Alþýðublaðið - 23.05.1964, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 23.05.1964, Qupperneq 16
:v>ssýýs&:<<k< Alvarlegt umferðarslys varð í Skagafirði í gær. Bifreiðin K-140 sem er 6 manna fólks- bifreið ók út af veginum, skammt frá bænum Vík. í bifreiðinni voru þrír ungir menn og voru þeir að koma frá Varmahlíð. Þeir slösuðust all- ir og tveir það alvarlega að flytja varð þá á sjúkraliús í 'Reykjavík tii að kanna meiðsli þeirra til hlýtar. Björn Páls- son var fenginn til að sækja þá í eihni af flugvélum sínum og voru þeir fluttir á Lands- spítalann. Þeir munu vera bein brotnir en ekki lífshættulega slasaðir. AHMMHUHMWHVHVMMMM $ Kjördæmisfund- urungð á Vesturlandi Kjördæmisfundur ungra jafnaðarmanna á Vestur- landi verður háður í fclags- heimilinu Röst á Akranesi næstk. sunnudag 24. maí, og hefst kl. 2 e. h Fundinn boða stjórnir Félags ungra jafnaðarmanna á Akranesi og Sambands ungra jafnaðar manna. Á fundinum flytur Sigurður Ingimundarson al- þingismaður erindi um á- kvæðisvinnu og vinnuhag- ræðingu og verða kvik- myndir sýndar í því sam- bandi. — Sigurður Guð- mundsson formaður SUJ flytur erindi um unga fólkið og Alþýðuflokkinn. Ennfrem ur verða umræður um starf ungra jafnaðarmanna í kjör- dæminu. — Allt ungt Alþýðuflokks- fólk í kjördæminu er velkom ið á fundinn. Áburðarverksmiðjan seldi fyrir 57 miltjónir árið 1963 Hefur framleitt nær 200 þús. lestir af Kjarna á 10 árum anfpMifj Höfuðborgarráð- stefnan var sett á fimmtudag Reykjavík, 22. maí. — GG. Höfuðborgarráðstefna Norður- landa var sett í Helsingfors í gær jnorgun og sitja hana á að gizka 90 starfsmenn og pólitíkusar frá liöfuðborgunum fimm. Héðan fóru til ráðstefnunnar allir aðalmenn í borgarráði, frú Auður Auðuns, Gísli Halldórsson, Birgir fsl. Gunn arsson, Einar Ágústsson og Guð- MUlndur Vigfússon. Meðal þeirra mála, sem rædd verða á ráðstefnunni, eru vanda- mál í sambandi við mengun lofts í stórborgum, samgöngur milli stórra bæja og útborga og vanda- mál í sambandi við notkun frí- stunda meðal borgarbúa, AÐALFUNDUR Áburðarverk- smiðjunnar h.f. var haldinn í Gufu nesi 22. maí sl. Þann dag voru liðin 10 ár, síð- an verksmiðjan var vígð og tók formlega til starfa. Stjórnarformaður, Pétur Gunn arsson, deiidarstjóri, setti fund- inn og kannaði lögmæti lians. Fundinn sátu hluthafar og um- boðsmenn þeirra fyrir 98% hluta fjársins. Vilhjálmur Þór, seðlabanka- stjóri, var kjörinn fundarstjóri og fundarritari Iiaildór H. Jónsson, arkitekt. Formaður verksmiðju- stjórnar, Pétur Gunnarsson flutti skýrslu stjórnarinnar um rekst- ur fyrirtækisins, árið 1963 og hag þess. í árslok 1963 hafði verksmiðj- an starfað í tæp 10 ár og fram- leitt alls 193,560 smálestir kjarna. Rekstur ársins var ekki með öllu eðlilegur. Bar tvennt til: Þriggja daga rekstursstöðvun við spennuskipti, svo og verkfall í tín daga í desember. Öllu þessi atriði tilfinnanlegu framleiðslu- tapi. Ifeildarframleiðsla ársins 1963 varð 20,338 smálestir kjarna, en það var 498 smálestum meira, en framleitt var 1962. Meðaifjöldi vinnsludaga allra verksmiðjuaðila, var 338,5 fram- leiðsludagar, eða 11/2 fleiri en árið 1962. Heildarorka notuð á árinu nam 127,1 milljón kílówattsstunda. Seldar voru á árinu 19,624 smá- lestir kjarna, auk þess nokkurt magn ammoníaks, saltpéturs og vatnsefnis. Söluverðmæti á fram- leiðsluvörum -^erksmiðjunnajr nam samtals 57.04 miiljónum (Framhald á i. síðu). Georgelown. Br. Guiana, 22. maí. (ntb-reuter). — Lögreglumenn og brezkir hermenn eru á verðí dag og nótt víðs vegar í Vestur-De- merara í Brezku Guiana vegna þess að liryðjuverk hafa færzt í aukana á þessu svæði — upp á síðkastið. Sjálfboðaliðar eru látn- ir gæta járnbrauta og stöðvar- svæðanna. iWMMMMMMMMMMMMWMMWMMMMMMWWMMMMMMWMMMMWMMMVMMMMWMMM Nikósíu, 22. maí. (ntb-reuter). Flugvélar úr bandaríska flug- liernum héldu áfram í dag að flytja danska hermenn, sem eiga að taka þátt í gæzlustarfi SÞ á Kýpur. Á Kýpur var allt með kyrrum kjörum í dag. „The Lyric Trio“ til Reykjavíkur HEIMSFRÆGIR listamenn koma fram á tónleikum Tónlistarfélags- ins í Austurbæjarbíói n.k. mánu- dags- og þriðjudagskvöld. Er það „The Lyric Trio“ frá Bandarfkj- unum, en stofnandi þess og aðal- kraftur er hinn heimsfrægi amer- íslci fiðluleikari og tónlistarleið- togi Robert Mann, sem einnig er fyrsti fiðluleikari hins fræga Julli- ard strengjakvartetts, sem Iiér Iief ur haldið tónleika á veguin Tón- listarfélagsins fyrir nokkrum ár- um, en kvartett hans er nú talinn bezti strengjakvartett Bandaríkj- Mcðleikendur Manns í Tþe Lyrie Trio er víðfrægur amerískur píanó leikari, Leonid Hambro, og fram- sagnarlistkonan Lucy Rowan, sem getið hefur sér frægð sem túlkari, meðal annars á ævintýrum H. C. Andersens. MtMMMMMWmMMMMWWMMMMMWMMMMWmMHMMMi URSLITIN í KVÖLD I GÆRKVOLDI fór fram í Hótel Sögu undankeppni í fegurðarsamkeppninni og komu þar f ram þær sex stúlkur, sem komust í úrslit. Viðstaddir greiddu atkvæði og síðan verður kunngert nú í kvöld hvcr hefur hreppt titilinn Ungfrú íp- land 1964. — Meðfylgjandi mynd var tekin í gær, er slúlkurnar sex komu fram á sundbolum. Þær cru talið frá vinstri: Rósa Einarsdótt- ir, Margrét Vilbergsdóttir, Þorbjörg Bernhard, Eliza- bet Ottósdóttir, Pálina Jón- mundsdóttir og Gígja Her- mannsdóttir. (Mynd: J. V.). MMMMMMMMMMMMtMMJMiWMMMMMVMtMiMMMMMMT)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.