Alþýðublaðið - 29.05.1964, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 29.05.1964, Blaðsíða 1
45. árg. — Föstudagur 29. maí 1964 — 118. tbl. Reykjavík, 28. maí -GO. 23 SKOTAIt hafa veri3 ráðnir til starfa hjá Fiskiðjunni í Vest- Viðurstyggileg skemmdar- verk framin í Grænuborg Reykjavík, 28. maí - KG ÞAÐ var ófögmr aðkoma í Grænuborg þegar starfsstúlkur þar komu til vinnu í morgun. Brotist hafði verið inn í húsið bakdyramegin og höfðu þeir sem inn fóru ekki linnt látum fyrr en þeir vofu búnir að brjóta flest það sem hægt var að brjóta og umturna öllu laus- legu. Ekki var látið hér við standa heldur gengið örna sinna á tveim stöðum í húsinu og var þó salerni rétt við dyrnar þar sem þeir komu inn. Skorar iögreglan á alla þá sem einhverjar upplýsingar geta gefið um ódæðismennina að gefa sig fram hið fyrsta. Skemmdarverkamennirnir hafa komist inn í húsið með því að brjóta rúðu í J)akdyrum Grænuborgar. Komust þeir þar inn í forstofu og síðan inn í leikherbergin mcð því að brjóta hurð sem var þar á milli. Síðan hefur Iíklega verið far- ið inn í skrifstofuna og farið í peningakassa sem stóð þar ó- læstur á borðinu. Kassinn var tómur og við það virðast menn- irnir hafa tryllst og farið sem fellibylur um húsið og umturn- að öllu sem var í tveim fremri leikstofunum. Var allt, brotið sem brotnað gat og húsgögnum og öðru hent út um öll gólf. Meðal þess sem brotið var voru tveir gítarar og tromma, sem notuð var þegar sungið var með börnunum. Þá voru ljósakúlur í loftunum brotnar og útvarps- tæki lá. mölbrotið á gólfinu. Fimm rúður höfðu verið brotn- ar og ýmiskonar efni til fönd- Framh. á bls. 13. mannaeyjum í sumar og cru 8 þeg- ar komnir. Hinir 15 eru væntan- legir uppúr miðjum júnímánuði Skotar þessir eru allt ungir menn og allir frá Glasgow, cinkum mun vera um námsmenn að ræða. For- ráðamönnum F:skíðjunnar lízt vel á piltana og vænta sér hins bezta af þeim. þá eru við störf hjá sama fyrirtæki 7 írar, allir frá Bel- fast á N-írlandi. Fiskiðjunni berst mikið af fyr- irspurnum frá Skotlandi og N-ír- landi um sumarvinnu í Vestmanna eyjum, en hefur ekki í hyggju að ráða fleiri útlendinga í bili. Að öðru leyti lítur vel út með vinnukraft í sumar. 3 humarbátar og 4 trollbátar eru þegar byrjaðir veiðar fyrir Fiskiðjuna, en þeir verða 14 alls, 6 með humartroll og 8 með fiski- troll. Bátarnir hafa fiskað ágæt- lega það sem af er, trollbátarnir verið með frá 12 og upp í 22 tonn af ýsu eftir 2ja daga útivist. Ekki Lík Gunnars fannst í gær Vestmannaeyjnm'28. maí ES, GO. FRGSKMAÐUR af varðskipinu Óðni, Kristinn Arnason 3. stýrim., fann í morgun líkið af Gunnari Finnbagasynl, sem drukknaði i Teistuhelli um helgina. Líkið var í eða við hellinn. Annar froskmað ur, Þröstur Sigtryggsson var send ur frá Landhelgisgæzlunni til að vera til taks við köfunina, enda cr það regla gæzlunnar að hafa mann til vara við crfiðar kring- umstæður. Tvö skip aðstoðuðu við köfunina, Óðinn og Lóðsinn. Fyrst átti að leita í gær, en þá var of mikið sog við klettana. Lík Jónatans, mannsins sem hvarf að heiman frá sér fyrir helg ina hefur ekki fundist enn og ekkert til hans spurst. þykir það benda til að nótabátarn- ir hafi gengið nærri stofninum í vetur. Vertíðin í vetur var metvertíð hjá fyrirtækinu og er nú nóg at- vinna við að pakka saltfiskinum í strigaumbúðir til Ítalíu. 4 eru enn Reykjavík 28. maí GO. LÍÐAN piltanna sépi slösuðust í hinum harða bílaáveksíri, sem varð skanunt fyrir ofan Skíðaskál ann í Hveradölum, mun nú vera eftir atvikum. Ekki eru þeir þó e-nn komnir svo til meðvitundar, að hægt sé að taka af þeim skýrslu. 3 piltanna liggja á Landsspítalanum, þeir eru allir ísfirðingar og sátu í aft- ursæti bílsins. Sá fjórði, sem er Selfyssingur, liggur hins vegar í Landakoti. »* Taitíi sig hafa sofiÖ í mastrinu Reykjavík 28. maí, GO í GÆRKVÖLDI var Ipgreglunni i Hafnarfirði tilkynnt, aö maður nokkur léti fara vel um sig í for mastrinu á togaranum Maí. Þeg- ar lögregian kom á Vettvang var aðvífandi maður búinn að ná mastursbúanum niður og reyndist hann vera binn af skipvcrjum tog arans. - ' | Þegar lögreglan ók manninuni heim, stóð hann á því fastar en fótunum að hann hefði sofið í mastrinu og ekkert amaði að sér. Þess er rétt að geta að: viðkomandi var hátt uppi í meira en einimi skilningi. Iför Nehrus ¥ar gerö í gær .Nýju Delhi 28. maí LÍK Jawaharlal Nehru forsætis ráðherra índlands var í dag borið á bál að indverskum • útfararsið. Fór bálför hans fram með mikilli viðhöfn og var feiknar mannfjöldi viðstaddur. Er talið, að um þrjár milljónir nianna hafi verið við og er þess ekki getið að til neinna óeirða hafi komiö. Margt stór- manna var einnig viðstatt. Er Iíki forsætisráðherrans hafði verið komið fyrir á bálkcst- inúm gengu ættingjar lians, vinir og samherjar þar að og kastaði liver þeirra viðarbút á köstinn. Er öllu því var lokið tók sonarsonur hins látna forsætisráðherra kyndil í hönd sér og kveikti í kestinum. Tendraðist þá mikið bál af blóma hafi því, er komið var í köstinn, sem og viðarbútum. Ekki hefur jafn mikil maiui- fjöldi komið saman- til kveðju- stundar að bájkesti þessum síðan útför Gandhi var gerð fyrir 16 . árum síðan. Systir Nehru, frú Vijaya Laksmhi Pandit, hélt á, brott er kösturinn hafði logað litla stund, ennfremur sonur hennar, er tendrað hafði köstinn og dótt ir Nehru, Indira Gandhi. Askan verður sótt af fjölskyldu Nehru eftir eihn sólarhring en þangað til verður hervörður við köstinn. LOFTLEIÐARVÉLIN KEMUR í DAG FYRRI Rolls Royce 400 flugvél Loftleiða er væntanleg til Keflavíkurflugvallar WakkaL 0 fyrir hádegi í dag. Með henni koma um 100 boðsgcstir, en meðal þeirra eru Thoip Tlsors, sendiherra íslands í Bandaríkjunum, Hannes Kj irtansson, ræðismaður, Björn Björnsscc og Gretíis Jóliannesson. Flugvélin verður til sýnis fyrir þá, sem hana vtlja sjá, á Keflavíkurflugvelli klukkan 4- -■ á laugardag.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.