Alþýðublaðið - 23.05.1964, Side 2

Alþýðublaðið - 23.05.1964, Side 2
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og fienedikt Gröndal. — Fréttastjóri: Arni Gunnarsson. — Ritatjómarfulltrúi: Eiöur Guðnason. — Símar: :'490C-1490:'. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavik. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald kr. 80.00. — i lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurhin. LISTAHÁTÍÐ ÞAÐ ER mjög vel til fallið, að minnast tutt- ugu ára afmælis íslenzka lýðveldisins með veg- legri listahátíð leins og gera á í vor. Hátíðin iverð- ■ur borin uppi af íslenzkum listamönnum og lista- verkum, þóti að sjáifsögðu margir góðir erlendir igestir leggi þar einnig nokkuð af mörgum. Dagskrá hátíðarinnar verður fjölbreytt; sivo fjölbreytt, að hver einasti -iandsmaður ætti að finna þar eitthvað við sitt hæfi. Keppt er að því að þetta verði) hátíð/ sem allir landsmenn fái notið, og er það vel. Slíkar Jistahátíðir eru ivíða erlendis haldnar ár fega í mörg'um stórborgum og þykja hvarvetna hin ir merkustu viðburðir. Þótt íslenzkt menningárlíf sé fjölskrúðugt og við eigum gnótt góðra Dsta- manna, væri ef til vili í fullmikið fáðizt að aétla sér að halda slíkar hátíðir hér árlegá. En vanda laust ætti okkur að vera að efna til listahátíða ann að hvert éða þriðja hivert ár. Vafalaust mundi slíkt ’hafa mikil og góð áhrif til eflingar íslenzku menn- ingariifi. Þess er að vænta, áð árangur þeirrar há- tíðar, sem nú er í vændum, verði slíkur, að hér verði áframhald á. Bandlálag íslenzkra listamanna á þakkir skildar fyrir framtak sitt og rvonándil verð ur Iistahátíðin öllum sínum aðstandendum til mesta sóma. BOÐ OG BÖNN fiNEYK-SLAZT hefur verið á framferði ungl- inganna um hvítasunnuna, enda slíkri hegðan ekki bót mælandi. En það er síður en svo, að sökin í þessu máli sé unglinganna eihna, eins og Hannes á horninu hefur réttilega bent á hér í blaðinu. Um hvítasunnuheigina eru kvikmyndahúsin, sem æsk- an sækir mikið lokuð tvo daga af þrem. Danshús eru opin, en bannað er að dansa, nema á annan idág hvrtasunnu. Engar hömlur eru á vínsölu þessa daga. Vínið flóir á danshúsunum engu síður en ella, þótt blátt bann sé lagt við dansi. Þetta- hljóta allir að vera sammála um að sé fáránlegt ósam- ræmi, sem breyta þarf hið fyrsta. Lokun kvikmyndahúsanna á hátíðisdögum er ein út af fyrír sig beinlínis til bess fallin að ýta undir að unga fólkið hverfi burt og skemmti sér eihhversstaöar utanbæjar, og þá ærið oft með mið- ur æskilegum afleiðingum, Fyrsta skrefið til að stemma stigu við því, að hvítasunnuhneyksli endurtaki sig, ætti tvímæla- iausr að' vera að rýmka um þær hömlur á skemmt anahaldi, sem nú eru við lýði á hátíðisdögum og stuðlá þá uim leið að því, að efnt sé tiO. samkoma þar sem æskufólk getur komið saman og skemmt sér á heilbrígöan hátt. 2 23. maí 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ B-deild Skeifunnar Ódýr húsgögn, svefnsófar, sófasett, borðstofusett, stakir stólar, klæða- skápar o fl. húsgögn á tækifærisverði. Tökum vel meðfarin húsgögn í umboðssölu. SKEIFAN B-deild kjörgarði ViSsjárverð' blaðamennska. ir Æsifréttir um ávirðingar. Minna rætt um gott fordæmi. Ástandið með Eimskip. -k Fortíðin og nútíðin. ........ iiiiiiiiimiiiiiiuiiiiimiiini iiiiiiiiiiiiiitiuiiiiiiiiiininiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiMiiiiiiimiiiiik „VEGFARANDI” SKRIFAR: í>að er rangt af blöðunum að gera unglingavandamál að æsifréttum. Ncg er samt. Eftir því, sem ég hef' heyrt er það rétt hjá þér, að að þessu sinni var ólátahópurinn fá- mennari en áður og ölvun miklu minni. Fullyrt er að blaðamenn geri úlfalda úr mýflugu. Ég álít að ekki megi þegja við ósóma hvar sem hann fyrirfinnst. En það er líka rangt að gera meira úr en eðlilegt verður að teljast. í>að er beinlínis skaðlegt. ÞAÐ ERU EINMITT ÆSI- FRÉTTIRNAR af þessum atburð- um, sem verða til þess að auka á ævintýramennsku vegvilltra æsku- manna. Það má ekki setja stlmpil á heildina þó að einstaka liggi í drafinu. í sambandi við Hreða- vatnsför um síðustu hvítasunnu, var sagt, að nökkrir unglingar hefðu hagað sér ágætlega. Ég vil fullyrða, að mikill meirihluti hafi verið til sóma. Gott fordæmi er meira virði en ávirðingarnar. Þess vegna á að leggja meiri áherzlu á það er þær”. HANNES JÓNSSON sendir eft- irfarandi: Illa fór hann Gvendur grey, þótt gamalt hefði hann ketið, en þeir eru til, scm þrífast ei, þótt þeir geti étið. Að liann dáið hafi úr hor held ég rengja megi, en hitt var satt, hann var í vor vel framgenginn eigi. MÉR DUTTU þessar borgfirzku vísur í hug, er ég sá útkomuna hjá Eimskip, eftir fimmtíu ára. trú- verðugt og liógvært vinnukonu- starf hjá hákörlum og höfðingjum, samvinnumönnum og svindilbrösk- urum, ríkisstjórnum og stjórn- málaskúmum. Allir þessir hafa krafizt þjónustu, en fáir hlúð að 1 óskabarninu. 1 Ég SÁ HVERJIR SÖFNUÐU j AUÐI í skjóli Eimskips í fyrra j stríðinu, en höfðu engan áhuga til viðskipta, er ódýr leiguskip stóðu til boða. Þá tókum við Magnús lieitinn Gunnarsson kaupmaður á Stokkseyri mestallt farmrými Gullfoss eldra á leigu, um 1921, með því skilyrði, að skipið kæmi við á Stokkseyri í færu veðri. Það tókst, og allir voru ánægðir. Ég sá líka þjónustu Eimskips við kaup- félögin og SÍS. Ég hef heyrt um þá, sem auðguðust á þjónustu Eim- skips í seinna stríðinú. Og ég hef líka heyrt um þjónustúna við út- gerðina og hraðfrystiliúsin. NÚ Á SÍS ÁTTA SKIP og ætiar að byggja fleiri. Landsbankinn legg- ur fram féð, að sögn. Eigendur 82P* hraðfrystihúsanna eiga mörg skip, og stórkaupmenn einnig. Ríkis- stjórnir og bankar liafa lagt féð fram. Allir þessir nýríku fátæk- lingar heimta peninga til meiri framkvæmda. Allir segjast vera einstaklingsframtak, sem ekki eigi að bera ábyrgð á neinu. Eiga réttinn í þjóðfélaginu, en ekki bera skyldurnar. EN HVAÐA RÉTT liafa bank- arnir til að ráðstafa sparifé al- mennings í gáleysi og ábyrgðar- lítið? Og hvaða rétt liafa ríkis- stjórnir til að leggja skatta og tolla á almenning, til að ausa þvS í útgerðarmenn og bændur, sem alltaf segjast tapa, hve miklu sem er troðið í þá? „Já, rétt, áttatíu ’, sagði Þorlákur hreppstjóri í Hól- um á hreppaskilunum, er bóndinn tíundaði fimmtíu ær, settar á vet- ur. JÁ. BARNABÖRN VELLYGNA- BJARNA dóu úr hor. Kannski fer óskabarnið eins. Það mundt hryggja okkur, sem sáum það fæð- ast af íslenzki-i þjóðarvitund. Al- veg eins þó við þá verðum dauð í jarðneskum líkama”. MÆÐRADAGURINN ER Á SUNNUDAGINN FORELDRAR! — Látið börn ykkar hjálpa okkur til að selja litla, fallega mæðrablómið, sem aflient verður á. sunnudaginn frá kl. 9,30 í eftirtöldum skólum: Melaskóla Vog’askóla Miðbæjarskóla ísaksskóla Hamrahlíðarskóia Langholtsskóla Laugarnesskóla Aústnrbæjarskóla Breiðagerðisskóla Vesturbæ jarskóla (Stýrimannaskóli, Öldu- götu). og skrifstofu Mæðrastyrksnefndar, NjáEsgötu 3- — Góð sölulaun. Hjálpið öll til að gera dag móðurinnar sem ánægju- legastan. Mæðrastyrksnefnd. Frá Stýrimannaskólanum Sérstök deild verður lialdin við Stýrimannaskólann á hausti komandi fyrir þá, sem lokið hafa hinu minna fiski- mannaprófi og vilja lesa undir fiskimannapróf. Kennsla hefst 1. október og lýkur með fiskimannaprófi næsta vor. Umsóknir um þátttöku þurfa að hafa borizt undirrituðum fyrir 15. ágúst. Skólastjóri Stýrimannaskólans.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.