Alþýðublaðið - 26.05.1964, Síða 10

Alþýðublaðið - 26.05.1964, Síða 10
SÆMILEGUR ÁRANGUR Á VORMÓTI ÍR: Öiafur Guðmundsson KR vann Vaiblörn í 100 metra hlaupi og jafnaði Dr. met Arnar Clausen FYRSTA opinbera frjálsíþrótta tíiót sumarsins, Vormót ÍR, fór fram á sunnudaginn í sæmilegu veffri. Um hundraö áhorfendur fylgdust meff keppninni. Árangur var nokkuff Iakur, jafnvel þó miff- aff sé viff þaff, aff hér er um fyrsta mót ársins aff ræffa. Þó voru nokkr ir, sem lofa góffu og taka verffur tillit til þess, aff ýmsir beztu frjálsíþróttamenn okkar tóku ekki þátt í mótinu af ýmsnm ástæffum, skal þar fyrst frægan telja, Jón Þ. Ólafsson, sem staddur er í USA eins og kunnugt er, Kjartan Guffjónsson, Skafta Þorgrímsson, Kristján Mikaels&on, Einar Gísla- son o. fl. ★ Sigraffi Valbjörn og jafnaði drengjamet Arnar Clausen. Mesta athygli á mótinu vakti Ólafur Guðmundsson, KR, hann lofar sannarlega góðu. Fyrst ■sk'ál telja sigur hans yfir Valbirni í 100 m. hlaupinu, 11,1 sek. sem sýnir aff Valbjörn er ekki lengur ein- ráður. Þar eiga þó einnig Einar Gíslason og Skafti Þorgrímsson eftir að koma við sögu í sumar. Þá var 400 m. hlaup hans einnig skemmtilegt, hann sigraði örugg- lega á sínum bezta tíma, 52,0 sek. þrátt fyrir fremur slæmt veður til að hlaupa hringhlaup. Ólafur á örugglega eftir að ná betri tíma en 50 sek. í sumar.4 langstökkinu náði hann einnig sínum bezta ár- angri, 6,77 m. og jafnaði 18 ára gámalt drengjamet Arnar Clausen. Já, það verður gaman að fylgjast meff Ólafi í framtíðinni. Þórarinn Ragnarsson, KR, sem kom við sögu í frjálsíþróttum fyr- it tveimur árum og setti þá sveina met, en þá keppti hann fyrir FH, sýndi á sunnudaginn, að þar er mikið hlauparaefni á ferð. Hann hefur lítið æft í vetur, en hljóp nú 800 m. á 2:04,0 mín. og 400 m. á 52,8 sek. Af nýliðum í karlagrein Ungverjar sigruðu ,þ. Frakka með 21 V Búdapest, 24. maí. (ntb-afp). Þaff voru 72 þúsund áhorfend- ilr á Nep-leikvanginum í Búda- þest I dagr, þegar Ungverjarnir sigrruffu Frakka, 2:1, í Evrópubik- árkeppni landsliffa. Þar meff eru Ungverjar í undanúrslitum í feeppni, en þeir sigruffu einnig í fyrri leiknum meff 3:1. í undan- úrslitum leikur Ungverjaland viff Spán. Sigurvegarinn í leiknum Svfþjóff-Sovét á mikvikudag Ieik ur síffan við Dani. um má einnig nefna Þórarin Arn- órsson, ÍR, sem varð þriðji í 400 m. hlaupi á 53,5 sek. og má slíkt teljast allgott í fyrsta hlaupi. ★ Kristleifur í góffri æfingu. Bezta alþjóðlega árangri móts- ins náði vafalaust Kristleifur Guð- björnsson, KR, í 3000 m., en hann sigraðl keppnislaust á 8:37,7 mín. Það er allgóður árangur í fyrstu keppni sumarsins, Kristleifur sagði eftir lilaupið, að hann væri í góðri æfingu og bjartsýnn á sumarið. Úlfar Teitsson, KR, sigraði í langstökki og var mjög nálægt 7 metrunum. Hallgrímur Jónsson, Tý, og Þorsteinn Löve, ÍR, háðu skemmtilega baráttu í kringlu- kasti, sem lauk með sigri þess fyrrnefnda, 44,05 gegn 43,35 m. Þeir mega muna Betri daga. Er- lendur Valdimarsson, ÍR, er ung- ur og efnilegur kastari. Kúluvarpið var gott á okkar mælikvarða, Guðmundur Her- mannsson, KR, sigraði með 15,56 m. og Jón Pétursson, KR varp- aði 20 sm. styttra. Kristján Stef- ánsson, ÍR, hafði yfirburði í spjót- kasti, 56,49 m. Sleggjukastið var skemmtilegt, Þórður B. Sigurðsson KR, sigraði örugglega, en Jón Ö. Þormóðsson, ÍR, er í framför og varð annar. Valbjörn Þorláksson, KR, sigraðí í stangarstökki, og stökk 4,20 m., sem ekki er nógu gott. Hástökkið var lélegt, Sigurður Lárusson, Á. sirgaði, stökk 1,75 m., en Valbjörn stökk sömu hæð. Fjórir keppendur voru í 110 m. grindahlaupi, Valbjörn sigraði eftir skemmtilega keppni við Sig- KRISTLEIFUR GUÐBJÖRNSSON - KR - 8:37,7 mín. í 3000 m. hlaupi. urð Lárusson og Sigurð Björns- son, KR. í 100 m. hlaupi var Einar Þor- grímsson, ÍR, fyrstur á allgóðum tíma, 12,1 sek. og Þór Konráðs- son, ÍR, hljóp einnig vel, fékk 12,4 sek. í kvennagreinum var sigrað með yfírburðum, Halldóra M. Helga- dóttir, KR, var langfyrst í 100 m. á 13,4 sek. Fríður Guðmunds- dóttir, ÍR, kastaði kringlunni 30,15 m. og löks stökk María Hauksdóttir, ÍR, lengst í langst.' Það verður lítið hægt að segja um væntanlega getu frjálsíþrótta manna okkar í sumar eftir þetta mót og kemur ýmislegt til. Óþarfi er aff vera með mikla bölsýni. Við skulum sjá til hvernig gengur á næstu mótum, áður en farið verð- ur að slá nokkru föstu. Helztu úrslit: 100 m. hlaup: Ól. Guðm. KR 11,1 Valbj. Þorl. KR 11,2 Þórarinn Arn. ÍR 12,0 400 m. Iilaup: ÓI. Guðm., KR 52,0 Þórarinn Ragn. KR 52,8 Þórarinn Am. ÍR 53,5 Helgi Hólm, ÍR 54,0 800 m. hlaup: Þórarinn Ragn. KR 2:04,0 Agnar Leví, KR (hætti). 3000 m. hlaup: Kristl. Guðbj. KR 8:37,7 Halldór Jóhannsson, KR (hætti) 110 m. grindahlaup: Valbj. Þorl. KR 15,9 Sig. Lárusson, Á 18,1 Sig. Bjömsson, KR 16,1 Þorv. Benediktssoh, KR 16,3 4x100 m. boffhlaup: Sveit KR 45,5 sek. Kringlukast: Hallgrímur Jónsson, Tý 44,05 Þorst. Löve, ÍR 43,45 Jón Pétursson, KR 40,40 Ól. Unnsteinsson, ÍR 39,82 Erl. Vald. ÍR 39,31 Friðrik Guðm. KR 39,26 Sleggjukast: Þórður B. Sig. KR 46,91 Jón Ö. Þorm. ÍR 45,79 Þorst. Löve, ÍR 44,24 Gunnar Alfr. ÍR 43,91 Jón Magnússon, ÍR 42,05 Kúluvarp: Guðm. Hermannss., KR 15.56 Jón Pétursson, KR 15,36 Ólafur Unnsteinsson, ÍR 13.07 Valbjörn Þorl. KR 12,54 Erí. Vald. ÍR 12,48 Spjótkast: Kristján Stef. IR 56,49 Páll Eiríksson, KR 52,34 Ól. Gunnarsson, ÍR 38.52 Langstökk: Úlfar Teitsson, KR 6,92 Ól. Guðm. KR 6,77 Páll Eiríksson, KR 6,30 Ól.Unnsteinsson, ÍR 6,08 Hástökk: Sig. Lárusson, Á 1,75 Valbjöm Þorl. KR 1,75 Halldór Jónasson, ÍR 1,70 Erl. Valdimarsson, ÍR 1.70 Stáhgarstökk: Valbjörn Þorl. KR 4,20 Páll Eiríksson, KR 3,50 100 m. hlaup sveina: Einar ÞorgrímsSon, ÍR 12,1 Þór Konráðsson, ÍR 12,4 Kringlukast kvenna: Fríður Guðm. ÍR 30,15 Anna Guðm. ÍR 25,78 ★ OSLO — Berit Töyen hefur sett norrænt met i iangstökki kvenna, hún stökk 6.32 m. Henn- ar gamla met var 6.23 m. ★ DUBLIN, 25. maí. (NTB-Reu- ter). England sigraffi Eire í knatt- spyrnu í gærkvöldi meff 3-1. ★ NANTES, 25. maí. (NTB-AFP)) I Skotland sigraffi Frakkland 2-0 í unglingalandsleifc. ★ KANSAS CITY, 25. maí (NTB- Reuter). Janell Smith, 17 ára göm- ni skólastúlka hefur sett banda- rískt met í 440 yds hlaupi, 54.8 sek. Heimsmetiff, 5S.S á Cuthbert, Ástralíu. ★ Karlstad, 25 maí (NTB-TT). Kjell Nilsson stökk 2.07 m. í há- stökki á sunnudag og fór yfir 2.10 í aukastökki. ÓLAFUR GUDMUNDSSON - KR jáfnaði drengjamet i langstökki. ★ Casablanca, 25. maí (NTB- AFP). Marokko sigraffi Ethiopíu * OL. knattspyrnukcppni meff 1-0 á laugardag. Marokko-liffiff fér því til Tokyo. ★ New York, 25 maí. (NTB-RB). Hamburg SV. sigraffi Liverpool í New York með 2-0. Leipzig, 24. maí. (ntb-afp). Karin Balzer, Au.-Þýzkalandi jafnaffi heimsmetiff í 80 m. grinda hlaupi kvenna á laugardag, er hún hljóp á 10,5 sék. Áður hafa Gi- sela Birkemayer og Betty Moore, Bretlandi náff þessum tíma. Dortsmund, 24. maí. (ntb-afp). Þjóðverjinn Hans Joachim. Kiein setti nýtt hcimsmet £ 200 m. skriðsundi á móti hér um dag inn, synti á 1:58,2 mín. Þetta af- rek er 2/10 úr sek. betra en gamia metið, sem Schollander, USA,' átti. 10 26. maí 1964 — ALÞÝGUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.