Alþýðublaðið - 10.05.1964, Page 6
Fyrir tæpum fimmtíu árum férst S*að gíæsilega far-
þegaskip „Empr@ss of Ireland" og 1012 manns týndu
iíftnu. Þetta var mesta sfósiys í sögu Kanada á friöar-
tímum. Þessi afburöur vakti skeifingu um allan heim.
Aöeins tveim árum áður haföi hi „ósökkvandi^ Titan-
ic farizf ...
3JARTA vornótt fyrir tæpum |
(fimmtíu árum síðan leið hið g»æsi
|ega farþegaskip Empress of Ire-
fand n*ður St. Lawrencefljót í
fKanada á leið til hafs.
í ,Flestir hmna 1057 farþega voru !
tagztir til svefns. Skipið hafð'i ný j
Jega lagt úr höfn í Quebeck, það
tar 29. maí 1914.
Skipstjórinn, Henry George
iendendall, var aðeins 39 óra að
þldri og óvé'nju ungur af skip-
jstjóra ó farþegasViipi að v'era.
flnda vorn ekki liðnar nema fjór
fir vikur síðan hanii hafði tekið
^’ið stjórn hins 14.000 tonna stóra
flaggskips Canadian Pacific skipa
^élagsins.
! — Ágæt nótt, mælti skipstjór-
|nn við eina farþegann, sem var
lippii á þi jum þessa nótt, þegar
Jiann gekk fram hjá honum á
leið si.nni í brúna. — En það lítur
íút fyrir að við fáum þoku, það er
Saldrei gott að segja hvað húr.
kemst áleiðis á þessum hluta
fljótsins.
Leicisögumaðurinn niður fljótið
gekk frá borði Empress of Ireland
við Father Point, 175 sjómílur frá
Quebeck. Síðan var skriður skips
ins aukinn upp í hámarkshraða,
18 sjómílur, og stefna var tekin út
já Atíantshaf, áleiðis til Liverpool.
Um tvöleyiið kom Kendall skip
stjóri vauga á sigluljós annars
skips um það bil sex sjómílur
undan. Þetta var norska kolaskip-
ið Storstad á leið til Montreal
frá Sidney með 10.000 tonna kola
íarm.
Rétt eftir þe.ta skall þoka yfir
og skipin hurfu hvort öðru sjón-
um
Nokkrum mínútum síðar vakn-
aði farþegi á Empress of Ireland,
ung stúlka að nafni Grace Kohl,
og leit út um kýraugað á klefa
sínum. Hún sá ljós annars skips í
þokunni.
— Eg hélt að þetta væri bát-
urinn, sem kominn væri til að
flytja leiðsögumanninn í land og
lagðist aftur til svefns, mælti hún
nýlega, en hún er nú gift kona í
Montreal.
En skipið sem ungfrú Kohl sá
var S orstad, sem kom brunandi
þvert á stjórnborðssíðu Empress
of Ireland.
Örfáum sekúndum síðar lenti
kolaskipið miðskips á farþegaskip
inu. Stefni Storstads gekk sex til
sjö metra inn í síðuna á Empress
of Ireland og gerði geysilega rifu
í hana. Sjórinn tók þegar að fossa
inn í bæði kælirúm hennar. Empr
ess of Ire’and lagðist þegar á
stjórnborðshliðina og var horfin
í öldu St. Lawrencefljóts eftir 15
mínútur.
Þegar þetta gerðist var skipið
statt 6.5 sjómílur austur af Father
Point. Alls fórust með skipinu
1.012 manns. 840 farþegar og 172
af 420 manna áhöfn skipsins.
Þetta var skæðasta sjóslys í sögu
Kanada á friðartímum. Af 138
börnum, sem með voru, kom-
ust aðeins 4 af. Fjöldi þeirra sem
fórust hefur aldrei komizt upp á
þiljur, aðrir soguðust niður með
skipinu þegar það hvarf í fljótið
Á skipinu voru 40 björgunarbátac,
af þeim gafst ekki tóm til að sjó
setja nema fjóra, a’la frá s.jórn-
borði þar sem skipinu tók svo
fljótt að halla, að ekki var við-
lit að losa bakborðsbátana. í hópi
farþeganna voru 200 frá kanadiska
Hjálpræðishernum, sem voru á
leið til alþjóðamóts í London. Af
þeim komust 33 af. Meðal þe'rra,
sem fórust, var yfirmaður Hjálp-
ræðishersins í Kanada, kona hans
og þrjú börn. Vegna þe'-s a burð-
ar heldur kanadíski Hjálpræðis-
herinn minningarguðsþjónustu
hinn 29. maf ár hvert í kirkjugarð
inum í Pleasant í Toronto.
Þetta slys varð aðeins tveim ár-
um eftir það sjóslys, sem bezt hef
ur geymzt í hugum manna, er hið
„ósökkvanlega“ Titanic fórst með
^1513 mönnum á Norður-Atlants-
haf*. Þessi nýi ógnaratburður
vakti skelfingu um all#n heim.
í hverju voru mistökin fólgin?
Þegar Empress of Ireland og
Storstad urðu vör hvort við ann-
að, iá Thomas Andersen, skipstj.
á Storstad, í íbúð sinni og sva£.
Fyrsti stýrimaður hanis, Alfrcd
Toftens, var á vakt, en hafði feng
ið þá fyrirskipun, að vekja skip
stjórann ef þoka skylli á.
Það sem gerðist í brúm skip-
anná eftir aS þokan huldi þau
sjónum hvort frá öðru, varð til-
efni harðra og biturra orðaskipia
meðan hin opinbera rannsókn,
sem kanadíska stjórnin fyrirsk'p-
aði, stóð yfir.
Rannsóknarnefndin, sem starf-
aði undir forsæti Merseys lávarð
ar, sem einnig stjórnaði rannsókn
inni á Titanicslysinu, komst að
þeirri niðurstöðu, að sökin væri
| hjá stjórnendum Stors.ads, vegria
þess að það hafði átt að breyta um
; stefnu efcir að þokan skall á
| Nefndin komst að þeirri niður-
stöðu, að Toftens fyrsL s ýrimað-
ur hefði farið rangt að og sýnt af
sér kæruleysi við stefnubreyting-
una og við að láta hjá líða að
Björgynarbátar voru settir út trl þess að reyna að bjarga þeim, sem eftir lifðu.
vekja skipstjórann eftir að þokan
skall yfir.
! Anderson skipstjóri mun hafa
lcomið í brúna í sömu andrá og
fyrrnefnd ungfrú Kohl leit út um
glluggann hjjá sér. Honum var
ekki strax gert kunnugt, að ann-
að skip væri á næstu grösum, og
hið fyrsta, sem honum varð fyrir
var, samkvæmt venju að líta á
áttavitann, Það stóðsc á endum,
að hann var kominn að honum
, þegar hann sá ljósin á Empress
I of Ireland koma fram úr þokunni
' og þá var ekki lengra en200—300
metrar milli_ skipanna.
Hann hringdi þegar á fulla ferð
aftur, en það var um seinan. Stor-
smd rakst af þvílíka afli á Émpr-
ess of Ireland, að það kastaðist
aftur frá því, snerist um meira en
90 gráður, þokaðist aftur með því
og hvarf í þokuna á nýjan leik.
í nærri tíu mínútur hafði Ander
sen ekki hugmynd um í hvaða átt
hið ásiglda skip væri .Það var
ekki fyrr en neyðaróp fólksins í
sjónum tóku að berast gegn um
þolcuna, að hann gat tekið stefnu
á það. Þá fór hann ems nærri og
hann þorði og setti út fjóra björg
unarbáta til þess að bjarga þeim
sem eftir lifðu.
Tilviljun olli því, að Kendall
skipstjóri á Empress of Ireland
bjargaðist. Hluti af brúnni rifnaði
frá um leið og skipið hvarf í
djúpið og skipstjórinn kastaðist
í vatnið nærri einum björgun-
arbátnum. Hann var dreginn um
borð í hann og þaðan stjórnaði
hann björgunarstarfinu og hætti
ekki fyrr en hann var sannfærður
um að ekki væru fleiri lífs í vatn
inu.
I Milli klukkan 3 og 4 komu tvö
önnur skip á slysstað, póstskipið
Lady Evelýn og dráttarbáturinn
Eureka. Allt sem þau gátu gert
var að flytja skipbrotsfólkið til
næstu hafnar, sem var Rimouski
I í Quebeekhéraði.
1 Kendall skipstjóri ga’t þess ekki
að hafa misst skip sitt. Á árum
fyrra stríðsins stjórnaði hann
hjálparbeitiskipinu Calgarian allt
þar til þýzkur kafbátur sökkti því
undir lionum í marz árið 1918.
Til stríðsloka var hann síðan yfir
' maður skipalesta og eftir það var
hann yfirmaður Canadian Paeific
j í London og Southamton þar til
! hann hætti störfum árið 1938.
I Hann er enn á lífi og býr í Eng-
j landi.
Rannsóknamefndin lét í ljós
oomijfl jnprt *>ínum unga stýri-
ttanni, Toftenes, sem sá lífsstarf
sitc og framtíö eyðilagt þrjátiu og
þriggja ára að aldri.
— Okkur þykir fyrir að þurka að
lýsa sök á hendur nokkrum manni
vegna þessa hörmulega atburðar
og við myndum ekki gera það ef
við fyndum nokkurn annan kost,
sagði í skýrslu hennár. “ ‘
£ 10. maí 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ