Alþýðublaðið - 26.07.1964, Side 4

Alþýðublaðið - 26.07.1964, Side 4
yrsti gróðurinn Húsmæðraskólinn (Frambald at l. sí8u). þann mund, er stúlkan ætlar a'ö fara aö stofna heimili cn löngu áður. En námstjóri bcnti á þaö, að ís- lenzkar stúlkur giftust svo ungar, aö fyrir margar hverjar væru hað síðustu forvöð á þessum aidri. En það væri auðvitað mál, að eldri stúlkur væru þroskaðri og sjónar- mið þeirra önnur. — S undum segðu stúlkur á milli tvítugs og þrítugs, að þær hefðu viljaö, að þær hefðu beðið, og farið í skól- ann síöar. En kvartanir þeirra væru ekki fyrst og fremst sökum þess, að námskeiðið hefði gleymzt, sagði námsijórinn, heldur viðhorf þeirra sjálfra breytzt, bæði gagn- vart lieimilishaldi og náminu. Stúlkur úr Keykjavík sækja til skólanna úti á landi og sveitastúlk urnar sækja !il Reykijavíkur og svo öfugt, sagði námstjórinn. Sum ir skólanna eru þannig í sveit ítaöur úr Vestm.eyjuiti settir, að aðsókn að þeim hlýtur alltaf að verða minni en að öðrum sem meira eru miðsvæðis, — en allir hafa þeir miklu hlutverki að gegna. Tíú húsmæðraskólar verða starf ræktir í vetur, auk skólans á Akur eyri, þar sem aðeins eru haldiit námskeið. Síðastliðinn vetur vortt um 350 í þessum skólum. Reykjavík, 24. júlí. — IIP. í S'HASTA hefti „Náttúrufræð- skrifar dr. Sturla Erið- grein, sem hann kallar — ,„lim bóhiutning lífvera til Surts tey jar,” og gerir þar grein fyrir at- jöi gunum, sem gerðar voru á því 14, maí sl. hvaða landlífverur jbhi tðu þá borizt til eyjarinnar. tJí mframt bendir hann á, að eftir Surtsey myndaðist og fyrirsjá- .ar.legt varð, að líf myndi hefja iii arás sína á eyna og stofna þar ~c 1 varanlegs landnáms, hafi skap- Ji'.t þar einstök aðstaða til þess ) f kynnast því, hvernig landnámi j,iessa lífs væri liáttað, en þetta tlandnám lífs á Surtsey megi að n.iokkru leyti bera saman við land ?aám lífs í Krakatoa í Austur- linangrunargler Framleitt elnungis Úr úrv»l> • jlerl. — 5 ára ábyrgð. Pantíð tímanlega. 1 Korkiðjan h.f. Indíum, þar sem gos gjöreyddi öllu lífi, dýrum og jurtum, árið 1883. Sturla segir einnig, að nýsköp- un Surtseyjar sé svo einstakt náttúrufyrirbrigði, að hér sé um alþjóðlegt áhugamál að ræða. — Hafi því þótt nauðsynlegt að kanna landnám lífsins á eynni frá upp- hafi, en líf geti ýmist flutzt með eigin afli eða borizt af öðrum ástæðum til eyjarinnar. Óhjá- kvæmilegt sé, að maðurinn verði valdur að einhverjum aðflutningi, þótt æskilegt væri, að þau áhrif væru takmörkuð sem mest. Fugl- ar komast að sjálfsögðu til eyj- arinnar af eigin rammleik og hugsanlega einnig sum fljúgandi skordýr, en aðflutningur lífvera, sem ekki geta borizt þangað með eigin afli, getur orðið með fugl- um, loftsraumum eða af sjó. Eðli- legast er að álíta, að flutningur j þess lífs komi fyrst og fremst til I eyjarinnar frá íslandi og einna t helzt frá Vestmannaeyjum. Geir- i fuglasker er næst Surtsey í um | 5.5 km. fjarlægð. Heimaey í rúm- lega 20 km. fjarlægð frá Surts- ey, en vegalengdin milli hennar og meginlandsins er yfir 30 km. Enda þótt mestar líkur séu fyr- ir því, að lífverur berist til eyjar- innar frá öðrum svæðum hér á landi, getur þó verið um beinan flutning frá öðrum löndum Evr- Ópu að ræða. Vegna þessa mögu- leíka þótti m. a. merkilegt að hefja athuganir á eynni strax í vor, og verður hér á eftir skýrt frá fyrstu athugunum, sem gerðar voru á landlífsverum á Surtsey. Sextán dögum eftir að eyjan reis úr sjó eða 1. desember 1963 sáust mávar sitja á eynni milli goshrinanna, og 16. apríl sást skógarþrastahópur á vestanverðri eynni. Fimmtudaginn 14. maí, — hálfu ári eftir að Surtseyjargosið hófst, — voru gerðar athuganir á því, hvaða landlífverur höfðu þá borizt til eyjarinnar. Fuglarnir sem sáust þar þennan dag, voru 2 lóuþrælar, 7 tjaldar, margar rit- ur og einn snjótitlingur. Mið- svæðis á sandinum voru tvær dauðar ritur og skammt þar frá eina skordýrið, sem fannst á eynni. Var það fluga, sem náðist í háf og reyndist vera rykmý við greiningu. Búizt var við, að ein- hverjar æðri plöntur kynnu að hafa borizt til eyjarinnar af sjó, Framh. á bls. 13 Vatnsgeymir (Framhald af 16. sífiu). er til alls Laugarássins, Klepps- holtsins og Landakotshæðarinnar og nýja dælustöðin við Grenásveg dælir til húsa í Grensáshverfi, Hvassaleiti og Bústaðahverfi Þeir, sem búa á Skólavörðuholt- inu, hafa aftur á móti oft þurft að fara varlega með vatnsdropana, — en allt snýst þetta til hins betra, þegar nýi tankurinn verður loks tilbúinn. Slökkvistöðin Framh. af bl. 1 og það þriðja verkstæði, en þatt verða ö\l sambyggð. Nýja stöðin verður við Keykjanesbraut rétt fyrir neðan Shell-benzínstöðina við Öskjuhlíð. Byggingu stöðvarinnar er nú svo komið, að búið er að steypa upp veggi bílageymslunnar, og verður loftið steypt á næstunni. Verið er að steypa sökkulinn und ir skrifstofu- og starfsmannahúsið og búið er að sprengja fyrir verk- stæðishúsinu. Eru það bílageymsl an og skrifstofu- og starfsmanna- húsið, sem eiga að vera komin und ir þak um áramótin. Jöfnum hönd um verður unnið að byggingu: verkstæðishússins. Verður það síðar tilbúið en hin tvö, en ætti að geta orðið það árið 1966. Slökkvi- liðsstjóri, Valgarð Thoroddsen, sagði í viðtali við blaðið í dag, að hann vonaðist til þess, að slökkvi liðið gæti flutt úr Tjarnargöttt með allt nema verkstæðið fyrir lok næsta árs, en verkstæðisaðstaða yrði að vera þar fyijir hendi, þang að til nýja verkstæðið getur tekið til starfa. BMW bifreiðar koma til landsins B M W (Bayerische Motoren Werke) verksmiðjurnar hafa á- vallt verið heimsfrægar fyrir fram leiðslu sína, bæði á mótorhjólum og bifreiðum. Hingað til lands hafa liins vegar fáar bifreiðar fiutzt inn þar til nú á þessu ári. að Bilaverzlun Kristins Guðna- sonar, Klapparstíg 27, tók þetta umboð að sér. BMW verksmiðj- urnar voru stofnaðar árið 1916, og framleiddu í upphafi flugvéla- hreyfla, en árið 1928 hófu þær framleiðslu á hinum vinsælu BMW bifreiðum, sem þær liafa framleitt síðan. Fyrst voru framleiddar stór ar og vandaðar diplomatbifreiðar og sportbílar, sem ávallt voru afar vinsælir. Nú hafa BMW verksmiðj urnar endurbyggt alla sina starf- semi. Árið 1963 fengu verksmiðj- urnar 360 000 ferm. land í Mún- chen — Milbertshofen, þar sem vinna yfir tíu þúsund manns í nýrri og fullkominni verksmiðju. Hinar nýju gerðir BMW bif- reiða, BMW Wells Luxus og BMW 1500-1800, sem hafa flutzt hing- að til lands eru ákaflega rennileg- ar og bera nokkurn keim af sport bílnum, enda liggja þær mjög vel á vegi. Þessar bifreiðar hafa náð mjög miklum vinsældum í Evr- ópu. Helztu kostir þeirra eru, hvað þeir eru sparneylnir, liprir í akstri og gott útsýni úr þeim. Frágangur allur er mjög vand- aður, bæði að utan og innan, og sú reynsla, sem fengizt hefur á þessum bifreiðum hér á landi, •— sannar, — að þær muni henta vel okkar staðháttum. Þar sem Bif- reiðavarahlutaverzlun Kristins Guðnasonar annast innflutning á þessum bifreiðum og varahlutum til þeirra, má reikna með góðrl þjónustu, því að verzlun Kristin3 Guðnasonar hefur annazt innflutn ing varahluta í meira en 30 ár við góðan orðstír. t 4 26. jú|í 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.