Alþýðublaðið - 26.07.1964, Side 7

Alþýðublaðið - 26.07.1964, Side 7
 | segir hin 48 ára Phillis Lumley, sem er handleggjalaus, en samt sem áður hamingjusöm eiginkona og móðir sjö indælla barna LÍFIÐ er ÆVINTÝRI — | segir hin 48 ára Phillis Llum- | ley, sem er handieggjalaus en | samt sem áður hamingjusöm | eiginkona og móðir sjö indælla I bama. I ----------— | Það var engin sem þorði að I sýna mömmu mig strax og cg | fæddist. Ljósmóðirin vafði | handklæði utan um mig og bar = mig fram í eldhús, þar sem | frænka mín og amma biðu. Amma hafði svo farið inn að | búa um mömmu, þögul og | skelfd yfir því sem hún hafði I séð. Þá nýfæddu hafði Ijósmóð | irin borið fram í eldhúsið, | vegna þess að þar var hlýrra, | sagði hún. Hversu oft. hef ég ekki heyrt | frásögnina um þennan morgun, | í litla húsinu fyrir utan Sout 1 hampton í Suður-Englandi. í eldhúsinu stóðu þessar | þrjár konur, og horfðu mállaus | ar á mik. Hvemig áttu þær að | geta sagt mömmu að nýfædda 1 dóttirin hennar hefði fæðst I handleggjalaus? I Að lokum kom það í hlut í frænku að bera mig inn aftur. Svona falleg lítil stúlka, 1 hvíslaði hún um leið og hún | sneri mér, svo að sæist framan | í mig. En hún er veikbyggð og | . . . og . . . Og hvað- spurði mamma. | Vertu nú róleg góða mín, hún er vansköpuð, hún hefur enga handleggi. Það var sent skeyti til pabba, hann var í herþjónustu. Hann var beðin að koma heim. Þetta var í fyrri heimstyrjöldinni 1915. Engum datt í hug sá mögu- leiki að vansköpun mín stafaði af lyfjanotkun eða veikindum um meðgöngutímann. Nei á- stæðan var hinir særðu og ör- kumla menn er mamma sá þeg ar hún heimsótti pabba í her- búðirnar. Ég var skírð á stundinni. Eng um datt í hug að ég myndi lifa. En ég lifði þó veikbyggð væri, og varð glaðlynt barn. Aft ur á móti var þetta þung byrði fyrir móðir mína, vegna þess að ég þarfnaðist svo mikillar umhyggju og hjálpar. Fyrsta vonin tendraðist þó þegar ég var 9 mánaða. Það var dag einn að ég ar óvenju ergileg, því mig kenndi til i handleggjastubbunum. Að lok um setti mamma mig í barna- vagninn og lagði myndablað fyrir framan mig. Þegar hún Ieit til mín næst, var blaðið rif ið og tætt í sundur. Hún varð alveg undrandi, ég hafði gert þetta með tánum. Nokkrum dögum seinna var mamma að greiða mér og varð þá ekki minna hissa þegar ég rétti út fótinn, greip eldspýtna stokk með tánum, opnaði hann og skríkti af ánægju þegar inni haldið dreifðist út um allt gólf. Hingað til hafði mamma ekki athugað að gefa mér leikföng nú skildi hún hvers ég saknaði og skemmti sér við að horfa á mig leika mér með fótum og tám eins fimlega og önnur börn með höndum og fingrum. Áður en varði var ég orðin sjö ára. John bróðir minn sem var tveim árum yngri en ég, var stór, frískur og fullkom- lega heilbrigður drengur. Þegar farið var að tala um skólagöngu hans, fann ég allt í einu mismunin milli hans og mín. Ég þrábað móðir mína um að mega fara í skóla. Hún tal- aði við skólastjórann en án árangurs, hann neitaði. Til allr ar hamingju höfðu þrjár syst- ur sett á stofn skóla fyrir fatl- aða, þangað fór ég til að læra eitthvað. Handleggjastúfarnir mínir höfðu alltaf valdið mér miklum sársauka. Það var því ákveðið að ég skildi fara til uppskurðar á Hampshire-sjúkra húsið, þar sem þeir voru fjar- tasjgðir. í þessari sjúkralegu uppgötvuðu læknarnir að ég hafði frá fæðingu verið með brákaðá mjöðm og þeim fannst það kraftaverk að ég skildi læra að ganga eðlilega. Um þetta Ieyti tileinkaði ég mér það sem ég kallaði mína einka „handavinnu" að flétta körfur og töskur og að sauma. Mamma, klæddi mig í fallega kjóla með herðaslám. Á veturna voru slárnar úr flaueli á sumr- in úr silki. Og hafi ég vakið athygli fólks, var það vegna kjóianna og hársins á mér sem var sítt og fallegt. Þrátt fyrir þetta var mamma stöðugt áhyggjufull mín vegna og vonaði í laumi að ég fengi að deyja á undan henni. Svo fluttum við til London og ég var í sjöunda himni yfir að komast í betri skóla. Þegar ég var sextán ára byrj aði ég að læra ísaum og hekl. Þá var það að móðir mín dó um það leyti sem ég byrjaði að finna mig nokkurn vegin sjálf- stæða og þeir sem tóku við að sjá um mig gáfust upp á því af cinhverjum ástæðum.Pabbi var alveg í öngum sínum, svo að ég sagði við hann: „Vertu ekki áhyggjufullur, ég fer á tiæli fyrir fólk eins og mig. — Það leið nokkur tími þar til við fundum klaustur sem víidi taka við mér. En ég varð að bíða í þrjár vikur og þann tíma átti ég að búa hjá vinafólki okkar í London. Eitt kvoldið hjálpaði bróðir minn mér að pakka niður dótið mitt, þá aiti ég bágt með að halda aftur af tárunum. Fyrsta kvöldið hjá vínafóik- inu, kom ungur maður í heim sókn. Hann hét Jaek og var 28 ára gamall. Hann var óskóp vingjarnlegur og fullur af kímni, reyndi augsýnilega að dreifa huga mínum. Það var ég honum þakklát fyrir. Allt í eiuu uppgötgvaði hann að hann var sígarettulaus. Þegar ég báuð honum sagði hann. — Hamingj an góða, reykir þú? Ég jánkaði og við hlógum bæði. Þegar hann fór hvíslaöi hann að mér. — Við sjáumst aftur. Auðvitað dreymdi þiig ekki um að það yrði. Hvers vegna skildi ungan mann lafiga til að hitta mig? En næsta kvöld kom haiin aftur, það kvöld töluðum '.við heilmikið saman og reyktunk ó- tal sígaretur. Jack bauð rnér heim til mömmu sinnar og svo fórum við í bíó. — Við skulum Framhald á síðu 10. (iMmitfiaiiKimiunmffimuKiiiimiiiiiiiiiiiitumiimfmiiiiuHcfHmtm.'tiiiiiKiMiiiMHMwuiuMHi :i :t ir :r !! :! :r ALÞÝÐUBLAÐIO — 26. júlí 1964 J

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.