Alþýðublaðið - 10.05.1964, Page 9
þær eru fullmikið málaðar í framan
N Ý SENDING
#
enskar, vor- og sumarkápur
einnig
svampfóðraðar kápur
Kápu og dömubúöin
Laugavegi 46.
Ný sending
af hollenzkum kápum
og drögtum
Tekin fram á morgun.
ur en dyrnar lokast á eftir honum.
Sumir .rúntfarar' beygja inn í trjá
garðinn hjá Skúla Magnússyni, en
aðrir fara fyrir hornið á garðin-
um, og ég er einn af þeim.
Ekki er ég fyrr kominn fyrir
hornið en framhjá þeysir eitt
tryllitækið á mikilli ferð. Út um
afturgluggann teygir sig hendi
4GAR: RAGNAR LÁR
með brenniyínsflösku. Síðan kem-
ur úfinn haus og rekur upp skað-
ræðisöskur, vegfarendum til heið-
urs, en þeir virðast vera ýmsu van-
ir og brosa góðlátlega að tilburð-
um gæjans. Tryllitækið, sem
minnst er áttagata, stanzar hjá
tveim skvísum og býður far. Þær
virða fyrir sér útlit tækisins og
sjá að það er hið glæsilegasta,
hvískra lítið eitt saman og stiga að
því búnu inn. Án efa er þeim vel
tekið og ' tryllitækið rykkist af
stað og það hvín í bjólbörðunum.
Á stéttinni utan við Hótel Borg
er eitthvað um að vera. Þar hefur
safnazt saman hópur manna utan
um tvo gæja sem standa í hæfi-
legri fjarlægð hvor frá öðrum, í
stellingum sem gefa til kynna að
þeir séu reiðubúnir að hljóta
heimsmeistaratitilinn í hnefaleik-
um, ef í það fer. Áhorfendur bíða
eftir því að annarhvor láti til
skarar skríða og biðin er ekki löng.
Þeir rjúka saman og slást eins
og óðir hanar. Hnefaleikastíllinn
er rokinn út í veður og vind og
nú er slegizt samkvæmt gömlum
og góðum sveitaballastíl. En dýrð-
in stendur ekki lengi, fyrr en var-
ir eru komnir þrír lögregluþjónar
að skipta sér af slagsmálunum og
skakka leikinn. Slagsmálahund-
arnir fá án efa gistingu í kjallar-
anum og þar með er kvöldið ónýtt
fyrir þeim. Þegar ég kem í Lækjar
götuna er sýning að hefjast í Nýja
bíó og fólk farið að þyrpast að.
Og nú er ég kominn í Austur-
stræti að nýju og er að velta því
fyrir mér hvort ég eigi að ganga
annan rúnt.
. . . hann er mikið drukkinn . . .
og- slást eins og óðir hanar
BERNHARD LAXDAL
Kjörgarði.
Bifreiðaeigendur athugið
LYF GARD HEMLAÖRYGGIÐ KEMBR í VEG
FYRIR ALGJÖRT HEMLALEYSI OG GETUR ÞVÍ
FORÐAÐ STÓRSLYSUM!
ÞETTA ÖRYGGISTÆKI EIGA ALLIR ÖKUMENN
AD SETJA í BIFREIÐIR SÍNAR.
LYF GARD HEMLAÖRYGGIÐ ER ÞEGAR KOMIÐ
í FJÖLDA BIFREIÐA HÉR Á LANDI ÞAR Á
MEÐAL FLESTAR LÖGREGLUBIFREIÐIR
REYKJAVÍKUR.
Útsölustaðir:
Bílanaust h.f.
Kristinn Guðnason
StiUing h.f.
Stapafell, h.f., Keflavík
Kaupfélag Grundar-
fjarðar, Grafarnesi
Hjörtur Eiríksson,
Hvammstanga
Kaupfélag Húnvetninga,
Blönduósi
Kaupfélag Skagfirðinga,
Sauðárkróki
Þórshamar h.f., Akureyri
Jón Þorgrímsson, Húsavih
Sendum gegn póstkröfu
Bifreiðaverkstæðið
STIMPILL
GRENSÁSVEGI 18 — Sfroí 31534.
Auglýsingasiminn er J 49 06
ALÞÝÐUBLAÐI9 — 10. maí 1964 $