Alþýðublaðið - 26.05.1964, Side 3
Moskva, 25. maí (NTB-RB)
KRÚSTJOV forsætisráðherra kom
í dag aftur til Moskvu úr 16 daga
lieimsókn sinni til Arabíska sam-
bandslýðveldisins þar sem bonum
viröist bafa oröið mikið ágengt.
Heimsókn Krústjovs til Egypta-
lands sem var fyrsta heimsókn
hans til Afríkuríkis, stóð fyrst og
fremst í sambandi við opnun As-
wan-stíflunnar, en lokatilkynn-
ingin, sem Krústjov undirritaði á-
samt Nasser forseta gæti orðið
Rússum gott vopn í hugmynda-
deilunni við Kínverja.
Leonid Bresjnev forseti og aðr-
ir háttsettir sovézkir embættis-
menn tóku innilega á móti Krúst-
jov þegar flugvél hans lenti í
Moskvu.
Vikið var á mjög svo undarlegan
hátt frá fastri venju þegar Kli-
menti Vorosjilov marskálkur, fyrr-
verandi forsætisráðlierra Sovét-
ríkjanna, sem féll í ónáð fyrir
tveim árum, bauð hann fyrstur
allra velkominn. í þessi tvö ár
hefur marskálkurinn komið fram
opinberlega, en aðeins í lítilfjör-
legum hlutverkpm.
Krústjov bíða miklar annir
þrjár næstu vikurnar áður en
liann leggur upp í næsta ferðalag
sitt, til Norðurlanda.
Um leið og Krústjov kom aftur
til Moskvu gerði þjóðhöfðingi Al-
baníu, Haxhi Lleshi nýja og harða
árás á sovézka forsætisráðherr-
ann, sem kallaður var svikari.
Að sögn albönsku fréttastofunn- |
ar vísaði Lleshi m. a. til sósíalista- |
leiðtogans Edouard Bernsteins,
sem mikið kvað að um aldamótin,
og keppinautar Stalins, Leon Trotz
kys. Hann sagði, að Bernstein og
Trotzky hefðu verið liðhlaupar og
svikarar, sem hafnað hefðu á sorp-
haugi sögunnar. Þetta yrðu áreið-
CFramhald á 4. síííu)
Ike talinn and-
vigur Goldwater
NEW YORK, 25. maí (NTB- Goldwater öldungadeildarþing-
AFP). — Stjórnmálafréttaritarar maður sagði í kosningaræðu í
í Bandaríkjunum sögðu í dag, að
Eisenhower fyrrum forseti vildi að
öHum líkindum ekki að Barry
Goldwatér öldungadeildarþing-
maður verði tilnefndur forsetaefni
repúblikana.
Þetta er byggt á yfirlýsingu Eis
enhowers í blaðinu „New York
Herald Tribune". Þar talar Eisen
hower um kosningarnar, sem
standa fyrir dyrum.
Hann neitaði að nefna þann
mann, sem hann vildi að yrði for
setaefni repúblikana og nefndi
ekki nafn nokkurra þeirra manna,
sem sækjast eftir tilnefningunni.
En hann gerði grein fyrir þeirri
stefnu sem hann taldi að forseta
efni repúblikana yrði að fylgja.
Þessi stefna er í samræmi við
forsetatíð Eisenhowers og Gold-
water hefur gagnrýnt.
Redding í Kaliforníu, að ummæli
Eisenhower í „N. Y. Herald Tri-
bune“ hefðu glatt sig. Þau liefðu
verið þeim, sem kljúfa vildu Repú
blikanaflokkin ef óskum 'þeirra
væri ekki fylgt, þörf áminning.
Goldwater bætti því við, að Eis
enhower staðfesti þau grundvallar
atriði, sem framboð hans byggð-
ist á.
í yfirlýsingunni lagði Eisenhow
er einkum áherzlu á, að forseta-
efni repúblikana yrði að styðja
frumvarpið um réttindi borgar-
anna og Sameinuðu þjóðirnar.
Goldwater hefur oft látið í ljós
aðrar skoðanir á þessu.
Fylgismenn Nelson Rockefell-
ers, ríkisstjóra i New York, segja,
að í yfirlýsingunni liafi Eisen-
hower haldið fram einmitt þeim
grundvallaratriðum, sem Rocke-
feller væri fylgjandi.
Herra og f tú' Dassault.
FRÚ DASSAULT FINNST HEIL Á HÚFI
PARIS, 25. maí (NTB-AFP)
— Frú Madeleine Dassault,
sem gift er franska milljóna
mæringnum Marcel Dassault,
fannst heil á húfi í gær í
Beauvais-skóginum norður af
París. Jafnframt var einn
þeirra manna, sem námu hana
á brott, handtekinn, og
skömmu síðar handtók lögregl
an tvo aðra menn, sem viðriðn
ir voru ránið. Fjórði maðurinn
komst undan í bíl.
Frú Dassault fannst á eyði
býli um 50 km norður af París.
Hún segir, að þangað hafi verið
farið með hana strax eftir að
henni var rænt. Þegar hún
fannst var farið með hana til
bæjarins Denlis, sem er skammt
(Framhald á 4. síðu).
wMwwvwwMwwMtwwwMwwwðw
350 farast við knatt-
spyrnukeppni í Perú
LIMA, 25. maí (NTB-Rauter) —
Ilarmi slegnir yfir ægilegasta at
burði í sögu íþróttanna syrgðu
Perúmenn í dag að miimsta kosti
350 fórnarlömb skelfingarinnar
sem greip um sig í gær meðal á-
horfcnda á íþróttaleikvanginum í
höfuðborginni Lima.
Nákvæmar tölur eru ekki yfir
fjölda látinna og særðra, en talið
er að fleiri hafi beðið bana en
þeir 350, sem lögreglan hefur tal-
ið. Til þessa hafa borizt fregnir
um lOll særðan.
40 þúsund áhorfendur á lands-
leik Argentínu og Perú, trylltust
þegar dómarinn, Angel Eduardo
Pazos, ógilti mark, sem Perúmenn
skoruðu. Nokkrir tróðust undir
þegar óttasleginn manngrúi þusti
til útgönguhliðanna til að forðast
táragassprengjur og hunda lög-
reglunnar.
Læknar og hjúkrunarkonur
INNI í ÁGÚST
BJORGVIN, 25. maí (NTB.
— Hafrannsóknarskipið „G. O.
Sars“ fór frá Bjögvin í dag í
árlegan síldarleitarleiðangur
sinn til Islands.
Ilafrannsóknarfræðingurinn
Ole Johan Östvedt, sem er vís-
indalegur yfirmaður leiðang-
ursins, segir í viðtali við
„Bergens Tidende“ að ætlunin
sé að rannsaka hið venjulega
svæði frá norsku ströndinni til
Færeyja og íslands. Þaðan
verði leitað norður til Jan
Mayen.
Jafnframt, segir liann, munu
íslendingar leita á „Ægi“ með'
fram allri vestur- og norður-
strönd íslands. Um 10. júní
verður G. O. Sars um það' bil
búin með leið sJna. „Ægir“
og „G. O. Sars“ munu liafa
náið samband sín á milli all-
an tímann. Þannig segir Öst-
vedt að skipinu ættu að hafa
nokkurrn veginn yfirlit yfir á-
standið í fyrstu viku júní.
Hinn 23. júní munU íslenzk
ir, norskir og sovézkir vísinda-
menn halda fund með sér á
Seyðisfirði. Þá fyrst segir Öst
vedt að' gott yfirlit muni fást.
Þar eð svo mikið er af ungri
síld í norska stofninum vaknar
sú spurning hvort hið mikla
magn ungu síldarinnar komist
til austurstrandar íslands
svona snemma sumars. i fyrra
kom unga, norska síldin þangaff
ekki fyrr en í júlílok og ágúst
byrjun. Ef unga síldin liagar
ferðum sínum eins og hún hef
ur gert hingað til má gera ráð
fyrir a'ð' bezt muni veiðast á
síðasta hluta vertíffarinnar,
segir Östvedt að lokum í við-
talinu.
VHWMVAWmMWVVWMMMWMMWHWMWMMWMWV MWWWWWWMMMMMWMWVWMMMMWMMWWMMV
unnu í alla nótt og stunduðu mörg
hundruð særða. Þau voru svo önn
um kafin, að þau höfðu, ekki tíma
til að telja þá, sem biðu bana. Mörg
lík lágu á grasflötinni fyrir fram-
an sjúkrahúsið og líkhús borgar-
innar fylltust af illa útleiknum
mannslíkum.
Þúsundir manna þar á meðal
grátandi mæður með börn sín
stóðu umhverfis sjúkrahúsið og
reyndu að fá úr því skorið hvort
vandamesin þeirra væru meðal
hinna dauðu eða særðu. Neyðzt
var til að loka dyrum sjúkrahúss
ins svo aö mannfjöldinn tefði ekki
fyrir.
Fernando Belaund forseti lýsti
yfir þjóðarsorg í Perú í dag vegna
atburðarins og neyðarástandi til
þess að koma í veg fyrir að „glæp
samleg öfl“ notfærðu sér uppnám
ið í landinu.
Juan Leandazuri Ricketts kárdí
náli hefur skipulagt samskot um
allt landið til hjálpar þeim, sem
urðu fyrir ógæfunm. Ráðherrar
hafa þegar, gefið upphæð, sem
nemur um 1560 þús. ísl. kr.
Fyrirliði argentínska landsliðs-
ins, Mario Quaranta Cosos, sagði
í dag, að hann teldi að aflýsa
bæri undankeppni olympíuleik-.
(Framhald á 4. síðu).
Heimsókn K gott
vopn gegn Peking
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 26. maí 1964 3