Alþýðublaðið - 21.04.1964, Síða 1

Alþýðublaðið - 21.04.1964, Síða 1
Verstöðvar saltlausar Rcykjavík, 20. apríl. — AG. VERSTÖÐVAR hér Sunnanlands eru nú saltlausar, og ekkert sal'. aff fá fyrr en 24. þessa mánaðar, en þá kemur hingrað skip með um 1600 tonn. Vegna saltleysisins liafa þegar skapazt vandræði, og MHMMHWmmMMVMHH Með fiskinn frá Þorlákshöfn til Akraness Reykjavík, 20. apr. ÁG. UM lielgina fóru fimm bilar frá Þorlákshöfn með óseldan fisk. Einn þeirra gat selt og losað í Hafnar- firði og annar í Reykjavík. Hinnm þremur gekk ekki eins vel, og á tímabili sá útgerðarmaðurinn það eitt ráð, að selja fiskinn hér í gúanó. Að lokum var þó það ráð tekið, að moka is á fiskinn og aka honum npp á Akra- nes. I>ar keypti Heimaskagi magnið til vinnsln, en eins og menn geta ímyndað sér er slíkur flutningur mjög dýr. Er þetta aðeins eitt af mörgum dæmum um þá miklu vinnslu- og löndunar- erfiðleika, sem nú er við að etja. , Því má hæta hér við, að í dag var einn bátur, Hafrún, ■á leið til Bolungarvíkur, með fisk, sem báturinn fékk á Selvogsbanka. WtWWWWWWMWWWWWW má búast við að hluti af þorskafl- anum næstu daga fari fyrir bragð ið í gúanó. Blaðið ræddi í dag við Geir Borg hjá Kol & Salt. Hann sagði, að enginn hefði getað séð fyrir þennan mikla þorskafla hringnóta bátanna, og hefði þvi þessi gífur- lega saltnotkun komið sér mjög á óvart. Hann sagði, að Katla hefði komið með 2100 tonn fyrir helgi, og þá hefði t.d. pöntun Guðmund- ar frá Rafnkelsstöðum ekki dugað honum í eins dags afla. Hann sagði, að nú í vikunni kæmi skip með 1600 tonn, en aug- Ijóst væri, að það magn dygði skammt. Hlutur hverrar verstöðv- ar verður ekki ýkjamikill, og má gott heita ef 1600 tonnin duga í einn til tvo daga. Geir kvað önn- ur tvö skip væntanleg innan skamms. Geir endurtók, að útilokað hefði verið að sjá fyrir þennan mikla afla, og ekkert væri við þessu að gera. Er blaðið ræddi við hinar ýmsu verstöðvar í dag voru menn sam- mála um, að í þessum efnum væri ástandið heldur slæmt. Þorskinn af hringnótabátunum er ekki hægt að hengja upp. Til þess er hann of stór og þungur. Geymslurými frystihúsanna er einnig yfirfullt og verkafólkið að þrotum komið eftir langa og mikla vinnu. HAVANA: Fidel Castro forsæ'is- ráðherra hefur tilkynnt að banda- rískir flotahermenn frá herstöð- inni í Guantanamo hefðu undan- farið gerzt sekir um hvers konar yfirgang við kúbanska borgara. Sé nauðsynlegt að taka málið upp í Öryggisráði SÞ. Fékk 125 tonn í fimm köstum RÆIT VIÐ GUÐBJÖRN ÞORSTEINSSON Á GRÓTTU Reykjavík, 20. april. — ÁG. Vitað var um þrjá báta, sem höfðu fengiff yfir 100 tonn í gær í þorsknót. Voru það Guðmundur Þórðarson með 129 tonn, Grótta með 125 og Árnl Magnússon með 114 tonn. Eru því allir þessir bátar bún- ir að slá met Halldórs Jóns- sonar, sem kom til Reykja- vikur aðf%ranótt sl. laugar- dags með rúm 103 tonn. Guðmundur Þórðarson kom til Reykjavíkur í nótt, og fór út klukkan G í morgim. Grótta kom aftur á móti undir morg- uninn, og var ætlunin að fara út aftur kl. 8 í kvöld. Við hitt um Guðbjörn Þorsteinsson, skipstjóra á Gróttu niðri við Grandavigtina rétt fyrir há- degið í dag. Hann var þá að bíða eftir útkomunni, en sjálf- ur var hann búinn að gizka á 130-140 tonn. Hann stóð þarna I sólinni skeggjaður og þreytulegur, og ræddi við ung an son sinn, Snæbjörn. Guðbjöm kvaðst hafa feng- ið þennan afla í 11 tíma lotu um 4 tii 5 mílur suður af Sel- vogsvita. Var kastað fimm sinnum, og mest fengust G0- 70 tonn í einu kasti. Guðbjörn sagði, að þarna hefffu þeir (Framhald á 4. stðu). wwwww%wwwwwwwwwwwwtwwwwtwwwwwwwwwwwwwwiwtwwMwwmww Þrír bátar með yfir 100 tonn í fyrradag Mesti afladagur til þessa. Guðm. Þórðarson með 129 tonn Reykjavík, 20. apríl - ÁG MIKIÐ veiddist af þorski í gær á Selvogsbanka. Er liklegi að þá hafi veriff bezti veiðidagurinn tii þessa. Hringnótabátar voru með mest 129 tonn, en það var Guð- mundur Þórðarson, sem fékk þann afla. Grótta var með 125 tonn og Árni Magnússon með 114. Marg- ir voru með um og yfir 90 tonn. AfK netabáta var eininig mjög sæmilegur. Flestir bátanna voru í gær vest- ur af Þrídröngum, og sumir enn vestar. í dag voru netabátar komn ir allt austur að Jökli, en hring- nótabátarnir héldu sig töluvert vestar. Blaðið ræddi í dag við vigtar- og fréttamenn í helztu verstöðv- unum, og fara hér á.eftir upp- lýsingar þeirra: HAFNARFJÖRÐUR í fyrrinótt (aðfaranótt sunnu- dagsins) bárust 400 tonn til Hafn- arfjarðar. Eldborgin var hæst með rúmlega 80 tonn. Þá kom Margrét með 75 tonn og Faxi og Bjarmi II. með rúmlega 50 tonn. Sæmi- legur afli var hjá netabátunum, og voru margir þeirra með um 20 tonn. KEFLAVIK ! Hér var landað 666 tonnum f fyrrinótt. Hamravík (með nót) var hæst með 57,7 tonn. Næstur var Ófeigur II. (nót) með 48,8 tonn og Hilmir II. (net) með 43,5 tonn. í gærkvöldi (sunnudagskvöld) og nótt komu hér á land 423 tonn. Af þeim bátum, sem lönduðu, var aðeins einn bátur með nót, Von- in, sem kom með 79 tonn. Hér eru þegar orðin mikil vaadræði með móttöku, og eru þau aðal- lega fólgin í því, að allt er orðið saltlausi. Ekki er búizt við salt- skipi fyrr en 24. þessa mánaðar, og kemur það aðeins með 1606 tonn. Má því ætla að skammtur- inn, sem við fáum, endist í einn dag, — haldi bátarnir áfram að ■ fiska svona mikið. Allir skreiðar hjallar eru að fyllast, og ekki er hægt að hengja upp fiskinn af bátunum, sem fiska í nót. Til þess er þorskurinn of stór. GRINDAVÍK Netabátar, sem hingað kamu, Framhald á 14. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.