhugasömum börnum og ungling- um. Þessi bréf áttu það flest sam- eiginlegt, að vera skemmtileg og sýndu það, að sendendur höfðu haft gagn og gaman af þáttum þessum. Næsta kynning var á skáldinu H. C. Andersen og verkum hans. Þar var hafður sami háttur á og í fyrri kynningunni, rakin ævi skáldsins, sagt frá umhverfi þess og lesin voru vinsælustu ævin- týri þess. H.C. Andersen-kynning arnar urðu tíu talsins Að lokinni kynningu ' þessari hafði ég einnig próf, og fékk mun fleiri bréf en í fyrra skiptið, eða um 700. Eg skrifaði H. C. Andersen- félaginu í Óðinsvéum vegna kynn- ingarintíar og það sendi mér bæk- ur með verkum hans, sem ég not- aði til verðlauna. Ennfremur gáfu bókaforlög hér í Reykjavík bæk- ur, sem notaðar voru í sama skyni. FINNST EG ALDREI GETÁ GERT námstjóra er frá Akureyri — og systir Hauks heitins, fyrrum rit- stjóra „Dags” á Akureyri. Hún starfaði um tíma við „Dag”, sá um kvennaþátt í blaðinu. — Hver voru tildrögin að þvf, að þú fórst að sjá um barnatím- ann, Anna? —*Það er nokkuð löng saga að segja frá því. En svo við byrjum nokkum veginn á byrjuninni, þá fékk ég snemma áhuga á kennslu- málum. Stuttu eftir stríð eða 1946 fór ég til Englands til að kynna mér útvarpsmál. Eg var um það tæpt ár í Englandi og var um tíma hjá BBC og þá í barnatíman um og ,',effektadeild“ en það er sú deild, sem sér um ýms hljóð í Andrés Björnsson að máli við mig, og bað mig um að taka að mér barnatímann, og ég lét til leiðast. Síðan hefi ég séð um þriðja hvern tíma, en Helga og Hulda Valtýsdætur og Skeggi Ásbjarnar- son sjá um hina. — Þú byrjaðir með bókmennta- kynningarnar? — Upphafið var kynning á verkuin Chopins og æviferli hans. Eg nefndi þessa kynningu „Fimm mínútur með Chopin,“ en hún saman stóð af frásögn um ævi hans og leikið var eitt stutt verk eftir hann í hverjum kynningar- þætti. Að loknum kynningarþátt- unum fór fram nokkurs konar próf, þar sem spurningarnar voru — Færðu mörg bréf frá hlust- endum þínum? — Yfirleitt fæ ég mikið af bréf- um, bæði frá börnunum og að- standendum þeirra. Mér þykir mjög vænt um þessi bréf, þau sýna að áhugi er fyrir hendi á því, sem maður er að reyna að gera og einnig kemst maður, vegna þeirra, í nánara samband við hlustendurna. — Síðasta kynningin var um Nonna? — Já, og mér er óhætt að segja að hún hafi vakið athygli. Nonni var ákaflega vandaður höfundur, enda góður maður. í bókum hans er hæfileg spenna til að halda at- hygli lesandans vakandi. Haraldur Hannesson, sem einna gerzt þekkir æviferil Nonna og bækur hans, sá um kynninguna á ævi hans og störfum. Haraldur á mörg handrit eftir Nonna og bréf frá honum. Steindór Hjörleifsson, leikari, las bókina „A Skipalóni," en hún er með vinsælli Nonnabók- unum. Þegar meðfylgjandi prófum um ævi Nonna og störf lauk, bárust hvorki meira né minna en 1060 bréf, ekki einungis frá börnun- um, heldur og frá foreldrum og öðrum aðstandendum, sem létu í ljós álit sitt á kynningunni. — Og næsta kynning? — Hún er þegar byrjuð og er um Jónas Hallgrímsson, ævi hans og ritstörf. Eg nefni þessa kynn- ingu „Listaskáldið góða.” Aðalgeir Kristjánss. cand. mag. hefur tekið að sér að greina frá ævi skáldsins en hann hefur meðal annars kynnt sér hana i Khöfn, en eins og flestum er kunnugt, dvaldi Jónas þar langdvölum. í þessari kynningu verða flutt- ar léttar sögur, ljóð og frásagn- ir. — Börnin kunna vel að meta þessar kynningar? — Eg var satt að segja dálítið hrædd við að leggja út í þessar kynningar, þar sem ég hélt máske að börnunum mundi finnast þær of „fjörlitlar?” en mér finnst þátt- talcan gefa það til kynna, að börn- unum líki þær og vilji heyra meira. En ég vildi undirstrika þá þá skoðun mina, að barnatímar eiga fyrst og fremst að vera skemmtilegir, en vandinn er bara sá, að fella saman fróðleik — og skemmtun í eina heild. Það er freistandi, um leið og það er mikið ábyrgðarstarf, að nota þann tíma sem maður hefur til umráða í útvarpinu til að segja börnunum eitthvað sem situr eft- ir. Svo megum við ekki gleyma því, að við erum að ala upp hlustendur. Stjómandi barnatímanna i BBC hafði sem „mottó”, að ekkert væri nógu vandað fyrir börnin. — Það er mjög mikilvægt, að börnin. geri greinarmun á þvi, sem vel er flutt og því sem er illa flutt. — Á hvaða aldri hætta börnin að hlusta á barnatímana? — Ég veit það ekki, en líklega að því er mér finnst til 12-13 ára aldurs en þá tekur ýmislegt annað við, lög unga fólksins o.fl. — Þarna vantar sem sagt milli- stigið? — Já, það þyrfti að gera meu*a fyrir unglingana í útvarpinu en gert er, þó megum við ekki gleyma ágætuin tómstundaþætti Jóns Pálssonar og tónlistartíma bamanna. En það vantar spenn- andi sögur og leikrit fyrir ungl- ingana. — Hvað viltu segja að lokum, Anna? — Það er þakklátt verk að vinna fyrir börnin, en ég vildi gjarnan hafa betri aðstöðu óg tíma, mér finnst ég aldrei geta gert nógu vel. 8 24. jan. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.