Alþýðublaðið - 30.06.1964, Qupperneq 8
NÚ ER ekki að tala um að binda
megi slæðurnar undir liökuna.
Allar þær, sem vilja vera „smart“
og fylgjast með tízkunni, binda
þær saman að aftan eins og mynd
in sýnir.
Nú er líka mest móðins að
sauma sér slæðu úr sama efni
og kjóllinn eða blússan er úr.
2.
Herrahatturinn með gatamynstrinu er fljótheklaður. Skreytt-
ur með slaufubandi og smá nælu.
Klukkuhatturinn er úr tvöföldu garni og hægt að bretta
hattbarðið upp eða niður eftir smekk. Skrautbandið er flétt-
að úr ullargarni, perlugarni og hvítri skinnræmu.
.„Pilludósin“ er sérstaklega klæðilegur hattur fyrir uppsett
hár. Takið eftir silkiskúfinum í hnakkanum.
Vi j • r
(uiiiimiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimmimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiMiimiut ■mr'imiiiiiiiiiiiimiiimimiiiiimimmiiiiiiimiimimimiimimim .................................................................. ............................
8 30. iúní 1964ALÞÝÐUBLAÐIÐ
r<(iii»iiiiiiiiiiiii«iiiiii»i«iiiiiiiiiii.,Miik«im*«miiiiiuiiiiiiiiil*l|iiiii»ii»iiiiiiiinin»Miiii»niiiH*»i*Hi»«ii»«MiÉ«iiiii»iiiii»m*»»iiiiiiiiiiiiiiii»i»»iii*iiiiiiii innnnnn
Gleði góðra verka
TIZKAN segir munstruð efni og
er ekki hrædd við að setja sam-
an bæði köflótt, doppótt og rós-
ótt munstur.
Á meðfylgjandi mynd sjáið þið
mjög stórrósóttan kjól, ermalaus
an og hnýttan saman í hálsinn
með mjóu bandi.
* * *
SUMARFÖTIN frá í fyrra verða
eins og ný, aðeins ef við höfum
handlagni og örlítið hugmynda-
flug til að bera.
Til dæmis að fóðra hattbörðin
og yfirdekkja kápukragan með
smárósóttu efni. Á köflótta sum
arkjóllinn má setja rósótta vasa.
Ef kjóllinn er rauð- og hvítköfl
óttur má velja efni í vasana, sem
er Ijósrautt í grunninn með hvít-
um rósum.
ÞÓ æskuárin séu að baki, verð-
ur maður aldrei leiður á að heyra
þann vísdóm, sem sumar gamlar
sögur og ævintýri hafa að geyma.
Þannig er með ævintýrið um
kónginn, sem lét setja stóran og
þungan stein á þjóðveg einn, er
lá til borgarinnar.
Sjálfur settist hann dulbúinn
við vegkantinn og gaf gaum þeim
er framhjá fóru.
All-flestir gengu til hliðar við
steininn og tróðu þannig nýja
slóð. Aðrir staðnæmdust og
reyndu að velta steininum til, en
þegar þeir fundu Iive þungur
hann var, gáfust þeir upp og
flýttu sér áfram.
Svo var það dag einn, að mað-
ur nokkur átti leið þarna um.
Hann sá undir eins að steinninn
stóri var ekki aðeins í vegi fyrir
honum, heldur einnig farartálmi
til skapraunar fyrir alla þá, er
framhjá gengu.
Hann ákvað því að steinninn
skyldi flytjast til. Eftir mikla á-
reynslu tókst honum að velta
steininum af veginum, og eins
og í öllum ævintýrum sem enda
vel, lá gullpoki undir honum sem
laun fyrir erfiðið.
Það segir sig sjálft, að kóng-
urinn hefur haft einhverja á-
síæðu til þessa uppátækis. Jú
—■ hún var sú, að hann vildi rann
saka persónuleika og dugnað veg
farenda.
Þegar við hugsum um okkar
eigin lífsveg, er því ekki að neita
að það liggja ekki svo fáir stein-
ar á honum, sem þarf að fjar-
lægia. Það sem við flest eigum
sameiginiegt eru ýmsar sorgir og
þjáningar, sem alltaf fylgja með
í jarðlífinu. En spurningin um
hvers vegna það þurfi að vera
svona margir steinar, stingur aft
ur og aftur upp kollinum hjá
þeim, er leggur á stað eftir þjóð
vegi lífsins.
Þær prófraunir, sem eru lagð-
ar fyrié okkur í lífinu, hafa sama
tilgang og steinninn í ævintýrinu.
Þær stöðva okkur í annríkinu og
neyða okkur til að taka ákvarðan-
ir, ekki aðeins fyrir okkur sjálf,
heldur líka fyrir samferðafólkið.
Hvort við séum tilbúin til að
fjarlægja steinana af vegi hver
annars. Öll þekkjum við einn eða
fleiri, sem með glöðu geði taka
að sér þessa hreinsunarvinnu.
Þar fer saman hjartahlýja og at-
orka þeirra, sem lyfta stærstu
steinunum.
Þetta fólk lætur ekki hugfall-
ast, þegar það þarf að hjálpa
þeim, sem hjálparþurfj eru. Þeg-
ar við gerum eitt eða annað af
kærleika til náungans, þegar við
vinnum í sveita okkar andlitis,
gefum af tíma okkar og kröftum
til að gleðja aðra, er það raun-
veruleg hjálpfýsi og sönn vinátta.
Steinarnir eru ekki aðeins lagð
ir á veginn fyrir þann einstaka,
heldur líka fyrir þá, sem á eftir
ganga. Þannig er það í \*eruleik-
anum. Eins og maðurinn í ævin-
týrinu fékk sinn gullpoka að laun
um, eins munu þeir, sem reyna
að gera aðra hamingjusama,
finna sinn fjársjóð, það er að
segja hina varanlegu gleði.
Og þó þeir verði sjálfir fyrir
reynslu og sorgum, munu þeir
þrátt fyrir allt finna þá blessun
er því fylgir að láta gott af sér
leiða á göngunni gegnum lífið.
Mýjystu fréttir í
tízkumheiminum
Ef kjóllinn er ljósblár og hvít-
ur, eru vasarnir hafðir úr efni,
sem er hvítt í grunninn með
ljósbláum rósum.
Hvít blússa með svörtum dopp
um og svart og hvítröndótt belti,
við hvítt pils, er mjög klæðilegt.
Sérstaklega ef pilsið er með
hringsniðnum vösum eins og sést
á myndinni.
•ii*iH»Hiiii*ii«iiiiHiiirii.i«Hii»iiiMiiii»n»i»iii»iiiiii»iiiiii»iiiiiiiiil»iiiiiiii»iH»iiiHiiui*»»**Mi*iiiiiimiHniiiiHHi»iniiiiiií>iiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinmiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii»niiiii4 i i iimiimiitmtiiimiiiiiiiumm^