Alþýðublaðið - 26.07.1964, Side 1

Alþýðublaðið - 26.07.1964, Side 1
 iSt|i^|;ÍSÉ;Í^pÍis ;':.:X''- Keykvíkingar hafa a'ð vonum verið daprir að undanförnu vegna veðursins. En í gær- -'orgun lyftist brúnin f mörgum. Dagurinn heilsaði aldrei þessu vant með sól- skini sem heldur betur telzt sjaldgœft á þessu sumri. — Veðurstofan spáir hagstæðu veðri nú um helgina og von- andi rætist spá hennar. Við brugðum okkur í Sundlaug- arnar og tókum þar þessa sólskinsmynd. (Mynd: KG). LOFILEIÐIR TIL KEFLA- VÍKUR Á FIMMTUDAGINN 44. árg. — Sunnudagur 26. júlí 1964 — 167. tbl. Reykjavík, 25. júlí. — HP. Á FIMMTUDAGINN kemur, 30. júlí, flytja Loftleiðir til Keflavík- ur með aila starfsemi sína aðra en aðalskrifstofur og þjónustu vegna komu og brottfarar farþega til og frá Reykjavík, en farþegar Loft- leiða verða flutir milli Keflavíkur og Reykjavikjir þeim að kostnað- arlausu. — Á fimmtudagsmorgun verður Cloudmastervél Loftleiða afgreidd í Reykjavík, en að því loknu verður flutt til Keflavikur, og vél sem kemur eftir miðnætti á fimmtudagskvöld svo og vélar, sem væntanlegar eru hingað til lands á föstudag, verða afgreiddar í Keflavík. Er búizt við, að hægt verði að Framha)d á 13. síðu Aidrei fieiri í Mývatnssveit Reykjavík, 25. júli. — HP. „Eg býzt varla við, að nokk- urn tíma hafi verið fleiri á ferð í Mývatnssveit en í sumar, bæði útlendingar og íslendingar,” — sag'ð'i Pétur Jónsson í Reynihlíð, þegar blaðið leitaði frétta hjá honum í kvöld. „AÖ minnsta kosti hef ég aldrei séð jafnmörg tjöld hér í kring og nú.” Hann sagði, að allan júlímánuð hefði verið einmuna góðviðri í Mývatnssveit, eins og víðast hvar fyrir norðan og austan, enda leit- aði fólkið í sólskinið. Hins vegar fylgdi þurrkinum moldryk, og veg irnir væru að verða eins og þvottabretti sums staðar. Pétur kvað aldrei hafa verið jafnmarga Framhald á síðu 13. Reykjavík, 25. júlí, IIKG. Aðsókn að húsmæðraskólunmn er misjöfn ár frá ári og virðist eins og háð tízku, sagði nám- stjóri húsmæðrafræ'ðslunnar, Hall dóra Eggertsdóitir, í viðtali við glaðið í gær. Yfirleitt eru þó skól- arnir vel sóttir og betur en á Norð uriöndunum hinum, — en þess verður að' gæta við samanburð, að þar er aðstaða til að sækja nám- skeið mun betri en hér. Kvöld- námskeið í húsmæðrafræðum eru alltof fá hér, sagði námsstjórinn. ♦ WVWWMWWMWWVWVWWHVWWW Dúfa Björns Pálssonar á Reykjavíkurflugvelli. — (Mynd: RL). Tveir hlutar slökkvistöðvar undir þak um áramótin Reykjavík, 25. júli. — HP. EINS og kunnugt er, hófust framkvæmdlr við byggingu nýrrar slökkviliðsstöðvar í Reykjavík um síðustu áramó', og hefur verið unnið að byggingu hennar síðan. Slökkvistöðin verður þrjú sam- byggð hús. Er nú gert ráð fyrir. að tvö þeirra verði komin undir þak um næstu áramót, en hægt verði að taka þau í no kun síðla hausts 1965. í einu húsinu verður geymsla fyrir slökkvibíla, annað húsið verð ur skrifstofu- og starfsmannahús Framhaid á síðu 4 ADSOKN AD HUSMÆÐRA SKÚLUNUM HAD TÍZKU VÉIÐIMANNS SAKNAÐ Reykjavík, 25. júlí. — EG. Saknað er veiðimanns héðan úr bænum, sem seiut í gærdag fór til veiða í Ölfusá, neðan við Kaldaðarnes. Þegar blaðið ræddi við lögregluna á Sel- fossi skömmu eftir liádegið í dag, var leitarflokkur nýfarinn að Ieita mannsins. Átti bæði að fara á bót eftir ánni og leita með bökkum hennar. Veiðimaðurinn mun liafa farið niður að ánni seint í gær dag, en bíll, sem hann var á, var mannlaus á árbakkanum I morgun og kveikjulykillinn í. Ennfremur voru skór hans í bílnum. Síðast þegar blaðið frétti til hafði leitin ekki borið árangur. Maðurinn er héðan úr bænum, sem fyrr scgir, en nafn hans vildi lögreglan ekki láta uppi að svo komnu máli. . Upppantað mim vera á öll kvöld námskeið Húsmæðraskóla Reykja víkur fyrir næsta ve'ur, og þær, sem því eru ekki búnar að sækja, eru vonlausar, nema einhver gangi úr skaftinu. Námsstjórinn sagði, að sjáan- legt væri, að þörf væri fleiri nám- skeiða, — en bæði giftar konur og ógiftar stúlkur vilja fegnar fræð- ast um húsmæðras örf, en hafa ekki aðstöðu eða vilja til að fara á húsmæðraskóla í heilan vetur. Aðspurð um aldur þeirra, sem eru á húsmæöraskólunum, sagði námstjórinn, að flestar væru stúlk urnar á aldrinum 17-20 ára. Ald- urstakmarkið væri 17 ár, en all- margar undan'ekningar væru gerð ar hér í hinuin ýmsu skólum. Erfitt væri að halda fast við ald- urstakmarkið, því að ef til vill hefði 16 ára stúlka, sem væri .trú- Iofuð, ekki tækifæri íil þess aftur að sækja skólann, ef henni væri neitaö. Námsmeyjar á húsmæðraskól- unum hér munu að öllum jafnaði mun yngri en námsmeyjar á hús mæðraskólum erlendis, og oft heyrist um það talað, að það sé betra að fara í húsmæðraskila í Framh. á bls. 4 * Oðinn hæsta söltunarstöð Raufarhöfn, 25. júlí. GÞÁ*-GO. Hér er saltað úr tveimur skip- um í dag og von er á fleirum í kvöld. Hilmir II. er hjá Kaísilfri og Stapafell hjá Björgu, biðir eru þessir bátar með 800-1000 tunn- ur. Óðinn er enn hæsta söltunar- stöðin hér með rúmar 6000 tunn- ur og Hafsilfur hefur saltað í rúm 5000. Lítið hefur komiö á litlu stöðvarnar. Bræðslan hefur gengið eins og í sögu í allt sumar og nú er búið að bræða 230,000 mál, sem er einsdæmi á þessum tímá árs.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.