Alþýðublaðið - 15.03.1964, Page 13
Friöjón Sigurösson
Skrifstofustjóri Alþingis fimmtugur
FRIÐJÓN Sigurðsson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, verður fimmtugur
á morgun. Hann er fæddur í Vest-
mannaeyjum þann 16. marz 1914,
sonur hjónanna Sigurðar Ingi-
mundarsonar, útgerðarmanns, og
Hólmfríðar Jónsdóttur frá
Skammadal í Mýrdal.
Friðjón lauk stúdentsprófi í
Reykjavík 1934 og lögfræðiprófi
frá Háskóla íslands 1941. Hann
var settur sýslumaður í Stranda-
sýslu um tveggja ára skeið 1941—
T
syn
\ >
1943 í veikindaforföllum sýslu-
mannsins þar, en eftir það starf-
aði hann um eins árs skeið hjá
Skömmtunarskrifstofu ríkisins.
Þann 1. marz 1944 var hann sett
ur fulltrúi á skrifstofu Alþingis,
og hefur því um þessar mundir
verið í þjónustu Alþingis í tuttugu
ár. Hann var skipaður skrifstofu-
stjóri 1. júlí 1956. Friðjón er
kvæntur Áslaugu Sigurgeirsdóttur
frá Sjónarhóli í Sogamýri.
Embætti skrifstofustjórans er
mikilvægt og vandasamt. — ^því
fylgja ýmsar skyldur ,sem hér
verða ekki taldar, en m. a. hvílir
sá vandi á hans herðum, öðrum
mönnum fremur, að tryggja sam-
hengið í störfum Alþingis. Þing-
menn koma og fara, og ríkisstjórn
ir koma og fara. Einn vill þetta og
annar hitt, en samt sem áður verð
ur að vera samhengi í hlutunum.
Kynni mín af Friðjóni Sigurðs-
ni hafa fært mér heim sanninn
um, að hann leysir þennan vanda
af hendi með mestu prýði, þrátt
fyrir þau erfiðu vinnuskilyrði, sem
lionum og embætti hans eru búin
í húsakynnum Alþingis. Nýjum og
óreyndum þingmönnum er hollt að
hlýða ráðum Friðjóns. Um þetta
get ég dæmt af eigin reynslu, og
ég veit, að aðrir þingmenn úr öll-
um flokkum eru mér sammála um,
að gott sé með Friðjóni að starfa
vegna lipurðar'hans og samvizku-
semi, og allrar þeirrar þekkingar,
sem hann miðlar okkur, þegar við
leitum til hans. Ég ber þessvegna
fram þá ósk á þessum tímamótum
í æfi Friðjóns, að Alþingi megi
njóta starfskrafta hans sem lengst,
og sendi honum, eiginkonu hans
og fjölskyldu beztu árnaðaróskir
í tilefni afmælisins.
Birgir Finnsson.
HALLGRÍMUR PÉTURSSON
Fargjöld F.Í.
Framhald af síðu 16
skíðaiðkendur svo og gufuböð og
steypiböð. Rými er i Skíðahótel-
inu fyrir um 100 dvalargesti.
Skíðafargjöld Flugfélags íslands
til Akureyrar og aftur til Reykja-
víkur er kr. 975.00
Skíðafargjöldin eru háð þeim
reglum, að þau eru í gildi frá 15.
marz til 12. apríl. Þau gilda aðeins
frá Reykjavik til ísafjarðar og
Akureyrar og aftur til Reykjavík-
ur og skilyrði er að keyptur sé
tvímiði og notaður báðar leiðir
Gildistími farseðilsins er 7 dagar
miðað við brottför frá Reykjavík.
Jarðhræringar á Vestfjörbum
Framh- af 1. síðu
föstudags heyrðust alltaf drunur
annað slagið, en frá því snemma
í gærmorgun og fram til kl. 20.
25 í gærkvöldi varð enginn var
við neitt. Þá kom harður kippur
og tveir minni rétt á eftir, en
síðan sá fjórði, og var liann hvað
lrarðastur. Þessir fjórir kippir
urðu á 10—11 mínútum, og sá
fyrsti og síðasti eru snörpustu
jarðskjálftakippir, sem hér liafa
fundizt.
,Allir fjórir kippirnir fundust sam
tímis á eftirtöldum bæjum við
Djúp: Skjaldfönn, Laugalandi,
JLaugarási, Melgraseyri og
Hamri. Þessir bæir eru ailir í
Nauteyrarhreppi. Á sama tíma og
þeir voru mestir í Ármúla fund
Ust kippirnir einnig á bæjum á
Snæfjallaströnd og e. t. v. víðar
á ströndinni. Aftur á móti urðu
engir varir við jarðhræringar í
Langadal eða ísafirði, en vestan
vert við Djún fannst snarpur kipp
ur rétt fyrir kl. hálfníu í gær-
kvöldi, eins og fvrr segir. Sigurð
ur Hannesson f Ármúla sagði, að
ekki hefðu orðið neinar skemmdir
af völdum þessarar jarðhræringa,
en munir hrevfð"st: greinilega, og
skepnur urðn hræddar, kýTnar
lirukku t .d. við á básunum og baul
uðu.
Um kl. ellefu í gærkvöldi varð
enn lítill, en snarpur kippvu-, og
fylgdi honum mikill þytur. Svo
var allt kyrrt til kl. rúmlega eitt,
en þá byrjuðu drunurnar aftur og
stóðu öðru hvoru í kluScutíma.
Þá sagðist Sigurður liafa' sofnað,
en kl. langt gengin í þrjú vökn-
uðu börnin grátandi við eitthvað,
sem gerðist, og hefur þar að lík-
indum verið um kipp eða drunur
að ræða. Kl. 9.25 í morgun fannst
enn snarpur kippur, en síðan hef-
ur verið rólegt.
Kl. 20.28 í gærkvöldi var
Maríus Helgason, póst- og sím-
stöðvarstjóri á ísafirði, staddur á
annarri hæð í símstöðinni og fann
þá greinilega stuttan, en snarpan
jarðskjálftakipp. Þó sagði hann,
að kippurinn hefði ekki verið svo
snarpur, að loftljós hefðu sveifl-
azt til, og á neðstu liæðinni varð
símritarinn ekki var við neitt. Um
leið og Maríus fami kippinn í sím
stöðinni, varð hans vart á 3. liæð
í íjölbýlishúsi við Fjarðarstræti
7—8.
Blaðið átti í dag tal við veður
stofustjóra vegna jarðhræring-
anna, og sagði hann, að þegar les
ið var af jarð kjálftamælinum í
morgun. hefðu aðeir.s sézt glögg
merki um einn jarðskjálftakipp
kl. 20.31 í Pærkvöldi. Ekki er þó
víst, livort það er sami kippurinn
og fannst fyrir vestan, og gæti
eins verið um staðbundinn kipp
í nágrenni Reykjavíkur að ræða.
En ef kippurinn fyrir vestan hef
ur komið fram á mælinum, kvað
veðurstofustjóri ekki. ólíklegt, að
hann hefði átt upptök sín nokkru
norðar en á ströndinni við norðan
vert ísafjarðardjúp, t. d. út af
Strandagrunni.
Óhlýðnisaðgerðir
stúdenta á Spáni
Madrid, 14. marz
(NTB-AFP).
120 stúdentar, sem leggja stund
á stjórnvísindi í háskólanum í
Madrid, tóku fyrirlestrarsal á sitt
vald í gærkvöldi og neituðu að yf-
irgefa liann. Stúdentarnir mót-
mæltu því, að yfirvöldin hafa af-
lýst nokkrum fyrirlestrum prófess
ora, sem þekktir eru fyrir andúð
á stjórn Francos.
Stúdentarnir eru enn í salnum.
Þeir krefjast þess, að lögreglan
•sleppi úr lialdi stúdentum, sem
hafa verið handteknir. Enn frem-
ur krefjast þeir frjálsra og lýð-
ræðislegra kosninga í verkalýðs-
félögunum.
Framh. af 3 .síðu
getur borið meira á einni tilhneig
ingu í dag og annarri á morgun.
En andstæðurnar verða ekki eins
skarpar, þegar til lengdar lætur.
Passíusálmarnir eru afleiðing
þess, að ein skáldsál er svo víð-
feðm, að hún getur sameinað and-
stæður aldarinnar, arf og umbreyt
ingu, svo að allt gengjjf upp í æðri
eining:
Séra Hallgrímur lifir á tímabili
orþódoxíunnar lúthersku, sem sann
arlega liefur hlotið þunga dóma,
vegna smnar þurru trúfræði og
skor.s á andlegu lífi. Hann fylgir
hinu dogmatiska kerfi síns tíma.
En hann verður einnig fyrir öðr-
um áhrifum. Hann er snortinn af
dulsæishreyfingu, sem er öðrum
þræði endurvakning kaþólskrar
dulsæisstefnu. Tú kun hans verð-
ur persónulegri og tilfinning ein-
staklingsins kemur betur í ljós en
í sálmum og prédikunum réttcrún-
aðartímabilsins yfirleitt. Engum,
sem kynnir sér pássíusálmana, get
ur dulizt liin brennandi trúartil-
finning og geðhrif, sem sprottin
eru af persónulegri reynslu manns
sem sjálfur hefur lifað dauða og
upprisu. Þrátt fyrir þetta talar
séra Hallgrímur tungumál, sem
hann hefur numið af öðrum, í
miklu ríkara mæli en nútímamönn
um getur legið í augum uppi.
Skáldamál hans, sam’ikingar og
myndir eru erfðir frá hugmynda-
forða kristinnar kirkju langt aft-
an úr öldum. Ég hef annars staðar
ritað um „allegoriskar" og „typo-
logiskar“ samlíkingar“ og „typo-
unum, og læt mér nægja að vísa
til þess. Ég hef einnig bent á það
í prentaðri ritgerð, að séra Hall-
grímur gerir hvort tveggja í senn
að flytja lesandann til baka til
biblíutímans og píslarsöguna til
samtíðar sinnar — og lesandans.
Þarna stendur hann einnig á göml
um grunni, frá miðöldunum, þeg-
ar bæði helgileikir og myndlist
sýndu atburði biblíunnar í lands-
lagi seinni tíma og færðu þá inn
í þjóðlíf þeirra, sem njóta skyldu.
En með því að gera píslarsöguna
að samtíðarsögu, og lesendur að
þátttakendum, getur skáldið gert
hina fornu atburði að uppsprettu
lifandi trúar og breytni. Lykiilinn
að siðfræði hans er hlýðni, fyrst
lilýðni Krists við kærleiksvilja
Guðs og síðan hlýðni mannanna
við Krist sem fyrirmynd, er fylgja
skuli í baráttunni milli góðs og
ills. En hér kem ég að því atriði,
sem ég nefni síðast — af þeim,
sem gert hafa pasísusálmana að
þvi, sem þeir eru í vitund þjóðar-
innar. Hér á ég við hina dranra-
tísku spennu, hið heita stríð, sem
háð er milli góðs og ills, bæði
innra og ytra. Oft hafa skýrend-
ur passíusálmanna dregið upp
mynd liinnar dimmu aldar, sem
fóstraði séra Hallgrím. Og satt er
það, að ekki var útlitið gott. í
Evrópu geysar þrjátíu ára stríðið
með öllum þeim afleiðingum, sem
styrjöld gat haft. í norðanveðri
Afríku hafði hið hrunda ríki Már-
anna látið eftir sig leyfar af úr-
kynjuðum ræningjalýð, sem hjó
strandhögg allt norður til íslands.
Enn voru Evrópumenn ekki lausir
við óttann við Tyrkj og þeirra her-
veldi. Baráttan milli kaþólsku
kirkjunnar og siðbótarhreyfingar-
innar var í algleymingi. Alþýðu
manna skorti enn þann fé’ags-
þroska og þekkingu, er til þess
þurfti, að frelsishreyfing siðbótar
innar næði til hennar, nema sem
stjórnleysi og skipulegar kvartan-
ir, er fram komu í bænarskrám.
Konungsvaldið sá sér því leik á
borði, þar sem bannfæringum og
fjárkúgun hinna kaþólsku kirkju-
höfðingja linnti. Ivlúghreyfingar.
eins og galdraofsóknir, fóru sem
logi yfir akur, og áitu raunar upp
tök sín í hugsunarliætti, sem þró-
azt hafði öldum saman, bæði f
heiðnum og kristnum löndum. Hér
á íslandi lifði fólkið við sult og
seyru, kúgun af konungs hendi,
eldgos og liafísa. Þrátt fyrir ý'mis
andans ljós, sem báru lieimsmenn
ingunni fagurt vi.ni, mun alþýðu
flestra landa hafa verið innan
brjósts eins og vorum eigin sam-
tímamönnum í og eftir síðustu
heimsstyrjöJd. Svo virtist sem
dauði og djöfull léku lausum hala,
og mannkynið sjálft dansaði hruna
dansinn með myrkravöldunum. f
bókmenntum nútímans gætir hryll
ings, svartsýni og örvæntingar, og
sumstaðar þess eymdartóns, sem
sízt tekur fram því, sem ritað var
á dögum séra Hallgríms. Við þetta
bætist, eins og þá, sjálfsvorkunn-
semi þeirra, sem ekki hafa fengið
tækifæri til að hrósa sjálfum sér
af mannraunum. í skáldskap yngri
kynslóðarinnar nú á dögum er
mikil sjálfsvorkunnsemi. Maður
getur gubbað af að sjá þessar fíg-
úrur í öllum sinum vesaldómi,
því að ekkert er andstyggilegra en
upplogin þjáning — í augum
þeirra, sem vita, hvað þjáning er.
Víst finnum vér í sálmum séra
Hallgríms vott um eymd aldarinn-
ar, en — Hallgrímur segir satt.
Og þótt hann beygi höfuð sitt svo
djúpt sem hægt er að beygja liöf-
uð fyrir Guði, — þá er það kær-
leikur Guðs, sem hann lýtur, —
og hnarrei'tur liorfir hann til móts
við bæði dauða og djöful, og kveð-
ur til baráttunnar í fylgd við sig-
urvegarann sanna. Upp úr vopna-
brakj orrustunnar hefst sigursöng-
ur þess manns, sem þorir að trúa
á kærleika og náð. Komi hvað sem
koma vill — þó að mennimir
dæmi Guð til dauða, og kærleik-
urinn sé píndur og kvalinn, —
þá er hann í a'lri sinni niðurlæg-
ingu á sigurleið. Engin synd hefn-
ir sín eins og svikin við hann —
og enginn sigur fæst nema í hans
fylgd. Þó að maðurinn væri kúg-
aður og féflettur, ataður f synd
og svívirðingum, veikur og van-
máttugur, gat ekkert utan að kom-
andi va'd svipt hann réttlnum til
að vera Guðs megin — svo framar
lega sem hann vildi sjálfur vera í
sátt við hans náð. — Ég held því,
að vér nútímamenn mættum að
skaðlausu bergia á þeirri lind, er
Hallgrímur þvoði með sár sín.
Jakob Jónsson.
] jwwMwwwwwmmm’
Aöalfundur
Kvenfélagsins
í Hafnarfirði
KVENFÉLAG ATþýðuflokks
ins í Hafnarfirði heldur aðal
fund mánudaginn 16. marz
kl. 8,30 í Alþýðuhúsinu. —
Venjuleg aðalfundarstörf.
áw\WMMWmWWMMWW
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 15. marz 1964