Alþýðublaðið - 26.05.1964, Side 2
Kiístjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjóri:
Arni Gunnarsson. — Bitstjómarfulltrúi: EiSur GuSnason. — Símar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aösetur: Alþýöuhúsiö við
jHverflsgötu, Reykjavík. — Brentsmiðja Alþýðublaösins. — Áskriftargjald
lir. 80.00. — í lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Neikvæðir Framsóknarmenn
MÁLGAGN Framsóknarflokksins endurtekur
jnú æ ofan í æ:, að Framsöknarflokkurinn sé svo
■ábyrgur og jákvæður stjómarand'stöðuflokkur, að
sllks muni fá dæmi. Kiveður Tíminn Framsóknar-
menn hafa bent ríkisstjórninni á leiðir til lausnar
hverj u vandamáli, en hin illa v.ðreisnarstj órn hafi
•skellt skollaeyrum við gullvægum ráðleggingum
Frámsóknat.
Vera má, að ein-hiver leggi trúnað á þessar
fullyrðingar, en hætt er við, að þær hafi ekki-til-
ætluð áhrif á þá fjöknörgu íslendinga, sem fylgzt
hafa með störfum Alþingis í vetur og undanfarna
vetur.
Stefna Framsóknarmanna í þiingsölum hefur
einkennzt af taumlausum yfirboðum og undirboð-
um eftir því hvort ivið átti. Hafi ríkisstjómin flutt
frumvarp um hækkun álmannatrygginga, hafa
Framsoknarmenn samstundis flutt tillögur um enn
meiri hækkanir, og er þetta því furðulegra, sem
áhug]. Framsóknarmanna á ahnannatrygg.ngum
hefur reynst næsta lítill, þegar þeir hafa sjálfir
setið i ríkisstjórn.
I húsnæðismálum hafa Framsóknarmenn flutt
skrumtillögur og þannig reynt að gylla sig í aug-
um aimennings. Ævihlega hafa þeir þó látið hjá
iííða að gera greitn fyrir raunhæfum úrbótatillög-
um í þessa átt.
Þá hafa Framsóknarmenn atyrt ríkisstjómina
harðlega fyrir að hafa ekki hönd í bagga um fjár-
íestinguna í landinu, og að hið opinbera skuli ekki
gera fleiri ráðstafanir til að öðlast sterkari ítök í
þróun efnahagsmála í landinu.
Skömmu fyrir þinglok flutti viðskiptamála-
ráðherra, fyrir hönd ríkisstjómarinnar, breytihg-
artillögu víd fmmvarp, sem var til meðferðar í
þinginu. Tillagan kvað á um, að hið opinbera
skyldi hafa hönd í bagga um hvar á landinu reist
yrðu bankaútibú. Þessarar heimilldar var æskt til
að koma í iveg fyrir óæskilega fjölgun bankaúti-
búa, sem mundi hafa það 1 för með sér, að kostn-
aður við bankakerfið ykist úr hófi. Hér var kom-
in fram tiilaga í þá átt, sem Framsóknarmenn
höfðu heimtað. En hver voru þá viðbrögð þing-
manna Framsóknarflokksins?
Þeir kolluðu íillöguna bolabrögð, og ritari
Framsóknarfíokksins sagði, að með henni væri
stefnt að jþví að setja allt fjármálalíf landsins í
spennitreyju, og beittu síðan málþófi til þess að
freista að koma í veg fyrir samþykkt hennar.
Þetta kaliar Tíminn jákvæða og ábyrga sjórnar-
1 andstöðu.
íslenzkir alþingiskjósendur munu sjá svo til,
að Framsóknarflokkurinn haldi áfram að vera
sjórnaranástöðuflokkur, ábyrgur og jákvæður að
mati þeirra einna, sem móta stefnur hans.
^ Þetta eina rakblað hafa þessir 15 rakairar natað
--------með Schick ryðfría rakblaðinu með langvarandi egginni
fengu þeir allir þann mýksta og þægilegasta rakstur, sem þeir
höfðu nokkru sinni upplifað.
Hvert blað gefur sömu þægindin dag eftir dag í 10 — 15 — 20
rakstra og jafnvel enn fleiri.
Við auglýsum sjaldan. Schick blaðið gerir það sjálft, og þar af
leiðandi er verðið lágt 3 blöð í pakka kr. 19,85.
5 blöð í hylki kr. 32,95.
Passar í allar
rakvélar.
liamæHuO
Heildv. Péturs Péturssonar, Suðurgötu 14, sími 19062
Reykvískir sóSar eru orSnir hræddir.
Hreinsun fyrirskipuð á húsum og lóðum.
‘if Enn um Ruslakistu Reykjavíkur.
jr Ný er komin í nýju hverfi.
MÉR HAFA BORIZT harðorð
aðar kvartanir út af því að dag-
blöð birti myndir af lóðum og hús
um í borginni til þess að sýna
dæmi um sóðaskap og hirðuleysi.
Ástæöan fyrir þcssum áhuga blaða
manna virðist vera sá, að nú stend i
ur yfir hreinsunartímabil í Reykja |
vík. Ég get ekki tekið undir þess-
ar kvartanir, harma það aðeins,
að blaðamenn skuli finna nokkur
dæmi til birtingar, en því miður
eru þau fjölda mörg.
VIÐ HÖFUM IIAFT hreinsunar
og snyrtivikur á lóðum og húsum
hér í borginni nú um nokkurra
ára skeið. Þetta liefur orðið til
miki.la bóta, enda hefur öllum
borgarbúum verið kunnugt um
það, að þeim bæri að ganga sóma
samlega um sínar eigin lóðir. Það
hefur samt sem áður orðið mikill
misbrestur á því, að þeir hafi gætt
síns vitjunartíma, því að víða er
umgangurinn vægast sagt mjög
bágborinn.
ÞETTA MUN NÚ verða lagað.
Þeir, sem ekki gera það sjálfir
verða látnir borga kostnaðinn af
hreinsuninni og geta þeir sjálfum
sér um kennt. Það eiga ekki allir
jafna sök. Fyrir fáum dögum ók
ég upp í nýja hverfið bak Suður-
landsbrautar. Þarna er svo hroða-
legt um að litast, að það tekur
næstum því fram í sóðaskap sjálfri
ruslakistu Reykjavíkur, Grjóta-
þorpinu, sem ég er nú búinn að
tönglast á í heilan áratug, en ekk
ert virðist miða.
ÞARNA í HVERFINU eru tugir
svokallaðra nýrra fyrirtækja.
Þarna hafa menn fengið lóðir fyrir
„fyrirtæki", sem þeir hafa þótzt
ætla að stofna til og yrði það heill
listi ef ég ætti að fara að nefna
heiti þeirra. Þetta eru allt saman
smáfyrirtæki, stofnuð til af einum
eða tveim iðnaðarmönnum í sömu
iðngreininni. Lokið er við að
steypa einn áttunda, einn fjórða,
helminginn og svo framvegis, en
varla hefur verið lokið við eitt
einasta hús. Ryðgað steypustyrkt
arjárnið stendur út úr ölium hlið-
um og göflum og þaki, skakkt og
snúið. Rúður eru brotnar, stromp
ar standa út um glugga og lóðirn-
ar eru svo hroðalegar að engin orð
fá því lýst.
ÉG HELD að þarna þurfi að
taka til hendinni. Bifreiðar standa
við allar þessar hrófatiidursbygg-
ingar og eitt hafa bifreiðarnar
sameiginlegt, að þær eru allar
Framh. á bls. 13.
FILCLAIR gróðurhús
Algjör nýjung — tilbúið til uppsetningar — hentugt fyrir
hvers konar gróður, s.s. matjurtir .plöntur og blóm. Stærð
in er 6x3,75 en getur verið lengri, ef óskað er. FLICLAIR
gróðurhús er mjpg rúmogtt og auðvelt að vinna í því. Það
er gert úr „filclair" plastefni, soðið í nælonnnet, sem
strengt er yfir járn- eða alúminíumgrind. ^ FILCLAIR
gróðurhús er mjög rúmgott og auðvelt að vinna í því. Það
staðabletti 23, Reykjavík. Allar upplýsingar gefnar hjá
umboðinu:
PÁLL ÓLAFSSON & CO .
Hverfisgötu 78 — Sími 20540.
2 26. maí 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ