Alþýðublaðið - 10.05.1964, Side 16
45. árg- — Sunnudagur 10. maí 1964 — 104 tbl.
Dómur um greiðslu
Eeykjavík, 9. maí — HP.
STÝRIMANNASKÓLAN-
UM var sagt upp í morguri.
Skólaslitarræðuna flutti Jónas
Sigurðsson, skólastjóri. Skól-
anum toárust á skólaárinu tveir
farandbikarar úr silfri, annar
frá Sktpstjóra- og stýrimanna-
félaginu Öldunni, en hinn frá
Eimskipafélaginu. Voru þeir
gefnir í tilefni af 50 og 70 ára
afmælum þessara féiaga, og af
hentir í fyrsta sinn við skóla
slit í dag. Skal Öldubikarinn
veittur þeim, sem hlýtur hæsta
einkunn á fiskimannaprófi ár
hvert, en hinn þeim, sem hæsta
einkunn hlýtur við farmanna-
próf.
Að þessu sinni luku 13 nem
endur farmannaprófi og- 74
fiskimannaprófi. Haxa aldrei
jafnmargir fiskimenn verið
brautskráðir úr skólanum í
einu. í janúar luku 9 hinu
minna fiskimannaprófi við skól
ann, 13 á námskeiði í Vest-
mannaeyjum og 14 á Eyrar-
bakka. Samtals hafa því verið
brautskráðir 123 nemendur
með stýrimannaprófi frá skól
anum og námskeiðum hans úti
á landi á þessu skólaári. —
Hæstu einkunn við minna fiski
•mannapróf í Reykjavík hlaut
Björn Jóhannsson, I. eink.,
7,17. Hæstu einkunn við fiski
mannapróf hlaut Pétur Guð-
mundsson, 7.5,2, sem er ágætis
einkunn, og hlaut hann verð-
launabikar Öldunnar. Hæstu
einkunn við farmahnapróf
lilaut Pálmi Hlöðversson. I.
eink., 7.03. Hann lilaut verð-
launabikar Eimskipafélagsíns.
Fleiri verðlaun voru veitt, en
ekki gefst rúm til að geta
þeirra hér.
Óttar Möller afhendir Pétri
Hlöðverssyni Eimskipafélags
bikarinn (efri mynd) ogr Jón-
ar Sigrurðsson flytur skóla-
slitarræðu sína (neðri mynd).
lögfræðikostnaðar
Reykjavík 7. maí — KG
DEILUR hafa verið milli lögfræð-
| inga annars vegrar ogr trygrgringa-
félaganna hins vegar um greiðslu
fyrir Iögfræðilega aðstoð, sem
veitt ér þeim, sem orðið hafa fyr-
ir tjóni. Var eitt slíkt mál milli
Ragnars Jónasonar, hæstaréttar-
lögmanns og Samvinnutrygginga
Iátið ganga til Hæstarét'ar og hef
ur liann nú nýlega kveðið upp úr-
skurð sinn. Dæmdi rétturinn lög-
manninum 7000 krónur, sem hæfi
lega þóknun fyrir starf hans, en
lögmaðurinn hafði krafizt gjalds,
samkvæmt gjaldskrá lögmanria-
félagsins, en samkvæmt henni
var þóknunin 8.408.80.
Málavextir eru þeir að kona
varð fyrir bifreið og slasaðist nokk
uð en bifreiðin, sem hún varð fyr-
ir var tryggð hjá Samvinnutrygg-
ingum. Fékk konan Ragnar Jóns-
son, hæstaréttarlögmann til þess
að gæta réttar síns vegna slyss-
j ins og til þess að annast allar
Frímerkjablað belgað Islandi
Reykjavík, 8. maí, — GG
& BORGINNI Sidney í Ohio í
Bandaríkjunum er gefið út viku-
Wað í dagblaðabroti um frímerki
og allt, sem þeim við kemur. Blað
jþetta heitir Linn’s Weekiy Stamp
Wews og mun vera stærsta blað
sinnar tegundar í heiminum, að
•ttví er fréttarilari þess hér á landi
#6nas Hallgrimsson, tjáði okkur
F dag, Blaðið er gefið út i 200.000
Ciataka upplagi á hverri viku og
var blaðið, sem út kom 20. apríl
sl. helgað íslandi. Venjulega er
blaðið 36—40 síður að stærð, en
þessi íslenzka hátíóarútgáfa er 56
síður.
Jónas Hallgrímsson tjáði okkur,
að ísland væri tíunda landið, sem
heiðrað væri með slíkri heiðurs-
útgáfu, en hin níu eru Holland,
Sviss, Sviþjóð, Egyptaland, Finn-
land, Lúxemborg, ísrael, og Vest-
BOLVÍKINGAR
FÁ NÝTT SKIP
Bolungarvík, 8. mal - IS - HP
k MfÐVIKUDAGINN bættist nýtt
Rskiskip í skipastól Bolvíkinga.
Það er Hugrún, ÍS-7, 206 tonna
stálskip, byggt í Merstrand í Sví-
Njóð, en eigandi þess er Einar
Guðfinnsson, útgerðarmaður.
Aðalvél skipsins er 675 ha No-
ttab-Polar. Ganghraði Hugrúnar í
reynsluferð reyndist 12 mílur. —
Skipið er búið öllum fullkomnustu
siglinga- og fiskileitartækjum, —
fc§ifur Jónsson sigldi því heim.
Hreppti Hugrún mjög vont veður
& leiðinni, en reyndist hið bezta.
Skipstjóri á veiðum verður Há-
varður Olgeirsson, en fyrsti vél-
stjóri Benedikt Jakobsson. Eigandi
skipsins er sem fyrr segir hinn
kunni athafna- og dugnaðarmaður
Einar Guðfinnsson í Bolungarvík.
Hóf hann rekstur sinn af litlum
efnum, en nú er fyrirtæki hans
eitt hið traustasta á Iandinu. Fram
kvæmdastjóri að því, er snertir út-
gerð skipsins verður Guðfinnur
Einarsson, en Einar Guðfinnsson
gerir út skipin Heiðrúnu, Haf-
rúnu, Sólrúnu, Einar Hálfdans og
Guðmund Péturs auk Hugrúnar.
ur-Þýzkaland og svo Sameinuðu
þjóðirnar.
Undirbúningur að þessari sér-
stöku íslandsútgáfu blaðsins var
unninn af Jónasi Hallgrímssyni og
Póstmálastjórninni og hefur sýni
lega verið vel vandað til hans. Á
forsíðu blaðsins er ávarp frá Gunn
laugi Briem, póst- og símamála-
stjóra auk landfræðilegrar og sögu
legrar lýsingar á íslandi. í leið-
ara blaðsins skrifar einn af að-
stoðarritstjórum þess, Carl P.
Rueth, ákaflega vinsamlegan pist
il, en hann mun hafa heimsótt ís-
land í maí sl.
Af efni blaðsins er fjallar um
ísland, má nefna grein um íslenzk
frimerki eftir Jónas Hallgrímsson,
— Jón Aðalsteinn Jónsson
skrifar tvær greinar, aðra, sem
nefnist „íslendingar finna Ame-
ríku“ og hina um notkun lands-
lagsmynda á íslenzkum frímerkj-
um. Þá má geta greina eftir Einar
Sigurðsson, Sæmund Helgason,
Guðmund Hlíðdal, fyrrverandi
póst- og símamálastjóra, Bjarna
Tómasson, og loks greina eftir
David W. Summerfield, og Elmer
T. Bergquist, sem skrifar grein,
er nefnist „I Like Iceland Best“.
og fjallar um söfnun hans á ís-
lcnzkum frímerkjum.
Ekki er að efa, að slík útgáfa
sem þessi á eftir að vekja mikla
athygli á íslandi, ekki aðeins frí-
merkjum þess heldur og landinu
sem ferðamannalandi. Geta má
þess að lokum, að sænsk frímerkja
sala, Frimarksliuset, á þarna heil-
'^íðuau^lýsingu um ísleiyfi frí-
merki.
framkvæmdir um innheimtu bóta.
Aflaði lögmaðurinn læknisvott-
orða, lét framkvæma örorkumat
og reiknaði út vinnutap. Gerði
Framh. á bls. 13.
FremurWenner
síröm sjálfs-
morö bráðum
Stokkiiólm, 9. maí
(NTB - TT)
NJÓSNARINN Stig Wenner
ström ofursti hefur upp á
síðkastið hvað eftir annað
falið hluti, sem hann gæti
notað til að reyna að fremja
sjájfsmorð, að sögn Stokk-
hóímshlaðsins „Dagens Ny-
hcter”.
Blaðið segir, að hlutir
þessir hafi fundizt við dag-
legar rannsóknir á klefa
njósnai'ans, og af þessum sök
um Vhefur vörðurinn verið
efldur.
Lögreglan telur, a@ Wen-
nerström kunni að hafa í
hyggju nýja sjálfsmorðstil-
raun, og að gera megi ráð fyr
ir að hann reyni þetta á næst
unni, skömmu áður en dóm-
ur í máli hans fellur.
WWÍWWtHWWWWWWW
HRAUNPRÝÐISKAFFIÐ
VERÐUR Á MORGUN
SLYSAVARNADEILDIN Hraun-
prýði í Hafnarfirði heldur sinn ár-
lega kaffisöludag á morgun, mánu-
daginn 11. maí. Það er orðin föst
venja í Hafnarfirði, að Hraun-
prýðikonurnar gefa bæjarbúum
kost á því á lokadaginn að kaupa
sér kaffi í Alþýðuhúsinu eða
Sjálfstæðishúsinu og styrkja með
því gott málefni. Og Hafnfirðing
ar hafa jafnan fjölmennt í Hraun-
prýðikaffið og notið þar góðra
veitinga, og svo mun enn raunin
verða á morgun. Það má segja, að
Hraunprýðiskonur liafi mótað
og myndað svip þessa dags í 'Hafn
arfirði um margra ára skeið.
Merki slysavarnafélaganna verða
seld í Hafnarfirði og eru börn vin-
samlega beðin að koma í Bæjar-
bíó og fá þar merki til að selja.
Þau verða afhent frá khikkan 9
f. h. á morgun.
Konur og aðrir velunnarar
Hraunprýðideildarinnar, sem vilja
gefa kökur, geta komið mc'ð þær
í Alþýðuhúsið og Sjálfstæðishús-
ið eftir klukkan átta I kvöld og
verður þá tekið þar á móti þeim.
Og á morgun frá klukkan þrjú
til hálftólf síðdegis munu leiðir
Hafnfirðinga liggja í Alþýðuhús-
ið og Sjálfstæðishúsið, og þá munu'
Hraunprýðikonurnar taka á móti
þeim með þeirri rausn og myndar-
skap, sem þeim er laginn.