Alþýðublaðið - 25.07.1964, Blaðsíða 3
S-Víetnam hafnar
tillögu U Thants
120 ÞÚSUND póstmenn á Bret-
landi höfðu hótað að' gera verk-
fall á miðnætti í kvöld, en verk-
fallinu var aflýst að loknum
viðræðum Bevins póstmálaráð
herra við foring-ja póststarfs-
manna í gær. Sagt var, að sam-
komulag liefði náðst um við-
ræöugrundvöll.
Að undanförnu hafa póst-
starfsmenn neitað að vinna yf-
irvinnu og lialdið fast við starfs
reglur. Þeir hafa krafizt 10.5%
launahækkunar eða sem svarar
125 (ísl.) kr. á viku. Stjórnin
hefur boðið 4% launaliækkun.
26 milljón bréf hafa safnazt
fyrir á pósthúsum víðs vegar í
Bretlandi vcgna verkfallsins.
Á fundi sem 20 þúsund póst-
menn hcldu í Hyde Park í Lond
on var ákveðið að menn skyldu
mæta á skyrtunum, en Jamaica
maður lét þetta sem vind um
eyru þjóta og mætti í gráum
jakkafötuin, vesti og með „bow-
ler-hatt” á höfði (sjá mynd).
WmWWMWtWWVMMWWWWWMWMWMWIWWMWWWWIIWMMIMWWWHWMW1
BLAÐAMANNAFUNDUR JOHNSONS:
Ný flugvél á þre-
fðldum hljóðhraða
Bonn, 24. júlí
' (NTB - Reuter)
í yfirlýsingu um gagnrýni de
Gaulles á stefnu Vestur-Þýzka-
lands í utanríkismálum staðhæfði
stjórnin í Bonn í dag, að hún
hygðist hvorki vera undirgefin
Frakklandi eða Bandaríkjunum í
stefnu sinni.
Stefna Vestur-Þýzkalands er
hvorki háð Frakklandi né Banda-
ríkjunum, segir í yfirlýsingu, sem
helzti formælandi stjórnarinnar,
Giinther von Hase, las á blaða-
mannafundi í Bonn. Aðspurður
kvað haun ummæli de Gaulles
ekki hafa komið stjórninni á óvart.
Viðbrögð stjórnarinnar og
þriggja helztu stjórnmálaflokk-
anna við ummælum de Gaulles
sýna, að þau eru andvíg þeim fyrir
ætlunum de Gaulles að Evrópa
slíti sig úr tengslum við Banda
ríkin á sviöum stjórnmála, varnar-
mála og efnahagsmála.
í Bonn er litið á yfirlýsingu
stjórnarinnar sem greinilega vís-
bendingu frá Erhard kanzlara þess
efnis, að hann haldi fast við skoð-
un sína um sameinaða Evrópu
framtíðarinnar, er nái til allra
landa Vestur-Evrópu og yerði í
nánum tengslum við Bandaríkin.
Á blaðamannafundinum neitaði
von Hase liinsvegar að ummæli de
Gaulles væru afskipti af innan-
ríkismálum Þýzkalands. í Bonn er
sagt, að þeir menn í flokki Er-
hards sem styðji viðhorf de Gaul-
les muni nú sennilega reyna að
Washington, 24. júlí
(NTB-Reuter)
JOHNSON forseti sagði á blaða-
mannafundi sínum í kvöld, að
Bandaríkjamenn hefðu framleitt
flugvél, sem gæti flogið þrisvar
sinnum hraðar en hljóðið og nota
mætti til könnunar um allan heim.
Flugvélin hefur hlotið nafnið
SR-71 og verður notuð af SAC.
Um ástand og horfur í banda-
lagi vestrænna ríkja sagði John-
son, að sérhver tilraun til ,að fá
Evrópuland til að velja á milli
Bandaríkjanna og Evrópu yrði
hörmuleg, bæði fyrir Evrópu og
bandalagið.
Hann kvað Bandaríkin aldrei
hafa reynt að drottna yfir Evrópu
eða nokkru öðru svæði í heimin-
um. Bandaríkin hefðu þvert á
móti unnið að því að gera hina
frjálsu Evrópu öflugri, því að Evr-
ópa og Bandaríkin hefðu sameigin
legra hagsmuna að gæta, sameigin-
leg markmið og sameiginlegar
skuldbindingar.
Johnson nefndi de Gaulle forseta
ekki með nafni, en ummæli hans
voru greinilega ætluð sem svar við
árásum de Gaulle í gær á forystu
hlutverk Bandarikjanna í hinum
vestræna heimi.
Um ástandið í Víetnam sagði
Johnson, að ögranir frá Norður-
Víetnam gætu knúið fram gagn-
ráðstafanir. En hann lagði áherzlu
á, að Bandaríkin vildu ekki stækka
styrjöldina í Víetnam.
Hann lét enn fremur í ljós von
um að utanríkisráðherrafundur
Samtaka Ameríkuríkja, sem nú er
haldinn í Washington, myndi leiða
til öruggra aðgerða gegn kommún
istískri undirróðursstarfsemi Ca-
stros í Vesturheimi.
Johnson skýrði svo frá, að nýja
könnunarflugvélin væri framleidd
samkvæmt áætlun, sem hefði kost
að 42 milljarða ísl. kr. Hún á að
geta flogið í meira en 24 km. hæð.
Reynsluferðir hefjast á næsta ári.
Forsetinn átti augsýnilega við
tillögu de Gaulles um fjórvelda-
ráðstefnu um Víetnam er hann
Framhald á 13 síðu
nota gagnrýni de Gaulles sér til
framdráttar. Helztu „gaullistar”
Vestur-Þýzkalands eru Adenauer
kanzlari og Franz Josef Strauss fv.
landvarnaráðherra.
Formaður utanríkisnefndar vest
ur-þýzka þingsins, Ernst Marjon-
ika, sagði í dag að það jafngilti því
að efla Sovétríkin ef böndin, sem
tengdu Evrópu og Bandaríkin,
væru veikt.
Mörg hlöð í Vestur-Þýzkalandi,
sögðu í dag, að Evrópa væri ekki
reiðubúin að fallast á skoðun de
Gaulles um Evrópu framtíðarinn-
ar. „Frankfurter Allgemeine"
voru ráðunautar hinnar sérlegu
Framhald á 13 síðu
Tyrkir hafna
enn ásökunum
NEW YORK, 24. júlí (NTB-Raut
er). — í skeyti frá tyrnesku stjórn
inni til SÞ, sem birt var í dag í að
alstöðvum SÞ er því haldið fram
að Tyrkir hafi aldrei sent her
menn og vopn til Kýpur umfram
það sem samningar kvæðu á um.
Ennfremur hafi Tyrkland forðazt
aðgerðir er aukið gætu ólguna á
eynni.
Formælandi SÞ sagði í Níkósiu
í dag, að Öryggisráðið mundi koma
saman til fundar að ræða störf
SÞ-gæzluliðsins ef yfirvöld á
eynni héldu áfram að torvelda
störf þess.
V-Þjóðverjar hafna
gagnrýni de Gaulles
22 handteknir í New York
NEW YORK, 24. júlí
í NEW YORK handtók lögregl-
an í nótt 22 blökkumenn og einn
hvítan mann eftir minniháttar ó-
eirðir. Tiltölulega rólegt var í
borginni í dag eftir að kynþátta
óeirðir höfðu geisað í fimm nætur.
Blökkumennirnir eru ákærðir fyr-
ir innbrot eða götuólæti, en hvíti
maðurinn fyrir að hafa veitt lög
reglunni mótspyrnu. Hundruð lög
reglumanna eru á vcrði í Harlem
og Brooklyn.
Eldur kom upp í dag í veitinga-
húsinu, sem hefur verið miðstöð
kynþáttaóeirða í St. Augustine í
Florida. Eigandinn, segir, að tjón
ið nemi 120 þús. ísl. króna. „Mol
otov” kokkteilum, var fleygt inn í
veitingaliúsið.
Nokkrum klukkustundum áður
höfðu hundruð manna tekið þátt í
Ku Klux Klan-fundi í St. Augu-
stine. Veitingahúsið umrædda
leyfði blökkumönnum aðgang að
veitingahúsinu eftir staðfestingu
mannréttindalaganna en það
neyddist að banna blökkumönnum
aðgang aftur þegar bárust hót-
unarbréf fi;á hvítum stuðnings
mönnum kynþáttaaðskilnaðar.
Saigon, 24. ijúlí (Ntb-Rt.)
Suður-Víetnam vísaði á bug í
dagr tillögu U Tliants um að þró-
un mála í landinu veri tekin fyrir
á nýrri Genfar-ráðstefnu.
í tilkynningu utanríkisráðneyt-
isins í Saigon segir, að slík til-
laga muni aðeins auka ágreining á
sama tíma og Suður-Víetnam
heyji úrslitabaráttu fyrir frelsi
sínu.
Sérhver lausn sem slík Genfar-
ráðstjefna mundi sjánga upp á
mundi aðeins dulbúa afsal Suður-
Vietnams í hendur stjórnarinnar
í Peking eða Hanoi, segir í hinni
harðorðu yfirlýsingu. Þar er sagt
að S-Víetnam hafni tillögunni af-
dráttarlaust.
í Saigon er sagt, að í uppkast-
inu að yfirlýsingunni hafi einnig
verið gagnrýni á tillögu de Gaull-
es forseta um almennar viðræður
um frið í Indó-Kína, en af ein-
hverjum ástæðum var þessum
kafla sleppt. Opinberir formæl-
endur, sem voru spurðir álits á
tillögu de Gaulles í dag, sögðu að
eins að þeir vildu ekkert um hana
segja.
Sagt var, að Suður-Víetnam
hefði hvað eftir annað gert grein
fyrir afstöðu sinni. Friði yrði ekki
komið á í Indó-Kína fyrr en árás
kommúnista, sem stjórnað væri
frá Peking og Hanoi, yrði ha?tt.
Óttazt var í dag, að Viet Cong-
hersveitir kommúnista muhdu
herða á baráttunni og hefja stríð
á nýjum vígstöðvum, eftir að Viet
Cong-hermenn réðust á suðúr-
vietnamskar hersveitir í gær á veg
inum milli Ban Me Thout og Ban
Brieng, um 280 km. frá Saigon.
Bandarískur herráðunautur beið
bana' og annar særðist. Báðir
voru ráðunautar hinna sérlégu
Framhald á 13 síðu * r
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 25. júlí 1964 * $