Alþýðublaðið - 23.05.1964, Qupperneq 6
BLAÐIÐ Arbetet í Málmey hefur
fundið mann, sem sennilega verð-
ur talinn mest hærður af Skandi-
növum. Hann er danskur að þjóð-
erni og heitir Marquard Juel, 42
ára að aldri. Hann var á rölti í
Málmey utn daginn og naut góða
veðursins. Hann var að því spurð-
ur, hvort ekki væri óhentugt að
Sérkennilegur
fornleifðfundur
□ í haugi einum, nálægt Krasno-
perekopsk á Krímskaga, fannst
fyrir nokkru höfuðbein, sem vakti
mikla athygli, ekki einungis forn-
leifafræðinga heldur ekki síður
lækna Gat hafði verið skorið í
höfuðkúpuna. Prófessor V. Bobin,
sem fékk beinið til rannsóknar,
hefur komizt að þcirri niðurstöðu,
að gatið sé ekki eftir neitt annað
en aðgerð til þess að minnka
þrýsting á heila, sem framkvæmd
hefur verið fyrir meira en 4000
árum síðan.
Hið allra furðulegasta er þó, að
gatbarmarnir sýna það, að sá sem
gekkst undir aðgerðina, hefur hald
ið lífi eftir hana og náð heilsu.
vera með svo mikið hár á kolli og
andliti.
Ekki vitum við svarið við spurn
ingunni, en út frá henni fékk
blaðamaðurinn að heyra harm-
sögu skeggmannsins. — Einu
sinni fyrir mörgum árum var hann
mjög ástfanginn af fallegri stúlku.
En hún táldró hann og það fékk
svo mikið á hann, að hann ákvað
að skera hvorki hár sitt né skegg
upp frá því. Ef einhver stúlka vill
hann nú verður hún að taka hann,
ef svo má að orði komast, með
húð og hári.
Því að enginn skal fá hann til
að láta lokkana falla, segir hann.
Hér kemur listinn yfir þá menn,
sem mest komu við sögu í heims-
fréttum í apríl
Krústjoff var aftur í brenni-
depli heimsviðburða. Erjurnar
milli Rússa og Kínverja tóku nýja
stefnu og urðu hatramlegri. Þeir
sem helzt bar á góma í -þeim voru
Maó, Krústjoff og sá löngu dauði
Stalín.
Mótleikari Krústjovs á vestur-
partinum, Lyndon Johnson, var
einnig mjög athafnasamur í apríl
og var fyrst og fremst þarfur sam-
komulaginu milli Bandarikja-
manna og Rússa. Þrennt er til
marks um þetta:
Samkomulagið milli Breta,
Bandaríkjaanna og Rússa um að
minnka framleiðslu kjarnakleyfra
efna í hernaðaraugnámiði, uppá-
stunga Dillons fjármálaráðherra
um breytta stefnu í verzluninni
milli Bandaríkjanna og Rússa með
varning, sem snertir ekki hernað-
armál og vinsemdin, sem ræða
Fulbrights um utanríkismál mætti.
Minni vinsemdar hefur gætt í
viðskiptum Grikkja og Tyrkja á
Kýpur.
Makaríos hótaði að slíta sam-
bandssáttmálanum frá 1960 og um
tíma leit út fyrir, að EOKA-leið-
toginn Grivas myndi bregða sér
í leikinn á ný. Hvorugt gerðist, en
blóðugum bardögum heldur á-
fram, sem illt er að sjá fyrir end-
ann á. '
Johnson:
Betra samkomulag
De Gaulle lagðist á skurðarborð
flestum að óvörum, en náði sér
fljótt. Hann er alltaf jafn snúinn
v ð NATO. í Brasilíu var um
bótamanninum Goulart forseta
steypt af herforingjakiíku. Laos
féklc líka stjórnarbyltingu hægri
manna í sinn hlut. Þar voru áhrif-
in samt talsvert önnur: Síðan liafa
hersveitir vinstri manna, Pathet
Lao, verið í stöðugri sókn.
Mao: — Deilur harðna
16. (6) Erhard, Y.-Þýzkal. 20 p.
17. (-) Francó, Spáni 19 p.
18. (8) H. C. Lodge, Bandar 18 p.
19. (16)Douglas-Home, Bretl. 17 p.
19. (-) Kadar, Ungverjal. 17 p.
Stalín: Ekki af baki dottinn
Þessi vandamál hafa fengið
U Thant nóg um að hugsa.
Hér kemur listinn. Röðin í marz
er innan sviga.
í. (3) Krústjov, Sovét
2. (4) Johnson, Bandar.
3 (10) Makaríos, Kýpur
4. (-) Goulart, Brasilíu
5. (1) De Gaulle, Frakkland 37 p.
6. (-) Fulbright, Bandar.
7. (-) Maó Tse-tung, Kína
8. (13) Stalín, Sovét
9. (9) UThant, Sþ
10. (-) Souvanna Ph., Laos
11. (-) Fanfani, Ítalíu
/12. (-) Grívas, Grikklandi
12. (-) Nyerere, Tanganjika
14. (-) Tuomioja, Finnl (SÞ
14. (-) Gomulka, Póllandi
.186 p.
61 p.
46 p.
43 p.
36 p.
35 p
28 p
27 þ.
26 p.
24 p.
23 p.
23 p.
21 p
Pliouma:
21 p
Hægri bylting.
Verður Hess látinn laus
|
: í
RADDIR eru teknar að heyr-
ast um það á ný, að Rudolf
Hess, staðgengill og kjörbarn
Hitlers, verði látinn laus. Hann
er nú á sjötugasta aldursári og
situr í Spandaufangelsinu í
Vestur-Berlín.
Rudolf Hess var hægri hönd
Ilitlers alveg frá hinni mis-
heppnuðu byltingartilraun í
Miinchen árið 1923. Eftir hana
sátu þeir saman í Landsberg-
fangelsinu og þar skrifaði Hess
„Mein kampf” niður eftir Hit-
ler.
Á árinu 1941 var ferli hans í
Þýzkalandi nazismans lokið
vegna þess, að það ár sveif
hann niður á Englandi í fall-
hlíf, sem frægt er orðið, og
kvaðst vera kominn til þess að
gera friðarsamning milli land-
anna. Heldur varð þó lítið úr
þeim samningum, Churchill
vildi til dæmis ekki ræða við
hann stakt orð, og honum var
stungið í fangelsi og síðan dreg
inn fyrir striðsglæpadóminn í
Nurnberg og dæmdur þar í
ævilangt fangelsi.
Hann situr nú við þriðja
mann í Spandau, sem hefur
klefa fyrir 130 fanga. Árlegur
rekstur þess-kostar hernáms-
veldin nálægt 10 milljónum
króna!
Úr ýmsum áttum er mælzt
til þess, að hann verði látinn
laus, meðal annars vegna þess,
að hann er nú veikur á sinni og
vegna þess, að hann var úr leik
á versta tímabili nazismans.
En þcssi mannlegu sjónar-
mið virðast reka sig á óbrjótan-
legan vegg formsatriða vegna
hinna flóknu samninga milli
hernámsveldanna frá stríðslok-
um.
x
Nýjustu tilmælin eru komin
frá enskum blöðum, sem skora
á Douglas Home forsætisráð-
herra að taka málið í sínar hend
ur og reyna að fá hin liernáms-
veldin til að fallast á að láta
Hess lausan.
g 23. maí 1964 — ALÞYÐUBLAÐIÐ