Alþýðublaðið - 21.04.1964, Síða 9

Alþýðublaðið - 21.04.1964, Síða 9
iiiiiiitftiiiiiiiimmitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuimmiiimmiiimiiff IÐNKAUPSTEFNAN í HANN-f OVER HEFST EFTIR VIKU r iír við Michael Tree. ins, The Rt. Hon. Sir Harry Hylton-Foster, í hinu fagra og sögufræga Speaker’s House. — Við færðum honum að gjöf ein- tak af Guðbrandsbiblíu, og lét hann í ljós mikla hrifningu yf- ir gjöfinni. Við þetta tækifæri flutti Peter Thomas, aðstoðar- utanríkisráðherra, mjög vin- samlega ræðu. Einnig hafði The Wliite Fish Authority fjöl menna móttöku fyrir okkur á Hotel Dorchester, þar sem við bjuggum meðan dvalizt var í London. — Síðustu tvo dag- ana í London gerðist það helzt, að Decca-fyrirtækið bauð okk- ur í bátsferð á Thames til þess að sýna okkur, hvað staðar- ákvarðanir, sem gerðar eru með miðunarkerfi Decca, eru nákvæmar. Við þetta tækifæri hittum við landbúnaðar- og fiskimálaráðherra Breta, Chris- topher Soames. Forstöðumenn Decca létu í ljós mikinn áhuga á því að koma upp Decca- Reykjavík, 17. apríl — HP. DAGANA 6. apríl — 5. maí n.k. verður haldin iðnkaupstefna í Hannover. Er þetta mesta tækni leg kaupstefna í Evrópu, þar sem sýnd verður framleiðsla 5700 fyr irtækja frá 29 löndum. Gefst því einstakt tækifæri til að kynnast af eigin raun helztu nýjungum x taakniframieiðslu á þessaril iðn- kaupstefnu. Fyrir þá, sem áhuga kynnu að hafa hug á að sækja kaupstefnuna skal þess getið, að aðgangskort að henni fást hjá Ferðaskrifstofu rík isins og kosta kr. 66.00. Ferða- skrifstofan útvegar einnig gist- ingu í Hannover og annars stað- ar, ef þörf gerist og skipuleggur ferðir þeirra, sem sækja vilja kaupstefnuna, ef þess er óskað. Er nú þegar orðinn hörgull á gisti rými, í Hannover, og er því ráð- legast fyrir væntanlega gesti kaupstefnunnar að hafa sem fyrst samband við Ferðaskrifstofu ríkis ins vegna útvegunar á gistiplássi þar. Sérstök afsláttarfargjöld verða í gildi á ýmsum flugleiðum frá 1. april til 30. maí. Til dæmis verð ur fargjaldið héðan og til Ham- borgar fram og aftur kr. 6975.00 auk söluskatts, og gildir miðinn í mánuð. Allar nánari upplýsing ar um kaupstefnuna og tilhögun hennar og auk þess aðrar kaup- stefnur í vor veitir Ferðaskrif- stofa ríkisins fúslega. Iðnkaupstefna var fyrst haldin í Hannover 1947. Sýningarsvæðið í ár er geysilega stórt, og hefur raunverulegt sýningarpláss þar meira en tífaldazt síðan kaupstefn an var fyrst haldin. Á kaupstefn unni verður veitt mjög fullkom in þjónusta á öllum sviðum. Þar verða 10 upplýsingaskrifstofur og 40 veitingastofur. Þar eru sæti fyrir 18.000 gesti, en þjónustuliðið þar er 3000 manns. Upplýsinga- bæklingar hafa verið prentaðir í þúsundatali, og sýningarsvæðið er mjög vel skipulagt og skipt niður í f jölmargar deildir, svo að gestim ir eiga að geta gengið að öllu, sem þeir hafa sérstakan áhuga á, vísu á sínum stað. Vélar þær, sem sýnd ar verða á kaupstefnunni, verða flestar sýndar í gangi, en sú raf orka ein, sem þarf til að knýja þær, er nægileg fyrir 150.000 manna borg. Ferðalög með bíl- um, járnbrautarlestum og flugvél um til Hannover hafa verið mjög vel skipulögð, og daglega munu t. d. koma þangað lestjr víða að frá Þýzkalandi og öðrum stöðum í Evrópu. Þarf ékki að efa, að iðn kaupstefnan í Hannover, sem hefst eftir rúma viku, verði bæði fróðleg og skemmtileg og minnis stæð þeim, sem hana sækja. iiiiiiiimiiiiiiiiiii'iimimiiiiiMiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiui, r,_. kerfi hér á landi, og er ég fyrir mitt leyti þeirrar skoðun- ar, að kerfið sé mjög fullkom- ið og gæti orðið okkur mjög gagnlegt, bæði í sambandi við fiskveiðar og flugsamgöngur, en sá hængur er á, að stofn- kostnaður við það er mjög mikill, sennilega nálægt hund- rað milljónir króna. Við skoð- uðum líka Design Centre, en það er eiginlega leiðbeininga- stofnun iðnaðarins varðandi útlit og gæði framleiðsluvar- anna. Að síðustu fórum við svo og skoðuðum Tower of Lond- on og St. Pauls Cathedral. — Þið hafið auðvitað alltaf haft góða fylgdarmenn. — Tveir starfsmenn Alþjóða þingmannasambandsins, ritari þess, Major-General W. A. Die- moline og Mr. Candle, fyrrver- andi starfsmaður í utanríkis- þjónustunni, Voru jafnan með okkur á öllum okkar ferðum og veittu okkur fróbæra fyrir- greiðslu í hvívetna, en auk þeirra skiptust þingmenn úr móttökunefndinni á um að vera með okkur á ferðalögun- um. Að sjálfsögðu hittum við , að máli marga merka menn, en of langt mál yrði að fara að telja þá upp, en meðal þeirra, sem við áttum ánægju- legt samtal við, var Harold Wrilson, sem þingmenn brezka Verkamannaflokksins fullyrtu, að verða mundi forsætisráð- herra Breta að loknum kosn- ingum í haust. Við urðum margs vísari um hagi og háttu Breta á þessu ferðalagi og alls staðar mættum við hinni mestu hlýju og vinsemd. Nokkrum sinnum bar landhelgismálið auðvitað á góma, og voru allir fegnir því, að deilunni út af 12 mílunum skyldi nú vera að fullu lokið. Er ég sannfærður um, að Bretar óska einskis fremur en allar ýfingar út af landhelgismálinu leggist nú nið ur og íslendingar og Bretar eigi aðeins vinsamleg samskipti á öllum sviðum. — Hittuð þið íslendinga í London? spyr fréttamaður að lokum. — Já, sendiherrann, Henrik Sv. Björnsson og frú hans tóku frábærlega vel á móti okkur og höfðu boð inni fyrir 60—70 manns, flest brezkir þingmenn. Við urðum þess áþreifanlega varir, að þau hjónin njóta mikils álits og vinsælda hjá Bretum. Við áttum einnig á- nægjulega kvöldstund með Karli Strand, lækni, og Birni Björnssyni, stórkaupmanni, og konum þeirra. Ferðafélagar mín ir voru allir mjög ánægðir með förina og þær móttökur, sem við fengum, og kunnum við brezka þinginu miklar þakkir fyrir þetta tækifæri, sem það gaf okkur til að heimsækja Bretland. Síðar vonast. ég til, að brezkum þingmönnum gefist kostur á að koma hingað og kynnast íslandi og íslendingum. Og á því leikur enginn vafi, að slíkar gagnkvæmar heim- sóknir geta orðið báðum aðil- um til.góðs. . —hjp. imiiiiiiiiiiiiiiiimutiiniiiiiiiimiiiiiiiiiiimimiiiiniiiiiuiiiiiiiiiiuiiiiiiuiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiimiiiiumiiiiiiiiiiniiiiiuiiimiuiiiiiiiuiniiiiimiminH^ SAUMA- OG BRIDGE- KLÚBBAR KVENNA ÞJÓNUSTA yður til ÁNÆGJU og FRGÐLEIKS SNYRTISÉRFRÆÐINGAR VORIR munu heimsækja klúbhmeðlimi í kaffihléinu, til skrafs og ráðlegginga um val og notkun. Coryse Salome SNYRTIVÖRU, sem flytur yður LEYNDARDÓMINN, að vemd hins KVENLEGA YNDISÞOKKA. Pantið heimsóknina í síma vorum 2-21-38 Laugavegi 25. UPPI ANDLITSHÚÐHREINSUN, SNYRTING, HÁRGREIÐSLA, GEISLARÖÐ. STEREO: FYRSTA ÍSLENZKA STEREO plafan komin á markaðinn Karlakór Reykjavíkur syngur. Stjórnandi Sigurður Þórðarson. Póstsendum. Fálkinn h.f. H1 j ómplötudeild. Fermingarúr fyrir stúlkur og drengi í iniklu úrvali. Ársábyrgð. - Kaupið úrin hjá úrsmið IViagnús E. Baldvinsson, úrsmiður — Laugavegi 12. Sími 22804. Hafnargötu 35 — Keflavík. Illllllllll lllll II lll lll >U> 11111.11111 n ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 21. apríl 1964 9

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.