Alþýðublaðið - 30.01.1964, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 30.01.1964, Blaðsíða 11
Ingimar Jónsson: Saga Vetrarleikanna ★ ST MORITZ 1948 Mora Nisse — Sár þau sem heimstyrjöldin hafði veitt þjóðum heimsins voru ekki gróin þegar æska heimsins kom saman á nýjan leik. Tvennir Olympíuleikar höfðu fallið niður vegna styrjaldarinnar en friðarþrá mannkynsins meiri en nokkru sinni áður. Þess vegna kom æskan saman, því Olympíuleikar eru í senn friðar og íþróttahátíð. Á þessum leikum misstu Norð- menn völd sín í skíðagöngu yfir til Svía og Finna. Og Norðmenn urðu að kyngja meiru, því i fyrsta sinn fengu þeir ekki sigurvegar- ann í norrænni tvíkeppni. Nú sátu Finnar við stýri. Nokkur fróun var þó Norðmönnum að enn báru þeir af, í skíðastökki Hugested sigraði, en í öðru sæti var sisurvegarinn frá 1932 og 1936 Birgir Ruud. Svíar voru mjög sterkir í göngu þótt þeir fengiu aðeins einn sigur- vegara, en það var hinn frægi göngugarpur Nils KarTsson, sem ætíð var kallaður „Mora Nisse”. Hann vann 50 km göngu með miklum yfirburðum. Ýmis vandamá' komu upr> á þess um leikurn, sem gerðu þá hina sögulegustu. Það eindæma skeði, að einhverjum fingra’öngum ná- unga tókst að stela stóra Olympiu- fánanum, og þegar verðlaunaaf- hendingin fyrir norræna tvíkeppni fór fram, þá var ekki nema einn finnskur fáni til staðar, en tvo þurfti. í sambandi við íshokkí keppnina komst allt á ringulreið vegna þess, að USA mætti með tvö l'ð. ei't frá AHA og annað frá AAU. Sviss- neska Olvmpíunefndin og alþjóða- íshokkísambandið höfðu samþykkt þátöku liðs AHA beear forseti amerísku Olvmoíunefndarinnar Brundaee (núverandi forseti IOC) kvað aðeins liði AAU heimil þátt- taka. Fyrstu dagana var hver hönd in upp á móti annarri og ástandið varð svo alvarlegt, að lögreglu var falið að hindra fyrst um sinn að svissneska liðið og lið AHA kæm- ust inn á leikvanginn. Eftir mikið þóf tókst að leysa vandann með sögulegum hætti og með því að brjóta lög IOC. Leikarnir voru Fram-IR í kvöld I kvöld verður Islandsmótinu í I. deild haldið áfram að Há- iogalandi. Þá leika Ármann og FH og Fram og ÍR. Ármann leikur nú sinn síðasta leik í fyrri umferð mótsins og fær þar með síðasta tækifærið til að hljóta súg áður en síðari umferð liefst. — Beðið er eftir leik Fram og ÍR með töluverðri eftirvæntingu Fram hefur letkið frekar illa í tveim siöustu leikjum, en lið ÍR er í greinilegri framför. Annars verður að iaka til it til þess, að ÍR hefur ávallt farið mjög hallloka fyrir Fram og hefur virzt hafa ein hverja minnimáttarkennd gagn- vart þeim. Hvað um það, leikur- inn hlýtur að verða skemmtilegur.' Þetta verður fyrsti leikurinn í síð- ari umferð, í fyrri umferð tapaði ÍR fyrir Fram með 41:30. Síðar/ grein hafnir fyrir átta dögum þegar IOC og alþjóða-íshokkí-sambandið sam þykktu að leyfa þátttöku liði AHA (en liðið hafði þá þegar leikið marga leiki) en skyldi ekki hljóta nein verðlaun yrði það eitt af þeim fyrstu. Til allrar hamingju hlutu Sveinameistaramót íslands Sveinameistaramót íslands í frjálsum íþróttum, innanhúss fer fram á Akranesi sunnudaginn 9. febrúar og hefst kl. 3. síðdegis. Keppnisgreinar eru hásiökk, með og án atrennu, langstökk án at- rennu og þrístökk án atrennu. Þátttaka lilkynnist til Magnúsar Gunnlaugs onar, Bjarnaraug Akra nesi, sími 1218 í síðasta lagi fimmtudaginn 6. febrúar. Kanadamenn, Tékkóslóvakía og Sviss efstu þrjú sætin. ★ OSLÓ 1952 „Hjallis” Andersen. Á Vetrarleikunum í Osló voru Norðmenn enn fremstir og hlutu flesta sigra. Af einstaklingunum bar lang-mest á skautahlauparan- um Hjalmar Andersen en hann vann með miklum yfirburðum 1500, 5000 og 10.000 metra skauta- hlaupin (keppti ekki í 500 m) Sigrar Hjalmars komu engum á ó- vart, því hann var án efa bezti skautahlauparinn í heimi á þess- um tíma, og hlaut heimsmeistara- tignina bæði 1951 og 1952. Aftur á móti kom það á óvart að Mora Nisse skyldi ekki komast á verðlaunapallinn eins og hann hafði náð góðum árangri á árunum á undan (margfaldur sigurvegari í hinu heimsfræga Vasa-göngu- keppni). Nú varð hann að láta sér nægja 5. sætið í 18 km. og 6. sæt- ið í 50 km göngu. Hér komu fram tveir göngu- garpar, sem síðan hafa verið í hópi beztu göngumanna heimsins, og enn, það er að segja í Inns- briick, eiga möguleika á verðlaun- um. Þessir göngugarpar eru Hal- geir Brenden frá Noregi og Veik- ko Hakulinen frá Finnlandi. Bren- den vann 18 km en Hakulinen 50 km. göngu. í skíðastökki áttu Norðmenn tvö fyrstu og unnu nú þessa grein í sjötta sinn. ★ CORTINA d'AMPEZZO 1956 Sovétríkin meff í fyrsta sinn — Toni Sailer — Finnar taka for- ustuna í skíffastökki. Mestan svip á Vetrarleikana í Cortina setti þátttajca íþróttafólks frá Sovétríkjunum, sem mætti nú í fyrsta sinn á Vetrarleikum. Á- rangur þess, og svo afrek Toni Sailer í alpagreinum, voru „sensa sjónir” leikana. Norðmenn urðu fyrir miklum hrakförum á þessum leikum og hlutu nú aðeins tvenn gullverð- Til vinstri er efnilcgasti skautahlaupari Norðmanna, Per Ivar Moe, en hann varff Noregsmeistari um síffustu helgi. Til hægri er Knuft Johannessen, margfaldur Olympíu-, heims- og Evrópumeistari. Báffir keppa þeir í Innsbruck. laun. Veldi þeirra í skautahlaupi | hnekktu Rússar, og Finnar tóku ; forustuna af þeim í skíðastökki. I Rússinn Grisjin vann 500 og 1500 m. skautahlaup og hefur ver- ið fljótasti skautahlaupax-i í heimi síðan. Líta má á göngukeppnina sem j nokkurskonar einvígi á milli Haku- j linens og göngukóngsins Sixten j Jernberg frá Svíþjóð. Hakulinen i vann 30 km. með Jernberg á hæl- um sér. í 50 km. göngu var það öfugt. Jernberg varð svo númer tvö í 18 km. en Hakulinen fjórði. í Alpagreinum voru Mið-Evrópu þjóðirnar allsráðandi. Ungur Aust urríkismaður Toni Sailer vann það þrekvirki að sigra í þeim öllum. Á þessari mynd er krón- prins Harald í góffum f^xgs skap í Innsbruck, meff l*m- um eru fjórir beztu skíffa- stökkmenn Noregs, en þe | keppa í Innsbruck. Frá vinstri: Torgeir Brandtzæg, Torbjörn Yggeseth, krón- prinsinn, Toralf Engan og Hans Olav Sörensen. Tveimur árum síðar vann hann svo heimsmeistaratignina í svigi, bruni og þríkeppni. Sem dæmi um það hver afbragðs skíðamaður Sailer var, skal það nefnt að hann átti að keppa á vetrarleikunum í Osló, þá aðeins sextán ára gamall, ea varð fyitjr þvi óihappi að fót- brjóta sig suttu áður. + SQUAW VALLEY 1960. Á undanförnum árum hafa í- þróttir tekið stórlegum framförum, hvert metið er sett á eftir öðru. Þjálfun og þjálfunarástæður eni komin á það hátt stig að segja má að hægt sé að ná út úr liverjum einstökum því sem liann býr yfir. Þetta gerir það að verkum að breidd afreksmanna er nú miklu meiri en áður. Það er orðið mjög sjaldgæft að einhverjum takist að Framh. á 13. síffu JUDO JUDODEILD Ármanns hefur átí við húsnæðisvandræði að etja und anfarið, og þessvegna ekki getað sinnt þeirri miklu eftirspurn, sem verið hefur eftir judokennslu. Nú hefur Áfmann fest kaup á húsnæði, þar sem judodeiidin fær ákjósan- lega aðstöðu fyrir starfsemi sína, og munu ný námskeið í judo hefj- ast innan skamms. Þetta nýja húsnæði er í allstóru timburhúsi, sem stendur á íþrótta- svæði Glímufélagsins Áx-manns milli Sigtúns og Nóatúns. Undan- farið hefur verið unnið að endur- bótum á húsinu, og lýkur þeim einhvern næstu daga. Nánar verður tilkynnt síðar hvaða daga námskeiðin hef jast, en inm-itanir eru liafnar í skrifstofu Glimufélagsins Ármanns í Iþrótta- húsi Jóns Þorsteinssonar við Lind- argötu. Skrifstofan er opin á mánit dögum, miðvikudögum og föstu- dögum kl. 8—10.30 síðdegis —• Sími 13356. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 30. jan. 1964 Ifl,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.