Alþýðublaðið - 23.05.1964, Side 3
Pathet Lao skýtur á
bandaríska flugvél
Rússar styðja tillögu Frakka
Washington, Moskva, og London.
22. maí. (ntb-reuter-afp). Land-
varnaráðuneytið í Washington til-
kynnti seint í kvöld aö hermenn
Pathet Lao hcfðu skotið á banda-
ríska könnunarflugvél, er i hún
flaug yfir svæði í Laos, sem lier-
sveitir Pathet Lao hafa á sínu
valdi.
Flugvélinni tókst að snúa aftur
til stöðvar sinnar og engan í vél-
inni sakaði. Ekki var skýrt frá
því, hvaða flugvélategund hér
hafi verið um að ræða.
★ Frá Moskva berast þær fréttir,
að heimildir, sem venjulega eru
taldar áreiðanlegar, hermi, að
sovétstjórnin hafi skýrt frönsku
j stjórninni frá því að hún styðji
j tillögu Frakka um nýja alþjóða-
i ráðstefnu um Laos í lok júní.
Laosstjórn hyggst
átð ðf hlutleysi
Vientiane, 22. maí. ntb-afp.
Margir, sem vel fylgjast með
gangi mála í Laos, veltu því fyrir
sér í dag, hvort Laos-stjórn hefði
í hyggju að láta af hlutleysis-
stefnu sinni í utanríkismálum, þar
eð í Ijós hefur komið, að sam-
steypustjórn stjórninálahreyfing-
anna þriggja hefur mistekizt.
Ástæðan til þessara bollalegg-
inga eru ráðstafanir þær, sem
stjórnin hefur gripið til gegn
pólsku fulltrúunum í alþjóðlegu
eftirlitsnefndinni og sendiráði
Norður-Vietnam.
Öflugur hervörður hefur verið
settur við byggingar pólsku full-
trúanna og sendiráðsins. Enginn
fær að heimsækja sendiráðið og
þangað má heldur ekki senda vist
ir. Norður-Vietnam liefur borið
fram harðorð mótmæli og ind-
versku og kanadisku fulltrúarnir
í eftirlitsnefndinni hafa einnig
sent mótmæli vegna aðgerðanna
gegn pólsku fulltrúunum.
Margt bendir til þess, að Souv-
anna Phouma stjórni ekki leng-
ur ráðuneyti sínu nema að
nafninu til.
Ráðherrar Pathet Lao-hreyf-
ingar kommúnista hafa leitað hæl
1 -is í byggingu pólsku fulltrúanna.
Birt hefur verið frétt þess efn-
(Framhald á 4. síðu).
Sovétstjórnin hefur á hinn bóg-
inn látið í ljós alvarlegan vafa um
gagnsemi viðræðna fulltrúa þeina
14 ríkja, sem fulltrúa áttu á Gen-
far-ráðstefnunni um Laos, í Vien-
tiane. 1
Forsætisráðherra Laos byggir
þessa tillögu sína á ákvæði í Gen-
far-samningnum um hlutleysi La-
os. Frakkar báru fram tillögu
sína á miðvikudaginn, en þar var
ekki tekið fram hvaða fulltrúar
ættu að sækja hana.
★ Brezka utanríkisráðuneytið
gaf í skyn í dag, að brezka stjórn-
in styddi tillögu Bandaríkjamanna
um, að SÞ skuli á einhvern hátt
halda uppi eftirliti á landamærum
Suður-Vietnam og Kambodíu. —
Jafnframt sagði formælandi ráðu-
neytisins, að Bretar væru sam-
þykkir samkomulagi Laos-stjórn-
ar og Bandaríkjastjórnar um könn
unarflug yfir þeim hlutum Laos,
sem Pathet Lao-hreyfingin hefur
á sínu valdi.
Bretar hafa enn ekki tekið af-
stöðu til frönsku tillögunnar um
nýja alþjóðlega ráðstefnu, sagði
formælandinn. En mál þetta hefði
borið á góma í viðræðum sendi-
herra Breta í Moskva, Sir Hump-
hrey Trevelyan og varautanríkis-
ráðherra Rússa, Sergei Lapine, í
gær.
★ Formælandi brezka Verka-
mannaflokksins í utanríkismálum
Patrick Gordon-Walker, sagði í
dag, að margt mælti með þvf, að
efnt yrði til ráðstefnu í Genf
um Laos á nýjan leik. Einnig virt
ist rík ástæða til ráðstefnu í Genf
um Laos á nýjan leik. Einnig virt
(Framhald á 4. síðn).
Kúbuher berst við
fjandmenn Castro
Havana, 22. maí. (ntb-reuter).
Deildir úr Kúbuher hafa átt í
höggi við hópa vopnaðra andstæð-
inga Castros, sem reyna að ganga j
á land á Kúbu, og tekið marga
fanga, að því er haft var eftir
heimildum í Havana, sem venju-
SOUVANNA PHOUMA
Ummæli þýzks ráðherra
um Sudetahéruðin, vítt
Bonn, 22. maí. (ntb-afp).
I.udwig Erhard kanzlari hefur
krafið samgöngumálaráðherra
sinn, Hans Christoph Seebolim,
skýringa á þeim ummælum, er
liann lét falla á sunnudaginn, að
Súdctahéruöin í Tékkóslóvakíu
yrðu að fá aftur stöðu þá, sem
þau höfðu samkvæmt Munclien-
samningnum frá 1938.
Mörg vestur-þýzk blöð og hið
áhrifamikla blað, Washington
Post hafa mótmælt ummælum See
bohms og krafizt þess, að liann
segi af sér.
Washington Post segir, að það
sé aldeilis furðulegt, að ráðherra
í stjórn Erhards geti lýst yfir
stuðningi við það, að Súdetahér-
uðin verði aftur afhent V-Þýzka-
landi, og að hann skuli rökstyðja
þetta með Mtinchen-samningn-
um. Herra Seebolim hafi augsýni-
lega gleymt atburði, sem hvar-
vetna sé þekktur sem heimsstyrj-
öldin síðari.
Sebohm sagði í dag, að árás-
irnar væru gerðar til þess, að
leggja stjórnmálaferil sinn í rúst.
Hann kvaðst hafa gert ráð fyrir
árásunum áður en hann hélt ræð-
una, því að hann hefði fengið
hótunarbréf.
★ Nehru talar.
Nýju Delhi, 22. maí
(NTB-Reuter).
N E H R U , forsætisráðherra,
sagði í dag, aö lvann hefði
hugsað mikið um þaö, hvort
hann ætti aff láta af störfum
forsætisráðherra og gegna í
þess stað starfi ráðunautar.
Aðspurður hver taka muni viff
af honum sagði Nehru, aff
hann ætti enn eftir nokkuff
ólifaff.
Þetta var fyrsti blaðamanna
fundur Nehrus síðan hann
veiktist í janúar. Hann tal-
aði lágt og hikandi og gerði
oft langt lilé á máli sínu.
En við og við mátti merkja
liinn venjulega þrótt hans.
★ Indverjar í flug-
vélakaupum.
Washington, 22. maí
(NTB-Reuter).
INDVERJAR reyna að fá
keyptar í Bandaríkjunum
tvær sveitir af þotum af gerff
inni F-104 fyrir 150 milljónir
dollara, aff því er góðar heim-
ildir hermdu í dag. Banda-
ríska utanríkisráðuneytiff hef
ur lagzt gegn slíkri sölu, enda
muni hún spilla sambúð
Bandaríkjanna og Pakistan.
Landvarnaráðherra Indlands,
Chavan, telur F-104 þoturnar
henta bezt til gæzlustarfa á
landamærum Kína.
★ Sendiherra Frakka
til Peking,
París, 22. maí
(NTB-Reuter).
FYRSTI sendiherra Frakka í
Kína, Lucien Pay, fór flug-
leiðis í dag frá París til Pek-
ing til aff taka viff hinu nýja
embætti. Sendiherra Kína í
París fór frá Peking fyrir
tveim dögum. Paye kveffst
vona 'að finna hæfilegt hús-
næði fyrir sendiráðið fyrir
haustiff. Fyrst um sinn verff-
ur þaff til húsa í byggingu,
sem franska ríkið á, en
norska sendiráffið notar.
lega eru taldar áreiðanlegar.
Sagt var, að átökin hefðu átfc
sér stað undanfarna þrjá daga.
Kúbönsku lierflokkarnir komu
Castro-andstæðingunum að óvör-
um er þeir voru að stíga á land
í Honda-flóa í héraðinu Pinar
del Rio, um 11 mílur vestur af
Havana á norðurströnd Kúbu. Til-
gangur landgöngunnar var bersýni
lega sá, að gera andstæðingum Ca
stros kleift að sækja lengra inn.
í landið.
Engar nánari upplýsingar liggja
fyrir um'málið, sem er sett í sam-
band við þá frétt samtaka kúb-
anskra flóttamanna, að gengið
yrði á land á Kúbu í sambandi við
þjóðhátíðardag Kúbu miðvikudag-
inn.
20. mai tilkynnti landvarnar-
ráðuneytið að skotæfingar yrðu
haldnar í norðanverðu Pinar del
Rio-héraði og að orrustuþotur
mundu einnig taka þátt í æfing-
unum. Nokkrar kviksögur hafa
verið á kreiki undanfarna daga
um viðbúnaö í þessu héraði. Orð-
rómur segir, að landgöngutilraun
hafi verið hrundið.
mmmMMMMMnmiMWmmMtMMMMMUMMmMMMV
Krústjov betur
fyrirkallaður
Alexandríu, 22. maí. (ntb-reut.)
Krústjov forsætisráðherra heim
sótti í dag nýræktarsvæffi í vest-
urhéruffum Arabíska sambands-
lýffveldisins ásamt konu sinni,
Nínu, Nasser forseta og varafor-
seta hans, Abdel Haiin Amer mar
skálki. Forsætisráffherrann er á
löngu ferffalagi um ýmis héruff
Egyptalands.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — -naí 1964 $