Alþýðublaðið - 30.01.1964, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 30.01.1964, Blaðsíða 16
Innsbruck Glæsileg setningar hátíð í Innsbruck Innsbruck, 29. jan. NTB. Um 60 þúsund manns voru við- ístaddir hátiðlega setningu Vetrar- ólympíuleikanna 1964 í Innsbruck i dag. Mótið var sett á hinni stóru s'.ökkraut í Berg Isel í ágætu veðri Það sem mesta undrun vakti í sambanói við setninguna voru .dökkii leiðinlegir búningar frönsku þátttakendanna. Búning- arnir lýstu ekki franskri lífs- og íþrót'.agleði. Hins vegar vöktu sbjrautlegir búningar Argentínumanna athygli. ' Einkum vakti fánaberi þeirra, lag leg stúlka, athygli, og fékk hún tlynjandi lófa'.ak. íranskeisara og frú hans, Farah IMtMMMVMMVMMtHMMMM* Russneska parið vann iisthlaupið Rússneska parið Ludmilla Belousova og Oleg Protopo- pov sigruðu óvænt í para- listhlaupi á skautum á Vetr- arleikunum i gærkvöldi. — Rússar hlutu því fyrstu gull- verðlaun leikanna. Þessi sig» ui Rússa kemur allmikið á óvænt, þar sem þeir hafa ekki áöur látið verulega að sér kveða í þessari grein á alþjóðamóíum fyrr. Þýzka parið Marika Kilius og Hans Jurgen Beumler var í öðru sæti, en þriðju voru Debbi Wilkes og Guy Revell. í fjórða sæti voru Vivian Laureen og Ronald B. Joseph, USA, fimmtu Tu- tjana Sjuk og Alexander Ga- vrilov, Sovét og sjöttu Ger- ) da Johner og Rudi Johner, Sviss. AMMMMUUMVMUUMHHVM HANDUNNIN BRUNBRAUT Þær greinar, scm mesta athygli Vekja í dag eru vafalaust brun- keppni karla og 30 km. ganga. — Brunbrautin er 3120 m. löng, en liæðarmismunur 867 m. Keppnin Iiefst í 1952 m. hæð og lýkur í 1085 m. Segja má, að brautin sé Iiandunnin, því að ekki hefur snjó að í hana í 4 vikur. Framkvæmda nefndin hefur látið sækja snjó viða að í Austurríki og búið til 25 metra breiða braut, sem gerir ; geysilegar kröfur til keppenda og . ekki er hægt að segja annað en hún se liættuleg. Flestir eru þeirr ar skoðunar, að Austurríkismað- urinn Karl Schranz muni sigra. I 30 km. göngu er búizt við að aðalkeppnin standi milli Norður- Iandabúa. Svíar spá Finnanum Mærtyranta sigri, en segja, að Jernberg geti komið á óvart og uömuleiðis Norðmaðurinn Grönn- jingen. Að sjálfsögðu gcta svo ein- hverjir minna þekktir komið al- grjörlega á óvart. í gær var 8-10 j etiga trost í Innsbruck. Diba, var einnig ákaft fagnað, en þau mættu stundarf jórðungi áður en leikarnir voru settir, og voru umkringd ljósmyndurum. Austurríkismenn höfðu unnið mikið að undirbúningi setningar- innar og ekki hefði verið hægt að gera hátíðahöldin glæsilegri. Ólympíska eldinum var einkar fallega komið fyrir — en hann setti reyndar nokkurs konar ol- ympíumet fyrstu mínúturnar sem hann brarin. Hann logaði svo glatt, að eldtungurnar stigu þrjá til fjóra metra til lofts og stóran og svartan reyk lagði upp. En þetta var lagað fljótlega. Það var mjög áhrifaríkt þegar menntamálaráðherra Austurríkis, dr. Heinrich Drimmel, formaður austurrísku undirbúningsnefndar- innnar bað viðscadda að votta minningu brezkra og ástralskra þátttakcnda sem fórust við æfing ar fyrir nokkrum dögum, virðingu með einnar mínútu þögn. Að lokinni ræðu dr. Drimmels lýsti dr. Adolf Scharf, hinn 74 ára gamli forseti Auscurríkis, Vetrar leikana setta, og síðan hófst skrúð ganga rúmlega 1300 þátttakenda, kar a og kvenna, frá 37 löndum. Fjórir íþróttamenn frá Banda- ríkjunum báru inn fánann, sem hafði verið í Squaw Valley síðan síðustp ólympíuleikar voru haldn- ir. Fáninn var afhentur borgar- stjóra Innsbruck, dr. Lugger. Fán- inn á að blakta við hún yfir Berg- Isel meðan á leikunum stendur og verður því næst fluttur til Gren- ob!e í frönsku Ölpunum þar sem næstu vetrarleikar verða 1968. Ólympíska eldinum var siðan komið fyrir á sínum stað, ólym- píski eiðurinn unninn og athöfn- inni lauk með því, að austurríski þjóðsöngurinn var leikinn. Rússar gjörsigruðu U.S.A. í íshokk í 5:1 Innsbruck, 29. jan. ÍNTB). Það var lítið keppt á fyrsta degi Vetrarleikanna. Það fór fram, keppni í íshokkí og para-Iist- hlaupi á skautum. Rússar og Bandaríkjamenn hófu Dagskráin í dag í dag hefst kepnnin í Innebruck fyrir alvöru. Keppt verður í eftir- íöldum greinum: Kl. 6,00: Listhlaup kvenna, kl. 6,30: 30 km. skíðagar.ga, kl. 9.00: 500 m. skautahlaup kvenna, ís- hokkí: Pólland-Rúmenía, kl. 10.00: Brun karla, kl. 12.00: ishokkí, ít- alía-Ungverjaland. kl. 13,30: ís- hokkí, Júgósiavía-Austurríki, kl. 15.00: íshokkí, Japan-Noregur. kl. 16.00: Íshokkí, Sviss-Finniand, kl. 18.00: Sleðakeppni karla og kv. 1. umferð, kl. 18.30: Íshckkí, Svíþjóð Kanada. íslendingarnir keppa í 30 km. göngu í dag, þeir Birgir Guðlaugs son og Þórhallur Sveinsson. keppnj Vetrarleikanna og þeir fyrrnefndu sigruðu með meiri yf- irburðum, en búizt var við eða 5:1 (1-0, 3-0, 1-1). Munurinn hefði getað orðið enn meiri, ef banda- ríski markmaðurinn hefði ekki staðið sig eins frábærilega og hann gerði. Rússarnir léku stór- kostlega og það verður erfitt að sigra þá á leikunum. Skot á mörk: í fyrsta hluta skutu Rússar 27 sinn um á mark en USA 7 sinnum, í öðrum hlutu 21:4, en í síðasta hluta var leikurinn jafnari, 15:14 fyrir Rússa. Bandaríkjamennirnir voru greinilega lélegri á skautum. Kanada gjörsigraðj Sviss, eða með 8 gegn engu, (1-0, 5-0, 2-0). Svts^iendisjfgar stóðu |sig vel i fyrsta hiuta, en síðan seig hratt á ógæfuhlið og síðasti hlutinn var kæruleysislega leikinn. Tékkar höfðu jafnvel enn meiri yfirbui’ði yfir Þjóðverja, sigruðu með 11:1, (3-0, 4-0, 4-1). Það' var alveg eins með Þjóðverja og Sviss lendinga, þeir stóðu sig a!lvel í upphafi, en síðan var einum þjóð verja vísað af leikvelli og þá fór að halia undan. 45. árg. — Fimmtudagur 30. janúar 1964 — 24. tbl. Parið á myndinni var í sviðsljósinu í Innsbruck í gær. Til hægri er Paul Aste, en hann sór Olympíueiðinn fyrir liönd allra keppendanna. Til vinstri er ungfrú Regine Heizer, én hún var fánaberi Austurríkis við setningu leikanna og er austurrískur meistari í listhl. á skautum. VALDIMÁR ÖRNÓLFSSON FÁNABERI ISLENDINGA Innsbruck í gærkvcldi — frá frét aritara Alþbl'.., Ingimar Jóns- syni. Setningarathöfn IX. Vetrarleik- anna fór fram í morgun og tókst með ágætum. Áhorfendasvæðið í Berg Isel stökkbrauannj var þétt-. setið, er athöfnin hófst. Að sjálf- sögðu voru allir meðlimir a þjóða- ólympíunefndarinnar viðstaddir setninguna, þar á meðal fulltrúi Islands, Benedikt G. Waage, fyrr- verandi forseci ÍSÍ. íslenzku ólympíukeppendurnir: Valdimar Örnólfsson lengst til vinstri. ★ VALDIMAR FANABERI Grikkir gengu fyrstir inn á leik vanginn að venju og var ákaflega vel fagnað: íslenzki flokkurinn gekk inn næstur á eftir íran-búum og var ágætlega fagnað. Valdimar Örnólfsson, þjálfari flokksins var fánabert og tóku landarnir sig vel út. Þegar hinni glæsilegu setningar athöfn lauk gengu þátttakendur út af leikvanginum í sömu röð og þeir komu inn. Setning Ólympíu- leika er viðburður, sem aldrei gleymist þeirn, er tækifæri hefur til að sjá. Þannig fór um mig. Nú að lokinni setningunni hefst hin harða barátta um verðlaunin með tilheyrandi gleðj og sorg, eins.og venja er í íþróttakeppni. ★ BIRGIR OG ÞÓRHALLUR í 30. KM. Á morgun (þ. e. í dag) hefja ís- lendingarnir keppni, en það er í 30. km. göngu. Sig firðingarnir Birg'r Guðlaugsson og Þórhallur Sveinsson vei’ða þar þátttakend- ur: Rásnúmer Þórhalls er 8, en 33, eða mun betra. Þeir eru báðir í ágæcri æfingu, en búast samt ekkf við að verða framarlega.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.