Alþýðublaðið - 25.07.1964, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 25.07.1964, Blaðsíða 11
Landsleikurinn ísland - Skotland: Kemur íslenzka liðið á óvart og sigrar? ÍSLAND og Skotland heyja lands- leik í knattspyrnu n. k. mánudags- kvöld á Laugardalsvanginum. Er þetta 37. landsleikur íslands. Eng- jnn vafi er á því að leikur þessi verður fjölsóttur og úrslitanna beðið með spenningi. Landsliðs- nefnd KSÍ, gaf út tilkynningu, fyr- jr fáum dögum, um skipan íslenzka Jiðsins. Vissulega eru ekki allir Sammála um niðurstöður nefndar- innar, enda mætti það teljast til tíðinda, ef svo væri. Hinsvegar er engin ástæða til að gera því skóna, að nefndin hafi ekki unnið sitt vandavefk, af fullkominni sam- ijf vizkusemi og skilningi, svo sem henni var bezt lagið. Það verður að viðurkennast, eins og það er, að knattspyrnan hjá okkur um þess ar mundir, er ekki ýkja rishá. Og að koma saman landsliði, úr því efni sem fyrir er, sem geti staðið sig sæmilega gegn þrautþjálfuðu erlendu liði, eins og þetta skozka lið mun efalaust vera, er því ekki heiglum hent. Miðað við allar að- stæður, verður ekki annað séð, en landsliðsnefndinni hafi tekizt þetta CFran.hald á 10. síðul 0 1 Holbæk hér á vegum Þróttar UHHHMmHUtWHUHHVt Leikskrá landsleiksins SVO sem verið hefur á undan förnum landsleikjum, kemur út vönduð leikskrá á vegum Samt. íþróttafr.manna. Er þar að finna margvíslegan fróð- leik um hin keppandi lið. Enn- fremur er þar skrá um alla landsleiki íslands í knatt- spyrnu frá upphafi. Margar myndir prýða leikskrána sem er 32 síður að stærð. Leik- skráin mun brátt verða til sölu í aðgöngumiðasölunni við Útvegsbankann. Hingað til lands er komið danska 3. flokks liðið Holbæk á vegum Þróttar. Dönsku piltarnir komu fyrst til Vestmannaeyja og Iéku við jafnaldra sína þar. Á morgun leika þeir við Þrótt á Melavellin- um og hefst leikurinn kl. 16. fd______________________________ Er Ellert hættulegasti maður framlínunnar? ÍSLANDSMÓT í ÚTIHAND- KNATTLEIK í FIRÐINUM Ríkharður leikur sinn 31. landsleik á mánudag. MEISTARAMÓT íslands í hand- knattleik utanhúss fer að þessu sinni fram í Hafnarfirði og’ hefst á morgun (sunnudag) kl. 4. Keppt verður á Hörðuvöllum. í meistara- flokki karla eru sex lið, FH, Hauk ar, KR, Fram, Víkingur, ÍR og Ár- mann. í meistaraflokki kvenna eru sjö lið, Valur, Þróttur, Fram, Vík- ingur, FH, Breiðablik og Ármann. Loks verður keppt í 2. flokki kvenna, og þar taka einnig þátt sjö lið, frá Val, Fram, Víking, FH, KR, Breiðablik og Ármann. Eins og fyrr segir hefst mótið á morgun kl. 8 og þá leika í meist- araflokki karla, FH og Haukar og Fram—ÍR. Mótið heldur áfram á miðvikudag kl. 8 og þá leika KR og Ármann, en síðan verða háðir tveir leikir í kvennaflokki, Valur- Þróttur og Fram-Víkingur. Ekki vitum við nákvæmlega hvernig karlaliðin hafa æft síðan í vor, en áhugi kvenfólksins virð ist mjög fara vaxandi og um get- una efast víst enginn eftir hinn glæsilega árangur kvenfólksins okkar á nýafstöðnu Norðurlanda- meistaramóti, en þar sigruðu þær eins og kunnugt er. ★ C-lið Frakka sigraði í Portú- gal í frjálsíþróítum með 120 gegn 90. Goulao setti portúgalskt met í kringlukasti, 50.05 m. 1 Nýliðinn í landsliðinu Eyleifur Hafsteinsson skorar mark í leik gegn Fram Sumarbúðir Vilhjálms og Höskuldar í Reykholti Drengja- og kvennamóf um helgina á yfirstandandi íslandsmóti. Um lielgina fara fram Drengja- og Kvennameistaramót íslands » frjálsum íþróttum. Drengjainótið) verður háð á Akureyri og hefst kl. 2 í dag og keppnin lieldur áfrarv á morgun á sama tíma. Kvenna- meistaramótið er háð á íþróttavell- inum að Félagslundi í Gaulverja- bæjarhreppi og hefst kl. 4 í dag» en lýkur á morgun, en þá hefsfc keppnin kl. 2. Eins og undanfarin ár verða haldin íþróttanjmskeið fyrir drengi. Námskeiðin hefjast þann 4. ágúst og standa til 25. ágúst. Þau verða haldin í Reykholti og 'WWWWWWWWWWWWWWWWW*--. — w — ww — — — — — — -ý j taka eina viku hvert. Fyrsta nám-- skeiðið er þegar fullskipað, en nokkrum umsóknum urú síðari námskeiðin er enn hægt að íaka á móti. Starfsemin verður með svipijð- um hætíi og undanfarin ár, dag- lega kenndar íþróttir, svo senv frjálfear íþróttir, knattleikir og sund, en auk þess farið í leiki, gönguferðir og kvöldvökur haldn- ar. Nánari upplýsingar veittar i síma 14127 eftir kvöldmat (frá kL 8-10.) ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 25. júlí 1964 £11

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.