Alþýðublaðið - 13.09.1964, Page 4
FLUGSÝN H.F.
Bóklegi-skólinn veturinn 1964 -1965
★ Námskeið fyrir einkafLugmenn (A próf), hefst 1. október. Kennsla fer fram á kvöld-
in í skólanum á Reykjavíkurflugvelli.
•k Skóli fyrir atvinnuflugmenn (B próf) hefst 5. jan. 1965, og verður dagskóli.
★ Bókleg kennsla fyrir blind flugs-réttindi, hefst, 15. október.
★ Siglingafræði-námskeið verður haldið í vetur. Nánar auglýst síðar.
★ Námskeið fyrir flugstjóra-efni (ALTP), svo og kennsla fyrir þá sem vilja öðlast rétt-
indi á 2ja lireyfla flugvélar (typerating) liefst 1. nóvember.
★ Kynnið ykkur námsskrá skólans.
★ Þátttaka tilkynnist sem fyrst í símum 1-84-10 og 1-88-22 eða í skólann á Reykjavíkur-
flugvelli.
Skólastjóri.
Hallbjörg skemmt-
• r C* * ± ' *
ir i Sigtuni
Reykjavík, 10. sept. ÞB.
Eins og áður er frá : skýrt,
eru þau hjónin Hallbjörg Bjarna-
BREZKAR ÁRÁSIR
Á INDÓNESÍU?
SINGAPORE, 12. september. —
'fNTB-Reuíeri). — Brezkar orustu
'þotur gerðu þrjár eldflaugaárásir í
‘gærkvöldi og í nótt á felustaði ind
ónesískra fallhlífarherm. á frum-
‘skógasvæðinu hjá Labis í Suður-
Rlalaya. Brezkir Gurkha-hermenn
Og malaysískir lögreglumenn leita
skæruliðanna, sem varpað var nið
Or í frumskóginn fyrir tíu dögum.
í morgun lokaði lögreglan í
Smgapore stórum hlutum innbæj
arins til að koma í veg fyrir ráð.
gerðar mótmælaaðgerðir. Sósia-
listíski Barisanaflokkurinn stend-
ur á bak við mótmælaaðgerðim-
ar og auk þess nokkur félög stúd
enta og verkamanna.
Lundúnablaðið „The Times“,
sagði í dag, að Bretar liéföu á-
kveðið að grípa til hefndarráðstaf
anna gegn hernaðarmannvirkjuin
í Indónesíu vegna yfirgangs Ind
ónesa í garð Malaysíu.
,,Times“ sagði, að alvarleg
hætta væri nú á meiriháttar átök
um í þessum heimshluta og að
Malaysíu-deildan gæti þróazt í
beina styrjpld. Blaðið segir, að
Bandaríkjamönnum hafi verið
skýrt frá fyrirhuguðum hefndar-
ráðstöfunum Breta og að Banda
ríkjamenn hafi Iagt áherzlu á al-
varlegar afleiðingar vopnaðra að
gerða gegn Indónesíu, án þess þó
að taka afstöðu til fyrirætlananna.
Sérfræðingur „Times“ í varnar
málum segir, að aðgerðir Breta
verði sama eðlis og aðgerðir
Bandaríkjamanna gegn Norður-
Víetnam í byrjun síðasta mánað
ar.
Þrátt fyrir varúðarráðstafanir
lögreglunnar kom til átaka í kín
verska bæjarhlutanum í Singa-
pore í dag.
Hvað þýðir Bresnev - fundurinn?
j-BÆÐI í fyrrasumar og í sumar
fóru fram austur í Moskvu víð-
1 tækar athuganir og viðræður um
‘fslenzka kommúnistaflokkinn,
] stefnu hans og stjórn. Smóm sam-
an mótað'ist áætlun, sem var inn-
eigluð á Bresnev-fundinum 2. sept-
embcr síðastliðinn.
Það er í fyrsta lagi athyglisvert,
að sjálfur Bresnev skyldi taka
jþetta mál í sínar hendur. Hann
ífiefur nýlega látið af störfum sem
j^orseti Sovétríkjanna til að taka
! að sér mikilvæg flokksstörf, og
: telja margir hann líklegastan eft-
um. Frásögnin i Pravda jafngildir
yfirlýsingu til kommúnistaflokka
um allan heim þess efnis, að
flokkurinn á Íslandi standi með
Moskvu. Með því að dusta rykið
af Brynjólfi Bjarnasyni og láta
liann mæta hjá Bresnev, er hinum
gömlu félögum liér heima gefin
línan. Jafnframt hefur verið hald-
ið uppi miklum áróðri fyrir mál-
stað Rússa gegn Kínverjum til að
stappa stáli í minni spámenn.
nev. Hann fær nú ekki lengur að
leika „íslenzkan sósíalista” lieldur
er hann með þessum fundi opin-
berlega settur á sama bekk og
Einar og Brynjólfur í Moskvu, þar
sem hann hefur raunar átt heima
alla tíð. ' .
Síðari greiðsla Rússa fyrir lið-
veizluna verður án efa á viðskipta-
sviði. Þjóðviljinn hefur þegar
rætt um sölu á niðurlagðri síld, en
Sovétríkin hafa hingað til ekki
jbrmann Krustjovs. Af þessu má
j#narka að Sovétstjómin telur mál-
| efni íslands þýðingarmeiri en
i 12,000 kjósendur kommúnista hér
I jgefa tilefni til.
í Svipaðir fundir hafa átt sér stað
í áður, en það er einsdæmi, að sagt
.flé opinberlega frá þeim í Pravda
j-og Þjóðviljanum. Með þeirri frá-
j flögn voru íslenzku kommúnistarn-
j ir afhjúpaðir, þar sem þeir hafa
i allt frá stofnun Sósíalistaflokks-
*«ns afneilað tengslum flokksins
i við Moskvu. Nú liafa Pravda og
, Þjóðviljinn upplýst það mál í eitt
; Skipti fyrir öll.
í
i Sovézki kommúnistaflokkurinn
' Jhefur boðað til heimsráðstefnu um
r 'deiluna við Kína og keppist víð að j
^atyrkja aðstöðu sína í þeim átök- í
4 13. sept. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Benedikt Gröndal
skrifar um helgina
Fyrir þessa liðveizlu fá íslenzk-
ir kommúnistar tvennt. Hið fyrra
er aðstoð til að leysa innanflokks-
deilurnar, sem hafa undanfarið
lamað flokkinn hér á landi. Á
flokksþinginu 1962 og flokksstjórn
arfundi 1963 voru miklar deilur
um skipulagsmál, og vildi hluti
flokksmanna leggja Sósíalista-
flokkinn niður en dubba Alþýðu-
bandalagið upp í nýjan flokk. í
þeim átökum hefur Lúðvík Jósefs-
son haft lykilaðstöðu, og því er
hann einnig kallaður fyrir Bres-
viljað kaupa hana, hvað sem verð-
ur eftir að Einar hefur talað við
Bresnev. Auk þess voru rafmagns-
verkfræðingurinn Sigurður Thor-
oddsen og fjármálasérfræðingur
flokksins, Guðmundur Hjartarson,
báðir á Moskvufundinum.
Ekki verður deilumál- um heil-
brigð viðskipti við Sovétríkin, sem
geta verið báðum aðilum hag-
kvæm. Hins vegar bendir Þjóðvilj-
inn á, að stórir viðskiptasamning-
ar við Rússa hafi aðeins tekizt,
þegar kommúnistar sátu í ríkis-
stjóm á íslandi. Virðist hér vera
á ferðinni eitt grófasta mútutil-
boð i stjórnmálum síðari ára.
Kommúnistar bjóðast til að láta
Rússa kaupa niðurlagða síld, ef
þeir fái ráðherrastóla í staðinn.
Kommúnistar eru þaulvanir
pólitískum kúvendingum. Þeir
taka ekki nærri sér að viðurkenna
nú opinberlega, að þeir hafi logið
að íslenzku þjóðinni í 30 ár, er
þeir þrættu fyrir samband sitt við
Moskvu. Þeir snúast nú svo ræki-
Iega, að jafnvel hinir voðalegu
hægrikratar, sjálfir höfuð skó-
sveinar auðvaldsins, eru allt í
einu orðnir að „sósíaldemókrat-
ískum verkalýðsflokki”! Við þökk-
um fyrir okkur.
Ekki mun Bresnev duga til að
bræða klofninginn í röðum komm-
únista. Enda þótt friðvænlegra sé
í heiminum en á verstu dögum
kálda stríðsins, er ekki þarmeð
sagt, að stuðningsmönnum Al-
þýðubandalagsins þyki æskilegt,
að stefna bandalagsins sé á svo
opinskáan hátt ákveðin austur í
Moskvu. Má búast við, að sam-
komulag á flokksþingi Sósíalista-
flokksins eða í þingflokki Alþýðu-
bandalagsins verði í haust ekki
eins gott og það var á Bresnev-
fundinum í Moskvu.
dóttir og Fischer Nilscn, nýkomin
til landsins. Þau héldu miðnætur-
skemmtun fyrir fjölda manns I
Háskólabíói í gærkveldi og var
vel fagnað. Ekki líkar þeim þó
alls kostar við þann s'.að, bæðl
mun sviðið vera of stórt og ljósa-
tækni ábó avant. Þau hafa þvi
tekið sig upp og flu zt til Sigmara
í Sigtúnum og þar munu þau
skemmta eitthvað fyrst um sinn.
Þau koma þar fram í fyrsta sinn
á laugardag. Ekki er full ákveðið
hve lengi þau munu skemmta i.
Sigtúnum.
Þau hjónin héldu í dag fund
með fréttamönnum, ásamt Sigmarl
húsráðanda í Sigtúnum. Þau hafa.
eins og áður er frá skýrt, dvalizt
um nokkra hríð vestanhafs og
skemmt þar víða. í sambandi við
Bandarikjadvölina lét Hallbjörg
þss getið, að sér fyndist talsvert
skorta á, að ísland væri kynnt þar
eins og kostur væri og taldi hún,
að auðvelt væri að bæta þar tals-
vert úr skák.
1 Sigtúnum leikur nú liljóm-
sveit Þorsteins Eiríkssonar ásamt
söngvaranum Jakobi Jónssynl.
Starfsemi hússins í vetur, mun
að Iíkindum byggjast talsvert á
einkasamkvæmum, ekki síður en
síðastliðinn vetur. Opið verður
flest eða öll kvöld meðan þau
Hallbjörg og Fischer sfeemmta
þar.
Skólabörn
Leikfimibuxur '
fyrir telpur og drengi
Sundskýlur
Sundbolir
Sundhettur
— Póstsendum —
Laugaveg 13.
s
^SÍaXaíma..
Sð