Alþýðublaðið - 23.07.1964, Side 3
Barry líkf
við Hitler
Moskvu 22. júlí (NTB - RB)
MÁLGAGN ríkisstjórnarinnar,
„Pravda“ segir í dag að áætlanir
Barry Goldwaters um að „frelsa”
þau lönd undan kommúnisma sem
nú búa við hann verði ekki líkt við
neitt nema áform Hitlers sáluga
um að taka stjórn heimsins í sín-
ar hendur. Segir blaðið, að tilnefn-
ing Barry Goldwaters sem forseta
efnis repúblikana, sýni, að flokk-
ur þeirra hafi tekið upp „stefnu
óðra manna”, þá er komizt liafi á
laggirnar í Þýzkalandi og á Ítalíu
um og upp úr 1930.
Blaðið segir ennfremur, að til-
nefning Barry Goldwaters sé nokk
urs konar heiðursmerki til handa
morðingjum Kennedy heitins for-
seta.
Pravda segir enn, að ýmis atriði
í kosningastefnuskrá repúblikana
séu skelfilegar yfirlýsingar um
hernaðarlegt tillitsleysi, opinber-
un örvæntingar heimsveldisinná. í
náinni framtíð muni koma í ljós
hvernig stjórnmálabaráttan í
Bandaríkjunum þróist, en megin-
baróttan hljóti að verða um stríð
og frið. Haldi áhrif Goldwaters og
annarra slíkra fasista áfram að auk
ast muni járntjöldslöndin og frið-
elskandi þjóðir þeirra ekki skirr-
ast við að draga þar af eðlilegar
ályktanir og liaga sér samkvæmt
því, segir í blaðinu.
Jólaferð Gullfoss
Myndin sýnir lögreglumenn
í New York lei ast við að halda
blökkunemendum á gangstétt
inni fyrir framan skóla þeirra.
Gerðist þetta í síðustu viku eft-
ir að unglingur einn af þeirra
kynþæt i hafði verið skotinn til
bana af lögreglunni í borginni.
Lögreglumaðurinn ber að hann
hafi skotið á unglinginn er
hann kom þjótandi að honum
með hníf á lofti. Þessu hefur
verið neitað af ýmsum forystu-
mönnum blökkumanna í Banda
ríkjunuin.
WWWWMWmWMMiWWMMWMMWWtWWWWWWWWWMWWmWWWWWW
Péllandsheim sókn
Krústjovs lokið
verður 11.-26. des.
Varsjá, 22. júlí (Ntb-Ri.)
Krústjov forsætisráðherra Rúss
lands var í dag viðstaddur móttöku
WMWWWWWWWWVMWW
Hrekur Barry
Danmörku
úr NATO?
Kaupmannahöfn, 22. júlí
(NTB —. RB)
EF frambjóðandi repúblik-
ana til forsetakjörs, Barry
Goldwater heldur fast við
stcfnu sína í utanríkismál-
um og ef hún á eftir að verða
utanríkisstefna Bandaríkj-
anna, þá hljótum við að taka
aðild Danmerkur að Atlants
hafsbandalaginu til alvar-
legrar íhugunar, segir llel-
veg Petersen kennslumála
ráðherra Dana í viðtali við
Kristeligt Dagblad í dag. Hel
veg Petersen bætir því við, að
útnefning Barry Goldwater
scm forsetaefni repúblikana,
sé ein út af fyrir sig hið al-
varlegasta áhyggjuefni. Hel-
veg Petersen er ráðherra fyr
ir Radíkala flokkiun.
tHmWUUHmVHHHWWIi
í lVilanow-höllinni 8 km. frá Var-
sjá. Varsjárútvarpið segir að á-
samt honum hafi þar verið m. a.
þeir Antonin Novoíny forseti
Téikkóslóvakíu, Wladyslaw Gom-
ulka leiðtogi pólskra kommúnista
og Walter Ulbricht leiðtogi austur
þýzkra kommúnista. Ekki skýrði
útvarpið nánar frá móítöku þess-
ari.
Wilanow-höllin, sem byggð var
á 18. öld var eitt sinn heimkynni
pólska konungsins- Jan Sobieski,
er vann frægan sigur á hundtyrkj
um við Vínarborg árið 1684. Er
höll þessi safn að mestu, utan
hvað hluti hennar er notaður til
opinberrar móttöku þegar svo ber
undir. Fyrr i dag voru kommún-
istaforingjarnir við hersýningu.
Yfirhershöfðingi Pólverja, Mari-
an Spychalski, kannaði liðið. í
ræðu er hann flutti á eftir lofaði
hann rauða herinn fyrir þátt hans
við frelsun Póllands. Hershöfðing
inn kvað styrk sósíalismans eink
um vera þolinmæðina við að sýna
hugsanlegum andstæðingum, að
friðurinn er óbrotgjarn. Að ræðu
hans lokinni var skotið 24 fall-
byssukúlum. Krústjov forsætis-
ráðherra fer snemma á fimmtu-
dagsmorgun aftur til Moskvu að
lokinni tveggja daga dvöl sinni í
Póllandi. Mao Tse-tung og fleiri
kínverskir kommúnistaleiðtogar
sendu í dag heillaóskaskeyti til
pólsku foringjanna í tilefni þjóð-
hátíðardags þeirra.
Bandarískir embættismenn í
sendiráði þeirra í Varsjá athuga
nú hvort Gomulka muni hafa
sneitt að Bandaríkjunum er hann
í ræðu sinni í fyrradag komst m.
a. svo að orði, er hann ræddi um
„hernaðarsinnana” í Vestur Þýzka
landi, að „vinur fjandmanns þíns
geti ekki verið vinur þinn“. Kom-
ist þeir að þeirri niðurstöðu að
svo hafi verið, er ætlað að Banda-
ríkjastjórn muni senda pólsku
stjórninni opinber mótmæli.
MJÖG mikil eftirspurn er eft-
ir ef ir farþegarúmum í vetrarferð
um m.s. Gullfoss og þegar er út-
selt í tvær fyrstu ferðirnar. Vegna
þessara miklu eftirspurnar hefur
Eimskipafélagið kveðið að skipið
fari eina aukaferð í desember til
Kaupmannahafnar og Leith, sem
verði með sama fyrirkomulagi og
aðrar vetrarfeyðir. Fer skipið frá
Reykjavík 11. desember og verður
komið aftur til Reykjavíkur 26.
desmber og eiga farþegar í þess-
ari ferð því ijólabelgina á hafi úti.
Byrjað er að selja farmiða í þessa
ferð.
Ferðaáætlun m. s. Gullfoss fyr
ir árið 1965 kemur út á næstunni
og verður fyrirkomulag ferða hið
sama og undanfarin ár. Er byrjað
að taka ámóti farmiðapöntunum í
vetrarferðir ef Jr áramótin.
Eftirspurn eftir farþegarúmum
er jafnan mikil með m.s. Gullfossi
á sumrin og hefur stundum farið
langt fram úr því sem unnt hefur
verið að anna. Hins vegar hefur
farið í vöxt, að fólk láti taka frá
fyrir sig farmiða með skipinu, sem
það síðar notfærir sér ekki, en
fyrir vikið hefur öðrum verið neit
að um farþegarúm sem svo stend-
ur ónotað. Þetta hefur að vonum
mælzt illa fyrir og til þess að ráða
bót hér á mun Eimskipafélagið
framvegis hafa þann hátt á að
þeir sem óska eftir að farþegarúm
sé tekið frá greiða kr. 500.oo upp
í andvirði farmiðans sem trj'gg-
ingti fyrir því að hann verði not-
aður. Nokkrir farmiðar sem ekki
hafa verið sóttir eru nú fáanlegir
í ferðum Gullfoss í ágúst og sept-
ember. (Frá E. í.)
Istanbul, 22. júlí (NTB-AFP)
TYRKLAND, Pakistan og íran
gáfu i dag út sameiginlega yfirlýs
ingu, þar sem segir, að samstarf
landanna sé hið þýðingarmesta
fyrir þróun landanna sem og fyrir
frið og festu í lieimshluta þeirra.
Kökuuppskriftir
koma til Kaaber
Reykjavík, 21. júlí. — HKG.
TALSVERT af uppskriftum hefur
borizt í bökunarkeppni þá, sem
fyrirtækið O. Jolinson & Kaaber
efnir til. Eins og fyrr hcfur verið
frá greint, eru aðalverðlaunin ferð
til Miami í Bandaríkjunum, þar
sem fer fram úrslitakeppni í bök-
unarlist á vegum bandaríska hveiti
fyrirtækisins Pillsbury í septem-
ber í haust.
Frestur. til að skila uppskriftum
er til 10. ágúst næstkomandi, og
verða þá allar uppskriftirnar athug
aðar. 10 verða valdar úr til úr-
slitakeppni, sem fer fram 20. ágúst
næstkomandi. Dómnefndin verður
skipuð tveim karlmönnum og einni
konu. Karlmennirnir eru Tryggvi
Þorfinnsson, skólastjóri Matsveina
og veitingaþjónaskólans og Sigurð
ur Jónsson, bakarameistari, — en
ekki er enn að fullu ákveðið, hver
Framliald á síðu 4
Fylgi Gold-
waters eykst
Washington, 22. júlí
(NTB. - NTB—Reuter)
AMERÍSK skoðanakönnun
hefur leitt í ljós að Barry
Goldwater hefur aukizt fylgi
í suðurríkjum Bandaríkj-
anna. Sýnir könnun, sem ný-
lega fór fram og opinber var
gerr í dag, að Lyndon B.
Johnson forseti liefur enn
fylgi 64% kjósenda, en hlut
ur Goldwaters af kjósenda-
fylginu er 36%. í Suðurríkj-
unum hefur fylgi Goldwaters
aukizt og eftir skoðanakönn-
uninni að dæma hefur það
aukist verulega. Mun það
vera meir hlutfallslega en
áðurgreind hlutfallstala fyrir
landið allt.
wvwwwwwwwwvwvwvwvw
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. júlí 1964 3